Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1978, Blaðsíða 10
Beztu sætin aö tylia sér í reyndust vera í Citroén Pallas, en huröirnar voru
því miöur ekki í sama gæöaflokki.
Hljóðustu huröirnar reyndust vera á BMW 730 — einnig þurfti minnst átak
til aö loka þeim.
Prófnn á bílasvninffii:
111 LOKl HIMIl 0« SETJtST í SÆTI
Hvaö er hægt að komast að raun
um á bílasýningu; hvað er hægt að
athuga framyfir það sem séð
verður á götunum? í rauninni ekki
margt. Á bílastæði eða við stöðu-
mæli kíkir maður í mesta lagi inn
í bíl, sem Þykir forvitnilegur og
maður getur skoðað hann grannt
að utan. Á bílasýningu gefst í
flestum tilfellum tækifæri á að
setjast undir stýri, finna hvernig
sætið er og hvernig maður kann
við sig undir stýri. í annan stað
getur maður oftast opnað hurðirn-
ar og lokað og fengið á þann hátt
hugmynd um, hversu vönduð smíð
bíllinn er og hversu vel hefur verið
að frágangi staðið.
Þetta tvennt reyndi Lesbókin að
athuga á bílasýningunni, sem
nefnd var því tildurslega nafni
Auto 78. Er nú að verða svipað
uppi á teningnum og var í
Reykjavík um og fyrir aldamót,
þegar snobbað var fyrir dönsk-
unni. Alþjóðleg bílasýning er
afspyrnu fínt mál og verður að
bera enskt heiti til þess að vera
tekin alvarlega. En nóg um pað.
Sem sagt: Undirritaður fór í að
setjast í sæti og loka hurðum á
bílasýningunni. Það gefur auga
leið, að vandaðir og þar af
leiðandi dýrir bílar ættu að fá
bezta útkomu í slíkri prófun, enda
varö sú raunin. Á fjölmörgum
tegundum hinna ódýrari og miður
vandaðri bíla, verður að skella
Þrælfast og kveður við heldur
hvimleitt dósarhljóð, þegar hurðin
fellur að stöfum. Amerískum
bílum er það sameiginlegt að hafa
geysi sterklegar og vandaður
hurðir, sem þurfa ekki mikiö átak,
en fara heldur ekki mjög hljóðlega
í lás.
Þegar hringurinn hafði verið
þrengdur með umferð eftir um-
ferð, stóðu tveir eftir: Mercedes
Benz station, sem sýndur var hér
í fyrsta sinni og BMW 730. Mikið
orð hefur farið af huröunum á
Benz, sem eiga að lokast eins
hljóðlega og ísskápur og gera Það
nánast. Samt varð úrskurðurinn
sá, að BMW 730 Þótti bæöi hafa
agnarögn hljóðari hurðir og enn
minna átak þurfti til að loka þeim.
Sá sem næstur kom þessum
tveimur var Peugeot 604.
Þá kom að sætunum; það er að
segja sæti ökumanns. Hér var
einungis unnt að reyna, hvernig
fór um mann undir stýri í svo sem
hálfa til heila mínútu og segir það
ekki alla söguna, til dæmis hvaða
sæti þreytti mann minnst í lang-
akstri.
Þarna var víða pottur brotinn, en
niðurstaðan varð sú, að þægileg-
ast væri að tylla sér í Citroén
Pallas. Þar er sæti ökumanns eins
og hægindastólar geta verið bezt-
ir; styður frábærlega vel að, en er
kannski full mikiö af mýkri sort-
inni fyrir langakstur. Þetta sæti er
mun betra en tíðkaðist í eldri
gerðinni af Citroén. Aftur á móti
fengu hurðirnar á Citroén Pallas
lægstu einkunn í flokki hinna
dýrari bíla á sýningunni; féllu illa
og með háværu dósarhljóði. Hefur
Citroén löngum gengið illa að
komast yfir Þann veikleika, að
alltof mikill munur er á því bezta
og versta í bílnum.
Næst þægilegast þótti að setj-
ast uppí Peugeot 604 og má því
segja, að hann komi út með bezta
meðaleinkunn. Sætin í bæði
Mercedes Benz og BMW 730 voru
heldur í harðara lagi til þess að
vera mjög þægileg, en þaö kann
að reynast betur í langakstri.
í milliflokki er ástæða til að
benda á sænsku bílana, Volvo og
Saab, sem báðir eru með sérlega
góð sæti. Gott er að hafa sætis-
bökin há, en öllu má ofgera og svo
virðist sem bökin í Saab séu svo
há, að þau hindri töluvert útsýni.
Einnig er ástæða til aö geta
sérstaklega um sætin í Lancia
Beta, sem bæði eru þægileg og
óvenju fallega formuð.
í flokki smærri bíla voru hurðir
á Volkswagen Golf í sérflokki og
gáfu ýmsum tvöfalt dýrari bílum
lítið eftir. Einn bíll var þó á
sýningunni, sem Þykir hafa frábær
sæti og kannski hurðir líka: Rover
3500. En þar var allt lokað og læst
og enginn kostur aö fá saman-
burð. GS.
Bezta meðalútkomu hlaut Peugeot 604; var bæði meö sérlega vöhduð sæti
og góöar hurðir.