Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1978, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1978, Blaðsíða 4
Þjóðstjórnin 1939. Frá vinstri: Eysteinn Jónsson, Jakob Möller, Hermann Jónasson, Stefán Jóhann Stefánsson og Ólafur Thors. menn, sem áöur hafa verið taldir miklu linari í sjálfstaeðiskröfunum en þeir, en nú eru ráðnir í því aö taka saman höndum við þá um það, að fá framgengt hinum fylstu kröfum. Einmitt það gefur hinar bestu vonir um fullnaöarsigur í sjálf- stæðisbaráttunni. Það hefur nú einatt verið svo, að menn hefir greint á um það, jafnvel innan sama flokks, hverjar kröfur bæri að gera hverju sinni og hverja leið að fara að sama marki. En nú er svo komið, þó aö fyrrverandi andstæðingar eigi í hlut, að kröfurnar eru sameiginlegar og leiðin að markinu aö eins ein. En getur það þá blessast, aö frjálslyndir menn og íhaldsmenn sameini sig í einum flokki? — Það er auðvitað algerlega undir því komið, um hvað er sameinast. Og hér er að sjálfsögðu að eins um það að ræða, að vinna aö sameiginlegum áhugamálum, fyrst og fremst: fullkomnu sjálfstæði landsins út á við og sjálfstæði og athafnafrelsi einstaklingsins inn á við. Hvort menn geta sameinast í einum flokki um slík höfuðmál, þrátt fyrir ýmislegan ágreining í öðrum málum, fer að sjálf- sögðu eftir því, hver áhersla er lögð á höfuðmálin. Nú er það kunnugt, að Sjálfstæðisflokkinn gamla fylltu ýmsir þeir menn, sem fylgt hafa íhaldsflokknum að málum síðustu árin. Mun láta nærri, aö helmingur þeirra manna, sem fyltu íhaldsflokkinn á síðasta þingi, séu gamlir sjálfstæðismenn. í annan stað eru ýmsir gamlir sjálfstæðismenn horfnir ýmist í flokk jafnaðarmanna eöa framsóknar. Hafi það verið eðlilegt og getað blessast fyrrum, aö íhaldssinnaðir menn og frjálslyndir menn fylltu sama flokk, til þess að vinna að einu sameiginlegu höfuð- áhugamáli, þá er auðsætt, að það er jafneðlilegt og sjálfsagt nú, ef sameigin- legu áhugamálin eru þeim svo mikilvæg, að ágreiningur í öðrum málum veröi smávægilegur í samanburöi við þaö. — En þó að Frjálslyndi flokkurinn og íhalds- flokkurinn sameinist þannig og myndi með sér þennan nýja Sjálfstæðisflokk, þá er auðvitað hvorki frjálslyndi né íhald þar með þurkað út. Einstaklingarnir verða allir, hver með sínu eðli, eftir sem áður, og fylgir að sjálfsögðu hver fram sínum skoðunum í hverju máli sem er. Og þess ber að gæta, að það er ekki sjálfstæöismáliö eitt, sem nú tengir íhaldsmenn og frjálslynda saman. Þaö er einnig sameiginlegt með þeim, að vilja vernda það þjóðskipulag, sem nú er. Margir munu nú ætla, að þetta sé ekki aðeins stefnumál þessara tveggja flokka, heldur sé Framsóknarflokkurinn þar á sömu sveif. En svo viröist þó, sem samvinnan við jafnaðarmenn á þingi síðustu árin, hafi í þessu efni sveigt stefnu flokksins allmjög í áttina til þessara bandamanna hans, þó að ekki verði sagt, að hann hafi opinberlega gert ákveðnar tilraunir í þá átt að breyta núverandi þjóðskipulagi. En hitt er kunnugt öllum þeim, sem lesa blaðið „Tímann“, höfuð- málgagn Framsóknarflokksins, aö ein höfuðásökun hans í garð andstæðinga- flokkanna er sú, aö þeir vilji „halda í núverandi þjóðskipulag". Það er óhugs- andi, að slíkt oröalag sé hvaö eftir annað notað af tilviljun eða óviljandi. Og þó að það sé ekki komið berlega fram í stefnu Framsóknarflokksins, að hann ætli sér að beitast fyrir gerbreytingum á þjóðskipu- laginu, þá viröist ekki geta verið vafi um það, að það sé nokkuö ofarlega í hugum manna í þeim flokki, að einhverjar slíkar breytingar séu æskilegar. Og þar sém vitanlegt er, að til þess að fá slíkum breytingum framgengt, mundu þeir njóta eindregins stuðnings jafnaðarmanna og bandalags, þá væri það eitt ærin ástæða til þess, að frjálslyndir menn og íhalds- menn tæki höndum saman, til að vinna á móti því. Þá er þess enn að geta, aö eitt er það mál nú á dagskrá, sem frjálslynd- um mönnum er svo mikið áhugamál, að fá borgið, aö eitt mundi nægja til að réttlæta samvinnu við hvern þann flokk sem fyrir því vildí beitast með þeim, en það er að gera ráðstafanir til þess að tryggja vinnufrið í landinu. Þetta mál tóku © íhaldsmenn upp á síðasta þingi, og mun það einsdæmi um víða veröld, að íhaldsflokkur beiti sér fyrir gerðardómi í vinnudeilum. Loks er á það að líta, hverja aöstööu frjálslyndir menn hafa til þess að geta haft áhrif á stjórnmálastarfsemina í landinu, sem sérstakur flokkur. Undir því kosn- ingafyrirkomulagi, sem við eigum nú við að búa, er þaö undir hælinn lagt, hvort Frjálslyndi flokkurinn getur af eiginn rammleik komið nokkrum manni á þing, eöa haft þar nokkur áhrif. En með þeirri sameining flokkanna, sem nú er ráöin, geta þeir tryggt sér þingsæti og áhrif að tiltölu við bolmagn sitt, og þar með aöstöðu til aö vinna áhugamálum sínum miklu meira gagn en ella. Af framangreindum ástæöum hefi eg talið mér skylt, að styðja aö stofnun Sjálfstæðisflokksins.“ Þeir Ólafur Thors og Jakob Möller höfðu þekkzt lengi. Ingibjörg og Þóra, kona Jakobs, voru systkinabörn. Hún bjó í æsku að Görðum á Álftanesi, en haföi veriö mikið á heimili Indriöa Einarssonar. Milli hennar og Indriöafólksins var sérstök vinátta, sem þeir erföu Jakob og Ólafur, þegar æskuvinkonurnar, Ingibjörg og Þóra, giftust þeim. Jakob var ritstjóri Vísis og skrifaði mikið um stjórnmál og atvinnumál í blað sitt, oft skarpar og hvassyrtar greinar. Einhverju sinni skrifaði Jakob Möller í Vísi harðvítuga árás á Thor Jensen og þar meö slettist upp á vinskapinn milli þeirra Ólafs og það svo rækilega, að Ólafur þoldi ekki að hafa Jakob fyrir augum, hvað þá meira. Jakob gat verið óvæginn. Það var eins og honum þætti gaman aö skömmum á prenti, en ólíklegt er annað en honum hafi verið Ijóst, að Ólafur tæki þessu illa, svo kært sem var með þeim feðgum. Að vísu höfðu þeir Jakob og Ólafur ekki haft ýkja mikinn samgang sín á milli, en þó hafði verið gott með þeim. Nú sker Ólafur algerlega á þráðinn. Ingibjörg Thors heimsótti foreidra sína næstum dag hvern og hitti Þóru og Jakob þar, og Jakob oft og tíöum einan, því að Þóra var sjúklingur og gat ekki alltaf komið með honum. En á Jakob var litið á heimili Indriða Einarssonar sem hálfgild- ings tengdason. Til að sýna, hve lítið Olafi var um Jakob gefið um þetta leyti, hefur Ingibjörg sagt mér, að henni hafi eitt sinn sem oftar verið boðið í kaffi til Eufemíu og Jens Waage, en þær Eufemía voru Jón Þoriáksson systur. Eufemía og Jens Waage áttu heima á Spítalastíg, en Ólafur og Ingibjörg á Grundarstíg, svo að „ég sting upp á því við Ólaf, að hann taki mig með, þegar hann fari heim af skrifstofunni. Þá spyr hann: „Verður Jakob þarna?“ Ég þóttist vita, að hann yrði þar ekki. En svo kom hann í boðið og var þar, þegar Ólafur birtist í dyrunum. Allir vissu, að þeir sátu ekki á Sárs höfði og brá öllum í brún, þegar Ólafur birtist. Ég stóö strax upp, við kvöddum og fórum heim. En Olafur minntist aldrei á þetta og gagnrýndi mig ekki fyrir að vera. í kaffiboði, þar sem Jakob Möller var." Sambandið milli Ólafs Thors og Jak'obs Möller breyttisí smám saman og síöan urðu þeir nánir samstarfsmenn, samráð- herrar og góðir vinir og áttu saman hvað mestan þátt í því að sameina íhaldsflokk- inn og Frjálsiynda flokkinn að áliti Ingibjargar, en Jakob og Sigurður Eggerz voru mestu áhrifamenn hins síöarnefnda. Jakob og Ólafur uröu nágrannar í Garðastræti og voru oft samferða heim úr stjórnarráðinu og Alþingi. Eitt sinn mættu þeir dömu í Túngötu. Ólafur, nærsýnn eins og faðir hans, heilsar djúpt og viröulega, en þá segir Jakob, „Hvað, þekkir þú hana þessa?" „Já,“ segir Ólafur, „þetta er hún Ebba, dóttir Sæmundar Halldórssonar í Stykkishólmi.'1 „Ne-i, þetta er alþekkt gleðikona," segir Jakob og nefnir nafn hennar. „Jæja,“ segir þá Ólafur, „þú þekkir hana“. Jakob kom ekki oft á heimili þeirra Ingibjargar og Ólafs, og þá helzt eftir aö Sjálfstæðisflokkurinn hafði verið stofnað- ur og ræddu þeir þá um stjórnmál. Þá fór alltaf vel á með þeim og Ólafur virti Jakob mikils, kunni vel að meta skarpskyggni hans og gáfur. Ólafur gat verið langrækinn, en lang- rækni hans lýsti sér þó ekki í hatri, og hann vildi heldur vera vinur manna en óvinur. Þess vegna þótti honum vænt um, þegar leiðir þeirra Jakobs Möller lágu aftur saman. En Ólafur kokgleypti ekki Jakob frekar en kjósendur lista Jóns Þorlákssonar forðurrw daga. Þegar Þjóðstjórnin var mynduö í apríl 1939, voru sjálfstæðismenn ásáttir um, að Ólafur Thors færi í stjórnina, enda varð hann atvinnumálaráðherra. Margir Varðarfélagar og aöalmenn í fulltrúaráði flokksins vildu að Jakob Möller færi í stjórnina með Ólafi, en þá fréttist, að hann vildi fá Magnús Jónsson í stjórnina. Þá er haldinn fundur um málið í Varöarfélaginu til að gera út um málið. „Á sunnudags- morgni komum við saman 6—8 fulltrúa- ráðsmeðlimir og ákváðum að tala máli Jakobs við hina 80—90“, segir Stefán A. Pálsson. „Þetta gekk að óskum og er okkur vel tekið. A fundinum um kvöldið talar Ólafur fyrstur og mæiir mjög með Magnúsi Jónssyni, en síðan tekur einhver annar til máls og stingur upp á Jakobi. Nokkrar umræöur uröu um málið og fer allt fram í góðu. En í atf væöagreiðslunni fær Jakob Möller 83 a'kvæði af 90 og tekur sæti í Þjóöstjórniiiiii. Ólafur sagði fátt og lét sér hvergi bregða, en Thor Thors bróöir hans vt ð vondur, svo og Gunnar Thoroddsen, en þeir fylgdu Ólafi í því að styðja Magnús Jónsson. Ólafur lét okkur ekki gjalda þessa, enda höfðum við látið hann vita og hann hafði kallað í okkur forsvarsmenn Jakobs Möller til að tala við okkur heima hjá sér og ætlaöi náttúrlega með sinni alkunnu lagni að tala okkur á sitt mál. Hann sneri einum, Jóni Norðmann Jónassyni, bónda í Skagafiröi. Jakob var ekki á fundinum, en beið úrslita í ritstjórnarskrifstofu sinni á Vísi. Hann hafði mikinn áhuga á því að verða ráðherra." Eins og fyrr greinir á stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins dýpri rætur í þjóð- ernisstefnu Frjálslynda flokksins og hugsjónum hans en fjármálastefnu íhalds- flokksins, þó að báðir hafi flokkarnir lagt áherzlu á frelsi einstaklingsins sem meginatriði í innanlandsmálum. Frjáls- lyndi flokkurinn var stofnaður 1926 af þingmönnum úr Sjálfstæðisflokknum gamla, sem vildu ekki ganga til samstarfs við íhaldsflokkinn, þegar hann var stofnaður 24. febrúar 1924. Sjálfstæðis- menn og frjálslyndir í Reykjavík studdu við landkjörskosningarnar 1926 sérstakan lista með Siguröi Eggerz, fyrrum forsætis- ráðherra, efstum, en hann féll í kosning- unum. í alþingiskosningunum næsta ár bauð Frjálslyndi flokkurinn fram í sex kjördæmum og náði Sigurður kjöri einn sinna manna. Hann var í framboði í Dalasýslu, en Jakob Möller, forystumaöur flokksins í Reykjavík, féll. Megjnstefna Frjálslynda flokksins var baráttan fyrir algeru sjálfstæöi íslendinga að liðnum 25 árum frá undirritun Sambandslaganna, frjálsri verzlun og einstaklingshyggju gegn hagsmunabar- áttu stéttaflokka, þannig aö einstaklings- Framhald á bls. 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.