Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1986, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1986, Side 12
Thoroddsenshús á Isafirði. amtmanni, að hann hafi sleppt að rannsaka mál fanga síns af því að hann hafi ekki talið neinn fót fyrir orðsveiminum um af- brotið, en skrifar svo fyrir almenning í blaði sínu, það sem almenningur vill heyra, að maðurinn sé örugglega morðingi, það sé að minnsta kosti sín sannfæring eins og al- mennings. Skúli Thoroddsen vann sér mikinn orðstír hjá alþýðu manna, sem skeleggur Danahat- ari. „Málflutningur hans á opinberum vettvangi lét vel í eyrum. Það var ekki ver- ið að viðhafa hálfyrði og tæpitungu né gera sér dátt við valdsmenn og höfðingja, hvort sem þeir sátu á Ísafírði, suður í Reykjavík eða úti í Kaupmannahöfn," segir í Jónsbók. En var Skúli allur í þessum málflutningi? Það er að minnsta kosti ekki hægt að finna þennan anda í bréfum, sem Skúli skrifar valdsmönnum, amtmanni, landshöfðingja og sjálfum Nelleman, þegar hann biður þessa menn að sleppa sér með áminningu. Og kemur þetta heim og saman við það. Sem Skúli skrifar vinum sínum, Finni Jónssyni og Vaitý Guðmundssyni, þar sem hann bið- ur þá að veija sig á danskri grund á þeim forsendum að það hafi aldrei sannast á hann, að hann hafi skrifað iilt orð um Dani eða dönsk stjómvöld í blaðið Þjóðviljann, þar sem hann hafi ekki verið ritstjóri blaðs- ins? Þær eru með mörgum hætti frelsis- hetjumar eins og aðrir. Þá gengur manni illa að finna samræmið í því, að Skúli, sem er á oddinum í barátt- unni vestra gegn kaupmannaveldinu, sem græði á fátæklingunum, og stofnar kaup- félag, en lætur það veslast upp og stofnar sjálfur verzlun á rústum þess og gerist að auki fiskkaupmaður og útgerðarmaður og fer stórefnaður sem slíkur frá Isafirði. Skyldi hann hafa efnazt með öðrum hætti en aðrir kaupmenn, selt dýrar en hann keypti? An þess að dæma nokkuð um Uppkastið, þá getur það ekki dulizt neinum, að Skúli kom aftan að félögum sínum í Sambands- laganefndinni. Það er umdeilanlegt, hvort þetta var rangt eða rétt að því er varðaði málstaðinn, en það breytir ekki þeirri stað- reynd, að Skúli rak rýting í bakið á samnefndarmönnum sínum. Og það var Skúli Thoroddsen sem í sókn sinni eftir almenningshylli festi morðingja- nafnbótina á umkomulítinn alþýðumann svo rækilega, að hún hefur fylgt honum útyfir gröf og dauða. Með því að rannsaka ekkert málið, heldur reka það sem morðmál strax að vilja al- mennings, gekk Skúli svo frá Sigurði skurði sem segir í ræðu veijanda Skúla fyrir Lands- yfirrétti: „Varla er sá maður hér á landi, sem ekki er sannfærður um, að Sigurður skurður hafi verið valdur að dauða Salóm- ons.“ Nú hefur verið saminn enn einn dýrðaróð- urinn um Skúla Thoroddsen og er ekki nema gott eitt um það að segja, að vinir hans haldi minningu hans á lofti, svo fyrirferðar- mikill, sem Skúli var í landsmálapólitík síns tíma og merkur maður sem slíkur. En sam- kvæmt fyrrnefndri áráttu Skúlavina að niða niður í svaðið alla andstæðinga hans, þá er ekki ljós blettur á Lárusi H. Bjamasyni; hins vegar sleppur Sigurður skurður á þann hátt sem réttur er, að hann hafi ekki vitað, hvort hann drap eða drap ekki mann, og þessi vottur um réttsýni Skúladýrkenda kemur aftan að manni. Þetta nýjasta minningarrit um Skúla er í leikritsformi og sagt gott leikstykki, og eru það góðar fréttir, ef þjóðinni hefur bætzt góður leikritahöfundur, ekki sízt ef þess er þá von, að það verði til þess, að höfundurinn hætti að vera vondur stjóm- málamaður. Nú er það svo, að gott skáldverk verður ekki drepið með málarekstri, en ég hef samt áhuga á að stefna höfundinum fyrir hvemig hann nafngreinir nýlátna menn, sem eiga sér enn nána ættingja, börn og bamaböm. Höfundur hefur viljað treysta aðsóknina með þessum hætti. En þótt verkið verði ekki drepið, sem ég hef heldur engan áhuga á, þá er forvitnilegt að vita, hversu langt höfiindar mega ganga í því að skrifa mann- skemmandi um tiltölulega nýlátna menn, sem eiga á lífi svo nána ættingja, að það jafngildir að á sjálfa þá sé ráðist. Þetta gæti orðið líflegt mál og mætti reka það sem prófmál í þessu efni. Ég er líkast til of fjarskyldur Lárusi til að standa fyrir málarekstrinum, auk þess, sem ég hef litla samúð með þessum fjarskylda frænda mínum fyrir að láta Magnús landshöfðingja plata sig vestur á fjörðu í vonlausan mála- rekstur og ranglátan. Helga, amma Lárusar, var Amadóttir Magnússonar auðga í Meiri- Hlíð í Bolungarvík og er Lárus því fjórði maður frá Magnúsi en ég sjötti, og orðinn svo blandaður öðm blóði, að ég hefði aldrei tekið að mér að reka Skúlamál, hugsanlega farið vestur fyrir Manga, en áreiðanlega forðað mér snarlega, og sagt honum að fara sjálfum í þetta úlfabæli. Það sagði einhvern tímann við mig sunn- lenzkur skipstjóri: „Trúðu aldrei einu einasta orði, sem Vestfirðingar segja um fiskirí fyr- ir vestan Látrabjarg." Þetta er nú liðin tíð, éins og kunnugt er, engir menn segja nú sannari fiskifréttir en Vestfírðingar. Það, sem Grindvíkingar og Vestmanneyingar, að ég nú ekki tali um Homfirðinga, segja er allt rakin lygi. Vestfirðingar hafa um margt verið forystumenn, ekki síst í fiskveiðimál- um, og þeir voru lygnir, en hinir eru það. I Skúlamálum töluðu Vestfirðingar eins og þeir væm að segja fískifréttir, í því skyni að hinir formennimir fyndu ekki miðin, sem þeir höfðu aflað á í síðasta róðri. Það var ekki eitt einasta orð að marka, sem þeir bám fyrir rétti í Skúlamálunum. Það var daglegt brauð í réttarhöldunum hjá Lámsi, að vitnin játuðu á sig rangan framburð, þar til hann var orðinn réttur fyrir Skúla, og ef Láms vildi ekki samþykkja þetta, til dæmis við þriðju breytingu, þá sögðu vitnin hann hafa bókað fyrri framburði skakkt, reiðubúin að sveija sig uppá það. Ég klykki hér út með sýnishomi. Láms hafði komið Skúla og hans mönnum að óvömm vestur. Hann brá við snarlega um leið og hann var landfastur á ísafírði að grípa réttarvottana, mikilsverðustu mennina í sambandi við yfirheyrslur yfir Sigurði skurði. En það kölluðu Skúlamenn hina mestu óhæfu að koma að vitnum „óvið- búnum" eins og þeir orðuðu það, ef þeir misstu vitni í réttinn án þess að geta undir- búið það. Láms lét sækja réttarvottana, Þorstein Stefánsson, bræðslumann hjá Ás- geirsverzlun, og Ólaf Ólafsson, fjósamann hjá Skúla, þangað sem þeir vom að störfum um daginn. Og segir nú af þessum „óundir- búnu“ vitnum skrifað uppúr Skúlasögu Jóns: „Þessi óvænti komumaður, Láms Bjarna- son, tók þegar að hlýða þeim Ólafi og Þorsteini yfir hluttöku þeirra í Skurðarmál- inu. Innti þá alveg sérstaklega eftir vatns- og brauðvist Sigurðar Jóhannssonar. Ólafur kveðst ekki vita til þess, að Sigurður hafi sýnt nokkum mótþróa eða neitað að svara spumingum dómarans í réttarhöldunum 21., 23., 25. og 30. janúar. Hann minnir þó, að fanginn hafi sýnt vöflur af sér í einu hinna þriggja fyrstgreindu réttarhalda, en man ekki, hvernig honum fómst orð. Ekki veit hann til þess, að dómarinn hafí beitt sakboming nokkru ofbeldi í réttarhöldunum, en hann hafi stöku sinnum verið harður við hann. Honum er ókunnugt um, að illa hafi verið farið með Sigurð í fangelsinu. Vitnisburður Þorsteins var mjög á sömu lund. Hann kveður dómarann hafa talað svo til Sigurðar, er hann úrskurðaði honum vatn og brauð í fyrra sinnið: Fyrst þú ekki vilt meðganga, verðurðu að lifa við vatn og brauð, þangað til þú meðgengur. Farið út með hann, piltar. Láms Bjarnason kallaði Ólaf Ólafsson aftur fyrir rétt samdægurs. Ber Ólafur það, að rannsóknardómarinn hafi sagt við Sigurð í einhveiju réttarhaldi eitthvað á þessa ieið: Ég er neyddur til að Skúli Thoroddsen þyngja á þér, fyrst ég fæ ekkert svar. Ekki kveðst Ólafur þora að neita því, að dómar- inn hafi í einhveiju prófanna sagt við Sigurð: Eg er neyddur til að setja þig upp á vatn og brauð, fyrst þú ekki vilt meðganga. Hann minnir nú, að Sigurður hafi færzt undan að svara einhverri spurningu dómar- ans í réttarhaldinu 21. janúar. Ekki getur hann gert neina grein fyrir því, hvaða spum- ingar það vom, sem Sigurður færðist undan að svara, og nú getur hann ekki heldur borið um það, í hvaða réttarhaldi þetta átti sér stað. Um áttaleytið um kvöldið gerði Skúli Thoroddsen þeim Ólafi og Þorsteini boð að finna sig. Þegar þeir komu á fund sýslu- manns, innti hann þá eftir, hvað gerzt hafði í réttinum um daginn, og leystu þeir úr því eftir föngum. Skúli bar þá upp erindi sitt. Kvað hann það vera tilmæli sín, að þeir semdu skýrslu um framkomu sína sem dóm- ara í rannsókninni um dauðasök Salómons Jónssonar. Tóku þeir vel í það, en kváðust heldur kjósa, að hann tæki hana saman sjálf- ur og skyldu þeir síðan rita undir nöfn sín. Þegar Skúli hafði lokið skýrslugerðinni, las hann hana upp í áheym Ólafs og Þorsteins og brýndi fyrir þeim að undirrita hana ekki, nema þeir vissu hana sanna í hvívetna og gætu staðfest með eiði, ef krafizt yrði. I skýrslu þessari, sem þeir Ólafur og Þor- steinn undirrituðu lýsa þeir yfir því, að Sigurður Jóhannsson sýndi í fleiri skipti þijózku við réttarhöldin þannig, að hann neitaði að svara spurningum, sem fyrir hann voru lagðar af rannsóknardómaranum, og að rannsóknardómarinn brýndi það fyrir Sigurði, að slíkt háttalag tjáði honum eigi, og að hann neyddist til að setja hann upp á vatn og brauð, þar sem hann ekki breytti því háttalagi sínu. Þetta átti sér stað í þau skipti, sem dómarinn úrskurðaði Sigurði vatn og brauð, en aldrei sýndi rannsóknar- inn Sigurði nokkra hörku eða þvílíkt, að hann reyndi að kúga hann til að meðganga eða að hann hótaði honum vatni og brauði, ef hann ekki meðgengi, en aðeins brýndi hann alvarlega fyrir Sigurði að segja sann- leikann og að hann svaraði þeim spurning- um, sem hann lagði fyrir hann. Samkvæmt framansögðu er það ekki nákvæmt eða rétt orðað í réttarhaldi 27. janúar þ.á., þar sem segir, að dómarinn hafi gefið í skyn, að ef Sigurður ekki með- gengi bráðlega, yrði hann settur uppá vatn og brauð, því að engin slík hótun hefir oss vitanlega átt sér stað, og það er gáleysi okkar að hafa ekki gert athugasemd um þetta í þingbókinni." Svona gengu öll réttarhöldin til. Ég held maður hefði látið sér hægar en Lárus, þeg- ar í ljós kom, hvernig landið lá og helzt laumast í burtu, ef ekki með öðrum hætti þá í myrkri yfir Breiðdalsheiði í von um að fá inni hjá Sigurði skurði, því að gisting hefði ekki legið á lausu. Ég get ekki fund- ið, að mér sé skylt að rétta hlut fjarskylds ætiingja, sem asnast í gapastokk. Það er nú samt skylt einhveijum sagn- fræðingi að skrifa söguna sæmilega hlut- lausa; annars getur rithöfundur hæglega unnið hana uppúr bók Jóns. Hún er það gott heimildarrit. Og það er líklega betra að saga Lárusar verði í höndum rithöfundar en sagnfræðings. Þeir skilja aldrei sínar eigin heimildir. Sagnfræðingar hafa hæfi- leikann til að finna heimildir en rithöfundar að leggja útaf þeim skynsamlega. Sjálfur ætla ég að fara eftir heilræðinu í þessari vísu um Skúlamál: Kjartan Bjargmundsson í hlutverki Skúla Thoroddsen og Lilja Þórisdóttir í hlut- verki Theódóru konu hans (úr leikriti Ragnars Arnalds „Uppreisn á ísafirði"). Enginn skyldi ætla sér í því máli að pæla, þcgar saman soðin er- samfelld lygaþvæla. 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.