Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.1978, Page 6
Þœr feitu eru
fúsari til östa
Það þykir ekki eftir-
sóknarvert nú á dögum
að vera í góðum holdum.
Á öllum vígstöðvum er
rekinn rammur áróður
gegn fitu, og er svo kom-
ið, að feitt fólk er nærri
litið hornauga. Fita er
sögð bráðhættuleg, bæði
líkama og sál, og svo eyð-
ir hún kyngetu og kyn-
þokka, sem er voðalegast
af öllu. Það var kominn
tími til að einhver tæki
upp hanzkann fyrir feit-
lagna og hrekti alla þessa
vitleysu. Og það gerir
Anne nokkur Beller,
mannfræðingur, í bók,
sem út kom fyrir
skömmu og heitir „Feitt
og mjótt: Saga holdafars
gegnum tíðina.“ Það sýn-
ir Belier t.d. fram á það,
sem feitar konur hafa vit-
að alla tíð, að þær eru
glaðlyndari, ástríkari og
kynþokkafyllri en hor-
grindurnar. Þær eru líka
fúsari til ásta og hafa
meiri „ástarlyst“. Kom í
ljós í könnun einni í Chi-
cago, að feitar konur
voru nærri tvöfalt fremri
hinum í því efni!
Beller segir, að það
hafi verið viðvarandi
meinloka nú um nokkurt
skeið, að kynþokki og fita
geti ekki farið saman og
enn fremur sé það út-
breidd hjátrú, að feitar
konur éti til þess að bæta
sér upp minnkandi kyn-
hvöt. Þetta sé endemis
vitleysa: matarlystin
deyfi ekki kynhvötina,
heldur þvert á móti.
Veturinn í fyrra varð
óvenjuharður víða í Banda-
ríkjunum. Veðurspámenn
höfðu vitanlega ekki orðið
sammála um hann fyrir fram.
Urðu sumir að éta ofan f sig
spár sfnar, þegar á leið, jafn-
vel skipaðir rikisspámenn, en
sem betur fer er hætt að taka
spámenn af lífi fyrir afglöp í
starfi. Þeir eru ekki einu sinni
lækkaðir í kaupi.
Nú í haust var því spáð, að
komandi vetur yrði kaldur og
erfiður í Bandaríkjunum
norðanverðum og snjókoma
mikil; yrði jafnvel svalt suður
f þyí sólarlandi Flórfda. En
annars staðar yrði skaplegt.
Ólaunaðir og óopinberir
veöurspámenn í Miðvestur-
ríkjunum hafa hins vegar spáð
því, og lagt við spámannsheið-
ur sinn, að veturinn verði
harður um öll Bandaríkin. Því
til stuðnings telja þeir ýmis-
legt, sem spámönnum ríkisins
leyfist ekki að hagnýta sér,
þótt þeir eflaust fegnir vildu.
En meðal þess er það, að
skógarbirnir átu óvenju
hressilega áður en þeir lögðust
VEÐUR: Birnir
í Vesturheimi
ötu vel
fyrir veturinn
í hýði sín og voru þeir orðnir
svo digrir, að þeir drógu vömb-
ina. Ennfremur höfðu Ioð-
bjöllur svonefndar safnað ut-
an á sig þykku reifi og íkornar
viðuðu að sér akörnum, eins og
þeir byggjust við því, að vetur-
inn drægist fram undir þann
næsta. Síðast en ekki sízt tóku
sjálflærðir spámenn eftir því,
að laukur hafði safnað sérlega
þykkum berki. Og þá þurftu
þeir ekki frekari vitna við.
Þess skal getið, að spár þeirra
og heimildarlauka þeirra rætt-
ust í fyrra.
Rætist þessar spár, þarf það
ekki að boða harðan vetur á
íslandi nema síður sé. Vetrar-
kuldinn í Bandaríkjunum f
fyrra var rakinn til loft-
straums af Kyrrahafinu, sem
fer norður með Kyrrahafs-
strönd og barst í lengra norður
en venjulega og tók því með
sér mikinn kulda suður úr.
Sarni straumur bar aftur á
móti með sér óvenju mikinn
hita til Grænlands og af söir u
ættum var mild noröanátfin
sem hér ríkti megnið af vetrin-
um í fyrra. Verði harðindin í
Bandarfkjunum af sömu
ástæðu, ættum við ekki að
þurfa að kvíða neinu.
Brasílíumenn hafa vakið mikla
athygli að undanförnu í bridge-
heiminum. Þeir sigruðu í
Oiympiumótinu, sem fram fór í MÖNTE-Carlo í maf 1976 og náðu
góðum árangri I heimsmeistarakeppninni á sl. ári. Þeir, sem skip-
uðu sigursveitina f Olympfumótinu. hafa spilað saman í mörg ár og
má segja að fáir þátttakendur f Oiympfumótinu hafi öðlast eins
mikla keppnisreynslu og þessir vínaiegu og vinsælu spilarar frá
Brasilfu.
Hér fer á eftir spil, sem sýnir vel hve góðir spilarar Brasilfumenn-
irnir eru.
Norður
S. Á87654
H. K
T. ÁKG7
Vestur L. KIO
S. G10932
H. 972
T. 82
L. 763
Suður
S. D
H. Á83
T. D10543
L. D542
Spilararnir frá Brasilíu sátu N.-S. og sagnir gengu þannig:
Norður Austur Suður Vestur
1 lauf 1 hjarta dobl. pass
1 spaðí pass 2 fíglar pass
2 hjörtu pass 2 grönd pass
3 hjörtu pass 3 spaðar pass
3 grönd pass 4 tfglar pass
4 spaðar pass 6 tfglar pass
pass pass pass
pass
Fyrstu sagnirnar eru samkvæmt Precisionsagnkerfinu og sýnir
dobiun suðurs jákvæð spil. Eftir það eru sagnir eðlilegar og er
lokasögnin nokkuðgóð.
Vestur lét út tfgul 8, sagnhafi drap með kóngí og lét næst út laufa
10.
Austúr er varnarlaus. Sama er hvað hann gerir. Drepi hann rteð
ási, þá hefur sagnhafi nægan tfma og innkomur til að trompa hjarta
og Jauf f borði. Gefi austur, þá fær sagnhafi slaginn á laufa
drottningu og síðan getur sagnhafí losnað við laufa kóng f borði f
hjarta ás og sfðan vfxltrompað þar tíl spilið er f höfn.
Austur
S. K
H. DG10654
T. 96
L. AG98
RÍM-GÁTUR
mannanöfn
Einn gerirá ísum herja
Annar byrjar viku hverja
Þriðji gjörirað húsum hlúa
Hét hinn fjórði á Guð sinn trúa
Fimmti hylurásjónu íta
Ei má skarn á sjötta lita
Sjöundi við það sýnist dottinn
Sá áttundi — það er nú meiri spottinn
Níundi dauða ei nálgast hót
Nauða tiundi þurfti um snót
Hjá ellefta stendur heimskan hátt
Heima í þeim tólfta sá hefur átt
Þrettánda fýsir fjöri að granda
Fjórtándi sýnirskipan landa
Fimmtándi i heiminum fæðist og deyr
Fær sextándi varpað hvössum geir
Sautjándi má i saurnum skríða
Sá átjándi erafleiðing unaðstíða
Nítjánda má á eldinn kasta
Með andanum finn ég þann tuttugasta
(Úr Fnjóskadal)
jnipi
— 'OZ 'mpueja — '61 ‘||«siy — '81 'Þ8 8° »JO/vM mueAS j») jn|o>| — •[_ »
i6oa — '91 'jnBea — gi '»jó>| — pi sn»6jA — El 'uuiaas — Zl jnHV
— ■ 11 'iueAAayyi — oi 'JnBiajp — '6 'jnjjpg — a 'JnpeH — 'L 'uuiaJH
— 9 'jnuijjQ — g uuiispx — -p ’ipoj. — x 'iB|SH — 'Z 'ujolg — i
:dVÐNINQVd
Árni Ibsen
JÓLAKORT
þegar hægist um
skrifum við jólakortin
ekki veitir af að byrja sem fyrst
þvl tíminn er naumur
en listinn langur
þetta er undarleg kvöldstund
því nú gerum við okkur Ijóst
hve við eigum i raun
marga vini
vini sem hafa blundað
i hugum okkar siðan i fyrra
ég hrekk upp frá jólaóskunum
þegar Hildur spyr
„Hvað eigum við að gefa afa?"
..Ekki neitt" segi ég
„Ekki einu sinni kort?" spyr hún
þögn
afi er gamall
hefur takmarkaða vitund
um það sem er hér og nú
hjúkrunarkonumar segja hann
stundum
reka úr túni bernsku sinnar
í Borgarfirði
við afráðum að semja
jólafrið við lifið:
afi fær kort