Lesbók Morgunblaðsins - 11.10.1986, Page 4
Óperan Tosca
Puccini
á sviði Þjóðleikhússins
Átök milli
trúar, ástar
og sjálfrar
listarinnar
Giacomo Puccini 1858—1924, höfundur ópenumar.
Er hægt að ímynda sér óperuna Toscu eftir
Verdi? Nei, því svo samtengd hefur óperan
orðið höfundi sínum Giacomo Puccini. En það
furðulega er, að það var alls ekki svo öruggt
um tíma, því minnstu munaði að Puccini yrði
af verkinu. Forsaga óperunnar minnir á
snjalla refskák, sem var tefld til að Puccini
yrði tryggður rétturinn til að nota leikrit
Victorien Sardous um Floriu Toscu sem
óperuhandrit. En það er einmitt þessi saga
sem glæðir óperuna nýjum töfrum.
Um þessa frægu óperu
og höfund hennar, Pucc-
ini, refskákina, sem tefld
var til þess að hægt væri
að setja upp leikrit
Sardous um Floriu
Toscu, efni óperunnar
og frægar söngkonur,
sem minnst er í sam-
bandi við óperuna.
EFTIR GUÐRÚNU
NORDAL
PUCCINI
Tosca var fímmta ópera ítalska óperutón-
skáldsins Giacomos Puccini. Hann fæddist
í Lucca á Ítalíu 22. desember 1858. Hann
var kominn af tónlistarmönnum í marga
ættliði, svo það var ekki að furða þótt hon-
um kippti eitthvað í kynið. Puccini missti
föður sinn, sem var tónskáld, þegar hann
var aðeins fímm ára gamall. Þá stóð móðir
hans ein uppi með sjö böm. Hún studdi
hann og hvatti til frekara tónlistamáms.
Eitt atvik er sagt hafa sannfært hann ræki-
legast um köllun sína til tónlistarinnar.
Árið 1876, þegar hann var tæpra átján ára,
heyrði hann Aidu eftir Verdi flutta í ná-
grannabænum Pisa. Hann varð að ganga
báðar leiðir og hann var svo gagntekinn,
að hann tók ekki eftir því hve leiðin var
löng til baka. Þá skildi hann hvar köllun
hans lá: þannig ópemr vildi hann semja.
Móðir hans, Albina, reyndist honum betri
en enginn og talaði við sjálfa drottningu
ítala, Margheritu di Savoia, til að útvega
honum styrk til að læra við konservatóríið
í Mflanó. Það tókst og hann fór til Mflanó
árið 1880 og var þar í tvö ár við nám.
Hann bjó í sambýli við tvo vini sfna og reynd-
ist sú reynsla honum notadijúg þegar hann
samdi La Bohéme. Það var tekið eftir tónlist-
arhæfileikum hans í skólanum og kennari
hans, Ponchielli, hvatti hann til að taka þátt
í tónlistarsamkeppni blaðsins „Teatro ill-
ustrato". Af því tilefni samdi hann ópemna
Le Villi í einum þætti. Dómnefndin taldi
hana ekki einu sinni eiga skilið að vera
nefnd. En vinur Puccinis, Arrigo Boita kom
auga á verðleika hennar og kom því í kring
að hún var flutt í Teatro dal Verme í Mflanó
þrítugasta og fyrsta maí 1884. Síðar var
endurskoðuð og lengd útgáfa hennar flutt
í La Scala í Mflanó tuttugasta og flórða
janúar 1885, eftir að hafa verið fyrst flutt
þannig í Turin.
Um svipað leyti og Puccini lýkur námi
missir hann móður sína, sem var honum
gífurlegt áfall. Hann lendir þá í eldheitu
ástarævintýri með giftri konu, Elvim Cem-
ignani. Þetta samband vakti mikla reiði og
andstöðu almennings enda var stranglega
tekið á slfkum málum á ítalfu. Elvira skildi
við mann sinn og giftist Puccini. Þrátt fyrir
hinn mikla ástareld sem logaði í upphafí
varð hjónabandið stormasamt, ekki síst
vegna þess að Puccini hafði gott auga fyrir
fallegum konum, og þótt hann væri giftur
maður breyttist hann ekki. Elvira var sjúk-
lega afbrýðisöm og eitt sinn náði afbrýði-
semi hennar svo langt að hún kostaði
mannslíf.
Puccini var mikill náttúmunnandi þó að
það komi eigi fram í ópemm hans. Hann
átti sveitahús í Torre del Lago þar sem
hann naut þess að vera einn og ganga um
náttúmna. Elvira var þar ekki með honum
og ásakaði hann fyrir að halda við vinnu-
konu sem hann hafði þar hjá sér. Puccini
neitaði staðfastlega, en ásakanir hennar
gengu svo langt að stúlkan varð frávita af
hræðslu og svipti sig lífi. Þegar líkrannsókn
var gerð kom í ljós að stúlkan var hrein
mey. Litlu munaði að Elvira yrði hneppt í
fangelsi fyrir að hrinda henni út í dauðann.
Þau hjón skildu ekki, en bóndinn hélt upp-
teknum hætti og kemur ást Puccinis á
kvenkyninu vel fram í ópemm hans. Konur
em þar mjög áberandi og um þær snúast
atburðimir; nægir að nefna Toscu og Mad-
ame Butterfly.
ÓperurPuccinis
Ifyrsta ópera Puccinis, Le Villi, var
óþroskað verk, en vakti athygli fyrir hug-
myndaauðgi laglínunnar og fyrir góðar
hljómsveitarútsetningar. Rúm fjögur ár liðu
þar til næst heyrðist frá Puccini, þegar óp-
eran Edgar var flutt í La Scala í Mflanó
tuttugasta og fyrsta apríl 1889. Hún er
byggð á skáldsögu Alfred de Musset „La
coupe et les lévres". Edgar var strax illa
tekið, og náði engum vinsældum. En óperan
Manon Lescaut sem var fmmflutt fyrsta
febrúar 1893 í Teatro Regio í Turin, var
að nokkm leyti sárabót fyrir vonbrigði Pucc-
inis eftir Edgar. Manon Lescaut er byggð
á samnefndri sögu eftir Prévost. Hún sýnir
mikla þróun frá hinum tveimur fyrstu í
stílbrögðum, og er fyrirboði um það sem
seinna varð bæði stykur hans og veikleiki:
hinir óvenjulegu hæfíleikar til að skapa
mikla stemmningu á sviðinu en um leið em
persónur hans ekki nógu skýrt afmarkaðar.
En það var ekki fyrr en með La Bo-
héme, sem var frumflutt fyrsta febrúar
1896, sem Puccini endanlega skipaði sér
fremst í flokk meðal ungra ítalskra ópem-
tónskálda. Hún varð strax mjög vinsæl og
er enn ein dáðasta ópera sögunnar. Fimmta
ópera hans var svo Tosca, sem verður fjall-
Salur / Farnese-höllinni, þar aem annar
þáttur gerist.