Lesbók Morgunblaðsins - 09.03.1985, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 09.03.1985, Page 12
Ásmundur Jónsson frá Skúfsstöðum i gangi £ Strikinu í Kaupmanna- böfn. Síðasta hirðskáldíð og ungverska söngkonan Jón Björnsson skrifar um Asmund Jónsson frá Skúfsstöðum og konu hans, Irmu Weile Bark- any. Sá maður sem hér segir lítið eitt frá öðlast aldrei það hlutskipti í lífinu sem hugur hans hefur áreiðanlega stefnt að. Hann dreymdi ungur að láta til sín taka á skáldskaparsviðinu, en minna varð úr því en vænta mátti. Hann var vel lesinn í bókmenntum og fljúgandi hagmælskur eins og fleiri af ættmennum hans. Prá hans hendi komu út tvær ljóðabækur, auk kvæðabálks um Hóla i Hjaltadal, sem fyrst var gefinn út 1932 og síðan í skrautútgáfu eftir fráfall hans. Ásmundur var fæddur á Skúfsstöðum í Hjaltadal 8. júli 1899. Foreldrar hans voru Jón Sigurðsson bóndi þar og Guðrún Þorsteinsdóttir kona hans. Jón bóndi var oddviti og sýslunefndarmaður og áhrifa- maður í sveitinni. Hann var áhugamaður um skáldskap og margvíslegan fróðleik og naut því Ásmundur góðrar menntunar i heimahúsum. Síðar mun hann hafa verið á alþýðuskóla um skeið. Að heiman fluttist hann nokkrum árum fyrir dauða föður síns, en hann andaðist árið 1924. Ásmund- ur fór fyrst til Siglufjarðar, þar sem hann stundaði ýmis störf, m.a. var hann rit- stjóri blaðsins Neista er kom þar út um nokkurt skeið. ÁSMUNDUR FLYTUR í HÖFUÐSTAÐINN Eftir skamma dvöl á Siglufirði fluttist Ásmundur til Reykjavíkur og fékkst við verzlunarstörf o.fl. og gaf út Auglýs- ingablaðið er varð skammlíft. Einnig var hann eínn af frumkvöðlum að stofnun nýrrar þjóðmálahreyfingar 1926, en hún varð skammlíf. Flestir eldri Reykvíkingar munu kann- ast við Ásmund frá Skúfsstöðum. Hann var á margan hátt sérkennilegur, frjáls í fasi og allra manna ræðnastur. Ég kynnt- Irma rar óþreytandi aö kynna ísiand, þar sem bún fór erlendis. Hér er hún að tala um ísland á elliheimili í Þýzkalandi. ist honum ekki fyrr en í Kaupmannahöfn fyrir stríð, en margt hafði ég heyrt frá honum sagt, m.a. hafði vinur hans úr Reykjavík, ísleifur Sigurjónsson, sem lát- inn er fyrir nokkrum árum, margt að segja frá Ásmundi frá því þeir kynntust fyrst heima. Það var mikil skemmtun enda var ísleifur gæddur sérstæðri frásagnargáfu. — Þess má geta hér í framhjáhlaupi að ísleifur og Halldór Laxness voru vinir frá því er Halldór kom unglingur til Kaup- mannahafnar. Hann skrifaði skemmtileg- an þátt um ísleif í einni af endurminn- ingabókum sínum. Þegar Ásmundur settist að í Reykjavík kynntist hann nýju umhverfi og ólíku því er var á Siglufirði. Honum hefur sennilega ekki fallið andrúmsloftið í síldarbænum. Andleg störf stóðu huga hans nær en strit- ið við „silfur hafsins", enda ekki hneigður fyrir líkamlega vinnu. Sálufélaga hefur hann skort. Að vísu hafði hann komið til Akureyrar og hitt síra Matthías að máli. Var hann Ásmundi minnisstæður. Ræddi hann oft um skáldjöfurinn af aðdáun sem nálgaðist tilbeiðslu. Talið hefur verið að tímamót hafi orðið í íslenskum ljóðaskáldskap eftir heims- styrjöldina fyrri, með útkomu ljóðabóka Stefáns frá Hvítadal og Davíðs Stefáns- sonar. Mörg ung skáld freistuðu þess að feta í fótspor þeirra. Árið 1922 var frjó- samt á þessu sviði. Þá komu út ljóð eftir Kristmann Guðmundsson (Rökkursöngv- ar), Sigurð Grímsson, Guðmund Frímann, Jón Thoroddsen yngri og Haföldur eftir Ásmund frá Skúfsstöðum. Eitthvað mun hann hafa birt af kvæðum í blöðum og tímaritum þótt ekki sé mér kunnugt um það. Ekki verður annað séð en að þessari frumraun hans hafi verið sæmilega tekið af ritdómurum. Ljóðaflokkurinn um Hóla í Hjaltadal, sem drepið er á í upphafi þessa greinakorns, var gefinn út af Búnaðarfé- lagi íslands 1932, í tilefni af 50 ára afmæli Hólaskóla. í Anda Þjóðskáldanna Næsta ljóðabók Ásmundar, Skýjafar, kom út 1936. Þetta er myndarleg bók og stórmikil framför frá fyrri bókinni. Þor- stinn Gíslason ritstjóri minnist á hana í Lögréttu og segir þar m.a.: „Ásmundur gaf 1922 út dálítið ljóðasafn sem Haföldur heitir, en hann var ungur og ekki fullþroskaður og bókinni lítið sinnt. Þessi nýja bók tekur hinni langt fram og eru í henni mörg góð og falleg kvæði, og öll eru þau vönduð að frágangi og vel ort.“ í bókinni eru ættjarðarljóð, minn- ingarkvæði eftir merka samtímamenn og ýms kvæði annars efnis. í því sambandi má nefna ljóðið Hljómbrot sem margir kannast við, þar sem það hefur verið flutt margsinnis í útvarpinu. Ekki er það ætlunin að ræða um skáld- skap Ásmundar hér. Hann var að öllu leyti hefðbundinn og bar svip af skáldum fyrri tíma. Hann dáðist mjög að Matthíasi Joch- umssyni, Hannesi Hafstein og síðast en ekki sízt Einari Benediktssyni. Áhrifa frá Einari gætir víða í kvæðum hans, enda var ekki sparað að minna á það í ritdómum. Þó er mér til efs að hann hafi stælt Einar frekar en ýms nútímaskáld, sem hafa ef svo mætti að orði komast, gengið á mála hjá vissum sænskum „módernistum"! Ásmundur var fyrst og fremst talandi skáld. Hann varpaði oft fram vísum, að því er virðist án þess að þurfa að hugsa sig um. Snertu þær oft viðburði samtímans, hittu oftast í mark og voru tíðum meinleg- ar. Fátt af lausavísum hans hefur komið fyrir almenningssjónir, en ýmsir af eldri mönnum kunna eitthvað af þeim. Árið 1938 fluttist Ásmundur til Kaup- mannahafnar. Sama ár kvæntist hann dönsk-ungversku söngkonunni Irmu Weile Barkany. Þau fluttust hingað heim 1946 og bjuggu hér síðan. Ásmundur andaðist 1963 og hafði þá kennt sjúkleika um nokkurra ára skeið. „Til Konungs Íslands Lítið mun hafa orðið úr störfum hjá Ás- mundi á Kaupmannahafnarárunum, enda ekki hægt um hönd að afla sér tekna á kreppuárunum. Ýmislegt mun hann þó hafa ort á þessum árum, en dönskukunn- átta hans var ekki nægileg til þess að hann gæti komið kvæðum sínum á framfæri í dönskum fjölmiðlum. Einnig ritaði hann nokkrar blaðagreinar um norræna sam- vinnu sem aðrir urðu til að þýða fyrir hann. Kristján konungur tíundi átti sjötugs- afmæli 1940. Eins og nærri má geta var mikið um að vera við það tækifæri, ekki sízt þar sem Danir töldu konung samein- ingartákn þjóðarinnar á hernámsárunum. Mun Ásmundur hafa minnst hins gamla siðar islenzkra skálda að flytja þjóðhöfð- ingjanum kvæði. Hann settist nú við að yrkja langa drápu til kongs undir heitinu „Til konungs íslands" og sparaði þá ekki lofsyrðin. Kvæðið flutti hann í danska út- varpinu. Var það síðan gefið út í viðhafn- armikilli útgáfu sem Jón Sveinbjörnsson konungsritari mun hafa staðið fyrir. Eins og oft verður um slík tækifæriskvæði skorti ekki lofsyrðin, eins og áður er sagt, og mun skáldinu sjálfu hafa þótt nóg um, því að rétt á eftir gerði hann bragarbót, orti runhendu, eitt erindi, sem var alger- lega öndvert því sem hann áður hafði hrúgað saman af lofsyrðum í konungs- kvæðinu! Aðeins fáir af kunningjum hans fengu að heyra þessa „bragarbót" og óvíst hvort hún er nú til! — Ljóðið var síðan 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.