Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.1972, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.1972, Síða 3
UM ÞYÐINGAR FRANSKRA LJÓÐA Á ISLENZKU þeirrar stefnu sem hóf 'ljóðið aft- ur til virðingar eftir þá niðurlaeg- ingu sem það hafði verið í á lið- inni öld, upplýsingaöldinni, þeg- ar það var svo fyrirlitið í nafni skynseminnar að tæpast gátu nokkur skáld orðið til, en skyn- samlegir hagyrðingar á hverju strái. Sem fyrr segir vissi Alex- ander Jóhannesson prófessor ekki um nema eitt kvæði eftir Victor Hugo I íslenzkri þýðingu árið 1944, La nature (samtal mannsins við tréð í líkingu nátt- úrunnar sem vill allt fyrir mann- inn gera, þangað til hann vill fá það í þjónustu manndrápa), en sú þýðing Steingríms var því mið- ur ekki annað en klúður. Nafn höfundarins franska var hins vegar löngu þekkt á íslandi, þar sem ein af skáldsögum hans, Vesalingarnir, hafði komið út í íslenzkri þýðingu. En síðan Alexander Jóhannesson gaf út bók sína um menningarsam- band Frakka og Islendinga hefur Jón Helgason prófessor I Kaup- mannahöfn þýtt tvö kvæði eftir Hugo, og þau eru að minnsta kosti þeim mun betur heppnuð en þýðing iSteingríms að þau eru á skiljanlegri íslenzku. Ég hef ekki borið þau saman við frumkvæðin. Victor Hugo fædd- ist 1802 og komst á nlræðisald- ur. Hefur enginn maður verið áhrifameiri í frönskum bókmennt um síðari tíma. Maður er nefndur Théophile Gautier (frb. Gótji). Hann var eitt frægasta ijóðskáld Frakka, uppi á sama tíma og Victor Hugo, eða frá 1811 til 1872. Hann fylgdi rómantísku stefnunni fram- an af, en setti síðan fram nýja kenningu, þar sem lögð var áherzla á hreinleika og fegurð listarinnar. Kenningin hlaut nafn ið „listin fyrir listina" eða „list- in listarinnar vegná", l’art pour l’art. Gautier hafði með þessu áhrif á önnur skáld, syo sem Baudelaire (frb. Bóduler) sem hafði að ýmsu leyti svipuð við- horf gagnvart bókmenntum og listum. Ekkert hefur verið þýtt á íslenzku eftir Théophile Gautier, svo mér sé ikunnugt, en þó er óhjákvæmilegt að minnast á hann í ritgerð sem þessari til að gefa hugmynd um hvernig ein stefna teingist annarri og eitt skáld öðru skáldi (til dæm- is Gautier og Baudelaire), því alltaf eru einhver tengsl á milli skálda, þótt eitt rísi gegn öðru, ein kynslóð gegn annarri, ein stefna gegn annarri, eftir því hyaða breytingar verða í þjóðfé- lagsháttum, trúarbrögðum, vís- indum og siðaskoðunum, eða hvort jörð skelfur af byltingum eða nötrar af styrjöldum þjóða í milli, en saga skáldskapar skilst ekki til fulls nema vitað sé hvern ig hann er tengdur slíkum breyt- ingum. Nú víkur sögunni að einu merkilegasta ská'ldi Frakka, Charles Baudelaire. Hann fædd- ist 1821 og varð spámaður nýrra tíma í skáldskap. Hanrí hafði mik ið dálæti á bandaríska höfundin- um Edgar Allan Poe og þýddi ýmis verk hans á frönsku. Ný sýn hans gagnvart Ijóðinu varð ekki sízt fyrir áhrif frá Poe eða kenningum hans. Hann tók hins vegar upp á því fyrir áhrif frá einum landa sinna, Aloysius Ber- trand, að því er hann sjálfur seg- ir, að yrkja rímleysuljóð, og hef- ur slík Ijóðagerð síðan breiðzt út um allan hnöttinn. Sumir spek- ingar uppi á íslandi þylja að vísu enn upp úr sér formúlu um, hvað sé Ijóð, en það er önn- ur saga. Charles Baudelaire var ekki gæfumaður að sama skapi og hann var mikill snillingur. Hann var utanveltumaður í nýju þjóð- skipulagi, þar sem veldi aðals- manna var liðið undir lok, en við hafði tekið þjóðfélag borgaranna, það sem við köllum nú á dögum „hið borgaralega þjóðfélag”. Hann varð hassneytandi og lét líf sitt af völdum eiturlyfjaneyzlu rúmlega hálffimmtugur. Áður en hann féll frá var hann orðinn aumingi sem var ekki lengur fær um að tala mannamál, heldur gaf frá sér einhver óskiljanleg hljóð eins og barn. Meðal skálda og listamanna voru fleiri en hann sem gáfu sig að hassi og öðrum fíknilyfjum á þessum tíma, enda varð þá til kiúbbur hassneytenda, Le Club des haschischins, en við- riðinn hann var m.a. fegurðar- dýrkandinn sem ég áður gat um, Théophile Gautier, þótt hann var aði sig betur á lyfinu en Baude- laire sem svo hörmuleg örlög hlaut í blóma lífsins. Frá þessum arftökum rómantísku stefnunnar um miðja 19. öld er æsilyfjatízka nútímans komin. Og íslenzk æska sú er tilheyrir lista- og mennta- snobbinu hefur verið næm að til- einka sér þessa nýju tízku, eft- ir að hún hafði verið uppvakin í Bandaríkjunum. Að vísu hlaut is- lenzka menntaæskan að vera tlu árum á eftir tímanum að tileinka sér nýju lífspekina, þvi enn þann dag í dag verður allt að koma hingað gegnum Danmörku, einnig það sem verst er í erlendri menningu, og getur þá krókaleið- in stundum orðið grátbrosleg, til dæmis: New York, Keflavík, París, Stökkhólmur, Kaupmanna- Jóhann Sigurjónsson Sorg Vei, vei, yfir hinni föllnu borg! Hvar eru þín stræti, þínir turnar, og Ijóshafið, yndi næturinnar? Eins og kórall í djúpum sjó varst þú undir bláum himninum, eins og sylgja úr drifnu silfri hvíldir þú á brjóstum jarðarinnar. Vei, vei! I dimmum brunnum vaka eitursnákar, og nóttin aumkast yfir þínum rústum. Jóreykur lífsins þyrlast til himna, menn í aktygjum, vitstola konur í gylltum kerrum. - Gefið mér salt að eta, svo tungan skorpni í mínum munni og minn harmur þagni. Á hvítum hestum hleyptum við upp á bláan himinbogann og lékum að gylltum knöttum; við héngum í faxi myrkursins, þegar það steyptist í gegnum undirdjúpin. Eins og tunglsgeislar sváfum við á bylgjum hafsins. Hvar eru þau fjöll, sem hrynja yfir mína sorg, hálsar, sem skýla minni nekt með dufti? í svartnætti eilífðarinnar flýgur rauður dreki og spýr eitri. Sól eftir sól hrynja í dopatali og fæða nýtt líf og nýja sorg. Eftir Jón Óskar höfn, Reykjavik. Nokkrir íslenzk ir námsgarpar hafa tekið þeim mun meira ástfóstri við hasstízk- una sem þeir voru öðrum seinni að komast í eitrið. Hafa þeir gert hassdýrkun að trúarbrögðum og eru mörg íslenzk skólablöð full af vakningargreinum þessara nýju heittrúarmanna sem sumir nefna sig byltingarsinna(l) f ákefð sinni að boða trú á hinn sanna guð, hafa þeir mjög beitt þeim rökum að hass sé ekki hættulegra en brennivín. Þeir hefðu gott af að íhuga sögu Baudelaires og kynna sér það sem hann skrifaði um eiturlyf, Paradísarmissi hans (Les paradis perdus), ef þeir þá hefðu skilning á þvl sem um er að ræða, sem er að vísu nokkuð vafa samt. Baudelaire er talinn einn helzti upphafsmaður symbólismans, þeirrar stefnu sem einhver mikil- fenglegustu og frægustu skáld tuttugustu aldar (nefna mætti nöfn eins og Marcel Proust og James Joyce) urðu fyrir áhrif- um af, ef þeir voru ekki beinir dýrkendur hennar. Því er þó ekki þannig varið, að symbólism- inn komi einkum skýrt fram í Ijóð um Baudelaires. Symbólisminn er Framh. á Ibls. 12. 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.