Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1982, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1982, Side 7
4. hluti Helgi J. Halldórsson þýddi Meðan hún var aö boröa horföi barniö stööugt á hana. Mamma hennar fór á morgnana áöur en hún vaknaöi, og þaö voru aöeins þessar dýrmætu stundir fyrir háttatima sem þær gátu verið saman. Barniö mundi ekki föður sinn. Sjómaður er alltaf gestur á eigin heimili, og reyndar var hún aðeins þriggja ára þegar hún sá hann síðast. Hún hataði hann af nauösyn á sama hátt og móöirin. Kannski var þaö aðeins af hefð og vana: sá óþokki, sögöu konurnar hjá Carlsberg og i stigagangin- um, og „hann skal ekki voga sér aö koma hingaö aftur,“ yfirbauð móöirin þær. En hatur barnsins var þögult og stafaði af þeirri hlýiu umhyggju sem hún bar fyrir móður sinni. Þegar þær voru búnar aö boröa skolaði hún af diskunum. Hún þvoöi ekki upp fyrr en daginn eftir þegar hún kom heim úr skólanum. Á eldhúsborðinu lá peningabudda móö- ur hennar opin og nokkrir smápeningar höföu oltiö úr henni. Afstaða barnsins til peninga var blandin iotningu og beiskju. Vegna þessara peninga var móöir hennar fjarverandi dagiangt; þeir áttu sök á margra klukkutíma vinnu, kvíöa og ein- semd. Hver eyrir kostaöi dálítið af kröftum móöur hennar, dálítiö af álagi augna henn- ar, sem voru orðin eyöilögð af því aö halda flöskum upp á móti Ijósinu til aö sjá hvort þær væru hreinar. Hún var ekki gömul þegar hún spurði móöur sina af hverju hún færi út aö vinna þegar þaö væri miklu betra aö vera heima. Þá fékk hún aö vita að það væri til þess að þær fengju mat og föt, og sunnudaginn eftir hafði hún spurt áhyggjufull hvort nú fengju þær engan mat úr þvi aö mamma væri heima. Hún furöaöi sig á því af hverju buddunni hafði veriö felygt svo hirðuleysislega á eldhúsboröiö og flýtti sér að taka hana upp. Hún byrjaöi aö stinga aurunum í hana aftur, en tók allt í einu eftir þvi aö móöir hennar stóð fyrir aftan hana. Hún kipptist viö af því aö hún haföi ekki heyrt hana koma. Þaö kom fát á hana, hún sleppti buddunni, strauk burt hárið af andlitinu meö framhandleggnum og mætti framandi, tortryggnu augnaráöi móöur sinnar. Hún blóroönaöi og starði á móöur sina, galopn- um, skelfdum augum, sem kölluðu fram reiði í svip móður hennar, því næst þrjósku og öryggisleysi, þar til skuggi blygðunar leiö yfir andlit hennar og hún þoldi ekki lengur að horfa í þetta skelfda augnaráö en sneri sér viö, hálf vandræöaleg, hálf ergileg og gekk aftur inn i stofuna. Barniö stóð hreyfingarlaust og þögult hjá buddunni og óhreinu diskunum. Hún andaöi hratt og hugsanirnar hnutu hver um aðra þvera bak viö þetta heita föla enni: hún hélt ég ætlaði aö stela, hún hélt ég tæki peninga frá henni — kannski heldur hún að ég hafi gert þaö áöur — eins og ég kostaöi hana ekki nóg fyrir — bara aö buddan heföi ekki legiö þarna — bara aö allt væri eins og áöur — góði guö, látu allt vera eins og áður — láttu sem ekkert hafi gerst. — Af hverju stenduröu þarna og glápir? kallaöi móðir hennar innan úr stofunni. Röddin var ergileg og ókunnugleg eins og augun áöur, með höröum hreim eins og til að verjast því samviskubiti og blíöu sem hún haföi aldrei megnað aö tjá. Hún tók poka meö sokkum út úr veggskápnum bak við boröið og iagöi að lokum klút yfir skæru peruna áöur en hún settist við blett- aða dúkinn og dró götóttan sokk upp úr pokanum. Hún staði á sokkinn eins og hún furöaöi sig á því aö einn sokkur skyldi geta veriö meö svo mörgum götum. Hún beindi NÁTTÚRUVERND EÐA OFNÝTING NÁTTÚRUGÆÐA Hulda Valtýsdóttir ræðir við SILVI STRUKSNES frá norsku náttúruverndar- samtökunum um viðhorf til náttúruverndar í Noregi og aðsteðjandi hættur fyrir náttúruverðmæti þar í landi Ekki er ýkja langt síðan náttúru- verndarmál voru lítt þekkt hugtak, að minnsta kosti í hugum þorra manna, en segja má að á þessari öld hafi orðið alger umskipti í samskiptum mannsins við umhverfi sitt. Áður fyrr var lífs- afkoman fyrst og fremst undir því komin að menn ættu í fullu tré við um- hverfi sitt og náttúruöflin. Þau höfðu yfirhöndina að öllu jöfnu. Maðurinn var háður umhverfi sínu, enda þótt hann nýtti gæðin, sem náttúran haföi aö bjóöa, með öllum tiltækum ráðum, ekki hvað síst í bænda- og veiðimanna- þjóðfélögum. Nú er öldin önnur víðs vegar um heim. Náttúran og umhverfi mannsins er háð því í æ ríkara mæli hvaöa ákvarðanir maðurinn og þá auðvitaö stjórnvöld taka — hvaða afstööu þau hafa til verndunarsjónarmiða. Hjóliö er fariö að snúast á annan veg á tiltölu- lega skömmum tíma vegna hraöfleygra tækniframfara, því er engin furða þótt margur eigi erfitt meö að átta sig á umskiptunum. Þeir sem fyrst fóru aö hrópa hátt um náttúruverndarmál skáru sig úr fjöldanum — voru álitnir draumóramenn sem hefðu snúið baki við athafnalífi og framförum. En um- ræöur komust í gang. í fyrstu sátu ef til vill öfgar í fyrirrúmi á báða bóga en öldurnar hefur lægt. Málsvarar þessara tveggja viöhorfa eigast þó enn viö en því lengra sem líöur virðast báöir aöilar vera reiðubúnari að ræöa málin af skynsemi og rökfestu. Báöir viöur- kenna að hinn hafi nokkuð til síns máls. Og þá er aðeins eftir að finna hinn gullna meðalveg — hina farsælu leið fyrir manninn og umhverfi hans um ókomin ár. Eöli málsins samkvæmt eiga þó for- svarsmenn náttúruverndarsjónarmiöa und- ir högg að sækja enn í dag. Sjónarmið stjórnvalda stangast oft á við afstöðu þeirra og þeir sem um stjórnvölinn halda sitja á fjárhirslunum. Skjótfengið fé í þær hirslur er mikilvægt mál í þeirra augum og helst eru farnar troðnar slóðir til að ná settu marki. Náttúruverndarmenn bjóða oft upp á aðrar lausnir, sem þurfa ekki aö vera dýrari í framkvæmd en með farsæl lang- timamarkmið í huga. Málið er margþætt og flókið og vanda- mál af þessu tagi miklu geigvænlegri hjá mörgum nágrannaþjóðum okkar heldur en hér á landi. Náttúruverndarsamtökum vex stöðugt fiskur um hrygg ekki hvaö síst hjá iðnaðar- þjóðum Evrópu. Verkefni þeirra eru marg- vísleg — baráttumálin bæöi „pro-“ og „contra-" með gróðri og náttúruvernd, móti mengun og ofnýtingu landsgæða svo nokkuð sé nefnt. í sumum löndum hafa þessi samtök myndað með sér sérstaka stjórnmálaflokka sem setja þessi mál á oddinn, sbr. „grænfriðunga“ í Þýskalandi og Frakklandi. Þótt slíkir flokkar hafi ekki enn fengið fulltrúa á löggjafarsamkundur þá veröur þess ef til vill ekki langt aö bíða. Almenningi verður æ Ijósara að t.d. meng- un og ágangur manna á lífríkið er gífurlegt vandamál í okkar heimshluta og að viö svo búiö má ekki lengur standa. Þeir sem skella við skollaeyrum varðandi þessi mál eru ekki menn síns tíma og því síður fram- tíðarinnar. Landvernd — landgræöslu- og náttúru- verndarsamtök íslands eru félagasamtök sem eiga vaxandi fylgi að fagna hér á landi. Aðildarfélögin eru 65 talsins, sum afar fjöl- menn s.s. Alþýðusamband íslands, Banda- lag háskólamanna, Búnaöarfélag islands, Félag íslenskra stórkaupmanna, Ferðafé- lag íslands, Kennarasamband íslands, Kvenfélagasamband islands, Starfsmanna- félag ríkisstofnana, Samband íslenskra sveitarfélaga, Starfsmannafélag SiS, Stétt- arsamband bænda, Verkamannasamband islands og Vinnuveitendasamband íslands svo nokkur þau fjölmennustu séu nefnd en auk þessara ýmis félög sem láta sig nátt- úru- og gróðurvernd varða. Væri farið eftir höfðatölu eru þetta líklega ein fjölmenn- ustu samtök i landinu. Aðalverkefni Landverndar er útgáfa kynningar- og fræðslurita auk funda- og ráðstefnuhalds en samtökin reka skrifstofu á Skóiavörðustíg 25 í Rvík. Á aðalfundi Landverndar í haust var boöið upp á umræðuefnið „Áhrif orku- vinnslu á umhverfi og framtíðarviðhorf". Þar fluttu framsöguerindi þeir Jóhann Már Maríusson verkfræðingur, Arnþór Garð- arsson líffræðingur og Bjarni Guðleifsson tilraunastjóri og geröu grein fyrir ýmsum hliðum þessara mála. Erindunum var vel tekiö og urðu um þau fjörugar umræður á eftir, og viðstaddir uröu örugglega nokkru fróöari. Sérstakur gestur aðalfundarins var Sylvi Struksnes frá norsku náttúruverndarsam- tökunum. Hún flutti erindi um vatnsafls- virkjanir í Noregi en Norðmenn hafa eins og kunnugt er lent í töluverðum þrenging- um vegna virkjunarmála og er Alta-málið kunnast þeirra. Margir kenna óheillavæn- legri þróun þess máls því, að ekki hafi verið rétt staðið að málum í upphafi, — andstæð öfl hafi ekki byrjað umræður nógu snemma og þess vegna allt farið i hnút. Ekki skal fjallað nánar um það hér, né heldur afstaöa tekin — það er hausverkur bræöra okkar Norðmanna. En virkjunarmál eru ekki nema einn þátt- ur þeirra mörgu mála sem náttúruvernd- arsamtök hafa afskipti af. Áður en Sylvi Struksnes hvarf á braut hitti Lesbók hana að máli til að fregna frekar af þeim verkefn- um sem náttúruverndarsamtök í Noregi vinna að og hver væru helstu baráttumálin. Sylvi Struksnes hefur starfað að náttúru- verndarmálum í 10 ár en síðastliðin 6 ár hjá norsku náttúruverndarsamtökunum í Osló og ritstýrt tímariti samtakanna. Hún sagði að á skrifstofunni í Osló væru 9 manns í föstu starfi. Félagsmenn í sam- tökunum eru um 40 þúsund í 18 deildum víð 5 vegar um landið. Deildunum er síðan skipt í smærri einingar innan fylkja og eru þær um 100 alls. Þær fá fjárhagsaðstoð frá sínu sveitarfélagi eða afla fjár sjálfar en árgjald per persóna er 75 krónur. Samtök- in fá 1 milljón norskra króna í styrk á ári frá ríkinu. Skrifstofan í Osló annast útgáfu ým- isskonar, s.s. tímarits og bóka um náttúru- verndarmál, gerð veggspjalda og kvik- mynda. í tengslum viö norsku náttúru- verndarsamtökin starfa einnig unglinga- deildir innan skólanna, „Natur og Ungdom" nefnast þær. Unglingarnir starfa í klúbbum undir leiðsögn líffræði- eða náttúrufræði- kennara sinna. Þeir fara í skoðunarferðir 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.