Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1971, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1971, Side 12
hærra, cða vel það, en þá voru lika allar nauðsynjar margfalt ódýrari en nú, og um fram allt, kröfurnar tii aiira lífsþæginda voru sama sem engar. Eyrarvinnan var mjög stop- ul. Mest allar vörur fluttust þá hingað á vorin með seglskip- um, en fóru aftur síöla sumars og voru höfð til spekuiants- túra um sumarið. Póstgufu- skipaferðir voru þá einar 6 milli landa. Sumarvinnan hér í bæ að meðtaldri ýmis konar aukavinnu, sem til kunni að faila, svo sem mótekju, heim- reiðslu o. s. frv., var því hvergi nærri einhlít til framfæris heilli fjölskyldu, það var því algengt að margir daglauna- menn fóru i kaupavinnu um sumarið. Allir eða flestir stunduðu þá sjó jafnframt, og það var sjórinn, sem aliur þorri hæjarbúa lifði aðallega á. Um innivinnu mun ekki hafa verið að ræða að neinum mun, nema hvað konur urðu auðvit- að að gegna daglegum störfum, sauma, bæta, gera á fæturna o. s. frv. Þá var enginn skradd ari i bænum, en margar sauma- konur, sem flestar áttu við íreanur þröngan kost að búa. Þegar lýsa skal matarhæfi bæjarbúa, þá verður aðaliega miðað við dagiegan kost alþýð- unnar, því að höíðingjarn- ir munu hafa haft líka fæðu og þeir hafa nú, nema allt var þó óbrotnara en nú. Aðalfæða alþýðunnar var þá grautur og íiskur. Það var vatnsgrautur, oftast óbættur, eða þá með súr- mj'ölk út á, undanrenningu eða sírópi. Fiskur var alltaf borð- aður, þegar hans var kostur, soðinn, aldrei steiktur, með floti og kartöflum, væri þetta til. Ailt var notað, haus og lif- ur, kútmagar og hrogn. Oft var troðið mjöii i kútmagana, og hétu þá mjölmagar. Hrogn- um var hnoðað saman við mjöl- deig, og búnar úr kökur, er svo voru soðnar, soðkökur. Ef eigi var nýr íiskur til, þá var hann etinn, siginn eða úldinn. Harður fiskur var sjaldgæfur réttur á borði fátæklinganna. Á vorin var rauðmagi eðiilega aðalfæða efnamanna, en aiþýð- an varð að láta sér nægja grá- sleppuna, einkum eftir að hún var orðin sigin. Venjulega var borðað þrímælt, morgunverður um kl. 10, blautfiskur eða brauð, og kaffi á eftir; miðdag- ur kl. 3, það sem fyrir hendi var, þorskhausar, brauðbiti, og kl. 7 grauturinn eða kjötsúpa, þar sem efni voru til, oftast einu sinni eða tvisvar á viku, meðan kjötið entist. Þetta var aðalmáltíðin, og brátt að henni lokinni var farið í rúmið að minnsta kosti á veturna. Brauð ið var rúgbrauð úr Bernhöfts bakaríi. Franskbrauð var lítið haft um hönd og sizt hjá al- þýðu, en súrbrauð á tyllidög- um. Þá fluttist hingað mikið af skonroki (brauðkökum) og kringlum (hagldabrauöi). Var mikið af því brauði keypt af alþýðu. Viðbitið var smjör, ef það var til, en annars tólg, flot, síróp og púðursykur. Smjör var fremur torgætt, og um leið ná- lega óætt, súrt og myglað, fullt af hárum, því að almennt hreiniæti stóð þá enn á mjög lágu stigi, ekki sízt: við sjávar- siðuna. Smjörlíki þekktist þá ekki. Algengasta brauðtegund in var þá kaka eða flatkaka úr rúgmjölí og vatni, er var hrært saman í trogi, og s:San hnoðað saman. Kökurnar voru flattar út með kefli, þangað til þær voru orðnar hæfiiega þunnar og bakaðar við móglóð. Þessi þjóðlega þrauðtegund virðist nú vera að detta alveg úr sögunní. Nokkuð fluttist þá inn af rúgmjöli, en mest var flutt inn af ómöluðum rúgi; var hann fiuttur laus í iestinni, og landsmönnum ætlað að mala hann sjái'fum. Fyrir því var á öllum efnaðri heimilum hér í bæ malarkvörn. Af öðrum korntegundum var þá ekki flutt annað inn en bankabygg og heiibaunir. Bankabyggið var lika malað og haft til grautargerðar, og þótti hann miklu betri en rúgmjölsgraut- ur. Haframjöl þekktist þá ekki. Baunir voru dý'rar, og því herramannsmatur og hátíðamat ur hjá aiþýðunni. Það hefur lítið verið minnzt á kjöt hér að framan og ekk- ert á siátur. Haustið og fram undir jól var auðvitað bezta tíð fátækiinganna, þvi að eng- inn var svo aumur, að hann gæti ekki fengið innan úr nokkrum kindum og 2—3 ær- skrokka. Slátrið var etið jafn- harðan, meðan það entist, en kjötið var geymt í súpur, en sá var gallinn á, að salt var þá aimennt of mikið sparað, svo að kjötið úldnaði fljótlega og var því eiginlega ekki lostæt fæða. Hangikjöt var lítið haft um hönd nema á jólunum. Fyr- ir jólin og sumardaginn fyrsta, þennan gamla, þjóðlega hátið- isdag íslendinga, var víðast bakað eitthvað til hátíðabrigð- is. Hjá fátæklingum voru það aðailega lummur, sem voru borðaðar með kaffinu, sykrað- ar eða með sirópi. Þá þekktust ekki jólatré, en þó kunna þau að hafa verið hjá einstökum fjöískyldum, en þau fóru að tíðkast úr því þessu tímabili lýkur, og nú er svo komið, að varla er svo fátækt heimili til í bænum, að ekki sé haft iítið jólatré eða grenisveigur. Það hefir nú verið minnzt á matinn, og er þá eftir að ta)a um drykkinn. Kaffi var þá orðið aðaldrykkurinn, eins og er enn. Með kaffinu var gef- inn kandísmoli. Te var líka nokkuð almennt, oft úr blóð- bergi, sem þá óx mikið á Mel- unum. Mátaráhöld voru hin Ógiftar stúlkur, sem tiyrjawar voru að örvænta, réðti sig gjarnan i vinnti á eyrina. sömu og nú, þá var almennt grautur og súpa borðuð úr skálum í stað djúpra diska nú. Hnífapör voru þá enn nálega óþekkt hjá alþýðu, og pentu- dúkar aiveg óþekktir nema í efnuðustu húsum, og þó tæpast á borðum þar dagiega. Kiæðaburður var þá al- mennt margfalt einfaldari og iburðai-minni en nú. Embættis- menn og kaupmenn gengu þá dagiega i frökkum, en ekki í jökkum, eins og nú tíðkast. AU ir gengu þeir á útlendum skóm, þó gengu margir kaupmenn á kiossum eins og margir aðrir gerðu, svo sem og fyrr er get- ið. Klossar voru mjög hentug- ur fótabúnaður í þvi svaði, spm þá var á götunum, þvi að það mátti haía íslenzka skó innan undir. Annars hefur tízikan að því búning heldri manna snertir lítið breytzt, en það hefir aftur á móti búning- ur alþýðumanna gert; þeir voru almennt í lokubuxum svo- nefndum og duggarapeysu. Hefði peysan verið liðleg og úr góðu bandi, þá var hún ekki óiaglegt plagg, en unnin úr grófu duggarabandi var hún allt annað en lagleg. Peys- an var dagiegur búningur allra sjó- og daglaunamanna, bæði eldri manna, unglinga og drengja, á helgidögum voru þeir í treyju og með brjósthlif- ar, alla vega litar, enginn hafði þá hvítt um hálsinn úr þeirri stétt. Handiðnaðarmenn voru líkt búnir hversdagslega og nú, en á helgidögum voru þeir í iafafrakka, einkum ef þeir voru „sigldir". Með þjóðhátíð- inni vaknaði mikill áhugi á öllu þjóðlegu, einkum meðal menntamanna; fyrir því var það, að stúdentar og skóiapiit- ar tóku upp nokkurs konar þjóðbúning. Það var siðtreyja með líni (flihba) niðurlig-gj- andi yfir kraganum, stuttar buxur niður fyrir hné og reim- acar þar saman, og crasKur I endanum, Wáir sokkar, og auð- vitað ísienrtdr skór; húía á höíðinu. Þetta var laglegur búningur, fór einkum vel ung- um og vej vöxnum mönnum, en þessi búningur hélzt ekki iengi við, 1—2 ár. Kvennabúningur var all frá- brugðinn þvi sem nú er. Allar heldri konur báru útlendan búning, voru á „dönskum" bún ingi, eins og það var kaliað, eins og útlendur skófatnaður var alltaf kallaður „danskir" skór. Þær hafa vafalaust fylgt útlendri tizku eins og unnt var með þeim strjálu samgöngum, er þá voru. Minni háttar kon- ur gen.gu allar í hversdagsleg- um isienzkum húfubúningi, en rmklu íburðarminni, en nú tiðk- ast. Húfan var miklu dýpri en nú, með svörtum skúf. Peysa úr vaðmáli, fínu eða grófu, eftir því, sem efni leyfðu. Svuntur úr tvisttaui, haldgóð- ar og ódýrar, slipsi óbrotin. Siiki þekktist þá ekki til nokk urra kiaeða, jafnvel ekki hjá þeim bezt efnuðu. Skautbúning báru margar konur, einkum við alfarisgöngu, en það var gamli búningurinn (skuplan). Nýi skautbúningurinn, sem Sigurð- ur málari Guðmundsson er upp hafsmaður að, rýmdi hinum al- veg burt á fáum árum, svo að eftir 1880 mun varia nokkur kona hafa borið hann. Annare var það algengt að margar konur, sem gengu alltaf dag- lega á íslenzkum búningi, fóru alltaf til altaris á dönskum bún ingi, fengu hann þá lánaðan, ef þær áttu hann ekki sjálfar. Þær hafa ekki kunnað við skupluna, enda var hún ekki falleg. . Þá voru engar konur kallað- ar frúr, aðrar en konur æðstu embættismanna, hinar urðu að láta sér nægja „maddömu“-tit- ilinn, og eins voru konur efna betri eða heldri borgara kall- aðar. Þær voru þó ekki blátt áfram nefndar t. a. m. maddama Guðrún, heldur kenndar við mann sinn með danskri end- ingu t. a. m. maddama Eihar Jónsen, og það þó að þessi Einar alltaf kallaði sig og skrif aði Jónsson. Konur sjómanna og tómthúsmanna voru blátt áfram kallaðar Ingibjörg Jóns eða Guðrún í Hala. Þetta er nú svo gerbreytt, að nálega all ar giftar konur eru kallaðar frúr. Á sama hátt voru aðeins dætur þjóðhöfðingjanna titlað- ar „fröken“, maddömudæturnar voru „jómfrúr" og hinar ekki neitt. Nú heita allar ungar stúlkur hér i bæ „frökenar", en jómfrúr eru ekki lengur til. Hér skal nú nokkuð minnzt á skemmtanir baejarbúa, en þær voru bæði fáar og tilbreyt ingai-litlar. Á sumrum voru það aðallega útreiðar á sunnudög- um; fóru þá aliir, sem gátu náð sér í byikkju, og var þá ekki allt vakurt, þótt riðið væri. Var þá farið snemma á stað, því að það gilti að nota bykkj- una sem bezt, Oeigan var þá fastákveðin 2 kr. fyrir dag- inn). Venjulega var riðið upp í Mosfellssveit, einkum upp í SeljadaJ, eða suður að Kieífarvatni. Margir fóru líka upp í Marardal, sem er í Hengl inum, en þá varð að fara mjög snemma á stað. Vegurinn iá yf- Framhald á bls. 14. 12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 23. maí 1971

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.