Lesbók Morgunblaðsins - 07.06.1980, Síða 4
Guöbrandur Gíslason:
Dagbók
50480
kl. 21:30
hann ranglar á milli hólanna
skrikar fótur í sandi
spyrnir í
togar í strátoppa
honum sem var lofað líf
(þar til yfir lyki)
nú heimtar hann lævís dauðinn
löngu fyrir aldurtila
sem merktir eru hjá manntalinu
og mega teljast eðlilegir
menn verða að sýna ellimörk, hvá
áður en dauðinn tekur þá
drekka aöeins úr hálfum bollum
sorgardauði er tölvuspillir
segja líkindafræðingar
konan mín hafði of stór augu
fyrir reykjavík og nágrenni
hugsar hann og spyrnir í
músarrindlar fundu ekki
fingur hennar á fjöðrum sér
(þegar sprakk hjá mér uppí
borgarfiröi og hún fann
hreiðriö á meðan)
hugsar hann og spyrnir í
þó var hún best í svefni
þegar hana dreymdi aö ég héldi
yfir henni gífurlega stórri
verndarhendi og þaö var satt
svo stórri hendi að allt rúmaðist
undir henni: herinn stjórnin
fríkirkjuvegur ellefu og
fínu bollarnir heima allt nema
nú hugsar hann og spyrnir í
augu hennar sem voru svo stór
aö þau spegluöu heilu dagana á laun
og ég sem haföi lofað henni smára
urtum á skeri og stjörnum í
dropatali frameftir öllum svefni
og vöku sem væri svo löng
að við þyrftum aldrei að draga andann
heldur spegla okkur áfram í hornhimnu
hennar sem á gljáði meir
en áratugs framleiðslu af johnsons’ wax
Siguröur Skúlason magister
Kynslóðaskil
Þið láguð í vöggu er vorum við
vaxin úr grasi og þaö fyrir löngu.
Nú kveöið þið okkur í kútinn flest.
Sú kaldsára reynd hefur sært þá mest
sem ættu að þekkja rétt frá röngu.
Það var hlutskipti okkar að flakka um Frón
með fislétta vitbyröi á vesælu baki.
En mannvitsbyrði ykkar mældist vel,
hún var mótuö af örlæti en okkar í skel,
staula sem stóöum á veikburöa flaki.
Þegar upp er staðið skal allt vera jafnt
var eitt sinn viðkvæði í spilamennsku.
Aö líkt sé því farið við lífsins spil
er læknisdómur ræflum í vil
hvort sem vilja er beitt eða leti er í lensku.
PÁSKA-
RAUNIR
Um páskana árið 1917
gekk Trycjgvi Emilsson
frá Gili í Óxnadal
til Akureyrar & tilbaka
hundraðkílómetraleiö
að fá hafragrjón hveiti &
sykur kaffi tóbak & rúsínur
& máske eitthvað smátt
til að bægja hungurvofunni frá
hreppti hríð & var allur svar-
blár á kroppinn af kuldanum
á eftir & næstum dauður
en á laugardag fyrir páska 1980
komst ég líka í hann krappan
í húsi í Borgarnesi þarsem voru
36 tegundir með kaffinu & ég ný-
búinn að éta hádegismat & átti
við hægðatregðu aö stríöa af
hreyfingarleysi & húsfreyjan
sagöi þið fyrirgefiö þetta &
ég sagði næstum því nei
það segir ekki af veðrum en
kl. hálfsex stóð frændi minn
upp stór maður & sagði ekki verður
ófeigum í hel komið
BLÚS MEÐ
KÍNVERSKU
STEFI III
Enn geng ég seint til náöa
úti er borgarþögn fyrir gluggum.
í dag hef ég unnið fáa sigra.
Ég er þreyttur.
Ég ber fram öskuna, slekk Ijósið,
læðist inn til konu minnar.
Hún veit ég verð þar er hún vaknar.
Myndirnar voru teknar á þjóðveginum austur að Geysi nú í vor
eftir aö fór að þorna til og hægt var aö komast meö gætni yfir
grjóthrúgurnar, sem vegagerðin haföi sturtað í hvörfin.
Stafsetningin á skiltinu getur staðiö sem tákn fyrir vinnubrögð-
in.
©