Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1982, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1982, Blaðsíða 14
I Yngvi Jóhannesson Sumar Niöandi áin. löandi stráin. Bólstur af heyi. Broshýr grund. Svifléttir vindar. Sólheiðir tindar. Mófugl á vegi. Morgunstund. Gleöi, hvar varstu? Vorlanga barstu daga og nætur þinn huliöshjúp. Vel máttu skarta, skuggsjá er hjarta, lindin sem grætur lygn og djúp. Erindi biðu ekki á leiö. Svipmyndir liðu, gatan var greið. Andartaks kynning. Innra bjó þrá og minning — þaö var nóg. Nöfn eöa sögur sízt ég veit. Fjarræn og fögur fjöll ég leit, litbirtu geimsins, logn um sjó, þrotleysu heimsins — þaö var nóg. Fátt eitt ég þekki fólk eða hjal, heyrandi ekki heyri þess tal. Nývöknuö gleöi í geöi bjó, þeli hún réöi — þaö var nóg. Jón Oddgeir Jónsson Norðurljós Af norðurljósum nætur loga, hlaöin geislum rafurboga. Himinn hækkar, stjörnur stækka, mennirnir smækka. Máninn Gunnar Sverrisson Við dagrenning Eg geng meö fram ströndinni, nýt þess að vera náttúrubarn, manneskja, Amor, Amor, bylgjur timans leika viö fjöruhleina ... Eg geng meö fram ströndinni, nýt þess aö vera til, því það er sem niður eHtföarhafsins hvísli i eyru mér, Amor, Amor, hún bíöur eftir þér, handan viö fjörukambinn, veröur allra kvenna elzt, þú körlum eldri, hamingjusöm. .. Eg geng með fram ströndinni, og hraða mér á fyrsta fund, svo sem niöur hafsins, hefur boöið mér, viö dagrenning, en Amor er á heimleiö, til aö sækja meiri örvar, undirbýr skot, næstu framtíöar. Máninn hvíti mildan bjarma ber, mjúkum höndum fer um móður jörö, endurvarpar birtu sólar er myrkur hrjáir mannabörn. höndunum með tveimur glösum, ísmola- skál og viskýflösku, og mér fór ekki að verða um sel, þegar hún settist grun- samlega nálægt mér, sagöi að eigin- maöurinn væri erlendis, alveg eins og í myndunum í sjónvarpinu, og sagðist allt- af hafa vonað, aö þaö kæmi einhver riddaralegur karlmaður aö nema sig á brott í brúðarkjólnum úr þessari innan- tómu veröld, sem hún sagöist lifa í, um leið bandaði hún út hendinni til að vekja athygli á einbýlishúsinu og innbúinu. Ég varö hálf vandræöalegur, og sagðist nú ekki vera í þeirri aöstöðu að geta hjálp- að henni, en aö ég vissi hins vegar um kjötkaupmann, sem væri fráskilinn. Hún lét orð mín sem vind um eyrun þjóta, og sagöist vera búin að fá nóg af kjötkaup- mönnum. Maöurinn hennar væri nefni- lega líka kjötkaupmaöur. Svo hellti hún í glasið mitt og bar það sjálf upp að vör- um mínum afskaplega seiðandi hreyf- ingu. Ég sat teinréttur í sófanum, skelf- ingu lostinn yfir þessum duttlungum ör- laganna, og vissi ekki hvort ég ætti aö hlaupa í burtu eða vera kyrr. Ég ákvaö þó aö vera kyrr smástund enn, ef ske kynni aö þaö yröi til þess aö ég fengi kjólinn. Svitinn spratt fram á enni mér, mér varð heitt og kalt á víxl og hvernig sem ég reyndi að vera eöliiegur tókst mér þaö alls ekki. Á dauða mínum hefði ég frekar átt von, en ekki þessu. Konan bauðst til þess að fara í kjól- inn, en ég afþakkaöi þaö í skyndi, sagð- ist vera búinn aö sjá alveg nóg af kjóln- um, kvaðst vera hrifinn og spurði, hvort við gætum ekki gengið frá kaupunum strax. Hún sagöi aö það væri alls ekki hægt að ganga strax frá kaupunum, hún sagöist sjá þaö á mér langar leiöir, aö ég væri ekki búinn aö gera upp hug minn gagnvart sér, en hún fullyrti aö hún ætti aö fylgja kjólnum. Hún hefði boöið hann til kaups til að einhver draumur eins og ég birtist og næmi hana brott úr þessari vesöld. Hún bandaöi aftur út höndunum til aö vekja athygli á húsinu og húsgögn- unum, og svo spuröi hún mig, hvort hún væri óaðlaðandi. Mér fannst ég eins og milli steins og sleggju. Ef ég svaraöi henni játandi, væri allt eins víst hún ræki mig kjóllausan á dyr, en ég segöi aö hún væri þvert á móti mjög aðlaðandi, eins og satt var, gat ég búist viö enn meiri aögangshörku en hún hafði þegar sýnt. Ég kaus því aö þegja og sat grafkyrr og horfði í gaupnir mér eins og dauða- dæmdur maður. Þannig leiö mér reynd- ar líka, eins og dauöadæmdum, milli kjötkaupmannsins sem beiö eftir því aö fá brúðarkjólinn í kjötbúðargluggann sinn og þessarar kjötkaupmannseigin- konu, sem vildi óö og uppvæg láta mig nema sig á brott. Ég þorði ekki aö hugsa til eiginmanns hennar og hvernig hann gæti hugsanlega brugöist viö því ef ég geröi eins og hún vildi. Þegar þögnin var orðin þrúgandi, viskýglasiö mitt enn óhreyft á borðinu en hún búin að drekka úr sínu glasi, spurði hún mig, til hvers ég ætlaði að nota þennan kjól. Ég sagði henni eins og satt var, aö ég ætlaði aö hafa kjöt í honum. Ég hef áreiðanlega aldrei séð aðra eins breytingu á nokkurri lifandi veru og varö á konunni þarna í stofunni um leið og ég var búinn að sleppa orðinu, og líklega hef ég oröið svo skelfingu lostinn yfir þessum skjótu veðrabrigöum, aö ég gat ekki með nokkru móti látið mér detta í hug, hvernig réttast væri að bregöast viö þeim umskiptum sem urðu á viðmóti hennar. Ég sem hafði áður átt að nema hana brott eins og frelsandi engill eða riddari á hvítum hesti var nú allt í einu oröinn botninn á því karla- pungrottukeraldi, sem allt þetta samfé- lag væri, eða svo heyrðist mér hún kom- ast að orði, um leiö og hún grýtti glasinu í átt til mín. Þegar það hæfði mig ekki, greip hún mitt glas, og skutlaði því í höfuðið á mér, með þeim afleiðingum að glasið fór í þúsund mola, og sjálfur vankaðist ég töluvert, auk þess sem önnur augnbrúnin fór í sundur og ég varö alblóöugur í framan. Hún lét þaö ekkert á sig fá, en sagði mér að hypja mig, sem ég gerði reyndar glaöur, og 14

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.