Lesbók Morgunblaðsins - 18.09.1982, Page 16
Krossgáta
Lesbókar
Morgunblaðsins
Lausn
á síóustu krossgátu
W - EARA Hllut- LCC. A ÍAM - T £»-£.- 1 í«u- UR ÚARO- Tu«t ^UÐ •,*í Cú m ■ .("í. vtr • ‘t®
J r -* L E 1 X u R ± Á H X K A
« llOK- j AOI n F © l ^ANA F Á R s EAUTI Biem F o t_
$ Mi -0\ X FLÝ Tl óiva "A X A Cenc.- 5 N e X i L L
% FUCaL- u A L u N A Y.CiRA (KtlTI A K X FK UM- íTNi ÓKVE*t| N A
KVk ða 5a rti S Y R p A X X X R A f<Ö4L- IH K L 'o 1 N
TAutA' MARtC ú L C&TJ. o P A L MtB 1 PC'At* C LATAR K L X T A R 5 ól K
£ T T u K A MERCD KICÞ/tl 'o T A L Hú$- DýR: A RpocJf Ál t o T A
R-l EiHnK T A T A IUÓMA« FUCL- AR 'O Ni A R VEIUA sróN X P A £MO- ILMAR U N
/'T: I L o(tU 'A R 'A 5 A R m P Ukowi R p. 'l F A N N
m i PREM C- IM* ÍPTI s T R A K A N A HACU 0URT P 1 N N 1
s 'v A r i l Vcr- A £> eem-A HAPP R 'A F A U iKÓLt ýK/Nkl X X
RElPi V A Ð u X 1 L ÖC/N R \ F H\)*D /CVA O H A Bóir- ÍT Af- H
|HM- VFt-l l §> u X Aue- CINO- N 'A n A N K A R p A
£rta P \ ~R rT X L'i E - EA.R- </ ~rT M. N u n L» R- KOMft 'e L
M [ v íi j £ % LEMSA EVOU \) ITuR GoK- ji STflE-B uiL | F STav- AR- ovR -n A| 1 Frum- £FN\ ■ Ó£AM- >* WV' Lt-Ö.$ 'íoeiR E/w$ ít'ATIO 5ARA.
TR- ÖLL- Kon- ÖN NtíUA FISK-
-ST J fo flUM - ItJCcTA býpAR
i u ■/ X 5 í APMA DAW5 Haf X 5 PRoT- !WN VEÐUi?- FARIO
ÍNVR ÚT ÚR áý r FN- INGlU«« ÍHH GceiNia. LváuC 5tá U/V]
1 JK- FU* FI- FÉÍAL 3TINU
V£ FM- AÍ>AS- vara 5KTÖCR- A£)| /L'AT
lXc- rdrAN F 'TU' 5PÍRI Í.JÓN- ANM HflF 4.IKAM5- HLUT/NA/ VANíV.1
£K K l TALI/OK) VÍMlÐ
< d 1 1 JlfÁLD HtRÐA UN\ Tvf'lR 6>NÍ gVR til
PeiMi að FRUm- f Fni flNLuR. HESTS- IHS Ett>- $TÆ«- M3
X / Æ\)l- SÖNC- FtDKKuR
CtRElNlR ÍKlWN
VCRIC- FA.R1 Oc'oMlt DYR.
FotViÞI úawa
AFTufc- KAil- A-D AFVCV- ÆMlí) áRtlNiR X Fi?«m- EFWI
■ ven/AR,- FALR.- IH WAF M Heim- ILl
■HLUTlMH / AF- ÍTÝ/O
Iðin
við
kertin
Kolfinna og Hlöðver í kertabúðinni
sinni í Breiöholtinu.
vaxi en það fer auðvitað eftir
stærð hvers kertis.
Og verðið?
„Við seljum kertin eingöngu
eftir stærð. Verðið er núna frá
130 til 350 krónur þau stærstu.
Við tökum ekkert aukagjaldf
fyrir áletrun eða mynd; verðið
liggur í efninu, við fáum lítið
fyrir vinnuna eins og viðgengst
um handavinnu. En við höfum
ánægjuna, njótum hverrar mín-
útu við vinnuna," segir Kol-
finna.
Skiptið þið með ykkur verkum?
„Nei, við vinnum allt jöfnum
höndum, enda höfum við sömu
þjálfun, þó gerir Hlöðver fremur
mót að kertum í dýralíki og
vinnur þau.“
Þegar að er gáð eru engin
venjuleg stjakakerti sjáanleg í
versluninni. En þau upplýsa að
innan skamms muni þau hafa
norsk kerti af því tagi til sölu.
En hvers vegna norsk?
„Þessi kerti eru í mjög háum
gæðaflokki, renna ekki og
brennslutíminn er frá 7—21
klukkustund. Við leggjum
áherslu á vandaða vöru. Eins og
sjá má er þetta sérverslun, vöru-
tegundir hjá okkur eru fyrst og
fremst okkar eigin kerta-
framleiðsia, pottablóm, hand-
málað postulín og kort frá Kór-
und, þá er allt upp talið," segir
Kolfinna.
Postulínið er handmálað af
Elínu Guðjónsdóttur, móður
Kolfinnu. Það má fá á staðnum
eða eftir pöntun. Og kertin geta
þau afgreitt með um klukku-
stundar fyrirvara ef um sér-
pöntun er að ræða.
Hafa góða reynslu
af Breiðholtsbúum
Hvers vegna settuð þið upp
verslun í Breiðholti?
„Við áttum kost á þessu hús-
næði, og sjáum heldur eícld eftir
þeirri ákvörðun. Hér er gott fólk
og við höfum bestu reynslu af
börnunum í nágrenninu, yfir
þeim þurfum við ekki að kvarta.
Breiðholtsbúar hafa tekið okkur
mjög vel, hér er ungt hverfi og
ungt fólk og kann kannski hvað
best að meta nýjungar, svo við
erum líklega á réttum stað,“
segir Hlöðver. Auk þess hafa
þau umboðsmenn fyrir vörur
sínar, í Tékk-kristal við Lauga-
veg, Blómabúðinni Fjólu í
Garðabæ, Versluninni Valfelli á
Akranesi, Versl. Róm í Keflavík
og Blómabúð Sauðárkróks.
Auglýsingakostnað hefur fjár-
hagur fyrirtækisins ekki leyft
enn sem komið er, en þau tóku
þátt í Heimilissýningunni sem
opnuð var í Laugardalshöll í ág-
ústmánuði.
En teljið þið að grundvöllur sé
fyrir skornu kertin ykkar hér á
landi?
„A það verður að reyna. Við
höfum tekið þá áhættu og erum
mjög bjartsýn."
Hvað ætlist þið fyrir ef fyrirtæk-
ið þrífst ekki?
„í því tilfelli höfum við helst
hugsað okkur aö flytjast til Nor-
egs eða einhverra Norðurlanda
og halda þar áfram eins og við
höfum byrjað hér. Nú, svo get-
um við líka verið kyrr hér heima
og farið í fiskvinnu eða hvað
sen. er. Það ætti að vera einfalt
mál.“
Lífsviðhorfin
Fyrst þið hafið valið svo sér-
stakt verksvið, mætti spyrja hvort
þið farið að öðru leyti ótroðnar
slóðir?
„Nei, því fer fjarri. Við teljum
okkur vera mjög svo venjulegt
fólk; bæði rótgrónir Reykvík-
ingar," segja þau. Hlöðver er
fæddur og uppalinn á Sólvalla-
götunni í húsi, sem afi hans,
Steindór Einarsson, byggði. Og
Kolfinna er fædd í húsi afa síns,
Kristjáns í Krónunni. Hún vann
fyrst hjá honum í verslun hans
þar en fluttist með foreldrum
sínum í Hlíðarnar og vann einn-
ig í verslun þeirra þar. Heimili
sitt eiga þau Kolfinna og Hlöð-
ver á Sólvallagötu 66 og hafa bú-
ið þar í átta ár eða síðan þau
giftu sig.
Um lífsviðhorf sín hafa þau
hjón þetta að segja:
„Við gerum okkur far um að
taka lífinu eins og það mætir
okkur, njótum þess að vinna
hvað sem er, en teljum okkur
lánsöm að hafa fundið starf sem
veitir okkur mikla ánægju. Við
álítum að það hafi ekki gerst
fyrir neinar tilviljanir, heldur
höfum við notið handleiðslu
Guðs í því sem öðru.“
Eruð þið trúrækin, starfið ef til
vill í einhverjum kristilegum fé-
lagsskap?
„Nei, það gerum við ekki, en
við teljum okkur kristið fólk,
trúum því að kærleikur Guðs og
nákominna ástvina, lífs og lið-
inna, sé okkur stoð og styrkur.
Við reynum að kunna að meta
allar þær góðu hliðar sem lífið
hefur að bjóða og erum þakklát
fyrir að eiga gott fólk að, sem
ber umhyggju fyrir okkur. Það
er okkur mikils virði."
Þau hjón eru önnum kafin og
best að Ijúka spurningum og
spjalli. Kolfinnu bíður líka ann-
að verkefni, hún hefur lofað að
smyrja brauð í kokkteil-veislu
fyrir 150 manns.
Hefur þú líka lært að smyrja
brauð?
„Ég hef lært það af móður
minni. Af henni hef ég lært flest
sem ég kann og það sem ég get
hef ég frá henni,“ segir Kolfinna
að lokum.
Og svo er að bíða átekta og
vona að velgengni bíði þeirra
Kolfinnu og Hlöðvers — á ís-
landi.
Úlgefandi: Ilf. Árvakur, Keykjavík
Framkv.stj.: Haraldur Svcinsson
HiLstjórar: Matthías Johanncssen
Styrmir Cunnarsson
Ritstj.Jltr.: Císli Sigurðsson
Auglýsingar: Baldvin Jónsson
Kitstjórn: Aðalstræti 6. Sími 10100
16