Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1960, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1960, Side 16
308 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS BRIDGE * 62 V K 10 6 ♦ A K 3 + Á D í 7 4 A K D 10 9 V A 7 5 ♦ G 9 7 * 10 5 2 N V A S A 7 V 9 8 4 2 ♦ D 10 6 42 + G 6 3 + A G 8 5 4 3 ¥ D G 3 ♦ 85 * K 8 S sagði 4 spaða og V tvöfaldaði. Svo kom út HÁ, en siðan lauf. Sá slagur var tekinn á kóng og síðan voru teknir slagir á ás og kóng í tigli, og þriðja tiglinum slegið út undir tromp. Svo var tekinn slagur á L A og láglauíi spilað undir tromp. Næst voru teknir tveir slagir á hjarta. Eftir það áttu S og V ekki annað en tromp á hendi. Nú kom tromp úr borði og lét S lág- spil í og V fékk slaginn á S 9. Hann sló út S K, en S gaf og átti svo báða slagina sem eftir voru. Grímseyarsund. Þegar Guðmundur Hólabiskup hinn góði flýði fyrir Sturlungum 1222 til Grímseyar, lenti hann í Stertu. Lét hann það þá um mælt á leiðinni út, að aldrei mundi skip farast, er sneri framstefni til eyarinnar en skut til lands, og þykir það mjög hafa gengið eftir, en hitt hefir nokkrum sinnum að borið, að þeim skipum hefir hlekkzt á, sem ætluðu til lands úr Grímsey. — (Allrahanda). Séra Björn Halldórsson í Sauðlauksdal var bæði siðavandur og refsingasamur og setti sóknarbörn sín stundum í gapastokk. Vinnumaður var þar í sókninni er Guðbrandur hét, fremur fávís. Var það eitt sinn er hann bar húsbónda sinn af skipi, er þeir I NAUTHÓLSVÍK við Skerjafjörð er sjóbaðstaður Reykvíkinga. Er þar oft margt um manninn á sumrin þegar gott er veður og sjór tekinn að hlýna. — Hér má líta fyrsta baðgestinn í Nauthólsvík á þessu vori. Nokkuð er síðan myndin var tekin og það ma sjá á piltinum að honum þykir sjórinn skrambi kaldur. — Úti á firðinum liggur oliuskipið Hamrafell, sem er stærst allra íslenzkra skipa. Það er að koma oliu í land til stöðvar Shell-félagsins, sem er skammt héðan. (Ljósm. Ól. K. Magnússon). komu úr fiskiróðri, að hann sagði þá er hann setti hann af sér, því að hon- um þótti byrðin þung: „Mikil bölvuð þyngsli eru á líkamanum á þér, Jón"! Þá er bóndi kom til kirkju næsta sunnudag á eftir, sagði hann prófasti frá þessu, en honum þóttu ummælin svo óhæfileg, að hann lét setja Guð- brand í gapastokk um messuna fyrir þetta. (Merkir íslendingar) Brún fangavörður. Arið 1785 var sendur hingað danskur fangavörður, Sigvard Bruun að nafni og kölluðu Reykvíkingar hann alltaf Brún. Hann gegndi þessu starfi ekki nema eitt ár, því að hann dó 1786. En á þessum skamma tíma hafði hann getið sér það orð að vera mesti fantur og segir þjóðsaga að hann „hafi drepið 60 fanga með harð- ýðgi“. Auðvitað hlaut honum að hefn- ast fyrir þetta. Það var því eínn dag, að hann sá að brúnn hestur var kom- inn inn á Arnarhólstún og beit þar. Ætlaði fangavörður að koma honum burt, en hesturinn sló hann þá svo fyrir brjóstið, að hann beið bana af. Enginn annar sá þann hest. Var það trú manna, að þetta hefði verið illur andi, sendur Brún til ófarnaðar. (Eftir sögn Friðriks Eggerz). Vísa. Séra Hallgrimur Pétursson var eitt sinn á ferð um Borgarfjörð og kom þar á bæ. Bóndadóttir var úti og kvað Hallgrímur við hana þessa vísu: Held eg nú í hendina á þér, hana eg fyrir mér virði; engin er sú, sem af þér ber í öllum Borgarfirði. Reynisvatn. I Reynisvatni í Mosfellssveit var upphaflega mikil silungsveiði. En svo var það, að bóndi sem þar bjó, drukkn- aði í vatninu. Dóttir hans fulltíða horfði á þetta, en gat ekki hjálpað honum. Varð henni þá svo þungt i skapi, að hún lagði á vatnið, að allur silungur í því skyldi verða að pöddum og hornsílum. Síðan hljóp hún sjálf í vökina og drukknaði þar. — (Úr hndr. í Lbs.) Þegar fuglar fá málið. Sagt er að farfuglarnir sé mállausir þegar þeir koma fyrst til landsins. Krían fær ekki mál fyr en hún hefir náð í silungs- eða laxhreistur, og hrossagaukurinn fær ekki málið fyr en hann hefir náð í merarhildar til að eta. —

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.