Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1971, Page 4

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1971, Page 4
V. S. NAIPAUL Skýrslur næturvarðarins SMÁSAGA k- Aðalsteinn Ingólfsson þýddi BÖKMENNTIR OG LISTIR Um höfundinn Kithöfundurinn V. S. Nai- paul er eitt bezta dæmið um útbreiðslu og framtíðar- möguleika enskrar tungu, ekki aðeins sem talaðs máls, heldur sem skapandi tungu (ef hægt er að aðskilja þessi tvö hugtök í verkum Naipauls). Naipaul er Ind- verji og Vestur-Indíumaður, fæddur á Trinidad árið 1932 og bækur hans, eins og „Miguel Street“, „The Mim- ic Men“ og fleiri, hafa hlot- ið ótal viðurkenningar og lof. Söguefni hans er oft byggt á eigin æsku og upp- vexti á Trinidad, þar sem hann fjallar um töfra og fá- tækt þessara eyja, um feg- urð þeirra og Ijótleika, í stuttu máli um andstæður lífsins. Um þetta allt skrifar Naipaul af skarpskyggni, en ávallt af samúð, sem oft er þó beizkju blandin. í verk- um hans skiptast á stórkost- leg fyndni, dapurleiki og oft snilldarlcg „írónía“ (orð sem varla verður þýtt) sem á köflum minnir á hinn fræga meistara þeirrar list- ar, skáldkonuna Jane Aust- en. Þessi smásaga er úr smásagnasafni hans, „A Flag on the Island“. í*ýð. 21sta nóvember. Kl. 10.30 e.h. C. A. Cavander kemur á vakt í C-Hótelinu, ailt í lagi. Ces- ar Alwyn Cavander. Kl. 7 f. h. C. A. Cavander ieystur af, af Herra Vignales, í C-Hóteiinu, allt í lagi. Cesar Alwyn Cavander. 22. nóv. Kl. 10.30 e. h. C. A. Cavander kemur á vakt í C- Hótelinu, allt i lagi. Cesar Al- wyn Cavander. Kl. 7 f.h. C. A. Cavander leystur af, af Herra Vignales, í C-Hótelinu, allt í lagi. Cesar A'lwyn Cavander. Þetta er í þriðja skiptið sem ég kem að C. A. Cavander, næt urverði, sofandi á vaktinni. 1 gærkvöldi ki. 12.45, kom ég að honum steinsofandi í ruggustól í forstofu hótelsins. Cavander næturvörður er því hér með rekinn. Hiliyard næturvörður, athug ið: Þessa bók nefni ég „Skýrsl- ur næturvarðar", og ætlast ég til þess að í hana verði ritaðar skýrslur um allt sem gerist í hótelinu á nætumar. Látið Ca- vender næturvörð yður að kenningu verða. W. A. G. In- skip, hótelstjóri. Herra Hótelstjóri, skilaboð meðtekin. Hafið eingar áhiggj- ur af mér, herra Hótelstjóri. Charles Ethelbert Hillyard, næturvörður. 23. nóvember. Kl. 11 e.h. Hillyard næturvörður kemur á vagt í C-Hóteli með: eitt vasa- ljós, tvo ískápslikla og herberg islikla, númer I, 3, 6, 10 og 13. Einnig eru 25 kassar af Carib bjór og 7 kassar af Heineken bjór og 2 kartón af Amerísk- um sígarettum. Bjórkassar ósnertir, barinn ósnertur, allt í lagi. Charles Ethelbert Hilly- ard. Kl. 7 f.h. Hillyard næturvörð ur leistur af, af Herra Vigna- ies í C-Hóteli með: eitt vasa- ljós, tvo ískápslikla og her- bergislikla númer I, 3, 6, 10 og 13. 32 kasar af bjór. Bar ósnert ur, allt í lagi. Charles Ethel- bert Hillyard. Hillyard næturvörður at- hugið: Herra Wills bar fram kvörtun í morgun út aif því að þér neituðuð honum um aðgang að bamum í gær- kvöldi. Þér hljótið að gera yður grein fyrir hver tilg£ing ur þessa hótels er. 1 framtíð- inni eiga allir hótelgestir rétt á að fá afgreiðslu á barn- um, hvenær sem þeim sýnist. Það er skylda yðar að skrifa niður hjá yður það sem þeir fá. Þetta er aðalástæðan fyr ir þvi að hótelið geymir viss an fjölda af bjórkössum (vin samlegast athugið stafsetn- inguna). W. A. G. Inskip, hótelstjóri. Herra hótelstjóri, skilaboð meðtekin. Því miður fékk ég aldrei tækifæri til að menta mig, herra hótelstjóri. Chas. Et- helbert Hillyard. 24. nóv. Kl. 11 f. h. Hillyard næturv. kemur á vagt með: eitt vasaljós, tvo ískápslikla, 32 kasa af bjór, allt ósnert. Kl. 12 á miðnæti, loka bamum, bar- þjónn fer heim, Herra Wills og fleiri eftir á bamum, þeir fóru kl. 1. Herra Wills fékk 16 Car- ib bjóra, Herra Wilson 8, Herra Percy 8. Kl. 2, Herra Wills kom aftur og fékk 4 Carib bjóra og brauð, hann skar sig i hendi við að skera brauðið, hafið eingar áhiggjur af blett- unum á teppinu. K3. 6 kom Herra Wills aftur og fékk sóda vatn. Ekkert tU, svo hann fékk engiferöl í staðin. Þér sjá ið herra hótelstjóri að ég vil vinna þetta starf vel, ég skil ekki hvumig Cavander nætur- vörður gat sofið á nóttunni. Chas. Ethelbert HiUyard. Þér virðist alltaf viss á tím anum, og gestimir virðast vanir því að koma á barinn á klukkutimanum. Viljið þér vinsamlegast skrifa niður tím ann nákvæmlega. Klukkan úr eldhúsinu er venjulega skilin eftir í glugganum ná- lægt Ijósrofunum. Þér megið nota þessa klukku en þér VERÐIÐ að skila henni aft- ur á morgnana áður en þér farið af vakt. W. A. G. In- skip. Meðtekið. Chas, Etheibert Hillyard. 25. móvember. Bar lokað á miðnæti og kl. 12.23 fór bar- þjónn heim, Herra Wills og fleiri eftir á barnum. Herra Owen tók 5 flöskur af Carib bjór, Herra Wilson 6 flöskur af Heineken, Herra Wills 18 flöskur af Carib bjór og þeir fóru ki. 2.52. f.h. Allt í lagi. Herra Wills var á hvolfi, ég skil ekki hvumig nokkur get- ur drukið svona mikið, átján, aleinn, þetta er nóg til þess að gera mann að hvítasunnu- manni, svo kom annar maður á barinn, sem ég veit ekki hvað heitir, þeir kölluðu hann Pauil, hann hjálpaði mér því hinir voru alveg útúr, og við tókum Herra Wills upp í herbergið sitt, tókum hann úr stígvélun- um og leistum fötin á honum og svo fórum við. Ég veit ekki hvort þeir tóku meira meðan ég var í burtu, það var ekkert merkt á Pepsikóla spjaldið, en þeir voru enn að dreklka, seni- lega hafa þeir komið aftur og fenngið sér meira, en ég þarf að fá hjálp með Herra Wills, herra hótelstjóri. Herra hótelstjöri, klukkan bilaði. Ég fann hana svoleiðis þegar ég kom til baka frá Herra Wills. Hún stopaði kiukkan 3.19. Chas. E. Hilly- ard. Það var stolið meira en kílói af kjöti úr ísskápnum í gærkvöldi, og tekið var af köku sem geymd var í skápn um. Það er skylda yðar, Hillyard næturvörður, að hafa auga með þessum hlut- um. Svo vil ég aðvara yður að ég bað lögregluna að hafa gát á öllum starfsmönnum hótelsins við brottför, til þess að koma í veg fyrir að svona nokkuð komi fyrir aft ur. W. A. G. Inskip. Herra hótelstjóri, ég veit ekki hvursvegna allir kena allt aif þjónustufólkiinu um. Hvað kökuna snertir, er skápurin lokaður á nóttunni og ég er ekki með iikilinn, það er allt í lagi meðan ég er á vakt, herra hótelstjóri. Chas. Hillyard. 26. nóv. Bar lokað á miðnætti, barþjónninn fór heim. Herra Wills kom ekki, mér var sagt að hann væri í amrisku herstöð inni í kvöld, allt toljótt, állt í 'lagi. Herra hótelstjóri, má ég biðja um eitt. Gjörið svo vel að segja barþjóninum að segja mér þegar kvenfólk er á hótel inu. C. E. Hillyard. 1 morgun fékk ég kvörtun um það að það hafi verið óp og óhljóð í hótelinu í nótt. Þér skrifuðuð „allt hljótt.“ Viljið þér gjöra svo vel að koma með skýringu, skrif- lega. W. A. G. Inskip. Skrif- ið skýringuna hér: SKÝRING. Stuttu eftir mið- næti hringdi símin og kona 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 31. október 1971

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.