Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.1972, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.1972, Blaðsíða 9
Ekkert fékk raskað reglusemi lögreglustjórans Velgjörðamaður Gerlachs, Heinrich Himmler rík- isforingi SS og lögreglustjóri Þriðja ríkisins. Eftir- minnileg er lýsing brezka sagnfræðingsins H.R. Trevor-Ropers á Himmler í bókinni THE LAST DAYS OF HITLER. Hún hljóðar svo í lauslegri þýðingu: „Við hlið Hitlers hækkaði skuggaleg persóna Himmlers daglega í metorðastiganum. ( almenn- ingsaugum er Himmler raunverulegur og ægilegur, samvizkulaus, ómennskt skrímsli, er myrti milljónir varnarlausra fanga með kvalalosta og öllum hugsan legum pyndingaaðgerðum. Ekki maður, heidur óper sónuleg hugarmynd, vera, sem þekkir ekki veikleika meðaumkunar og fyrirgefningar. Óbifanlegt skrímsli haldið kulda, sem ekkert fær fullnægt, hvorki æðis- kast, bænir né mannlegar fórnir. Vissulega var Himmler óbilgjarn. Völd hans virtust jafn takmarka- laus og tortímingarhvötin. Af fullkominni hugarró og samvizkuleysi fyrirskipaði hann eyðingu heilla kyn- þátta, útrýmingu Gyðinga og Slava . . . Sú tilhugs- un að hundruð þúsundum manna og kvenna væri troðið inn í „mannúðlega" gasvagna — atburðir, sem einatt kostuðu giæpameðhjálpara hans vitið — vitneskjan um, að pyndingaklefar Evrópu væru setnir fórnarlömbum hans, að á öllum stundum sólarhringsins væri nafni hans formælt af deyjandi fólki í heilli heimsáifu — ekkert af þessu fékk rask- að reglubundnum máltíðum hans, komið vanaiðju skrifstofu hans úr skorðum eða valdið svipbrigðum á búlduleita, fingerða andlitinu, sem lýsti kaldri sjálfsánægju. En Himmler var ekki sadisti. Það var ekkert hræðilegt eða ólgandi við skapgerð hans . . . Grimmdarverk vöktu ekki ánægju hans. Þau komu ekki við hann. Samvizkubit annarra var í hans huga ekki fyrirlitlegt heldur óskiljanlegt . . . Þessi ófrqskja var gædd mörgum sérkennum, sem hafa gert hann að makalausri ráðgátu í sumra augum. Hann var með eindæmum fávís og barnalegur . . . Hann var einnig elskaður af öllum undirmönnum, mönn- um, sem vissulega höfðu dauða samvizku en voru að öðru leyti haldnir mannlegum breyzkleika. Að- stoðarmenn hans og ráðgjafar sýndu honum skil- yrðislausa hollustu, jafnvel eftir lát hans . . . Allt til enda var hann rikisforinginn, og | SS] féiagarnir nefndu hann með ástúð, „Reichsheini". Grimmd? hrópuðu undirmenn hann í barnslegum kór. Það voru engin merki grimmdar í eðli hans. Hikið virtist þeim helzta einkenni hans. mó'ti er afstaða okik'ar til Gyð inga ófrægð. . . Mörg raunin var lögð á Ger- lach. 1 hugl'eiiðiin,gum hans seg- ir: Afstaða til Gyðingamáls- ins — fullkominn skilnings- skortur. Þegar Gyðingamálið kom til rnmræðu, spurði ferðafé- lagi stúdents nokkurs gagn- gert þessarar spumingar: „Bn myndirðu þá vilja gift- ast Gyðingakonu?" Svarið — „Já, hvi ekki?“ Þegar líða tók á lislandsdvöl ina, virðist Gerlach hafa kom- izt að þeirri merkilegu niður- stöðu, að Islendingum stafaði ekki hætta af Gyðingum. Svo gjörsiaimilega hafa Islendiiragar gvmgið fram af Gerlach, að höf uðóvinurinn fellur í skuggann ai: vonzku þeirra. Útsjónarsemi i viðskiptum og siðferði: Gyðingar geta e)cki náð hér fótfestu. ísiend ingar eru svo miklu séð ari. (!)18) Illmálgur um • • LC „vmi Fyrirlitningin, sem Gerlach hafði á íslendingum, var svo megn, að honum liggur varla gott orð til nokkurs rnanns. Sama máli gegnir reyndar um Þjóðverja búsetta á Islandi. Gei lach gefur þeiim vitnisburð á imúdai: „AiMr þeir Þjóðlverj- ar, sem hér hafa dvahzt lang- dvölum, 'haía lausa skrúfu eða eru innhverfir og heim'skir." Is lendingar, þekktir að Þjóð- verjavináttu, fá hörmulegustu útreið á miðum Gerlachs. Hann virðist t.d. hafa veit-t óbeit" á ko’llega sínum útrás með þvi að hripa niður eftirfar andi: „Þá ber að nefna þann skrumandi fáráð NN.“* Þess má geta að „fáráðurinn" var talinn persónulegur vinur Ger- lachs. Annar maður, er viðraði sig upp við Gerlach, og gekk síðar í þjónustu Þriðja ríkis- ins, fékk kveðju á sama miða: ,jNN, „tónskáltíið", sem kvænt- ur er Júða. Og sú úrkynjaða list, sem ríkir: Hugsi maður svo um imenningu Nurnberg, Rothenburg, Frankfurt og svo frv.“ Embættismaður einn, sem ál'itinm var standa Gerlach nærri, orsakaði reiðikast: „Jafnvel NN færir okkur öskubakka i formi Mára i rauðri kápu.“ Um lágkúru ákveðinnar mennitastofnuinar nefndi Gerlach það dæmi, að yfirmaður hennar væri tiltek- inn maður. Sá var reyndar þekktur aðdáandi Þýzka- landls.19) Félag Þjóðverjavina átti ekki upp á pailborðið hjá Ger- lach: Þýzk-íslenzka félagið Ger- manía var undir forystu NN, áður en það hrökk upp af. Við voniumst til, að með stjórn arskiptum verði hægt að vekja félagið til nýs lífs. NN hefur unnið gagn imieð skrif um SÍinum um Þýzkaiand. Á heildina litið er hann hins vegar áhrifalaus maður og litill persónuleiki. Félagið Germanía er eins og öll slík blönduð félög, viðrini, sem hefur innan vébanda sinna frímúrara, hálfjúða og Jú.ðia.20) Gerlach fann aðeins einum fslendingi hrósyrði.** 1 sendi- bréfi til Himmlers lýsir hann manninum þannig: „Meðal Is- lendinganna, sem við umgöng- umst, er 'NN fremstur. Hann á jafnt lof skilið fyrir manndóm sinn og afstöðu til Þýzka- liands.“21) f bréifi ti'l SS-hers- höfðingjans Karl Wolffs, yfir- manns einkastarfsliðs Himml- ers, segir Gerlach um sama mann: „1 sannieika sagt er það aðeins einn, sem er í rauninni áreiðanlegur. Það er og verður NN, sem yður er reyndar kunn ugur.“22) Bf dæma má af skrifum Ger- lachs hefur hann fundið í manni þessuim verðugan sálufé laga. Mann, sem virðist hafa verið svipaðrar skoðunar á löndum síinum og Gerlach. „NN efast um að þjóðin geti af eig- in rammleik yfirunnið algjöra siðferðislega og andlega hnign un síma.“23) E'kki þarf að spyrja að því, hvaðan þeir Gerlach hafa helzt vænzt sið- væðingar fyrir Islendinga. Að undanteknum hinum eina dándismairanii, voru aðrir tal- vinir Gerlachs honum sífelld uppspretta vonbrigða. Virðing arskortur þeirra fyrir því, sem Gerlach var helgast, her- mennskunni, gaf honum tilefni til umkvörtunar við ríkisfor- ingja sinn: Svo ég nefni dæmi: Vel þekktur þýzksinnaður framá maður, einstakur í sinni röð, lét í ljós tilfinningar sínar með þessum orðum, er hann leit þýzka kafbátinn: „Hví- likt ógnarlegt morðtæki!“24) Bretaþý og Finnagaldur Gerlach verður tíðrætt um á'hrif Englendinga á Islandi og þá samúð, er hann taldi þá eiga hjá þjóðinni. 1 frum- skýrslu segir: Ég hef lagt mig sérstak- lega eftir því að 'kynna mér ensku áhrifin. Þau eru aug- ljós og koma fram í blöðurn hvaða flokks sem er. Jafn- vel svonefnd hægriblöð, sem eiga að heita þýzksinnuð, birta svo að segja aidrei þýzkar fréttir. Allar fyrir- sagnir eru hallar undir Eng land og að nokkru hatursfull ar í garð Þýzkalands. Gerlach var ekki lengi að uppgötva firramtu herdeild Breta á Islandi. Það voru frí- múrarar. Þessi uppgötvun kem ur ekkt á óvart. I mörgum Evr ópulöndum var framúrararegl- an talin vígi Gyðinga og frjáls- lyndra. Nasistar litu á frimúr- ara sem svarna óvini sína og bönnuðu regluna hvarvetna, sem þeir fengu því viðkomið. Gerlach lýsti frimúrurum fyrir Grúndherr ráðuneytisstjóra: Frímúrarar gegna hér mik ilvægu hlutverki — hreinar frímúrarastúkur og Oddfell- owar. Varla finnst nokkur maður í ábyrgðarstöðu, sem ekki er frímúrari. . . . Ég get enn ekki fullyrt um, hversu náðið samband er milii ís- lenzku frímúrarareglunnar og aiþjóðahreyifLngarinnar. Ég hef þó sterkan grun um, að áhrif Englendinga og kuldinn í garð Þýzkalands eigi að nokkru rætur að rekja til tengsla fnmúrara við 'Eingland. . . . Skuldirnar við England skipta auk þess að sjálf- sögðu irniklu máli.25) Við heimkomu til Þýzka- iands hafði sannleikurinn um islenzku frímúrarana endan- lega lokizt upp fyrir Gerlach: Frimúrarar í tengslum við þá dönsku og ensku hafa úr- slitaráð. Engiran vafi leikur á því, að um regluna liggja fjölmargir þræðir til Eng- iandis. . . . Geysisterk ensk áhrif stafa að verulegu leyti af miklum skuldum Islands við Haimlbro [bankciran] í Lond- on.26) Er ófriðurinn var skollinn á, keyrði gremja og fyrirlitning Gerlachs um þverbak. Hann fann enga sairraúð með málstað Hitlers, ekkert nema andúð og kulda. 1 bræði sinni og einangr un greip Gerlach pennann með græna blekinu og hripaði æ svæsnari svívirðingar um Is- laind. 'Skrif hans mora af fuil- yrðingum í þessum anda: „Full komin uppgjöf fyrir Englend- ingum. . . ; Dæmigert fyrir hel bera þýilyradið við Eragland. . . . . ; Fjandsamleg afstaða al- menningsálitsins. . . ; fsland hef ur fórnað sjálfstæði sinu og hlutleysi. . . “27) fslenzk dagblöð ollu Ger lach mikilli hugarraun. í nóv ember 1939, þremur mánuðum eftir að stríðið brauzt út, rúðst Rauði iherinn iran í Finnland. Mikil andúðaralda gegn ein- ræðisríkjunum og landaskipt- um þeirra greip um sig á fs- landi. Gerlach fann hvert vind urinn blés. Síðan finrask-rússnesika stríðið brauzt út, hefur and- rúmsloftið versnað verulega. Blöðin hreinlega ensk. Frá sjónarhóli Breta er aldrei nein ástæða til að kvarta, frá okkar hendi daglega.28) Gerlach gerði ítrektaðar til- raunir til að þagga niður í blöð unum. Hann mótmælti skrifum þeirra, einkum Alþýðublaðs og Morgunblaðs, við rikisstjórn- ina og mæltist í rauninni til þess að komið yrði á ritskoð- un. Hann benti Hermanni Jón- assyni forsætisráðherra á gott fordæmi Dana. Þeir felldu nið- ur þau atriði fréttastofufregna, seara „teldust sérstaklega skýra málin óvinsamlega í garð and- stæðiraga Vesturvelidainna“.29) Andstæðingar Vesturveldanna voru að sjálfsögðu Þýzkaland og Sovétrikin, því þetta var á gildistíma griða- og landskipt- *) Nöfnum er að sjálfsögðu sleppt. **) Til að forðast vaiiffaveltur skal tekið fram. að maður þessi er látinn fyrir allmörsr- um árum. 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.