Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1966, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1966, Blaðsíða 14
h&fi gert klofninginn innan flokksins njeiri en hann hafi þurft að verða. Gait- skell hafi heimtað hreinar linur, lagt xnálin fyrir flokkinn eins og háskóla- kennari, sem vill fá rétt svar eða rangt, en þekkir ekki milliveginn, og gert sáttaumleitanir ógerlegar með ó- bilgirni. Um þetta segir Healey: „Fjöldi fólks er meira en reiðubúinn til þess að drýgja hór daglega, en það sama fólk mundi hins vegar berjast fram í rauðan dauðann gegn minnstu breyt- ingum á boðorðunum“. Honum finnst Gaitskell hafa knúið andstseðinga sína til þess að taka ósveigjanlega afstöðu með hinum gömlu og heilögu „boðorð- um“ flokksins, í stað þess að „lempa þá til með lagni“. Healey var einn harð- vítugasti baráttumaður flakksins um þetta leyti, en honum var þá þegar einkennilega gjarnt til að koma með særandi, persónulegar athugasemdir um andstæðinga sína. Hann heifur ekki lagt þennan ósið niður, sem hetfur bæði afiað honum lífstíðaróvina og spillt fyrir honum meðai flokksbræðra. Um líkt leyti mótaðist stefna hans í kjarnorkuvopnamálum, sem hann hef- ur síðan staðið mjög ákveðið við og af fyllstu samkvæmni. Hann einseíti sér í upphafi að horfast í augu við vand ann kalt og rólega; aðalatriðið væri að láta ekki stærð vandamálsins og hinar hræðilegu staðreyndir þess koma sér úr jafnvægi. „Grátkerlingaraus og hryllings sögur tefja fyrir því, að lausn finnist á þessu máli“, sagði hann eitt sinn. Er hann hafði kannað allar hliðar málsins af hlutlægni nokkra hríð, einbeitti hann sér að því að finna lausn á þvi hvemig hægt væri að tryggja öryggi Bretlands, koma í veg fyrir kjarnorkustríð og girða fyrir frekari útbreiðslu kjarna- vopna. Honum finnst hlægilegt, að sum- ir innan Verkamannaflokksins skuli viija, að Bretar afsali sér kjarnavopn- um einhliða, vegna þess að þau séu af hinu illa í sjá'lfu sér, án þess að taka nokkurt tillit til staðreynda alþjóða- mála eða gera minnstu tilraun til þess að hugleiða hverjar yrðu afleiðingarn- arnar, og hvemig nota mætti tilveru vopnanna sem tæki til að tryggja heimsfriðinn. Þegar Bevan var gerður að talsmanni Verkamannaflokksins í utanríkismálum árið 1056, til þess að friða vinstri menn fLokksins, var Healey gerður að aðstoð- armanni hans, til þess að friða hægri öflin. Þegar Bevan lézt, tók Healey sjálfkrafa við stanfi hans. Ári síðar var hann látinn spreyta sig á samveldis- málum, og enn siðar varð hann tals- maður flokksins í vamarmálum. Þegar Verkamannaflokkurinn komst til valda árið 1964, var hann þegar skipaður varnarmá'laráðherra, þótt álitið sé, að hann hafi viljað verða utanríkisráð- herra. SMÁSAGAN Framhald af bls. 3 hvað svo skrítinn á svipinn, þá er hún góð við mig og klappar mér og þá er allt gott aftur. Eger oftast sofnaður, þegar pabbi kemur heim, ef hann hefur farið niður í þorp. Þá talar hann stundum mjög hátt. Ég heyrí oft, að hann talar um þegar hann var í riddaraliðinu. Mamma segir: Uss, vektu ekki barnið; svo talar hann lægra. Annars talar hann aldrei um það, þegar hann var í riddaraliðinu. í það minnsta ekki við mig. Ég hef stund- um spurt hann. Þá verður hann önugur og segir mér að þegja. Pabbi er góður maður. Hann segir mér kannski stimd- um að þegja og fleira, en það er af því að hann er þreyttur. Mamma segir það. Það er snarbrattur stigi upp á loftið, þar sem pabbi malar kornið. Það hefur verið gengið svo oft upp og niður stig- ann, að þrepin eru orðin skálalöguð og þunn í miðjunni, en þykk og gljáandi í endana. Mamma sópar oft stigann. Hún segir að ég skuli ekki sitja í honum, því þá fái ég flísar í mig. Það er alltaf mik- ið ryk uppi. Ég vil helzt ekki vera þar. Ég hósta af rykinu og mér þykir óþægi- legt að fá mjelið á mig. Það fer inn í föt- in mín og það rnarrar í því og mig klæj- ar undan því. Stundum verð ég samt að vera uppi og sópa hýðinu saman í hauga og bera það niður. Við getum hvort eð er ekki talað af því að hávaðinn er svo mikill og pabbi er alltaf alveg upp við stein- ana. Annars mundi ég spyrja hann um margt sem mig langar til að vita. Mig langar líka til að segja eitthvað svo að hann brosi. Stundum gerir hann það og klappar mér á kollinn og kallar mig litla sauðinn sinn. Það er mjög gott. Þegar við borðum þá talar hann stund- um við mig. Við tölum öll saman. Ég fæ eitt glas af rauðvíni, því sama og pabbi og mamma drekka. Það er strák- ur neðan úr þorpinu, sem hjálpar pabba við þreskinguna. Hann ber upp pokana, og við hjálpumst stundum við að moka hýðinu í poka uppi. Svo fer hann með þá niður og staflar þeim á vagninn. Þeir eru seldir í svínabúinu niðri við þjóðveginn. Hann er langur, strákurinn, sem hjálpar pabba, með útstandandi eyru og asnalegur. Ég segi honum það oft af þvi að hann er leiðinlegur. Hann er alltai í fýlu og montinn. Hann hrekkir mig stundum þegar enginn sér til. Einu sinni velti ég fullum poka ofan á bakið á honum. Hann sagði, að ég hefði hrygg- brotið sig og klagaði fyrir pabba. Svo var ég skammaður. En ef ég klaga hann er ekkert sagt af því,pabbi má ekki missa hann. Það eru svo fáir sem vilja vinna svona verk, þegar þeir geta unn- ið við vínyrkjuna. Hann er alltaf í sömu fötunum. Skyrtan hangir í poka fram- an á kviðnum á honum og rassinn í bux- unum nær langt niður, næstum niðui í hnésbætur. Ég held, að hann sé heimsk- ur. Hann fer stundum með brauðið með sér niður í þorpið á kvöldin. Annars fer ég með það. Það er mjög sjaldan. Kannski einu sinni í viku. 1 mesta lagi tvisvar. Það er gaman. Kon- urnar í húsunum gefa mér stundum eitthvað gott. Stundum gefa þær mél rúsínur eða jarðarber eða hindber. Þæi eru fallegar, sumar, í sléttum og alveg hreinum fötum. Það er allskonar fólk. Hjá einni konunni er eitt herbergið með bréfi á veggjunum með myndum af alls konar blómum. Þegar ég verð stór ætla ég að setja svoleiðis bréf á veggina hér í myllunni. Ég verð nefnilega rnalari eins og pabbi. Afi var líka malari. Þeg- ar ég kem með brauðið eru krakkarnir í þorpinu oft að leika sér á götunni. Þeir hafa mjög hátt. Það er oft mikill hamagangur í þeim. Þeir reyndu nokkr- um sinnum að taka af mér brauðið. Svo var þeim bannað það. Ég leik mér stundum við þá. Mjög sjaldan. Þeir vilja oftast láta mig gera leiðinlegustu verk- in. Þeir halda alltaf hópinn og geta oft verið að leika sér. Þeir segja að ég sé druslulegur og skítugur. Það er ekki satt. Svo ég ledk mér einn við lækinn í staðinn. Þegar ég hef skilað af mér brauð- unum, þá fer ég aftur upp eftir. Stund- um þegar ég labba upp hallann er sólin að setjast bak við mylluna. Þá er him- inninn allavega á litinn eins og vanginn á mömmu við ljósið frá hlóðunum. Það er afar fallegt. FERÐAÞANKAR Framhald af bls. 8. og Vesturlandaborg fyrir þann, sem kemur frá Moskvu. Nokkur ár eru lið- in síðan ég gekk seinast eftir Nevskij, en mig minnir að það hafi aðeins verið umgerðin, sem mér virtist vestræn — innflutningsvara mikillátra keisara. Reval er þrátt fyrir allt öðru vísi farið, þar er raunverulega vestrænt umhverfi, hernumið, mengað rússneskum áhrif- um, en af okkar sauðahúsi. Þetta á ekki aðeins við um hin fornlegu Hansa- hverfi, það á líka við um fólkið, kurt- eisi þjónustufólksins og hvernig konurn- ar reyna að klæðast. Maður reikar trega- fullur um listiðnaðarsafnið í Kadriorg (áður Katharinental) og virðir fyrir sér hinn norræna smekk, sem birtist í röggvafeldum og leirmunum. Og rússneku áhrifin? í stuttri heim- sókn verður maður að láta sér nægja ónákvæmar upplýsingar. Hér sem ann- ars staðar í hinu víðlenda ríki eru stat- istík og tölur ríkisleyndarmál eða lygi. Hversu margir Rússar búa nú í Reval? Enginn, sem maður spyr, virðist vita það. Svörin, sem ég fæ, spanna bilið frá 15 til 20 af hundraði .... Eistlending- ur einn, sem ætti að hafa nokkur skil- yrði til að mynda sér skoðun um þetta atriði, taldi, að nokkru minna en helm- ingur íbúa Reval væri Rússar. Það virð- ist sennilegt. Börnin læra rússnesku í skólanum, allt frá því í fyrsta bekk. En ef ég segi, að öll börn, sem ég hitti uppi á Dómkirkjuhæðinni, hafi talað rúss- nesku sín á milli — sem þau reyndar gerðu — gefur það þó einungis til kynna, að þau kunna málið. í eist- neska sovétlýðveldinu eru nú sagðir vera 1300.000 ífoúar, þar af um það bil 300.000 heimilisfastir Rússar. Fjöldi Eist- lendinga hefur komið heim aftur úr út- legð í vinnufoúðum — en hversu marg- ir? Næst á eftir hinni rússnesku áhrifa- mótun virðist húsnæðisskorturinn vera það, sem Eistlendingum fellur þyngst. Óánægja brýzt meira að segja fram í samræðum leiðsögumanna. Það er sagt, að Eistlendingar geti þurft að bíða eft- ir íbúð í tíu ár, Rússar í tvær vikur . . . Skemmtanalífið blómstrar að sjálf- sögðu; tónleikatímabilið, sem er í þann veginn að hefjast, verður fjölbreytt eft- ir auglýsingunum að dæma. Veitinga- húsin eru vel sótt, kampavínið frá Krím- skaga fyllir glösin, rauðum styrjuhrogn- um er skolað niður með Viro valge milli lettnesks jenka og tékknesks foxtrots. Kunningi minn, sem oft hefur" dvalizt austantjalds, segist einhvern tíma hafa dreypt á margra stjarna kinversku kon- íaki — það minnti á Chanel 5. En ég fann það ekki í Tallinn, kannski er það orðið óæskilegt af pólitískum ástæðum. Kaffihúsin eru næstum jafnmörg og áður, í gömlu Reval voru kaffihúsaset- ur ástríða, allt frá því er Alfonso nokk- ur Tellado, spænskur að kyni, innleiddi þennan bílífissið. Fyrsta kaffihúsið var opnað árið 1702. En ég leitaði árangurs- laust að frönsku og ensku blöðunum, sem ég var vanur að lesa með kaffinu nokkru síðar í veraldarsögunni. Þegar ég kom aftur til Helsingfors, hitti ég kunningja minn einn, sem er mjög hlynntur Rússum. „Nú já, svo að þú varst þar bara þrjá daga“, sagði hann fussandi og lét sér fátt um finnast. „Þá hefurðu ekki haft tíma til að sjá neitt..“. Sem sagt, ekki trúverðugt vitni. Hversu blindur og minnislaus halda þessir fugl- ar að maður sé? Geðfelldasti þátturinn í fari nú- verandi valdhafa Eistlands er áhugi þeirra á gömlum minjum. Hinum sögu- legu hverfum er haldið við af alúð og þekkingu. Skjaldarmerki gömlu sænsku barónanna í dómkirkjunni eru máluð að nýju í réttum litum. Grafletursskildir með andlitsmyndum þeirra prýða súl- urnar á ný, þungbúin andlit með snúið yfirskegg. í kórnum stendur silfruð kista með blómum umhverfis, í hliðarkap- ellunni önnur — útför á morgun. Kirkju vörðurinn skýrir frá því hvíslandi, að söfnuðurinn telji sextán hundruð með- limi, „flest gamalt fólk“. Söfnuðurinn er svo fátækur, að hann hefur varla ráð á að kveikja rafljósin við messur, að því er mér var sagt annars staðar. I þess- ari kirkju sefur stórveldistími Svíþjóð- ar. Skóhljóð rússneskra ferðamanna kveður við undir hvelfingunum milli lútherskra kirkjubekkja og hinna ólýð- ræðislegu dýra skjaldarmerkjanna. St. Nikulásarkirkjan (Niguliste) er verr komin. í marz 1944 varð Tallinn fyrir rússneskri sprengjuárás, sem olli mikilli eyðileggingu. Sagt er, að þýzkir herforingjar hafi haft aðsetur í hinu fræga hóteli Kuld Lövi (Gullna ljón- ið). Sprengjuflugvélarnar ruddu breiða rústagötu þvert í gegnum borgina frá Kuld Lövi niður að Estonialeikhúsinu — það hús hefur verið endurbyggt í nákvæmlega sömu mynd og fyrr. Niku- lásarkirkjan með óviðjafnanlegum bar- okk-búnaði sínum, brann. Unnið er að endurbyggingu hennar, en fallegan turn- hettan frá sænska tímanum varð eldin- um að bráð. He-ilagsandakirkjan, Púhav- aimu, er sama gotneska perlan og fyrr- um. Barokk-úrið fræga hefur verið hreinsað af óhreinindum margra ára- tuga og tifar nú glaðlega að nýju. Og sænska Mikjálskirkjan neðan við Kiek — inde — kök er sögð vera notuð sem æfingasalur fyrir glímumenn, alveg eins og áður. Bogagöngin undir Ráðhúsinu hafa verið grafin upp, og litlu, snotru safni hefur verið komið fyrir á neðstu hæðinni. Stóra gildishúsið er líka safn, þar sem áherzla er lögð á minjar um byltinguna. Það er forvitnilegt, einnig fyrir sannfærðan hvítliða, að kynnast trúarbaráttu og goðsögnum andstæðing- anna. Því miður er safnið harla graut- arlegt. En það hefur að geyma verð- mætar minjar frá dimmum ánauðar- öldum. Hinn marxísk-leniníski talsmáti er stundum gæddur töfrum fáránleik- ans, maður les áróðursvígorðin um ill- mennsku „lénshöfðingja.nna“ með :iimu ánægju og lýsingar á hrekkjabrögð- um vondra stráka í ævintýrum. Orðalag- ið er keimlíkt. ýzku Baltarnir eru á bak og burt. Hver og einn er frjáls að því að segja nokkurn veginn hvað sem er um þá, og þegar allir hrækja á sama steininn, verður hann fljótt blautur. Víst er það margt, sem þeir áttu sök á — bænda- ánauðin, jarðeigna-skipulagið, þýzki hrokinn. Sagnfræðinni má þar að auki rangsnúa eftir hentugleikum, skringi- leg dæmi slíks er að finna í nýút- komnum bókum um sænska tímabilið. En það voru þrátt fyrir allt afkomend- ur Hansakaupmannanna og barónanna, sem sköpuðu gömlu Reval, og mikið af því, sem gaf henni sína sérkennilegu töfra, átti rót sína að rekja til þessara eftirlegukinda, sem voru heimsborgar- ar að hálfu, óðalsbændur að hálfu. Nú eru þeir dreifðir víðsvegar um heim, mest um Vestur-Þýzkaland, þar sem þessir gömlu herramenn bollaleggja í tímaritum sínum um arfskipti á Ey- sýslu í Napoleonsstyrjöldunum og önn- ur mikilvæg efni. Fólk frá Voronesh og Tjeljabinsk hefur flutzt í spjallaðar ibúðir þýzku Baltanna á Dómkirkjuhæð- ínni og staflar nú brenni til vetrarins, þar sem uppstrammaður þjónn aðals- frökenanna von Tiesenhausen rakaði gangstíginn í eina tíð. T íminn er ekki sérlega meðfæri- legur gripur. Hann vill skreppa úr hönd- imum á manni. Þegar ég stóð fyrir nokkrum dögum við gamla dóm'kirkju- skólann og horfði inn í húsagarðinn, sá ég að reynirinn var þar enn, dálitlar sprungur í berkinum að vísu, en hvað eru þrjátíu ár í ævi reynitrés? Það hafði gildnað ögn, og skugginn er enn þá dýpri, sem fellur í gluggaskotið, þar sem ég var vanur að standa og raka mig með rakbollann í hendinni tæra septembermorgna. Ég vona, að gömlu Frau von S. — H. hafi hlotnazt mildur ellidauði, áður en stálvöndurinn sópaði 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3. apríl 1966

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.