Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1971, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1971, Síða 11
Götulýsing hófst í Reykjavík 1876 og til marks um menn- ingarástandið má nefna að götuljósin voru flest brotin fyrsta kvöldið og það voru hvorki börn né unglingar, sem það gerðu. ngi sínum. Verst af öllum þess im kotum var eitt, sem lá norð- in og neðan við Vesturgötu. í igningum rann því allt vatn íiður og inn í gönginn, svo þau ^oru oft upp í ökla; göngin til ítofunnar voru svo lág, að ;kki var hægt að ganga upp éttur, velvöxnum manni; fluggi á henni upp að götunni rar svo lítill, að fullorðinn naður hefði tæplega komizt >ar út, ef á hefði þurft að íalda. Eldhúsið var fyrir enda jangsins, og var alltaf fullt af •eyk, svo að súrnaði í augum, aeim sem inn komu. Samt varð íúsfreyjan í þessu koti á þessu rímabili og lengur, áttræð eða re 1 það, og sýnir það bezt, ívað heilsugott sumt eldra ’ólkið var, þótt við eymdar- kjör ætti að búa. Stéttamunur var þá miklu neiri og strangari <=n nú. Emb- Bttismenn og kaupmenn, að ninnsta kosti þeir helztu, íéldu saman, og þágu boð og læizlur hver hjá öðrum, en all- r aðrir voru útilokaðir. Hjá íinum, handiðnaðarmönnum og jómthúsmönnum, var víst litið um samkvæmislíf, nema á jól- .im og gamlárskvöld. Verzlun- arstéttin hélt fast saman, eink- Jm að því er vöruverð snerti, t>æði á útlendri, og ekki siður í innlendri vöru. Hún var þá eina stéttin, sem hafði samtök sín á milli. Verkamönnum og daglaunamönnum hefir þá naumlega komið til hugar, að þeir ættu að bindast samtökum um kaupgjaldskröfur, enda myndu þeir þá alls ekki hafa komizt neitt áleiðis í þá átt, því að þeir voru allir skuldugir kaupmanninum og honum háð- ir, en hann skapaði þeim kaup- ið alveg eftir eigin vild, og það var smánarlega lágt, einkurn kaup kvenfólksins, sem gekk í eyrarvinnu. Þ>á var miðað við dagkaup, en ekki tímakaup, og vinnutiminn langur, venjulega frá kl. 6 til 8 eða 14 tímar á dag, án matarhlés, því að verkafólkinu var færður mat- ur, sem það svo gleypti í sig. En þar við bættist að vinnan var þá næsta stopul, aðeins þá er skip voru fermd eða af- fermd. Jafnaðarstefnan var þó þá farin að ryðja sér talsvert til rúms í útlöndum, og verkföll þar orðin alltíðkanleg. 1 raun- inni er það furðanlegt, hve seint þessi stefna fór að gera vart við sig hér á landi og á það vafalaust rót sína að rekja til þeirrar kúgunar, sem al- þýðan hafði átt við að búa hátt á 3. öld af hendi verzlunarein- okunarinnar. Menjar hennar sáust langt fram á 19. öldina. Verzlun var þá gríðarmikil í Reykjavík, því að þangað sóttu Mýramenn, Borgfirð- ingar, Árnesingar og Rangæ- ingar, þótt þá væri talsverð verzlun á Eyrarbakka, og jafn vel Mýrdælingar, auk nær- sveitamanna. I búðunum var þá verzlað með alla hluti milli himins og jarðar, því að þá voru engar sérverzlanir. Dag- lega var ekki mikið að gera í búðunum, þó að þær væru oft fullar af fólki, því að þær voru þá nokkurs konar sam- komustaður fyrir almenning, en á sumum tímum var afar- mikið að gera: i vertiðarbyrj- un, mánaðamótin janúar og febrúar, þá komu sjómenn að hvaðanæva og þurftu að taka út til vertíðarinnar, um lokin, þá var venjulega mikið fyllirí og ólæti, sömuleiðis urn Jóns- messu leytið, um lestirnar, sem stóðu htest frá 5.—15. júlí, og um haustið í sláturstiðinni. Um lestatímann var mest að gera, þá var líf og fjör í bæn- um, ómögulegt að þverfóta fyr- ir þröng í búðunum, bæði fyr- ir innan borðið og utan; ill- mögulegt að komast áfram í Hafnarstræti fyrir hestaþvögu og krökkt af tjöldum á Aust- urvelli. Hann var þá með dæld um og smáhæðum á milli, en var lagaður og sléttaður 1875, er Thorvaldsenslíkneskið var reist. 1 tjöldunum var oft kátt á kvöldin og háreysti þvi að þá var brennivín falt í hverri búð. Margir ferðamenn tjöld- uðu líka í Fossvogi, enda voru þeir þar nær hestum sínum. Reykjavíkurdrengir gættu hestanna og fengu ákveðna borgun fyrir hvern hest um sólarhringinn, og höfðu margir drjúgan skilding upp úr þvi. Æði mikið var þá fiutt hing- að til bæjarins af nautum til slátrunar. Keyptu kaupmenn þau, og var þá sendur kjötlisti út um bæinn, svo að menn gætu skrifað sig fyrir svo og svo mörgum pundum af kjöti. Var oft skrifað á dönsku á list ann af kaupendum, þótt is- lenzkir væru, t. a. m. 10 pd. Höjreb, 8 pd. Mörbrad o. s. frv. Efnaminna fólkið sældist aðallega eftir slaginu, þvi það var beinlaus biti. Ef tiltækilegt þótti að slátra nautinu eftir undirtektunum, var það drepið, stungið eða svæft, eins og það var kallað. Ef undirtektirnar voru daufar, var beðið betri tima. Kjötið var síðan borið út og oft rekið aftur. Nokkrum dögum síðar var borinn út rukkunarlisti, svo að það fylgdi talsvert umstang svona slátrun, en á annan hátt var ekki hægt að fá nautakjöt þá. Á haustin var miklu slátrað af sauðfé, það var skorið og aðal- lega á almenningsfæri, fram- an í öllum. Var krökkt af krökkum og hundum þar á blóðvellinum, og lítið hreinlæti viðhaft af slátrurunum. Iðnaðarmannastéttin var all fjölmenn, margir timburmenn og snikkarar, járnsmiðir, gull- og silfursmiðir, en fátt um steinhöggvara og múrara; fátt var sömuleiðis um skósmiði, enda gekk allur almenningur þá á íslenzkum skóm eða kloss- um, sem flutt var mikið af hingað, en nálega enginn ann- ar skófatnaður. Margir af iðn- aðarmönnum þá, voru vel efn- aðir menn og þvi mikils metnir borgarar, og skulu nokkrir þeirra nefndir hér: Jakob snikkari Sveinsson, Einar snikkari Jónsson, alltaf kallaður „Spillemand", því að hann spilaði á fíólin, Egill bók bindari Jónsson, Björn járn smiður Hjaltested, Einar prent- ari Þórðarson og ýmsir fleiri. Þeir mynduðu félagsskap um þessar mundir (1873), og stofn uðu Iðnaðarmannafélagið, sem enn er til í fullum blóma. Fé- lagið var stofnað aðallega í þvi skyni að mennta og efla stéttina, og hélt það í þvi skyni sunnudagaskóla fyrir unga nemendur. Verzlunar- menn höfðu einnig félagsskap með sér, og stofnuðu 14. des- ember 1869 styrktar- og sjúkra sjóð verzlunarmanna, og var H. Th. A. Thomsen einn af að- alstofnendunum. Sjóðurinn er enn starfandi. Ailiur þorri bæjarbúa var, eins og þeir voru þá nefndir, tómthúsmenn, þ. e. sjómenn og verkamenn. Þá atvinnu stund- uðu þeir jöfnum höndum; jafn- vel góðir formenn stunduðu al- genga vinnu, þegar því var að skipta. Vinna við affermingu skipa og fermingu var kölluð eyrarvinna, eða að ganga á eyr inni. Það var ekki létt vinna. Öll kornvara, kol og salt var borið í pokum á bakinu, eða öllu heldur á höfðinu, en önn- ur vara á börum. Þegar nú lit- ið er til þessa, hins langa vinnutíma og hins lága kaups, þá er það auðsætt, að hér var ekki um neina sérlega eftir- sóknarverða vinnu að ræða, en samt er það víst, að marg- ar stúlkur, einkum þær sem voru orðnar rosknar og farn- ar að missa von um giftingu, réðu sig ekki í vist, nema með því skilyrði fyrir vistráðning- unni, að þær fengju að fara í Kollafjarðarrétt um haustið. Þar var venjulega mjög sukk- samt, og voru hestar pantaðir til þeirrar ferðar dögum eða jafnvel vikum áður. Vinnu- konukaupið var þá 35 krón- ur árlega, auk einhverra fata, eftir nánari samningi, og vinnumannskaupið helmingi 3. mai 1971 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.