Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.1972, Page 5
SMÁSAGA EFTIR
RHYS DAVIES
Halldór Stefánsson þýddi
„Sjáöu til, ég þarf nefnilega að fara heim
á mánudag. En ég heid það ætti að vera
hægt að koma helgarheimsókn í kring,
strax og þú kemur heim, ef þú kærir þig
um það. Það hlýtur að vera krá þarna
upp frá sem ég get 'búiö á?“
Hún var dálítið óviss 'þegar henni duttu
'nágrannarnir í hug. En Ijómandi umhverf-
ið, blár himinninn, músikin, sem streymdi
út frá skálunum bægði frá öllum skugg-
um. Hún lét hann fá heimilisfangið sitt og
bauð honum að dvelja yfir helgi. Hann
gæti sofið hjá frænda hennar, Dai. Hann
sagðist ætla að senda henni símskeyti frá
Birmingham.
„Kem brátt heim. Yndislegt veður," var
allt og sumt, sem hún hafði skrifað á póst-
kort og sent Dai frænda. Það voru fokin
fjörutíu pund, og nýja taskan hennar var
full. Hún dvaldi nokkra daga í viðbót.
Ennþá átti hún skaðabæturnar eftir til að
grípa til, og hún átti heilt hús með bú-
slóð — svo ekki sé minnzt á verðandi að-
dáanda frá Birmingham.
Á heimleiðinni hafði hún stundarviðdvöl
í Cardiff og lauk hinu vel heppnaða fríi
með þrem glösum af portvíni. Hún kom
til námudalsins eftir að farið var að
skyggja. Hún var í rauða kjólnum og í
handtöskunni voru þrjú pund eftir. En
hún kærði sig kollótta um hvað tuldrað
yrði í dalnum; hún dáðist að sjálfri sér,
því að hún vissi að hún leit vel út. Það
>var kominn tími til að konurnar hérna í
héraðinu færu að bera einhverja virðingu
fyrir sjálfum sér. Henni var skítsama hvað
nágrannarnir i afturhaldssemi sinni kynnu
að hugsa um líflegan klæðnað hennar.
Sam átti það ekki skilið, að hún syrgði
hann eins og hann haföi meðhöndlað hana.
Fyrir tilviljun var hennar gata auð. Sól-
brennd og ánægð stakk hún lyklinum í
skráargatið. Hún stanzaði í hálfdimmum
ganginum fyrir ínnan dyrnar. Var þetta
mús? Svo starði hún fram fyrir sig og lét
rauðu handtöskuna detta á gólfið.
Eldhúsdyrnar við ■ hinn enda gangsins
opnuðust hægt. Hönd með tveim fingrum
fálmaði í hurðarhúninn, hún sá hana mjög
greinilega þrátt fyrir rökkrið. En hún
kom ekki upp nokkru hljóði. Hné hennar
létu undan og hún hneig niður á gólfið. En
hún starði stöðugt fram fyrir sig. Nú voru
dyrnar opnar upp á gátt og þarna stóð
áran af Sam, grá og þögul, og góndi á
hana. Kinnar hans voru holar og eldur
branh úr augunum. Þetta var Sam, en
þetta gat ekki verið Sam. Henni var ómögu
legt að slíta augnaráðið frá logandi aug-
um hans. Þau störðu hvort á annað —
heila eilífð, fannst henni. Allt í einu heyrði
hún í fjarska áruna hvæsa: „Ætlarðu ekki
að komast á lappir!“
„Sam,“ grét hún.
„Ég skal gefa þér Sam!“ sagði hann fok-
vondur. „Ég skal gefa þér Weston-super-
Mare. . . " En það hafði liðið yfir hana.
Megan hélt að hún gæti aldrei gleymt
þessum tveim fingrum, sem birtust henni í
dyragættinni. Sýnin hafði brennt sig í vit-
und hennar. Þegar hún rankaði við sér lá
hún á eldhúsbekknum. Það merkilega var,
að hann hvorki skammaði hana né barði.
Hann leit bara á hana við og við. En
Megan virtist það dauður maður, sem starði
á hana. Hann var ennþá grár í framan
eftir að hafa verið grafinn lifandi — og
Hka horaðri, og í augum hans leyndist
dauf glóð, eins og hann hefði ekki fylli-
lega snúið aftur til þessa heims.
„Var. . . “ Hún hvíslaði. „Var þér bjarg-
að?“
„Einmitt, mér var bjargað," svaraði hann
hranalega. „Sá eini sem bjargaðist."
Hún spurði ekki hvernig það hefði at-
vikazt. Skældi bara á bekknum: „Ég vil
hátta."
„Nú," sagði hann stuttlega, ,,já, gerðu
svo vel."
Hún stóð upp, riðaði, en komst fram að
dyrunum. Hann stóð í sömu sporum. Hungr
aður og soginn líkami hans olli því að
hann sýndist hærri, og hann starði á hana
með þessu glóandi bliki, sem aftur hafði
færzt líf í.
„Rauður kjóll. . . Engin sorg út af mér!"
var allt sem hann sagði.
Hann lá við hliðina á henni í rúminu
eins og óviðkomandi maður; hann hreyfði
sig ekki. Jafnvel andardráttur hans var
öðruvísi: hann var léttur eins og í ketti.
Bara að hann vildi koma við hana, hugs-
aði hún, þá mundi hann aftur verða eins
og lifandi maður. Og þó var hún hrædd
við að hann mundi snerta hana með tví-
fingra höndinni. „Ertu sofandi?" Hún
þvingaði sig til að segja orðin. Hann anz-
aði ekki, en hún vissi að hann var vak-
andi. Þessi nótt varð henni einn alheims-
ins sorti. Á endanum sofnaði hún, og þegar
hún vaknaði, var hann farinn. Og henni
fannst húsið autt — hús, sem dauður mað-
ur hefur yfirgefið.
Hann var samt niðri og hún fann bruna-
lykt. Hún fór niður á náttkjólnum. Hann
hafði kveikt upp í maskínunni í eldhúsinu
og var að brenna rauða kjólinn. Handtösk
una var hann með undir handleggnum.
Hún hvíslaði: „Það eru þrír pundseðlar í
töskunni."
„Ekki lengur," sagði hann. „Þau þrjú
pund eru hin fyrstu af fimmtíu, sem þú
þarft að spara saman." Svo fleygði hann
töskunni í eldinn.
Um morguninn sendu þeir henni nýja
koffortið frá stöðinni. Hún fölnaði. Hugs-
unin um koffortið kom henni til að muna
eftir manninum frá Birmingham. Hvað hét
hann nú aftur . . .? Hafði hún í rauninni
farið í ,frí? Þrútin af hræðslu hljóp hún
upp á loft og kastaði sér í rúmið. Hún
hafði ekki heimilisfang hans. En kannski
hann kæmi alls ekki, kannski hafði hann
aðeins verið að leika sér að henni, eins og
menn gera þegar þeir eru í fríi. Þegar allt
kom til alls var hann sennilega kvæntur.
Hún gekk aftur og fram um húsið og
vann verk sín í leiðslu. Sam skipti sér ekk-
ert af henni, þessi nýja aðstaða veitti hon-
umístyrk og ró. Eina skiptið er hann yfir-
gaf húsið var þegar hann gekk niður stíg-
inn bak við garðinn og talaði við nokkra
félaga sína úr námunni. Hún neyddist til
að fara í bæinn. Konurnar kíktu forvitnar
á hana, hún leit undan. Þegar hún kom
heim var hann að rífa koffortið i sundur.
Það mátti lesa kyrrð, en líka óhugnanlega
ákveðni í svip hans.
„Já, en . . . þetta er brjálæði!" stamaði
hún.
„Þú skalt bara þegja," sagði hann og leit
á innkaupatöskuna hennar. „Þú skalt held
ur byrja að spara á stundinni. Það eru
<Framh. á bls. 14.
Smávægileg breyting hefur orðið á einni af hinum
dýrustu gerðum Mercedes Benz, en um leið sýnir
hún þá stefnu, sem ræður ríkjum hjá hiinnuðum
Benz-verksmiðjanna. Aðalsmerki Benz, vatnskassa-
hlifin ásamt þrihyrndu stjörnunni, er allt á sínum
stað, en hefur lækkað. Ljósin ná lengra út til
hliðanna og vegna þessa sýnist bíllinn fvið lægri og
breiðari.
Hér er um að ræða, að Mercedes Benz 280 SE
hefur verið lagður niður, en hann var með sex
strokka vél. 1 staðinn kemur sá er myndin sýnir,
Mercedes Benz 350 SE með 3,5 litra, 8 strokka vél.
í'essi nýi Mercedes Benz 350 kostar hingað kom-
inn kr. 1.510.000 samkvæmt upplýsingum frá um-
boðinu. l’að verður að teljast drjúgur skildingur.
Fyrir sama verð má til dæmis fá tvo miðlungs
ameríska bíia. Verð á Benz er nnnars mjög mis-
munandi. Ódýrastur er Benz 200, sem kostar
835 þúsund krónur. En dýrastur fyrir utan Benz
«00 er sú gerð, sem auðkennd er með 350 SLC og
kostar hún 1.970.000.
Hjá BMW-verksmiðjunum í Baijaralandi
urðu þau þáttaskil nú í liaust, að hætt var
framleiðslu á BMW 2000, sem löngum hefur
þótt góður farkostur. Hans í stað kemur
nú BMW 520, sem uæntanlega er enn betri.
Eldd skulu þeir hjá BMW fá háa einkunn
fyrir frumleik eða dirfsku I útliti. l’að er
óþarflega hversdagslegt á bíl i þessum
verðflokki. Vélin er áfram fjögurra strokka,
tæplega tveggja lítra. Viðbragð f 100 km
hraða er 12,3 sek. og hámarkshraðinn 173
km á klst. Verðið hér á iandi er 750 þúsund
og þar við bætist ryðvörn.
BÍLAR
BENZ MEÐ
NÝTT ANDLIT