Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1978, Blaðsíða 8
Bókhlaða og
listasafo
hluti lifandi
miðborgar í Winnipeg
Uppá síðkastið hafa farið
fram snarpar umræður um
þann vanda Reykjavíkurborg-
ar að varðveita lifandi miðbæ
— ef hann hefur þá einhvern-
tíma verið lifandi, sem er
vafasamt. Allavega þykir
þróunin ekki stefna í rétta átt,
enginn virðist eiga erindi í
kvosina eftir venjulegan
vinnutíma.
í nýlegri rabbgrein í Lesbók
benti Erlendur Jónsson á
samanburðinn við Kaup-
mannahöfn, þar sem gamall
borgarkjarni er eins lifandi og
nokkur slíkur getur orðið og
ótal skemmtilegir staðir á
tiltölulega litlu svæði. Samt er
Kaupmannahöfn milljónar-
borg og með stjórnunaraðgerð-
um hefði verið hægt að dreifa
því, sem þarna hefur að-
dráttarafl út um víðan völl. En
það hefur ekki verið gert. Þess
í stað hefur borgin verið gerð
ögn mannlegri með því að færa
bílaumferð út af Strikinu.
Ætlunin var þó öllu fremur
að benda á hliðstæðu frá
Winnipeg, sem alltof fáir
íslendingar hafa kynnzt af
eigin raun. í því sambandi er
ástæða til að benda á, að
Winnipeg er eftirminnileg og
skemmtileg borg, sem á ýmsa
lund kemur á óvart. Hún hefur
það að vísu framyfir Reykja-
vík, að þar er alvöru sumar og
eðlilegt að mikið verði um
útivist að sumrinu. En vetur-
inn er líka þeim mun kaldari.
Athyglisvert er, hvernig
Winnipeg leysir þann vanda að
endurreisa miðborgina og
gæða hana því lífi, sem yfir-