Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1982, Blaðsíða 10
SVIPMYND:
Einvaldur Líbýu er hylltur eins og
poppstjarna, þar sem hann kemur
fram í ríki sínu og æsir upp lýðinn
— og ekki þykir nóg að hafa hann í
eigin persónu, heldur er haldið á
lofti fjölmörgum og stórum mynd-
um af honum.
Muammar
í útvarpinu kveður við sí og æ: „Al-Faatih
akbar." — Lengi lifi byltingin. í hópgöngum
kyrja menn vígorð hástöfum. Og þegar
þjóðarleiðtoginn Muammar el Gaddafi
heldur ræðu, drynur samróma úr mörgum
börkum: „Áfram, ofursti, við fylgjum þér!"
En stjórnmálamenn um heim allan eru
annarrar skoðunar. „Illskeyttur glæpamaö-
ur, algjörlega brjálaður og djöfulóður,"
sagöi Anwar heitinn Sadat, forseti Egypta-
lands. „Klofinn persónuleiki — og báðir
hlutar slæmir," er haft eftir Numeiri, forseta
Súdan. Sjálfur nýtur Gaddafi þess að vera
úthrópaöur sem heimsóþokki númer eitt.
Fyrir nokkru vann hann sér það til vafa-
samrar frægðar að hafa stofnaö heims-
friðnum í hættu. Tvær orrustuflugvélar
hans af gerðinni SU-22 réðust að tveimur
bandarískum af gerðinni F-14, 60 km fyrir
utan strönd Líbýu. Bandaríska stjórnin
haföi tilkynnt á réttum tíma, að 6. flotinn
meö stærsta flugvélamóðurskip heims,
„Nimitz", myndi halda heræfingar á Mið-
jarðarhafi. Engu að síður gerðu líbýsku
flugvélarnar árás 60 km fyrir utan strönd-
ina. Amerísku flugmennirnir svöruðu árás-
inni og hæfðu hinar báðar, sem hröpuðu í
sjóinn.
Ástæöan fyrir árásinni mun vera sú, að
Gaddafi krefst 200 mílna lögsögu frá
strönd landsins, en Bandaríkin viðurkenna
aöeins þrjár mílur. „Ögrun," þrumaði
Gaddafi, þegar hann frétti af væntanlegum
heræfingum, en Bandaríkjamenn létu þaö
ekki aftra sér.
Hryðjuverk Gaddafis
í 45 löndum
Stóri draumur litla Líbýumannsins, sem
gjarna gengur í háhæluðum skóm og hefur
um sig lífvörö heillandi kvenna, þegar hann
veitir viðtöl, er að stofna stórarabískt ríki í
norðurhluta Afríku og ríkja yfir hinum nær-
lægari Austurlöndum. Til þess telur hann
sig hafa rétt til að beita öllum ráðum. Hann
stendur straum af kostnaði við starfsemi
hryöjuverkamanna í 45 löndum heims og
liggur undir grun um aö hafa staðið að
morðtilræðum að sex þjóðarleiðtogum.
★ Morðsveitir Gaddafis drepa líbýska út-
laga í Bonn, London, Róm og Aþenu.
★ Manndrápararnir, sem myrtu ellefu ísra-
elska íþróttamenn og þýzkan lögreglu-
þjón á Ólympíuleikunum i Munchen
1972, voru þjálfaðír í Líbýu. Vopnin
10.
komu meö sendiráðspósti til Þýzka-
lands.
★ Einnig komu með sendiráðspósti vopn
þau, sem notuð voru í árásinni á ítölsku
flughöfnina Fiumicino 1973, þegar 32
manns misstu lífið.
★ Mannræningjar OPEC-ráöherranna i Vín
flugu eftir lendinguna í Alsír beina leið
aftur til Trípólí. Meðal þeirra, sem gerðu
árásina í Vín, voru Baader-Meinhof-fé-
lagarnir Gabriele Kröcher-Tidemann og
Hans-Joachim Klein sem og hryöju-
verkamaðurinn „Carlos".
★ Hryöjuverkamennirnir, sem rændu Air
France-flugvélinni og héldu til Entebbe-
flugvallar í Úganda sumarið 1976, höfðu
fyrst viðkomu í Líbýu.
★ Bourgiba, forseti Túnis, hefur sagt:
„Hann hefur sent menn til lands míns í
þeim erindum að myrða mig."
★ í æfingabúðum úti í eyðimörkinni lætur
Gaddafi þjálfa manndrápara sína, sem
síðan eru sendir út um allan heim.
★ Með fjármunum, vopnum og sprengiefni
styður hann neðanjarðarhreyfingu IRA,
múslim-skæruliða á Filippseyjum og
vinstri neöanjaröarhreyfingar í Thailandi
og Tyrklandi.
Þetta er hræðilegur listi. Maðurinn, sem
að baki honum stendur, fæddist í sept-
ember 1942 í geitarskinnstjaldi í Syrenaika.
Foreldrar hans voru hirðingjar af ættstofni
Berba frá „Kathathfa". Fjölskyldan fylgdi
regninu með geitum sínum og úlföldum um
eyðimerkurnar milli Egyptalands og Mar-
okkó — hirðingjar skeyta ekki um landa-
mæri. „Lífið í eyðimörkinni fyllti mig bar-
áttuanda," hefur Gaddafi sagt. Hann fylgd-
ist af brennandi áhuga með ræðum Nass-
ers, forseta Egyptalands, í þá daga, en
honum þakkar hann hugsjón sína varðandi
einingu Araba. Hann var farinn að tala um
byltingu þegar 14 ára gamall. Og svo var
það 1. september 1969, að gerð var upp-
reisn án blóösúthellinga í Líbýu, þegar
Idris, konungur, var í leyfi í Tyrklandi. Eftir
þaö lætur Gaddafi gjarna kalla sig „for-
ingja" eða „leiötoga". Markmið hans er:
„Aö ríkisstjórnir hverfi og engin lögregla
veröi lengur til. Herir, kaup, laun, auð-
magn, verzlun, ágóði og vextir, allt hverfur
þetta hjá mér. Maöurinn verður frjáls," hef-
ur Gaddafi sagt.
Hann hefur sannarlega séð um ýmsar
framfarir í landi sínu, sem hefur tvær og
hálfa milljón íbúa. Og þær byggjast á olí-
el Gaddafi
Einvaldur Líbýu er
ofstækisfullur múham-
eöstrúarmaöur og í sum-
um erlendum blöðum
hefur hann uppá síðkast-
ið verið nefndur einn
hættulegasti þjóðarleið-
togi heimsins. Stór-
arabískt ríki er takmark
hans og hryðjuverka-
menn hans valda skelf-
ingu og ógn um allan
heim.
íbúðarhverfi í Tripoti, — þar gnæfir risa-
stór mynd af leiðtoganum, en sjálfur vill
hann fremur búa í tjaldi en húsum af
þessu tagi, — og hefur þá ekki annað í
kringum sig en nokkra púöa.
unni, sem þar er í ríkum mæli. Frá 1969
hafa 200.000 hús verið byggð og um 400
milljónir trjáa verið gróðursettar. Mikið
átak hefur verið gert tíl að rækta eyðimerk-
urnar, og dísilvélar frá Þýzkalandi dæla
vatni úr iðrum jarðar. í stórmörkuðum
ríkisins eru á boöstólum franskur ostur og
danskt smjör, ítölsk húsgögn og japönsk
myndsegulbönd. Meðaltekjur Líbýubúa eru
um 70.000 kr. Þaö er nær jafnmikið og
menn fá í Þýzkalandi. Og Gaddafi segir
sigri hrósandi: „Á tíu árum höfum við flutt
inn 90 útvarpstæki á mann.“ Betlarar sjást
ekki lengur á götum Trípólí, og það er al-
vanalegt, að fjölskyldur eigi nokkra bíla.
En mest af því fé, sem olíuauðæfin færa
Líbýu, rennur til vígbúnaðar. Um 60.000
manns eru í hernum, sem er bezt búinn
vopnum allra herja í Noröur-Afríku. Flug-
herinn hefur 287 flugvélar, orustuflugvélar,
þar á meðal Mirage-þotur frá Frakklandi
og rússneskar MIG-25-flugvélar. Herinn
hefur nýja, rússneska skriðdreka, og
Gaddafi kaupir vopn í stórum stíl eystra.
Þó að Líbýumaðurinn sé tortrygginn og
varkár gagnvart Sovétríkjunum, eru Sovét-
menn fúsir til viðskipta. Þeir vonast eftir að
fá aðstööu í Líbýu síðar meir. Herstöð sem
stökkpall gegn vesturveldunum.
Amerískur sérfræöingur segir: „Gaddafi
á þegar oröiö svo mikið af vopnum, að
hann gæti ekki einu sinni beitt helmingn-
um, þótt hann vildi." Mesta vandamál
hans, hvað snertir vígbúnað og efnahagslíf-
ið einnig, er skortur á kunnáttufólki. Þannig
brást til dæmis flotinn hörmulega á skot-
æfingu, þar sem skipsflak var skotmarkiö.
Ekkert skot hæfði í mark. Svipuðu máli
gegnir um ýmsa þætti efnahagslífsins. Það
kemur fyrir, aö matvæli mygli í höfninni, og
véla- og varahlutir, sem brýn nauðsyn er á,
liggja oft mánuðum saman í tollvöru-
geymslum. Þegar hægt var fyrir nokkru að
taka í notkun útlenda sementsverksmiöju,
var hún þegar í stað ofkeyrð og vélarnar
fóru ekki í gang aftur, fyrr en útlendir sér-
fræöingar voru til kvaddir mörgum vikum
síöar.
En Líbýumenn taka slíkt ékki nærri sér.
Þeir treysta hinum heittrúaða múslim,
Gaddafi. Bændurnir og hirðingjarnir dá
hann, af því að hann fékk þeim ríkulegt
landrými, og allar konur dýrka hann, af því
að hann færði þeim frelsi: Líbýskar konur
er ekki lengur hægt að gifta án samþykkis
þeirra né heldur er hægt að skilja við þær.