Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1986, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1986, Síða 7
• r- Ur New York Times Magazine var þegar um mikla tilslökun að ræða af hálfu Gyðinga 1922, þegar Bretar skiptu landinu í Palestínu fyrir vestan ána Jórdan og Transjórdaníu fyrir austan hana. Bara Nafnið Sem Vantar Sharon bendir á, að Jórdanía Hússeins konungs hafí nú innan marka sinna um 70 af hundraði Palestínubúa. Og því segir hann að þegar Palestínumenn krefjist þess nú að Júdeu og Samaríu verði skilað aftur, séu þeir í rauninni að fara fram á annað ríki Palestínumanna. „Palestínuríki er þegar fyrir hendi - Jórdanía - sem þarfnast aðeins mjög lítillar breytingar til að verða Palestínuríki. Það er bara nafnið, sem vant- ar,“ segir hann. Og ennfremur: „Menn tala um það, að ef PLO myndi viðurkenna ísrael, myndu þeir geta tekið þátt í samningaviðræðum. En sem Gyðingur, sem sonur þjóðar, sem hefur lifað í 3700 ár, hefur mér aldrei fundizt eitt augnablik, að ég þyrfti viður- kenningu frá neinum og allra sízt fra hópi morðingja." Um rétt Palestínumanna í ísrael segir Sharon: „Arabar hafa rétt á að búa í þessu landi, en þeir hafa alls engan yfír- ráðarétt yfír landinu. Það tilheyrir Gyðing- um.“ En hvað myndi hann bjóða Hússein, konungi, við samningaborð? „Ég myndi bjóða honum frið gegn friði. Hann myndi á margan hátt hagnast af því - efnahagur lands hans myndi batna, hann fengi afnot af höfnum í Israel, og við gætum jafnvel barizt saman gegn hryðjuverkastarfsemi. Ef ég er spurður segi ég að hann muni aldrei fá neitt meira en frið á móti friði. Þannig standa málin.“ Þriðja Stefnan Þriðja stefnan í friðarmálum í ísrael nýtur lýkur, við öll Arabaríkin." Fylgismenn þessarar stefnu eru oft kall- aðir „góðar sálir“ af andstæðingum sínum og þá í niðrandi merkingu, þar sem gefíð er í skyn, að þeir séu einfeldningar, sem átti sig ekki á myrkviði Mið-Austurlanda. „Ég er reiðubúinn að beijast fyrir hinni andlegu framtíð sonar míns, en ekki hinni efnislegu," segir A. Ravitzky, heimspeking- ur, sem stofnaði hina trúarlegu friðarhreyf- ingu. Einn af þeim sem áður voru harðir í afstöðu sinni til Araba, en skiptu um skoðun hvað varðaði friðarhorfur, eftir umleitanir Sadats 1977, er Ezer Weizman, fyrrverandi hermálaráðherra Israeis. ÞVERHAUS EÐA HEIGULL „Ég get hlegið, þegar menn kalla mig dúfu,“ segir hann. „Ég held að ég sé haukur í mínu dúfnastandi. Það eru þeir sem alltaf eru hræddir. Hússein lætur hafa eitthvað eftir sér, og þá segja þeir strax: „Ó, varið ykkur á þessu." og Mubarak segir eitthvað, og þá segja þeir: „Ó, treystið þessu ekki.“ Þeir eru alltaf hræddir. I þeirra augum er hver sá sem leitar að öðrum leiðum heigull. En hver sá sem segir að það sé enginn möguleiki á friði, er hugprúður maður, traustur, heilsteyptur Gyðingur. En ég segi, að hann sé þverhaus." Vissulega hefur tvístrun Gyðinga og líf þeirra í gettóum í Evrópu fyllt þá tilfínningu um öryggisleysi, bætir Weizman við, en zíonisminn átti að ráða bót á því. „Þeir sem alltaf eru að tönnlast á því, að allir séu á móti okkur, allir hati Gyðinga, það sé aðeins herinn, sem geti bjargað okkur og að allir séu skíthælar nema við, þeir eru að springa af geðflækjum eftir 2000 ára útlegð," segir hann. „Þess vegna sagði ég einu sinni: - Það er hægt að ná Gyðingi úr gettói, en Á heildina litið hafa þær breytingar, sem orðið hafa innan ísraels á síðustu 19 árum, og þær pólitísku deilur, sem hafa orðið þeim samfara, stórlega dregið úr möguleikum hvaða ríkisstjómar í Israel sem væri til að semja um frið. „Sex daga stríðið færði ísrael í hendur viss landfræðileg spil,“ segir S. Gazit, fyrrverandi foringi í leyniþjónustu hersins. „Við eigum enn flest af þessum spilum, en vegna þess sem gerzt hefur síðan 1967, getur engin ríkisstjóm í ísrael orðið nógu sterk lengur til að slá þeim út.“ HVORUGUR GETUR AFSALAÐ SÉR DRAUMUM SÍNUM Fomsta Palestínumanna virðist einnig hafa staðnað í 20 ára gömlum viðhorfum. Þegar PLO vom stofnuð á sjöunda áratugn- um, var viss meining í skæruhemaði þeirra og hryðjuverkum: Palestínumenn vom að reyna að láta Vesturlönd og almenning ísrael vita af sér, svo að eftir yrði tekið. En snemma á áttunda áratugnum var því ætlunarverki að fullu lokið, og með því að beita áfram sömu aðferðum ala Palestínu- menn aðeins á ótta ísraelsmanna um, að Palestínumenn kæri sig ekki um samkomu- lag, heldur ætli að beijast upp á líf og dauða. Mistökin hjá Arafat sem leiðtoga byggjast ekki á því, að hann greip til hryðju- verka, heldur að hann gat aldrei fengið hreyfínguna ofan af þeim aftur. Svo virðist helzt sem eina „varanlega“ lausnin á vandamálinu varðandi Vestur- bakkann sé „bráðabirgðalausn". Ef menn stefna að varanlegri lausn við núverandi aðstæður, lenda þeir ömgglega í sjálfheldu. Ráðuneytisstjóri Rabins, forsætisráðherra, hefur skýrt frá því, að þegar þeir Rabin og Hússein, konungur, hittust á laun snemma á áttunda áratugnum, hafí það verið við- kvæði hjá Hússein, að hann „væri aðeins Þrír áhrifamenn íísrael: Elyakim Haeezni, forsvarsmaður landnemanna á vestur- bakkanum, Ariel Sharon, fyrrv. varnarmálaráðherra, ogShimon Peres, forsætisráð- herra. vemlegs fylgis í Verkamannaflokknum og henni fylgja hinir litlu vinstri flokkar og trúarlega friðarhreyfíngin. Skoðanakönnuð- ir áætla fylgi hennar meðal kjósenda um 45 af hundraði. Fylgismönnum hennar má svo skipta í tvo skýrt afmarkaða hópa. Annar túlk^r málið á einfaldan og raunsæj- an hátt og segir að bezta leiðin til að tryggja framtíð Israels sé að ná samkomulagi við Araba. Hinn skýrir málið á huglægari hátt og heldur því fram að eigi ísrael að verða lýðræðislegt ríki Gyðinga, eins og stofnend- ur þess ætluðust til, geti það ekki haldið áfram að undiroka 1,3 milljónir Araba á Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu. Sumir í þessum hópi em hlynntir landfræðilegri málamiðlun í samningum við Jórdaníu eða Palestínumenn, en aðrir vilja halda yfirráð- um yfir landinu, en veita Palestínumönnum, sem þar búa, virkilega sjálfstjóm. Einn af andans mönnum þessarar stefnu er hinn virti, ísraelski heimspekingur Y. Leibowitz, sem nú er á níræðisaldri. I frægri blaðagrein sem hann skrifaði þegar Israel var í sigurvímu eftir sex daga stríðið 1967, hélt hann því fram, að „frelsunar" landsvæð- anna í því stríði myndi verða minnzt í sög- unni sem upphafi að „hnignun og falli ísra- elsríkis". „ísrael verður að finna leið til að losa sig við þann kross að kúga aðra þjóð,“ segir Leibowitz nú. „Það er um líf eða dauða að ræða. Á þeirri stund, sem heiður og vegsemd þjóðarinnar verður æðsta markið, verður maðurinn að villidýri. Ef við losum okkur ekki við þessi landsvæði, heldur þróunin áfram og Israel verður fasistaríki. Ut á við munum við eiga í stöðugu stríði, unz yfir það er ómögulegt að ná gettói úr Gyðingi." Fylgismenn þessarar stefnu líta á sjálfa sig sem hina sönnu raunsæismenn, en segja að þjóðemissinar og endurlausnarsinnar horfíst ekki í augu við veruleikann. „Ég er slóttug dúfa og hef það eitt í huga, sem gæti orðið ísrael fyrir beztu,“ segir Y. Harkabi, fyrrum eitilharður foringi í leyniþjónustu hersins, sem einnig endur- skoðaði afstöðu sína eftir framlag Sadats til friðarmála. „Friður er í mína þágu. Hann er ekki neitt, sem ég vil stuðla að Araba vegna. Ég hef í huga fólksfjölda, ungu kynslóðina og þá staðreynd, að friðurinn milli ísraels og Egyptalands muni ekki haldast, ef honum er ekki fylgt eftir á réttan hátt.“ Slæmur Kostur Og VERRI Um andstæðingana segir Harkabi: „Þeir fullyrða að Messías muni koma, eða að tvær milljónir Gyðinga muni setjast að á Vestur- bakkanum eða að Arabar muni sætta sig við óbreytt ástand - að eitthvað muni breyta gangi mála. Þeir hunza þá staðreynd, að breytingar em að verða á heimi Araba, sem benda til þess, að þeir vilji finna leið til að koma á friði við ísrael. Menachem Begin ruglaði þjóðina. Hann var alltaf að tala um hve slæmt það væri að yfirgefa Vesturbakkann, en aldrei um það hve slæmt það yrði að vera þar áfram. Hann var alltaf að tala um hve hættuleg hryðjuverkastarfsemi Araba væri, en talaði aldrei um stríð. Sannleikurinn er sá, að við eigum tvo kosti - slæman og verri. Slæmt er að fara af Vesturbakkanum, en verra að vera um kyrrt.“ til viðtals um að semja um 100 prósent. Ef þið ætlið að tala um eitthvað minna, þá verðið þið að ræða við Arafat." Með þessu átti Hússein við að því aðeins gæti hann yfírleitt byijað að íhuga friðarsamninga í líkingu við Camp David samkomulagið við ísrael, að öllum Vesturbakkanum og Jerú- salem yrði skilað aftur. Hver sem með völdin fer í ísrael á við sama vandamálið að glíma á gagnstæðan hátt, en þar er það öllu erfíðara viðfangs. Jafnvel fyrir 100 prósent frið getur hann ekki af stjórnmálaástæðum látið af hendi landið 100 prósent. Þess vegna virðist hin eina „varanlega" lausn vera bráðabirgðaráð- stöfun, sem tíminn verður svo látinn um að gera „endanlega“. Hvorugur aðilinn getur afsalað sér draumum sínum formlega. Það má sennilega helzt ráða af þeim umræðum um friðarmál, sem nú eiga sér stað í Israel, að dagar mikils háttar friðar- gerðar séu liðnir. Friði milli Egypta og ísra- elsmanna var að hægt ná með breytingum á landakortinu og fögrum orðum. En enginn friður kemst á milli ísraels og Jórdaníu og Palestínumanna nema með breyttum tilfínn- ingum. Nú er ekki þörf á nýjum ályktunum hjá Sameinuðu þjóðunum, heldur á nýjum veruleika. Og hann virðist aðeins geta orðið með málamiðlun eða hyggilegum ráðstöfun- um smám saman. Eina friðarvonin er bundin við, að hægt sé með einhveijum ráðum, fortölum, fagurmælum eða fræðslu að fá fólk beggja aðila til að líta upp frá landa- kortinu og stíga nokkur stutt skref í áttina til hvors annars. Sveinn Ásgeirsson tók saman ODDNY BJORGVINSDOTTIR Lestarferð í kvöldstillunni Afram, áfram líður Iestin gegnum myrkrið, aðeins fjarlæg Ijós tjúfa sortann, í blindaðri þrívídd mænum við út um skjáinn, hvaða leifturljós megna að rjúfa sálarskuggann, og hvers vegna varpar fjarvíddin ávallt skærasta Ijósinu? Bleikt pappírstungl hangir á bládöggvuðum himni myrkursins, seiðmögnuð Ijósskífa svífur í töfrandi húmi, EN und grænum og rauðum bárujámsþökum sitja tómir líkamar, sálir þeirra löngu týndar í tilbúnum glansheimi myndvörpunnar. Höfundurinn stafar hjá Ferðaþjónustu bænda ! Reyjavfk. JÓN STEFÁNSSON Veðurskeyti haustið rís upp frá knéföllnu sumri með gulbrún lauf í hári og norðanvind í augum veturinn kemur á hvítum vængjum með kalt bros Höfundurinn er ungur Keflvíkingur. HELGA JÓHANNSDÓTTIR Ambátt Ég sat nakin við gluggann í nótt í skini mánans beið þín í frjálsri gleði ambátt líkama míns ambátt ástar með dimm augu full af trega gakktu varlega svo þú gangir ekki á nakinni sál minni Höfíindurinn er sjúkralidi í Reykjavík. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 8. NÓVEMBER 1986 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.