Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1986, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1986, Page 14
þeim, sem sumir aðrir geta skrifað undir. Hvernig leysum við úr slíkum ágreiningi? Svarið er, held ég, að við getum gert ráð fyrir víðtæku óskráðu samkomulagi þjóðar- innar um nokkur einfold og skýr megin- verkefni ríkisins. En því minni líkur eru á samkomulagi sem við fjölgum verkefnum þess. Ekki er til dæmis teljandi ágreiningur um það, að ríkinu beri að halda uppi lögum og rétti. En margir eru ósamþykkir því, að ríkið bregði sér í gervi Hróa hattar og færi með valdi fé frá ríkum til fátækra. Þeir hafna þeirri hugmynd, að fólk eigi heimt- ingu á framfærslufé úr vasa annarra af þeirri ástæðu einni, að það hafi fæðst í sama landi. Er Velferðaraðstoð Réttlætanleg? Við getum af framangreindum ástæðum ekki gert ráð fyrir neinum þjóðarsáttmála svipuðum þeim, sem Matthías Johannessen hugsar sér, þótt við getum hugsað okkur óskráð samkomulag þjóðarinnar um nokkur meginverkefni ríkisins. Sennilega er þó bita munur, en ekki fjár, á skoðunum okkar Matthíasar. En tvær spumingar hljóta að vakna að svo komnu máii. Felur þetta óskráða samkomulag í sér velferðaraðstoð? Og ef svo er, hvemig er slíkri velferðarað- stoð haganlegast fyrir komið? Víðtækt samkomulag er áreiðanlega með þjóðinni um það markmið, að enginn Islendingur þurfi að líða skort vegna þess að hann geti Matthías Johannessen er ekki tómhyggjumaður, heldur borg- aralegur húmanisti. Hann veit, að einstaklingsfrelsi hefur ekk- ert gildi án þess aðhalds, sem við höfum af sögu okkar og siðum. Og í ritgerð sinni í Frelsinu fær- ir hann ekki rök fyrir einstakl- ingsfrelsi með þvi að afneita sannleikanum, heldur bendir á hið sama og annað skáld gerði fyrir þtjú hundruð árum, John Milton, að við getum ekki gert okkur vonir um að nálgast sann- leikann nema búa við frelsi. ekki bjargað sér sjálfur (en þeir, sem það geta, eiga auðvitað að gera það). Hann hefur ekki heimtingu á aðstoð, en æskilegt er hins vegar, að hún sé veitt. En sú álykt- un er alls ekki réttmæt, að velferðaraðstoð ríkisins sé eina færa leiðin að þessu mark- miði. Við verðum að vera tilbúin til að endurskoða þann sannleika, sem við höfum trúað á, í ljósi reynslunnar. Við komumst ekki að skynsamlegum niðurstöðum nema með því að líta til hennar. Og hvað sýnir reynslan okkur? í fyrsta lagi hefur mörgum þeim, sem einblína á rikið, sést yfir hið mikilvæga hiutverk, sem einstaklingar, fjölskyidur, líknarfélög og önnur frjáls samtök geta gegnt og hafa gegnt í velferðarmálum. Og menn geta tryggt sig gegn áhættu án þess að ríkið þurfi ailtaf að neyða þá til þess. Einn ísmeygiiegasti ókostur ríkisafskipta af þess- um málum er, að tilraunastarfsemi einstakl- inga og samtaka þeirra minnkar óhjákvæmilega. í öðru lagi er enginn vafi á því, að velferð- araðstoð ríkisins hefur óholl áhrif á marga þá, sem hana þiggja. Þeir taka að líta á sjálfa sig sem þiggjendur fremur en veitend- ur, missa virðinguna fyrir sjálfum sér. Velferðarríki okkar daga minnir með nokkr- um hætti á Guðrúnu Ósvífursdóttur; þeim er það verst, sem það ann mest. I þriðja lagí má aldrei gleyma því, að velferðaraðstoð er síður en svo ókeypis. Fé, áem einstaklingar hefðu ella notað sér- þekkingu sína til að ávaxta, er tekið af þeim og notað í annað. Sjálfkrafa straumur þess í hagkvæmustu farvegina er truflaður og torveldaður. í Qórða lagi er velferðaraðstoð sú, sem felst ekki í beinni millifærslu fjár, heldur niðurgreiðslu ýmissar opinberrar þjónustu, til dæmis skólagöngu og heilsugæslu, mjög óhagkvæm. Þeir, sem njóta hennar, fá ekki að vita, hvað hún kostar í raun og veru og geta því ekki hagað ákvörðunum sínum eins hyggilega og ella. Valdið Lýtur Eigin Lögmálum Ekki er alit talið. Ríkisvaldið er síður en svo hlutlaust verkfæri, sem við getum notað til þess að komast nær ýmsum æskilegum markmiðum okkar. Það lýtur sínum eigin lögmálum og getur núist í höndum okkar. Eitt lögmálið, sem hagfræðingar hafa kom- ið orðum að, er kennt við Aaron Director, fyrrverandi prófessor í Chicago-háskóla. Það er í sem fæstum orðum, að þeir hópar, sem hafa af einhverjum ástæðum bestan aðganga að ríkisvaldinu, hagnist umfram aðra á millifærslum ríkisins, beinum og óbeinum. Og það fólk, sem ekki getur björg sér veitt, er ekki líklegt til að vera í þessum hópum, heldur þeir, sem kunna að koma fyrir sig orði eða geta skipulagt sig betur til sóknar á vígvelli stjórnmálanna en aðrir. Ymis rök má leiða gegn millifærslum frá efnuðu fólki til fátæks, eins og ég hef þeg- ar gert. En ef þær eru umdeilanlegar, þá ættu millifærslur frá fátæku fólki til efnaðs að vera enn umdeilanlegri. Og þegar við skoðum millifærslur ríkisins, sjáum við, að þær eru að jafnaði ekki frá efnuðu fólki til fátæks, heldur úr einum vasa venjulegs Jónas H. Haralz segir í bréfi til Matthíasar, sem birt er í Frelsis- ritgerðinni: „Ein höfuðástæða þess, að menn hafa ekki fengið að njóta sín, er efnalegur skort- ur, sú fátækt, sem mannkynið hefur búið við frá aldaöðli. Ekk- ert samfélag hefur náð meiri árangri til áð lyfta því oki af herðum manna en einmitt frjálst borgaralegt þjóðfélag. Sá árang- ur er svo að sínu leyti forsenda velferðarríkisins. “ skattborgara í annan vasa hans eða jafnvel frá fátæku fólki til efnaðs. Sjómaðurinn í Bolungarvík og saumakonan í Breiðholti greiða til dæmis með sköttum sínum fyrir menntun ráðherrasonarins og óperugöngur næringarfræðingsins. Og framleiðendur eins og bændur og útgerðarmenn eru styrkt- ir af almannafé! Jón Baldvin Hannibalsson hefur stundum talað með nokkrum rétti um „velferðarríki fyrirtækjanna", og Magnús Kjartansson hafði á sínum tíma mörg orð um „pilsfaldakapítalismann". Hagfræðingar eins og Director, George Stigler, James M. Buchanan og Gordon Tullock hafa síðustu áratugi kannað ýmis lögmál, sem giida á vígvelli stjórnmálanna. Við getum ekki gert ráð fyrir því, segja þeir, að ríkið sinni alltaf því hlutverki, sem hugsjónamenn ætla því. Við ættum heldur að spyrja, hvemig kaupin gerast á eyrinni. Ef stjómmálamenn fá fleiri atkvæði með því að veita vel skipulögðum og háværum hagsmunahópum aðstoð en með því að veita aðeins raunvemlega velferðaraðstoð, þá er ekki við öðm að búast en þeir taki fyrr- nefnda kostinn. Þar sem þeir em mannlegir eins og við hin, hafa þeir meiri áhuga á eigin ávinningi en raunvemlegum þörfum annarra. Við ættum því ekki að spyija, hvað velferðarríkið geti gert fyrir okkur, heldur hvað það sé að gera okkur. Hugmyndir Jónasar H. Haralz Þótt Matthías Johannessen sé áreiðanlega ekki sammála mér um allt það, sem hér hefur verið sagt um velferðaraðstoð, veit hann auðvitað af þeim möguleikum, sem eru á velférðaraðstoð án atbeina ríkisins og mörgum þeim hættum, sem fylgja ríkis- afskiptum af velferðarmálum. En ég held, að sumir aðrir hafi ef til vill ekki gert sér fulla grein fyrir, hversu varasamt ríkisvald- ið er, jafnvel þegar (og reyndar ekki síst) þegar mönnum gengur gott eitt til. Óvand- aðir eða eigingjarnir menn og hópar hljóta fyrr eða síðar að hrifsa þetta verkfæri og beita því í eigin þágu nema notkun þess séu settar strangar skorður í stjómarskrám. Þrátt fyrir rannsóknir þeirra Buchanans, Tullocks og annarra fræðimanna hafa sum- ir þeir, sem taka til máls um velferðarríkið, enn tilhneigingu til að bera saman fijáls viðskipti einstaklinga eins og þau eru og ríkisafskipti eins og þau ættu að vera, en ekki eins og þau em í raun og vem. Herða má á þessari hugsun með tilvitnun til Jónasar H. Haralz, hagfræðings, en nokkrir kaflar úr merkiiegu bréfi Jónasar til Matthíasar em birtir í Frelsis-ritgerð- inni. Tildrög bréfsins vom þau, að Þorsteinn Gylfason, heimspekikennari í Háskóla ís- lands, birti langa grein í Skími 1984, þar sem hann líkti fijálshyggju við alræðisstefnu kommúnista og réðst af mikilli hörku á ýmsa helstu hugsuði hennar. Þorsteinn beitti meðal annars þeim rökum, að menn væm ekki líklegir til að taka út fullan þroska eða njóta sín í fullkomnu séreignar- skipulagi. En Jónas segir í bréfinu: „Ein höfuðástæða þess, að menn hafa ekki feng- ið að njóta sín, er efnalegur skortur, sú fátækt, sem mannkynið hefur búið við frá aldaöðli. Ekkert samfélag hefur náð meiri árangri til að lyfta því oki af herðum manna en einmitt fijálst borgaralegt þjóðfélag. Sá árangur er svo að sínu leyti forsenda velferð- arríkisins." Síðar í bréfinu lætur Jónas svo um mælt: „Ríkið er klunnalegt og klaufskt verkfæri, sem aldrei nær þeim árangri, sem ætlast er til. Skýringin er sú, sem Hayek hefur lýst manna best, að þekkingin er ekki á einum eða fáum stöðum, heldur dreifð á milli þúsunda og milljóna manna. Þess vegna er það miklu vænlegra að láta einstaklinga, félög þeirra og margvísleg samtök styðja menn til þroska heldur en að láta ríkið, þar sem ákvarðanir eru ætíð teknar af fáum mönnum á grúndvelli lítillar þekkingar. Enn alvarlegra er þó hitt, að ríkið bókstaflega drepur viðleitnina til þroska í dróma. Þetta er ekki aðeins hægt að styðja með þekkingu okkar á mannlegu eðli, heldur einnig með skírskotun til beinnar reynslu. Ef menn eru famir að treysta á ríkið í þessu efni sem öðrum, dregur úr viðleitninni til sjálfsbjarg- ar, og sú viðleitni fer smátt og smátt að teljast óeðlileg, uns hún að lokum er talin andstæð almannaheill og þar með glæpsam- leg.“ ÍSLENDINGSEÐLIÐ ElNSTAKL- INGSEÐLI Svar mitt við spumingunum um velferð- araðstoð er í stuttu máli þetta: Já við velferðarþjóðfélagi, nei við velferðarríki! Við eigum ekki að fela ríkinu að veita velferðar- aðstoð nema fullreynt sé, að einstaklingar og samtök þeirra geti ekki annast hana af eigin rammleik. Ég hef ekkert á móti frjáls- um tryggingafélögum, sem starfa með svipuðum hætti og hrepparnir gerðu að fornu, svo framarlega sem menn mega velja um það, hvort þeir trýggja sig eða ekki. En velferðarríki, sem annast um menn frá vöggu til grafar, er okkur íslendingum ekki eiginlegt. Þeir norsku höfðingjar, sem neit- uðu að greiða Haraldi lúfu skatt, en buðust til að gefa honum gjafir jafnháar, hefðu ekki verið hrifnir af því. Þeir vom ekki að flýja þennan ófögnuð, til þess að afkomend- ur þeirra þyrftu að hitta hann fyrir á okkar dögum. Steinunn hin gamla, frændkona Ingólfs Arnarsonar, sem vildi ekki þiggja jörð að gjöf frá honum, heldur kaupa, hefði ekki litið það hýru auga. Höfundur Háva- mála, sem orti, að bestir væru viðurgefendur vinir, hefði ekki heldur goldið því atkvæði sitt. íslendingseðlið er umfram allt einstakl- ingseðli. Mig greinir líklega á við þá Jónas H. Haralz og Matthías Johannessen um margt í velferðarmálum. En fijálshyggjan er rúm- góð kenning, og við getum ekki vænst þess að komast að neinum skynsamlegum niður- stöðum nema við þorum að rökræða og prófa nýjar hugmyndir. Og lokaorð Matthí- asar get ég óhikað gert að mínum: „íslensk þekking og tækniþróun eiga, vænti ég, eft- ir að auka veraldlega velferð þegnanna og draga jafnframt úr sóun og magngræðgi. Að því verður stefnt að breyta gæðum í mikil verðmæti, en ekki magni í lítil verð- mæti. Þannig lít ég einnig á hlutverk fijáls- hyggjunnar: að breyta litlu þjóðfélagi í verðmæta einstaklinga. Er ekki nóg af millj- ónaþjóðfélögum um allan heim, þar sem einstaklingurinn er ekki meira virði en loðna í nót?“ Stanford, Kaliforníu, í ágústlok 1986. Vísur Jón Gunnar Jónsson tók saman Yið heilsum að þessu sinni með nokkrum vísum eftir Pál Ólafs- son. Margir samtímamenn litu ekki á Pál sem veruíega merki- legt skáld, heldur sem góðan hagyrðing, en það er hægt að vera hvorutveggja í senn með góðum sóma. Hann lifði í skugga virðulegri þjóðskálda, sem svo voru kallaðir. Vissulega gátu þau líka gert góðar tækifærisvísur og jafnvel bundið spekiorð í einföldum stökum. En alþýðuhylli naut Páll. Sjálfur tók hann ljóðagerð sína og sjálfan sig varla eins hátíðlega og sum samtímaskáldin, er höfðu hærri menntagráður og almenn- ingur leit kannski meir upp til. En sá sem velur vísur hér í þáttinn metur Pál Ólafsson mikils. Til konu sinna orti hann: Þú skalt rentu frá mér fá. Svo fús er ég að kveða og skrifa hundrað vísur, ef ég á afmælið þitt næst að lifa. Þú skalt rentu frá mér fá, feldu hana í bijósti þínu, sérhvem þanka er ég á indælan í hjarta mínu. Þú skalt rentu frá mér fá fullríkum úr hjartans sjóði, sérhvem dropa er ég á i æðum mér af heitu blóði. En máske ég í móðurætt megi hniga innan stundar. Hugsaðu um því hefur blætt hjartanu, sem værast blundar. Þessi mun vera ort seint á ævi Páls: Heldurðu að ég geti gleymt gjörðum bæði og orðum, eða mig um annað dreymt en ástúð þína forðum? Páll fæddist 1827, sonur séra Ólafs Indriðasonar, sem kenndur var við Kol- freyjustað í Fáskrúðsfirði, hann fékkst nokkuð við skáldskap líka. Ennfremur varð Jón, sonur sama prests, f. 1850, hálfbróðir Páls, þjóðkunnur maður, bæði fyrir skáldskap, ritstjórn og pólitísk af- skipti. Pál var raunar líka þingmaður, en ekki talinn mikill skörungur á því sviði. Jón gaf út ljóð bróður síns. En talið er að nokkur fljótaskrift hafí verið að undirbúningi þeirrar útgáfu. Sum- staðar flotið með vísur, sem vafasamt er að Páll hafí ort. Ein þeirra er svo kölluð Bleiksvísa, sem skotist hefur inn í eftirmæli Páls um reiðhest sem Bleikur hét. Sveinbjörn á Draghálsi, Árni Óla og fleiri hafa fært rök að því, að vísa sem svona byijar: „Ellin hallar öllum leik,“ sé eftir samtímakonu Páls sem heima átti í Kelduhverfí í Þingeyjarsýslu. Páll fluttist ásamt konu sinni til Reykjavíkur í skjól bróður síns og þar dó hann 1905. Jón Ólafsson kom eins og áður er sagt víða við. Hann ferðaðist og mikið. Hann andaðist 1916. Þessi alkunna vísa er eftir Jón Ólafs- son: Hálfan fór ég hnöttinn kring, hingað kominn aftur, átti bara eitt þarflegt þing, og það var góður kjaftur. Einnig: Hér er nóg um björg og brauð berirðu töfrasprotann. Þetta land á ærinn auð, ef menn kunna að not’ann. Svo fer kannski best á því að ljúka þessum þætti með vísum eftir gamla Pál og loks einni, sem vinur þeirra hjóna orti, er gamli maðurinn var allur. Páll orti: Systur tvær mig sækja heim svartar vetramætur. Yndi mitt er allt hjá þeim, uns menn koma á fætur. Onnur þeirra er ást til þín, aldrei sem ég gleymi. Hin er veika vonin mín, vina best i heimi. Þorsteinn Erlingsson orti til ekkju Páls til minningar um afmælis- og brúð- kaupsdag hennar. Fyrir ástúð ár og síð, alla tryggð og braginn, sveipar minning björt og blíð blessaða gamla daginn. 14

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.