Lesbók Morgunblaðsins - 17.02.1963, Síða 16
BREZKA mánaðarritið World
Fishing birti nýlega þessa fróð-
legu grein um afkomu skuttog-
arans Lord Nelson, en tilraunir
Breta með þetta nýja skip hafa
vakið mikla athygli, ekki aðeins
í Bretlandi. heldur og meðal tog-
aramanna um alla Evrópu.
Fyrsta ferðin hófst 19. júlí 1961
og henni lauk 36 dögum síðar, hinn
25. ágúst, er hann landaði í Hull yfir
158 tonnum af hausuðum, frystum
fiski, í 2533 kössum (hér reiknað
óhausað) og 1834 kössum af blaut-
fiski. í níundu ferðinni sem tók 40
daga, landaði hann, 15 mánuðum
síðar, 22. okt. 1962, yfir 201 tonni af
frystum fiski og 1589 kössum af
■blautfiski, en fyrir hann _ fengust
nálega 8000 sterlingspund. í þessari
ferð hafði kassafjöldinn komizt upp
í 3123 (óhausað) af ýmissi stærð, allt
upp i 105 lbs.
Associated hefur oftsinnis lagt á
það áherzlu, að það skoði útgerð
Lord Nelsons sem hverja aðra til-
xaun, sem margt megi af læra um
xekstur frystiskipa og nýtingu afl-
ans. Skip, sem kostar allt að því
hálfa milljón sterlingspunda að
byggja og hefur daglegan rekstrar-
kostnað allt að 500 sterlingspundum.
verður að skoðast sem tilraun, sem
allur þessi iðnaður gæti óskað að
fræðast af sem allra mest.
Þessir fyrstu úthaldsmánuðir hjá
Lord Nelson voru aflarýrir á öll-
um miðum. Það má telja reglu í
togveiðum. að dýrustu skipin verða
mest fyrir barðinu á langvarandi
aflaleysi, enda þótt auðvitað se, að
skip, sem ekki þarf að leita hafnar
eftir 15 daga, sé öðruvísi sett, af-
komulega, en hin. Hlufallið milli
mikils rekstrarkostnaðar og frysti-
magns annars vegar og lítils rekstr-
arkostnaðar og þriggja vikna út-
haldshámarks hins vegar, er hag-
stætt og þangað til skip eins og
Lord Nelson kemst ' langvarandi góð-
fiski, er ekki hægt að fá yfirsýn
yfir meðaltals ábatasemi þess.
Það er eftirtektarvert, að á þessu
fimmtán mánaða tímabili, sem um
er að ræða, var skipið 353 daga á
sjó og 128 í höfn. Nokkrum sinnum
hafa komið fyrir lítilsháttar bilanir
af gasleka í frystikerfinu, en vegna
þess, að í hvert skipti varð að taka
burt plötufrystarana, til þess að
endurnýja „0“-lokurnar. leiddi þetta
til óeðlilega langra tafa í höfn. Þessi
galli hefur nú verið lagaður, og þar
sem löndunartími skipsins er áætl-
aur 5 dagar, ætti að vera hægt að
fara tíu veiðiferðir á næstu 15 mán-
uðum. Eigendurnir hafa lagt áherzlu
á, að þeir séu mjög ánægðir með
frystikerfið. plötufrystarnir hafi stað
ið sig vel og jafnvel í aflahrotu
hafa bæði vélar og mannskapur haft
undan — allt að 400 kössum á dag.
Blokkirnar hafa farið stækkandi með
hverri ferð, og hafa náð æskilegasta
þunga — 105 lbs. Það sem yrði
fram yfir þennan þunga gæti orðið
erfitt í meðförum, gæti fremur brotn
að og gæti dregið úr frystihraðan-
um í kerfinu, snertingunni við plöt-
urnar. Einn er sá erfiðleiki, sem
vont getur verið að fást við í frysti-
togurum og það er að finna aðferð
til að búa til nokkurnveginn jafn-
stórar blokkir áður en fryst er.
Blokkir úr mjög mis^tórum fiski er
erfitt að eiga við í þíðingarvélum.
um.
Skipshöfnin á Lærd Nelson var
fljót að komast upp á lagið að kasta
og draga úr skut, og því er haldið
fram, að það taki tíu mínútum
skemmri tíma að kasta eða draga
en gerist á venjulegum togurum.
En hvað er svo að segja um full-
unnu vöruna hjá Lord Nelson? í síð-
ara hluta þessarar greinar er því
lýst í smáatriðum, hvað Associated
ætlast fyrir um framtíð fisks, sem
frystur er um borð, og svo nýting-
una á afla Lord Nelsons hingað til.
Það er að koma æ betur í ljós, að
svarið liggur í því að verka þennan
sjófrysta fisk undir sérstöku gæða-
vöru-merki: „forsoðinn“ fisk, fremur
en að selja hann sem ný, blaut fisk-
flök. Það nægir að taka fram, að
það liggur beint við að tengja
og árangur
hans
veiði frystitogara við verkun-
arsmiðju. Verkunarkostnaður getur
orðið ákveðinn í sambandi vi um-
samið verð á allri frystri framleiðslu
skipsins, þannig að útsöluverð hinn-
ar fullunnu vöru geti sýnt beinlínis
kostnaðinn við veiðarnar. Enn eru
umræður meðal forráðamanna Associ
ated um, hvort sé heppilegra,
hálffrysting eða heilfrysting, en vit-
anlega liggur það í augum uppi. að
ef skipið er tengt verkunarsmiðju,
verður heilfrystingin heppilegri. —
Auðvitað mundu alltaf koma fyrir
þau tilfelli — meðan núverandi fisk-
uppboða-fyrirkomulag helzt, að hálf-
frystur fiskur mundi ná beztu verði
með þvi að sitja um góðan blaut-
fiskmarkað, en aðalmótbáran gegn
slíku skipi er erfiðleikarnir á að
fara meðalveg um gerð þess.
Að lokum er það athugandi, að'
Associated Fisheries og Marrs hafa
um langt skeið borið saman bæk-
ur sínar viðvíkjandi frystiskipum
beggja fyrirtækja og getur slík sam-
vinna ekki annað en haft gagnleg
áhrif á þennan iðnað í heild.
Associated Fisheries and Foods,
Ltd eru þeirrar trúar, að fyrirtækið
hafi stigið skref í áttina til fullkom-
innar meðferðar fisks. með því að
setja á markaðinn hraðfrystan og
forsoðinn fisk í skömmtum. Þetta
leysir ekki einasta vanda við veið-
arnar og dreifinguna, heldur hefur
árangurinn hingað til gefið til kynna,
að þessi söluaðferð muni verða fisk-
neyzlunni sú lyftistöng, sem hún hef-
ur svo mjög þarfnazt.
Hugsunin bak við þessar nýju að-
ferðir er sú, að fisksölunni ber að
selja fiskinn i sem meðfærilegastri
mynd — en það er blautur fiskur á
búðarborði ekki. Einnig telja þeir
nauðsyn vera á ákveðinni gæðaflokk-
un, sem geti bætt vöruna og aukið
söluna, og að forsoðnu skammtarnir.
í sambandi við frystingu um borð
sé eðlilegasta aðferðin til að ná því
marki.
Forsoðnu skammtarnir eru engin
nýjung. Fiskstengur eru þegar þekkt-
ar. Þegar tillit er tekið til kostnað-
arins við fiskstengurnar, þar sem
aukakostnaður leggst á við að frysta,
hræra, raspa og sjóða er eðlilegt, að
framleiðandinn vilji finna upp að-
ferðir til að framleiða bætta vöru.
Markmiðið hjá Associated Fisheri-
es var að gera forsoðinn fisk að
gæðavöru, og þetta varð framkvæm-
anlegt með tilkomu Lord Nelsons,
sem gat lagt til nægt magn af fyrsta
flokks sjófrystum fiski, sem svo var
hægt að þíða, fljótt og rækilega, með
rafmagnsvélum. Með þessu varð ekki
einungis mögulegt að selja blaut flök
af fyrsta flokki, óháð óreglubundn-
um löndunum (og 25% af afla skips-
ins hefur komizt í búðir á þennan
hátt), en það varð brátt augljóst, að
gula í flökunum, stafandi af blóð-
stöðvun við frystingu, hafði ekki
nema tæknilega þýðingu. Þegar
fiskurinn var soðinn, var hann
hreinhvítur og gæðavara. Þetta kom
í Ijós, þegar varan var boðin mat-
sölumönnum og auk þess einstakling-
um i smáum stil. Eitt af stærstu og
þekktustu matsölufyrirækjum Bret-
lands, sem hafði hingað til sjálft
verkað nýjan fisk, sneri sér að for-
soðnum skömmtum, og fleiri fóru að
dæmi þess. í einni stórri búð í
Skotlandi slógu fiskskammtarnir all-
ar aðrar tegundir af frosnum fiski
út. eingöngu vegna þess, að kaup-
endurnir girntust þá umfram annan
fisk. Einnig var kolaflökum bætt
þarna við, og seldust álika vel. Það
virtist svo sem ábatinn af sjófryst-
um fiski kæmi miklu fremur af auk-
inni sölu en af hækjcuðu verði.
Og þessi velgengnissaga er ekkert
einstök í sinni röð. Árangurinn gæti
haft víðtæk áhrif á veiðihlið iðnað-
arins, auk hinna augljósu áhrifa á
kaupskaparhliðina. Hingað til hefur
höfuðtilgangurinn með frystitogur-
um verið sá að geta haft lengra út-
hald, og sjálf frystingin notuð til
þess að jafna út ójafnan markað. Nú
orðið lita Associated Fisheries á sinn
Lord Nelson og væntanlega eftirkom-
endur hans sem fyrsta hlekk í
keðjunni milii veiðimanns og neyt-
anda. Hann getur boðið vöru, sem
hægt er. að ráða bæði gæðum
og verði. á, án þess að þurfa að
keppa á markaðinum um það topp-
verð. sem nauðsynlegt er til að
standast frystikostnaðinn.
Framtíff
heilfrystitogaranna
virffist öruggari.
Hvað smásalann snertir, þá er
honum boðin vara, sem hægt er að
selja ný-þídda,, fyrir augum kaup-
andans.
Lækkun á umbúðakostnaði getur
orðið kaupandanum hagnaður, en
smásalinn getur einnig haft vissan
og ekki óverulegan ábata af honum.
Mikil gæði og auðveld matreiðsla
ætti að auka neyzlu á fiski.
Associated Fisheries vilja halda
því fram. að þeir séu alls ekki að
koma með neinar nýjar og framand-
legar aðferðir, heldur séu þeir' aðeins
að taka matreiðsluna á fiskinum úr
höndunum á rándýru vinnuafli, þar
sem er matsalinn, og úr höndum
klaufalegrar og oft latrar húsmóður,
og koma því í hendur verksmiðju.
Og árangurinn getur orðið víðtækur.