Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1964, Blaðsíða 11
- SIGGI SIXPENSARI -
— Of mikið salt.
A erlendum bókamarkaði
Heimspeki,
sálfræði, trúarbrögð.
An ExaminaUon of Plato's Doctrines
Vol. II. I. M. Cormbie. Routledge
63s.
Fyrsta bindi pessarar bókar kom út
1962. Þetta er vandaðasta fáanlega
rit um Platón, sem út hefur komiS
á ensku, á þessari öld.
Hegel nnd die marxistische Staats-
lehre. Jakob Barion. Bonn Bouvier
1963. DM. 26.80.
Marxistisk teóría og þróun sósíölsku
lákjanna.
Geschichte der grlechischen Philo-
cophie. Frarvz Brentano. Francke
1963. DM. 35.
Fyrirlestrar haldnir í Wiirzburg og
Vín. Almennur inngangur og yfir-
Ut um griska heimspeki.
Die Religionen Atrikas. Ernst Damm
ann. Kohlhammer 1963. DM. 32.
Yíirlit og inngaogur um trúarbrögS
Afríku, höfundur fjallar eirtnig um
áorn trúarbrögS blönduS kristni og
múhammedstrú.
Phsychologisches Wörterhnch. Fr.
Itorsoh. 7. útg. Meiner 1963.
Stuttar og nákvæmar skilgreinmgar,
Kinfuhrung in die Psychologie I.
útg. Vín: Urban & Schwarzenberg
1963.
Þetta er vel þekkt rit, og byggir
eingöngu i „læknisfræSilegum"
grunni,
Creation Legend of the Ancient
Near East, S. G. F. Brandon. Hodder
& Stoughton, 35s. 1963.
Bköpunarsögur frá Egyptalandi,
Mesópótamiu, tsraei og Grikklandi.
Gagnkvæm áhrif rakin og skýrS.
Life Ahead. J. Krishnamurti.
Gollanz, 16s. 1963.
Fyrir eina tiS var Krishnamurti
dáSur ad ýmsum hérlendis. Þetta er
eíðasta rit hans.
The Futnre Evolntion of Man , . .
Sri Aurobindo. Allen and Unwin,
18s. 1963.
Úrdráttur úr rituna þessa indverska
jóga, «em var einn meS fremstu
heimspekíngiun lndverja.
Vhe ReformaUom ia England. Philip
Hughes. 5th ed. Burns and Oates.
90s. 1963.
Höfundurinn er kaþólskur, vandur
aS heimildum og hófsamur I álykt-
unum, svo rit hans er eitt helzta
heimildarrit um þetta efni.
Wörterbuch der Religioncn. 2. Aufl.
Kröners Taschenbuchausgabe Bd.
125. 1962. DM. 17.50.
Almennt uppsláttarrit um trúarbrögS
Sigmund Freud: Briefe 1909—1939.
Frankfurt a.M.: S. Fischer 1963.
DM. 12.80.
Bréfaskipti Freuds og O. Pfisters,
(sem var prestur og uppeldisfræSing
ur í Ziirich). Þar til nú höfSu menn
ekki vitaS til þessara bréfaskipta.
ASalviðfangsefni þeirra er sálgrein-
ing i sambandi viS trúarbrögS.
Die Grossen Dialcktiker des 19.
Jahrhunderts. Hegei. Kierkegaard,
Marx: Robert Heiss. Köln: Kiepen-
heuer u. Witsch. 1963. DM. 26.
HiS dialektiská form Hegels, hin
existentiella dialektik Kierkegaards
og hinn dialektiski materialismus
Marx.
Hold your Hour and Have Another.
Brendan Behan. Hutchinson 1963.
Gamanmál.
The Art of War. Sun Tzu. Oxf. Univ.
Press, 35s.
Liddell Hart segir i formála, aS
Sun Tzu jafnist á við Clausewitz i
strategíu, sögusagnir herma aS Napö
leon mikli hafi lesið þessa bók i
franskri þýSingu, en þaS er mjög
vafasöm sögn.
Skáldrit.
Literature and Criticism. H. Coom-
bes. Penguin 3s. 6d.
Þessi bók kom fyrst út 1963 og er
rituð aí innilegum bókmenntaáhuga.
English Literature 1815 — 1832.
Ian Jack. Oxf. Univ. Press, 50s.
(Oxf. Hist. of Engl. Literature Vol,
X) 1963.
The Poems of Alexander Pope.
Ed. by J. Butt. Methuen, 42s. 1963.
Bezta fáanlega útgáfan af Pope.
Sex binda Twmkenham útgáfan,
gefin út í einu bindi.
Eighteenth Century Essays on
Shakespeare. Ed. by D. Nichol
Smith. 2. ed. Oxf Univ. Press, 42s.
1963.
Fyrsta útgáfan kom út 1903. Rit-
gerSasafn 18. aldar fræðimanna um
Shakespeare.
Rilke. Eudo C. Mason. Oliver &
Boyd, 5s. 1963.
Rilke er orSinn einn spámanna ald-
arinnar, af ýmsum álitinn meiri
hugsuður en skáld. Þessa skoðun
hrekur höfundur þessa bókarkorns
af miklum læi-dómi og innlifun i
verk Rilkes.
The Hatcd One. Don Tracy. Cassell
16.
SuSurríkjasaga, kynþáttavandræði,
spilling og ótti.
Massacre. Robert Lait. Mulier, 18s.
1963.
FæSingarhríðir nýju ríkjanna i
Afriku.
Trade Wind. M. M. Kaye. Longmans,
25s. 1963.
Sagan gerist i Zanzibar á 19. öld.
Zanzibar var fræg fyrir þrælasölu,
þar gerist sagan, litauSug, grinun
og lifandi.
The Spy Who Came m from the
Cold. John Le Carré. Gollanz, 18s.
Njósnir í kalda stríSinu, ágætur
reyfari.
Fifth Planet. Fred Hoyle and
Geoffrey Hoyle. Hememann 16s.
1963.
Geimævintýri, skrifað a/ prófessor
í stjörnufræð? og syni hans.
Listir.
Die Theorie des Schönen im
Mittelalter. Assunto, Rosario. Köln:
Du Mont 1963.
Frumheimildir hafa verið notaSar
við samantekt þessarar bókar,
höfundur gerir sér far um aS fara
ekki út fyrir þann ramma, um
heimildir setja honum; vandaS rit.
Pittura Italiana. 4 Bande. Band 3:
Enzo Carli: Cinquecento . . .
Miinchen: Bruckmann 1963.
RitiS er samantekið af fremstu
listfræSingum ttala, þriðja bindið
fjallar um renesansann.
Lucas Cranach der Áltere. Köln:
Phaidon 1963.
Sá eini gömlu þýzku málaranna,
sem hefur haft greinileg áhril á
20. aldar list þýzka.
|W' fwniK'ttt ' Jóhann Hannesson:
mf .'Wy ■L :* ÆM ÞANKARÚNIk
DE ANIMA - UM SÁUNA
Umhverfis kristniboðsstöðina í Sinhwa var múr, rúmlega
þrír metrar á hæð. Handan múrsins í suðvestri var lítill graf-
reitur kínverskrar fjölskyldu. Beint á móti grafreitnum höfðu
frá upphafi verið gerð þrjú lítil „augu“ í múrinn, svo lítil að
hendi varð að vísu stungið gegnum þau, en ekki handleggnum
öllum. Fyrri landeigendur höfðu sett þau skilyrði, þegar landið
var selt, að þessum „augum“ eða götum í múrnum mætti ekki
loka, þar eð sálir hinna framliðnu þyrftu á þeim að halda til
þess að komast ferða sinna.
Af þessari einföldu staðreynd — augunum í múrnum —
mátti ýmislegt læra um sálarhugmyndir Kínverja, og m.a. sjá
hve virkar þær voru. Sálum forfeðranna var ekki gleymt, þótt
landið væri selt.
Þá gerðu Kínverjar ráð fyrir þrískiptingu sálarinnar, líkt
og Platón og Freud — þótt þeir hefðu enga hugmynd um þessa
fræðimenn. Hins vegar virtust Kínverjar ekki gera ráð fyrir því
að sálir framliðinna væru vel íþróttum búnar, þar sem þær
færu ferða sinna í hálfs annars til tveggja metra hæð frá jörðu.
Ósagt skal látið hvort þeir hefðu talið það hugsanlegt að kona
með skjóðu innan múrsins hefði getað náð sálunum í skjóðuna.
En hefði slíkt tekizt, þá hefðu þessar sálir ekki verið ánægðar
fyrr en þær hefðu aftur komizt að gröfinni, til þess að njóta
þar matar og víns frá hinum lifandi, og finna sinn rétta nætur-
stað.
I fomum hókmenntum kínverskum virðist að jafnaði vera
gert ráð fyrir tvískiptingu sálar (shen og kwei), en slík skipt-
ing er mjög algeng víða um heim. Síðar tekur við þrískipting
— og má sjá hana í leturmyndinni ling, sem þýðir andi, og
saman með hwen þýða orðin sál í lifandi líkama. Annars var sál
í lifandi likama talin hafa tíu hluta, þrjá æðri og sjö óæðri.
Ef barn veiktist með háum hita, svo að það var ekki við-
mælanlegt, eða talaði óráð, var talið að sumir hinna óæðri
sálar-parta hefðu yfirgefið líkamann og væru farnir úr barn-
inu. Fór þá móðirin út með einhverja flík, sem barnið hafði
átt, og hrópaði: „Hwei-lai, hwei-lai!“ Komið aftur, komið aftur!
Vfátti oft heyra þessi köll í kveldkyrrðinni þegar farsóttir
?engu.
Sérfræðingur í kínverskum Búddhadómi sagði í erindi, er
hann hélt um rannsóknir sínar, að fyrstu fjórar aldirnar af sögu
Búddhadóms í Kína hafi farið í það að ræða um sálina. Frá
Indlandi tóku munkarnir með sér sálarleysiskenninguna,
anatta-vada. Kínverjarnir sættu sig ekki við hana. Munkarnir
boðuðu endurlausn — og Kínverjar spurðu: Hvað endurleysist,
ef sálin er ekki til? Þegar munkarnir létu undan síga, eftir
fjórar aldir, og viðurkenndu sérleik sálar, þá loks tók Búddha-
dómur að breiðast út, hafa áhrif og móta kínverska menningu.
K.
■*-»-jarni málsins er hér ekki að skera úr um hvað rétt sé
eða rangt í þessum hugmyndum — en um þær hafa verið skrif-
aðar bækur — heldur að benda mönnum á einföld atriði. Menn
fara mjög eftir sálarhugmyndum sínum, meir en flestum öðrum
hugmyndum.
Hér á Vesturlöndum gat ekki galdrabrennuöldin orðið til
fyrr en búið var að víkja til hliðar sálarkenningum Ágústínusar
kirkjuföður og setja aðrar tízkuhugmyndir í þeirra stað, um
sálir og anda og hætti þeirra. Sumar einræðisstefnur vorrar
aldar eru aðeins framkvæmanlegar með því að drepa hug-
myndir manna um sína eigin sál og gildi hennar. Pýramídar
faraóanna í Egyptalandi eru byggðir á grundvelli sálarhug-
mynda — og þær hugmyndir hafa verið dýrar. Sjálfum finnst
oss að sál vor vaxi og eflist ef vér setjumst inn i stálhylki á
hjólum, sem ganga fyrir vél, enda sýnir það sig hve miklu betur
vér erum settir í stálhylki þessu en hylkislaus sál, sem kann að
rekast á oss eða verða á vegi vorum. Ef til vill kemst það í
tízku að vér látum jarðsetja oss í þessum stálhylkjum, svo sálin
lendi ekki í því að svífa nakin um jörðina — og viljum til
öryggis hafa þrjá glugga opna á stálhylkinu.
S. tölublað 1964.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS H