Lesbók Morgunblaðsins - 27.11.1966, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 27.11.1966, Síða 4
ESiir Björn Þorsleinsson Leiðir og samgöngutœki Aðalsamgöngutæki forfeðra okk- ar voru hestar, postularnir og skip og bátar allt fram á þessa öld. Þessa verður greinilega vart í örnefnum. Fjöldi örnefna um allt land eru kennd við brýr, brautir, götur, vegi, leiðir og vöð, en þar hafa menn lagt um aldir leiðir sinar um landið. Eyfirðinga- vegur liggur norðan Hofsjökuls á Kjal- veg, en Skagfirðingavegur um Stóra- stöðvar við ströndina. Örnefni vitna um forna stjórnskipan: Þingvöllur, I'ing- skálar, Þingey, Þinghóll, Mannamóta- flöt o. s. frv. Um refsiréttinn vitna Hangahamrar, Gálgaklettar, Aftökugil og Brennugjá, og ótal mörg önnur. Að fornu komu menn ekki einungis saman til þess að sitja yfir lögmálsþrætum og refsa sakamönnum. Fangbrekka og Leik skálar minna á það, að þeir stunduðu íþróttir og áttu sér jafnvel skála til Hér finnast varla nokkur ömefni dregin af heitum vagna eða farar- tækja á hjólum. Að vísu erVagn- brekka norður í Mývatnssveit, en bærinn mun kenndur við mann, sem hét Vagn. Hins vegar áttu þeir talsvert af sleðum, eins og sleða- ömefnin gefa til kynna: Sleðaás, jSleðbrjótur o. s. frv. Þeir stund- uðu sjósókn og siglingar, og víða um land eru hólar, sem kenndir eru við skip. Oft mun nafngiftin tilorð- in af því að Skipholtið líktist skipi á hvolfi. Síðan hafa stundum mynd- ast sagnir um að, að skip sé grafið í hólnum. Knörr var eitt helzta ís- landsfarið, hafskipið, á miðöldum. Hér em bæir kenndir við þann far- kost. Knörr er bær á Snæfellsnesi og Knarrarberg í Öngulsstaðahreppi í Eyjafirði, en auk þess eru til nöfn eins og Knarrarhöfn og Knarrarnes og fleiri sömu ættar. Eflaust m-un nafngiftin til orðin, af því að eitt- hvað í landslaginu, hamrar eða fell, líkjast hinum fomu knörrum. Þetta eiga að hafa verið hnarreist skip (þ.e. knarreist). Ein kvenhetja ís- lendingasagna nefnist Þorbjörg knarrarbringa, og var hún Gils- dóttir skeiðarnefs. Sú hefur senni- lega verið allbarmfögur, en nefið á föður hennar hefur tæpast verið jafn aðlaðandi. Hér við Reykjavík eru Elliðaár, EIl- iðavatn og Elliðaárvogur, og eiga öll nöfnin að vera dregin Eif skipsheitinu Elliða, en því stýrði Ketilbjörn gamli, sem land nam á Mosfelli í Grímsnesi. Skip með þessu nafni kom furðuoft fyrir í fornum sögum. Hrynja háar bárur, haug verpa svanteigar nú er Elliði orpinn í örðugri báru. Svo segir í Friðþjófssögu. Elliðanafn- ið birtist alloft í örnefnum: Elliðaey er bæði á Breiðafirði og við Vestmanna- eyjar og Elliði var bær á Snæfellsnesi, og fleiri Elliðanöfn eru til á landinu Sennilega munu staðirnir, sem þau prýða hafa eitthvert svipmót af skipL Nökkvi er skipsheiti í þulum fornum og víðar í skáldskap. í þjóðsögum er þess oft getið, að tröll rói á nökkva jafnvel úr steini, og standa slík tröllaskip sums Staðar uppi á þurru landi eins og t.d. í Nökkvabrekku í Mývatnssveit og fleira leynist víða af líkum toga spunnið. Fjarða grein sand niður með Norðlingafljóti í Hvít- ársíðu. Á Tvídægru voru menn tvö dæg- ur milli byggða. Brautarholt er á Kjalar- nesi, en um það hafa Hofverjar eflaust rutt braut út yfir nesið til sjávar. Ak- braut er í Holtum við Þjórsá hjá Ár- nesi. Þar var mikill þingstaður í eina tíð og þar hefur þjóðbraut legið. Hrís- brú er forn jörð í Mosfellsdal, en menn brúuðu víða keldur og svakka í gamla daga með því að bera í þá hrís og tyrfa yfir. Þá voru trébrýr byggðar yfir fall- vötn, eins og örnefni og aðrar heimild- ir sanna: yfir Hvítá í Borgarfirði hjá Brúarreykjum, Jökulsá í Hlíð hjá Brú, Brúar er örnefni á Laxá í Þingeyjar- sýslu (sbr. Brúarvirkjunin), og Brúará í Biskupstungum og mörg önnur ör- nefni vitna um forna brúargerð. — Þótt menn fengjust nokkuð við brúarsmíði þegar á þjóðveldisöld, þá urðu þeir löng um að vaða árnar eða ríða þær á vöð- um. Vaðará er á Mýrum eystra; það er hin væða á, en menn virðast hafa orðið að skeiða yfir Skeiðará. Vakrir hafa gæðingarnir eflaust runnum um Skeið- in í Árnessýslu milli Þjórsár og Hvítár. Þar er bæði Skeiðháholt og Hlemmiskeið, en um þau hafa menn skeiðað á þing- staðina að Árnesi og Áshildarmýri, en álfarnir um Álfaskeið í Hreppum. í flestum héruðum landsins eru örnefni kennd til leiða, leiðmóta eða haustþinga, sem menn héldu upphaflega á heimleið af aiþingi. Þannig er Leiðarhólmur í Dölum, Leiðarhóll í Reykjadal, Leiðar- nes í Fnjóskadal og Leiðveiiir víða um land. Sfiórnskipan og samkomur Höfuðleiðir manna lágu á Þingvöll, að Skálholti, til Hóla og í kaupstaði og ver- slíkra iðkana. Kaupangur er bær í Eyjafirði og Fest- arklettur neðan túns drjúgan spöl frá sjó. Þar hefur verið verzlunarhöfn í eina tíð, en Eyjafjarðará hefur verið allið- in við það að hlaða óshólmum í fjarð- arbotninn. Þá er Hlaðhamar í botni Hval fjarðar. Þar munu skip hafa verið hlað- in í eina tíð, og mörg önnur örnefni á strönd landsins minna á fornar verzl- unarhafnir. Nöfn á miðum og leiðum með strönd- um fram eru gríðar mörg og merkileg, en hér verður einungis steytt á skerjum að sinni. Sker eru ekki einungis klettar í sjó og flæðisker, heldur ennig tindar, sem skaga upp úr jöklum og heiðum, og nefnast þau fyrirbrigði nunatök á grænlenzku. Þannig tala Skaftfellingar um sker og skersl á Vatnajökli. — Maður hét Gunnbjörn Úlfsson. Hann hrakti vestur um ísland á land- námsöld og sá þar land, sem síðan var við hann kennt um skeið og nefnt Gunn- bjarnarsker. Þetta land hlaut síðar nafn 3ð Grænland. Menn hefur löngum furð- að sig á nafngiftinni Gunnbjarnarsker. Þótt Grænland sé ekki réttnefni á jökul- eyjunni miklu, þá er það auðvitað hrein fjarstæða og fyndni að kenna hana til skerja; margur sæfarinn hefur a.m.k. steytt á minna skeri en stærstu eyju heims. Milli Vestfjarða og Grænlands eru ein ungis 287 km. þar sem skemmst er; þar er grænlenzka ströndin hálend mjög og nefnist Blosseville Kyst; um og yfir 2000 m háir tindar skaga þar upp úr gríðarlegum skriðjöklum. Ef það er forn íslenzka að nefna nunataka sker, þá getur að líta stórkostlegasta skerja- garð í heimi á Blosseville-ströndinni. Þar væru þá fundin skerin hans Gunn- bjarnar gamla, en ýmsar aðrar skýr- ingar á nafninu koma auðvitað til greina, þótt þessi þyki mér sennilegust. Eyfirðingavegur norðan Hofsjökuls. Afvinnu- og hyggSarsaga A tvinnusaga fslendinga um aldir er örnefnum skráð um allt land. Hvar- vetna er fjöldi örnefna kenndur til sauða og lamba: Sauðafell, Sauðhagar, Lamba- tungur, Lambhagar o. s. frv. Þá vitnar fjöldi örnefna um það, að geita- og svína rækt hefur verið hér allmikil fyrr á öldum: Hafursfell og Hafratindar, Geita hlíð, Kiðagil, Svínahraun, Grísanes o. s. frv. Sýnu færri nöfn virðast kennd við nautgripi, en fæst til hrossa. Af slík- um nöfnum kannast flestir við Kýr- og Kálfholt, Nauthaga, Nautavað, Bolabás, Hestfjall, Hest og Kaplaskjól. Hér skal engum getum leitt að því, hvort tíðni kvikfjárnafna í örnefnum gefur til kynna hlutfall milli einstakra greina bú- peningsins á fyrsta skeiði landsbyggðar- innar. Ef svo væri, þá hafa landnáms- menn haft fá hross út með sér í árdaga og stofninn gengið heldur seint fram. Hinsvegar hefur hesturinn löngum verið stolt og yndi eigenda sinna. Örnefni eins og Hestaþingshamar vitna um forna skemmtun manna, hestaötin eða hesta- þingin, sem hér voru háð fram á 17. old. — Hundar hafa löngum verið lítils- metnir hér á landi, þótt nauðsynlegir væru, en hundaþúfurnar vitna um fjölda þeirra. Þær teljast ekki einu sinni til örnefna, heldur eru samnefni á sérstakri tegund þúfna. Kettir eru þau húsdýr, sem sennilega sér sízt staði í örnefnum. Þó eru til í íslenzku landslagi bæði Kattarhryggir og Kattarnef, og af þeim mætti helzt ráða, að hér hafi tímgazt sérstakt mjóhryggjað og trýnisbratt kattakyn. — Forfeður okkar stunduöu alifuglarækt, eins og frægt er í sög- um. Hér eru bæði Ilanatún og Hana- kambur í Eyjafirði, Hænuvík og Hæna vestra, Gásahús austur í Holtum, en Ali- fiskalækur í Berufirði gefur til kynna að fiskirækt sé eklti ný af nálinni hér á landi. Engjar, tún, hagar, akrar, kolgrafir, skýli ferstiklur og sel gefa til kynna með hverjum hætti menn nýttu landið að fornu og nýju. Akranöfn eru ótrúlega mörg miðað við staðhætti og sanna, að menn hafa reynt akuryrkju allt frá Vest mannaeyjum til Grímseyjar norður. — Þessi nöfn eru m.a. Akrar, Ekrur, Garð- ar, sbr. einnig Bygggarður, Gerði, sbr. Akurgerði og Þrælsgerði, Rein, Tröð (akurtröð). Menn stunduðu á sáðskipti og lögðu akurinn í tröð öðru hverju. Sviðnur og Sviðholt gefa til kynna að þar hafi land verið sviðið til ræktunar, og ýmis önnur örnefni vitna um forna jarðrækt. Norðan Holtavörðu- og Lóns- heiðar hefur akuryrkja lagzt niður snemma á öldum, sennilega með skjóli skógarins á 11. öld. Kornið var malað i handsnúnum steinkvörnum, sem oftast voru úr íslenzku grjóti. Kvarnatök voru á ýmsum stöðum, sbr. bæjarnafnið Kvar grjót, nú Kveingrjót í Dalasýslu og Kvarnavegur á Geitlandi. Kolgrafarfjörður og Kolviðarhóll og mörg önnur kolanöfn minna á forna kolagerð. Menn brenndu við til kola, fóru í kolskóg, og unnu járn úr mýrar- rauða með rauðablæstri, eins og kunn- ugt er. Rauða-nöfn eru allmörg, eins og Rauðalækur og Rauðavatn. Búsmala var mjög haldið til beitar, og skýli hlaðin í úthögum fénaði til skjóls, þar sem berangur var. Þannig eru Skýlisrimar á mýrum í Holtum, og kemur þar m.a. fram örnefnið Fer- stikla, en svo nefnist sérstök tegund skjólgarða ætluð stórgripum. Ferstiklu- garðarnir hafa verið krosshlaðnir eða svipað að nokkru til biðskýla á leiðum strætisvagna höfuðstaðarins. Þá hlóðu menn einnig búsmalanum borgir, eina og áður getur, og höfðu hann í seljum á sumrin. Framhald á bls. 6 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 27. nóvember 1966

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.