Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1981, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1981, Qupperneq 9
Yfirvöldum komm- únista hefur ekki tekizt að brjóta á bak aftur trúar- áhuga Pólverja. Góralar fóru framá að fá að byggja þessa kirkju suður í Karpatafjölum, en embættismenn flokksins sögðu nei. Goralar tóku sig þá til, smíðuðu kirkj- una á laun og alit i einu var hún risin — og þá látið þar við sitja Efnilegur ungur maður: Karol Wojt- yla 18 ára — hann yfirgaf þá Wadowice, hélt til Krakau og reyndist Karol Wojtyla 38 ára, yngsti biskup í frábær námsmaður. Póllandi og 20 árum síðar: Páfi í Róm. Frh. á bl.s 14 Goraiar — truadir og fara sinar eigm leiöir kemur feðgunum saman um að hafa bústaðaskipti. Þeir flytja frá Wadowice- þorpi viö rætur Karpatafjalla og til Kraká, í dimma kjallaraíbúö, sem sumir kölluðu „katakombuna". Karol er ákveðinn í að hefja háskólanám. í sumarleyfum vinnur hann við vegagerð eins og margir pólskir stúdentar. Heilsa hans er góð, hert við skíða- og gönguferðir og knattspyrnu, enda kemur það honum síöar að liði. Karol er föður- landsvinur og brennur af áhuga á því að vinna þjóð sinni gagn. Árið 1939 dynja ósköpin yfir. Pólland logar í stríði og því næst kemur hinn kaldi friöur. Landið er hernumið. Karol hefur ekkert „vinnukort" og er í yfirvofandi hættu að veröa fluttur burt í nauðungarvinnu, þar sem hann má búast við heilsutjóni eöa jafnvel dauða. En Karol hefur heppnina með sér. Hann kemst í steinnámu í grennd við Kraká. Úrslitastund rennur upp í lífi hans árið 1941. Þá deyr faöir hans úr hjartasjúkdómi. En hann hafði verið syninum jafnan styrk stoð og sannur félagi og ráögjafi. Örvænt- ingarfullur situr ungi maðurinn, sem þá stendur á tvítugu, við dánarbeð fööur síns. Hann ber fram bænir sínar við Guð og það birtir í hug hans. Við þennan atburð varð mikil breyting í fari Karols. Vinir hans hafa sagt frá því, að hann hafi ávallt veriö hlýr, alúðlegur og oft gamansamur í framkomu, en upp frá þessu verður hann alvarlegri. Og staðreynd er að hann tekur nýja lífsstefnu. Skömmu síðar hefur hann guö- fræðinám við Prestaskólann í Kraká, en hverfur frá námi í pólskum fræðum og bókmenntum, sem hann hafði áður stund- aö af kappi. Karol hefur tekið endanlega ákvörðun. Margar sögur eru á kreiki um frjálslyndi Karols gagnvart ströngu klerkavaldi. Eftir að hann var orðinn prestur stjórnaði hann knattspyrnufélagi ungra manna og oft stóð hann í marki í kappleikjum þeirra. Þegar hann var orðinn kardináli, snerist hann gegn því að prestar og aðrir krypu fyrir sér. Eitt sinn kraup prestur einn á kné frammi fyrir honum og þá fór kardinálinn aö dæmi hans og kraup til að venja prestinn af þessu. Þegar hann hafði verið valinn páfi, átti hann bágt meö aö láta af því að ganga hratt eöa skokka (það var honum ekki ieyfilegt eða sæmandi) — en talið aö hann geri það enn, svo að lítiö beri á. Ekki láta honum „véringar og ossingar" er hann flytur ávörp eða heldur ræður. Honum er tamara að grípa til eintölunnar „ég“. „Ég, Karol Wojtyla." Góralar komnir á markað í Nowy Targ og þarna í forinni er verzlað með lifandi búpening og heimaunninn fatnað. Einþykkir og stoltir eru þeir Goralar og unna frelsinu. Goralar eru kynþáttur sem á heima í Karpatafjöllum, víölendum fjalla- klasa sem nær frá Póllandi um Rússland og alla leiö til Rúmeníu. Þeir eru siungnir, duglegir og hjátrúar- fullir. í heimahögum þeirra er á reiki fjöldi þjóðsagna um Borúta-djöfulinn sem ávallt er á sálnaveiðum. Varúlfar og sálir drukkn- aöra manna sitja hvarvetna á fleti fyrir í gjám og gljúfrum. Bezta ráðið til aö verjast þessum ókindum er að neyta geirlauks óspart. Karol Wojtyla á fyrsta ári ásamt móður sinni, Emilíu. Karol Wojtyla gengur í fyrsta sinn til altaris í Wadowice. 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.