Lesbók Morgunblaðsins - 16.02.1964, Blaðsíða 13
Valentina Tereshkova
ÞRJÁ DAGA ÚTI í
Fyrstu kynni mín af flugi
voru fallhlífastökk. Það
sr til klúbbur, sem iðkar þau í Jar-
jslavl, borg skammt frá Tvfoskvu, en
þangað hafði ég flutzt, ásamt fjöl-
skyldu minni, eftir stríðið, og vann
þar í vefnaðarverksmiðju. Ég stökk
fyrst úr f^llhlíf, 21. maí 1959, og
fékk mikinn áhuga á þessari íþrótt
Eftir geimferð Jurí Gagaríns, 12.
apríl 1961, fór ég að hugsa um geim-
ferðir fyrir alvöru. Þetta nýja orð,
„geimfari“, festist í hugum okkar allra
í fallhlifaklúbbnum. Svo var það haust
ið 1961, að maður £rá Moskvu kom V
heimsókn til okkar. Hann sagði nú ekk-
ert um erindi sitt, en við höfðum það
einhvernveginn á tilfinningunni að heim
sóknin stæði í einhverju sambandi við
þetta dularfulla orð, „geimflug". Hann
átti viðræður við okkur öll. „Hverju
mynduð þið svara ef ykkur byðist tæki-
færi til enn alvarlegra fallhlífarstökks?'*
spurði hann mig. Ég man að ég svaraði:
„Eg vildi gjarna geta geíið mig alfarið
að flugi“. Svo fór hann, en við vorum
öll afskaplega spennt.
Skömmu seinna fékk ég skeyti, sem
svo hljóðaði: „KOMDU TIL MOSKVU.
ÁRÍÐANDI“. Þetta var frá nefndinni,
sem valdi geimfarana.
Ég skal játa, að þegar ég hitti fyrst
geimfarana, var ég heldur betur tauga-
óstyrk. Tveir þeirra, Gagarín og Títov
voru þegar heimsfrægar hetjur. Þeir
höfðu farið gegnum langt og mjög
tæknilegt nám. í þeirra augum voru
„mið'iflóttarúmið“ og „einverurúmið“
hversdagsleigir hlutir, en ég hafði hins
vegar aðeins fáein fallhlífarstökk til
míns ágætis.
E g hitti þá í fyrsta sinn, eftir
kvöldverð strax sama kvöldið sem ég
kom til „geimfaraborgarinnar". Sumir
voru að leika billiard en aðrir að horía
á sjónvarp. Einn var að gera teikningar.
Jafnskjótt og þeir sáu mig, komu þeir
og heilsuðu mér og leiddu mig til sætis
í þægilegum hægindastól. Eftir stutta
þögr. og svo fáein orð um daginn og veg
inn, fórum við að kynnast, og brátt var
eins og við hefðum þekkzt ævilangt.
í stórum dráttum séð var æfingakerfi
mitt mjög líkt þeirra kerfi. Það erfið-
asta fyrir mig var líkamlega áreynslan
í því, en ekki sú andlega. Ég hef alltaf
haft sterka heilsu og enginn getur sagt,
að mig skorti hugrekki. Samt var það
svo, að líkamsæfingarnar gengu aldrei
eins vel og ég hefði kosið. Sérstaklega
voru það brettisstökk og önnur stökk,
sem voru heldur léleg hjá mér. Menn
reyndu að gera lítið úr mistökum mín-
um, en ég vissi vel, að kennararnir mín-
ir töldu mig „ólíklega“ í hópi kven-sjálf
boðaliðanna.
Efég væri spurð, hverjir hafi ver-
ið merkustu viðburðir fyrir geimförina,
mundi ég segja, að það hefði verið við-
tal við aðalteiknara geimifarsins okkar,
en það viðtal fór fram eftir tvíflug
þeirra Adríans Nikolayevs og Pav-
els Popovich, sumarið 1962. „Jæja,
nú kemur til kasta ykkar stúlkn
anna“, sagði hann. „Flug Vost-
oks III og Vostoks IV hefur
sannað, ekki aðeins, að geimför okkar
geta verið lengi á lofti, heldur og að við
getum sent upp tvö eða fleiri þessara
mönnuðu geimfara í einu. Geimferðir
til annarra reikistjarna munu taka mán-
uði eða jafnvel ár. Þannig flug væri erf-
itt fyrir karlmann að fara aleinan”. Og
svo bætti hann við, hálfbrosandi: „Hon
um mundi líka leiðast, ef hann hefði
ekki samifylgd konu.“
Ég fór til brottfararstaðarins í Baik-
onur, Kasakhztan, 27. maí. Það var mjög
átakanleg reynsla fyrir mig og ég vildi
hafa móður mína hjá mér, en hún hafði
stöðugar áhyggjur af vellíðan minni.
Hún fórnaði sér algjörlega fyrir mig,
eldra bróður minn og yngri systur mina,
einkum þó eftir að faðir minn hafði fall
ið á vígvellinum, þegar hún var aðeins
27 ára gömul. Það var enginn timi til
að hitta hana í Jaroslavl, áður en ég
lagði af stað, svo að ég varð að tala við
hana í síma.
E g sagði ekki orð við hana um
geimferðina, en í staðinn sagði ég henni,
hlífaliði ríkisins, til þess að taka síðar
þátt í meistarakeppni. Hún trúði mér
ekki almennDega. Litla hugmynd haifði
hún um það, að grunur hennar yrði
staðfestur tveim vikum síðar, að kvöldi
hins 14. júní. Einu sinni, þegar ég hafði
farið heim til Jaroslavl, með bláan mar-
blett á andlitinu, sagði ég mömmu, að
ég hefði fengið hann í tveggjamanna-
stökki, og að félagi minn, Valery Byk-
ovsky, hefði óviljandi sparkað í mig.
Mamma gat ekki gleymt þessu og nótt-
ina 14. júní varð hún andvaka, þegar
hún heyrði, að Bykovsky hefði verið
skotið út í geiminn!
Brottför mín, sem varð tveim dögum
eftir að Bykovsky lagði af stað, var
æði fljótleg og spennandi. Sjálft geim-
farið va.r glæsilegt og glæsileiki þess
dró nokkuð úr stærð þess í mínum aug
um, og það var ekki fyrr en ég stóð
alveg hjá því, að ég gerði mér ljóst hve
geysistórt það var í raun og veru.
Þegar ég var komin inn í hylkið,
heyrði ég rödd Júrí Gagarins: „Máfur!
Máfur! Þetta er Dögun“, sagði hann og
spurði mig síðan, hvernig mér liði.
„Dögun, mér líður ágætlega“, svaraði
ég og það var ekki nema satt. Ég fann
að ég var fulltrúi allrar kvenþjóðar
heims. Ég var mjög hreykin.
I) rottfararmerkið var gefið kl. 9.30
eftir Greenwiohtíma.
Brottfararhávaðinn hefst með lágum
drunum, líkast þrumum í fjarska. Eld-
flaugin titraði, skellirnir urðu hærri og
meira glymjandi. Snögglega heyrði ég
mína eigin rödd kalla: „Ég er komin af
stað!“ og svo heyrði ég í útvarpstækinu
í klefanum vingjarnlega rödd „Dögun-
ar“, kalla í mig. „Eldflaugin gengur á-
gætlega og allt er í lagi. „Alla þessa
125 milljón mílna ferð var ég í stöð-
ugu loftskeytasambandi við vini mína
á jörðu niðri.
Ég fékk brátt þessa undursamlegu til-
finningu að vera þyngdarlaus. Þetta
gerist án nokkurra óþæginda. Allt í einu
finnst manni hendur og fætur manns
verða afskaplega létt og þau taka að
hreyfast, án nokkurs átaks. Og geimfar-
ið tekur mjúklega við, þegar það er
snert. Það var ánægjuleg tilhugsun, að
þeesi heljarstóra og margbrotna vél
skyldi hlýða minnstu snertingu handa
minna.
Það er ógleymanleg sjón að koma inn
í skugga jarðar. Ég sé það enn ljóslif-
andi fyrir mér og myndin ber alla regn-
bogans liti. Maður flytur sig úr einum
litnum í annan, hægt og hægt og í sömu
röð og þeir eru í litrófinu. Fyrst koma
blá strik með miklum Ijóma, fyrir aug-
un. Svo breytast þau í sterkan, rauð-
gulan lit, síðan í grænt með ofurlitlu
Tereshkova og Nikolayev skiptast á liringum við brúðkaupið á síð'asta ári, en
gifting geimfaranna var stærsti viðburður sinnar tegundar í Moskvu um langt
árabiL
Tereshkova fór 48 hringi umhverfis
jörðu og sá sólina risa 16 sinnum á dag.
gulleitu í. Næst verður himinninn svart-
ur, og maður fer að sjá stjörnurnar,
serrt virðast alveg eins og þær sjást frá
jörðu. Þær eru svo langt frá okkar reiki
stjörnu, að stærðin breytist ekkert,
ekki einu sinni þega.r horft er á þær
svona langt úti í geimnum.
M
ér þótti vænt um að vita
hann Valery, kunningja minn, í aðeins
einnar eða tveggja mílna fjarlægð. Oft
var það, þegar við komum út úr jarð-
skugganum, að við sungum ljóð um sól-
aruppkomuna, því að þessi hluti leiðar-
innar líkist mjög sólaruppkomunni á
jörðu niðri. Dökkgráar línur taka að
lýsast og breytast svo í rauðgulan lit
og skýin eru eins og ljósgrátt flauel.
Slíkri sjón sem þessari er óhugsandi að
líkja eftir niðri á jörðunni — jafnvel
ekki á kvikmyndatjaldi.
Svona var ánægjan af fyrsta ævintýri
mínu í geimnum. Ég segi fyrsta, því að
ég hef ákveðið að helga líf mitt geim-
vísindamálum. Fordæmi vina minna,
sem eru þegar giftir og fjölskyldumenn
og búa sig samt undir geimferðir til fjar
lægra reikistjarna, hafa styrkt fyrirætl-
anir mínar og tilraunir. Ég vona bara,
að mér gangi eins vel og þeim hefur
gengið.
FYRIR 100 ÁRUM
Þann 27. júlí 1863 andaðist Jón
Sigurðsson prestur að Kálfholti á 64.
aldursári, borinn að Bægisá 12. okt.
1800. Við fæðingu hans kvað þjóð-
skáldið Jón Þorláksson þessa alkunnu
visu:
Á Bægisá ytri borinn er
býsna valinn kálfur.
Vænt um þykja mundi mér,
mætti ég eiga ’ann sjálfur.
Foreldrar hans voru kölluð Sigurð-
ur nokkur Hálfdánarson og Helga
Magnúsdóttir ráðskona sr. Jóns á
Bægisá. Ólst hann þar upp og út-
skrifaðist úr Bessastaðaskóla 1826.
Hann vigðist 1830 aðstoðarprestur að
Kálfafelli í Fljótshverfi, síðar voru
honum veitt Reynisþing, seinast Kálf
holt. Jón prestur var hreinskiptinn og
vinsæll maður, þrekmenni og skáld
gott, þótt hann temdi sér það lítt.
6. tölublað 1964.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13