Lesbók Morgunblaðsins - 18.09.1982, Page 15
Þau eru
iðin
við kertin
Kertin eru búin til í búðinni samkvæmt gamalli hefð í þessari iðju. Hér dýfir Kolfinna kerti
í bráðið vax.
Kertin eru í
um. Litbrigðin eru margbreyti-
leg, allt frá hálfgegnsærri
vaxhvítu til sterkari og dekkri
litablöndu í hverju kerti. Kert-
unum fylgir spjald með áletrun:
„Handskorin kerti eftir Kollu og
Hlölla." Yfir þessum munum er
einhver bjartur, svalur blær
sem fær þann, er inn kemur, til
þess að gleyma öllu öðru sem til
staðar er í versluninni en þar
eru eins og nafnið bendir til
einnig seld pottablóm, ennfrem-
ur postulín hvítt eða handmálað
að ógleymdum kortum í úrvali
sem nauðsynleg eru í gjafa- og
listmunaverslun.
Nám í kertaskurði
Þar í versluninni hanga uppi
innrömmuð vottorð (á ensku)
þeim báðum til handa um að
þau hafi lokið námi í kerta-
skurði en það heitir á ensku —
chandeliering. Vottorðin eru
dagsett á þessu ári og verslun-
ina opnuðu þau hjónin 24. apríl
nú í ár.
Þeim virðist hafa gengið að
óskum í náminu og árangur af
því orðið strax að veruleika.
Hvenær ákváðu þau að læra
kertaskurð?
„Hugmyndin varð fyrst til
fyrir 6 árum. Þá vorum við á
ferð í Bandaríkjunum og rák-
umst á þessi skornu kerti í
verslun, en þau eru þó mjög
sjaldséð. Við fengum vitneskju
um að þarna væri um námsgrein
að ræða. Okkur þótti þetta strax
mjög áhugavert og höfðum mik-
ið fyrir að komast í þesskonar
nám þar í Bandaríkjunum en
ekki var heppnin með okkur í
það sinn og fórum við heim við
svo búið. Við héldum áfram að
leita fyrir okkur um möguleika
á þessu námi en þeir virtust
mjög takmarkaðir, fáir meistar-
ar í faginu. Tveimur árum
seinna vorum við á ferð í Flór-
ída og enn í námsleit án árang-
urs, þar til einn daginn að við
gengum óvænt fram á kennara
okkar, sem síðar urðu, þar sem
þau voru að vinna við kerta-
skurð í stórverslun. Þannig
komumst við í nám hjá þessum
hjónum en þau eru ein af þeim
fáu sem kenna kertaskurð."
Er þetta langt nám?
„Námið tók okkur þrjú ár, þó
ekki alveg samfleytt, því við
urðum að taka okkur hlé til að
vinna fyrir námsgjaldi. Þetta er
mjög dýrt nám og engin náms-
lán komu til greina.“
Er þetta fjölsóttur skóli og hvað
er kennt?
„I sambandi við kennsiuna er
starfandi bæði verslun og verk-
stæði og margt fólk, nemendur
og starfsfólk. Þarna ríkti mikill
námsáhugi enda nám og vinna
öllum regn-
bogans litum
og má segja
að stíllinn só
oftast barokk
og stundum
eru þessi kerti
all kyndug aö
lögun eins og
græna kertiö,
sem Hlööver
heldur á.
H|á Koifinnu og
ver sem hafa lært að
handskera kerti
kúnstarinnar reglum
og stunda þá íð|« s
eiginiega í Breiðhoití
Eftir Þurtöt J. Árnadóttur
fjölbreytt og skemmtileg.
Kennsla miðast eingöngu við
allt sem lýtur að skornum kert-
um, blöndun á efnum og litum
og annarri undirbúningsvinnu
en aðaláherslan er lögð á handa-
vinnuna sjálfa."
Aðspurð segjast þau hafa orð-
ið litlu fróðari um fortíð og feril
kertaljósa, en Hlöðver segist
hafa leitað að fróðleik um það
efni á bókasöfnum bæði hér
heima og erlendis en ekki orðið
ágengt.
Um það hvaðan þessi hand-
mennt sé upprunalega komin
segja þau að kertaskurður hafi
verið iðkaður í Englandi fyrir
alllöngu, þótt hann þekkist þar
ekki nú og muni listin hafa flust
með innflytjendum þaðan til
Bandaríkjanna. Einnig hafi
þessi vinna þekkst í Þýskalandi.
„Öll handskorin kerti eru
unnin samkvæmt ákveðinni
hefð í þessari grein og eingöngu
miðuð við háan gæðaflokk,"
segja þau.
Þess má geta að þau Hlöðver
og Kolfinna hafa þegar tekið
nema í iðninni, unga stúlku sem
þau segja að sé mjög efnilegur
nemandi. En hvaða eiginleika
þarf til þess?
„Þar kemur sér best að hafa
næmt ímyndunarafl, fima fing-
ur, listrænan smekk og síðast en
ekki síst þolinmæði." En öll
undirbúningsvinna segja þau að
sé mikið þolinmæðisverk.
Aletruð kerti
með myndum
Á meðan við spjöllum saman
er Hlöðver að teikna upp letur á
kerti sem búið er að panta en
þar á að standa „Kveðja frá Is-
landi“. Pólk fær ýmiskonar
áletranir greyptar í kertin svo
sem: Til hamingju með daginn,
eða áfangann, brúðkaupið
o.s.frv. Einnig er algengt að fólk
komi með myndir, jafnvel brúð-
kaupsmyndir, en vinsælust, seg-
ir Kolfinna, séu kerti með
barnamyndum og áletrun: Til
ömmu eða afa.
En tímir nokkur aó láta Ijós
brenna á slíku gersemi?
Kolfinna segir að sú vaxteg-
und sem þau nota brenni inn og
niður í kertin. „Ég held að fólk
njóti þess að sjá ljós á kertun-
um, þau lýsa mjög fallega gegn-
um kertið og draga fram liti og
munstur. Utan á þeim er gijávax
og má þurrka af því eða hreinsa
með vatnsúða þótt vitanlega
dofni gljáinn með tímanum." Þá
segir hún að lok geti fylgt til að
hafa þegar slökkt er á kertinu.
Þegar hola fer að myndast í
kertið má koma fyrir sprittkerti
til að halda sjálfu kertinu
óskemmdu sem lengst. Þess má
geta að kertunum láta þau
fylgja leiðbeiningar um meðferð
og gerð þeirra.
„Reynslan hefur orðið sú að
fólk kaupir svona kerti til tæki-
færisgjafa fremur en að gefa
blóm, sem deyja fljótt. Kertið
geymir minninguna lengur.
Margir koma inn til þess að
kaupa hjá okkur blóm en fara að
skoða kertin og þau verða fyrir
valinu," segir Kolfinna.
Kerti í ýmsum inyndum
Og vissulega má finna þarna
kerti sem hæfir næstum hvaða
tilefni sem vera skal: barnapela,
fótbolta, strumpahús og dýra-
myndir, sem þau segja að verði
bráðlega miklu fjölbreyttari.
Fyrir þesskonar kerti þarf að
búa til mót úr sérstöku efni en
skornu kertin eru öll handdýfð.
Nú kemur inn viðskiptavinur,
kona, sem biður um að sjá
hvernig kerti sé unnið. Ekkert
er sjálfsagðara; Kolfinna setur
upp hlífðarsvuntu, dífir kveik í
ílát með bráðnu vaxi og köldu
vatni til skiptis. Um 40—50
skipti nægja til þess að kertið
verði hæfilega svert. Á næstu
7—10 mínútum verður að ljúka
við útskurðinn eða á meðan vax-
ið er hæfilega mjúkt. Takist það
ekki á þeim tíma er kertið ónýtt.
Einu áhöldin eru lítill krókur og
hnífur, auk öruggra hand-
bragða. Kolfinna sker rákir í
vaxið, sveigir og fléttar hið hag-
anlegasta munstur þar til kertið
er tilbúið. Munstrið þarf að vera
fyrirfram ákveðið þar sem tím-
inn leyfir engar tilraunir.
Munstrin gera þau sjálf og til
þess þarf hugkvæmni. Aðspurð
segja þau hráefnið alldýrt. Þau
flytja inn sérstaka parafín-
vaxblöndu frá Bandaríkjunum
en bæta sjálf um lögunina og
blanda litum. í eitt kerti getur
farið allt að þremur kílóum af
SJÁ NÆSTU SÍÐU