Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1987, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1987, Blaðsíða 5
 Franz Mixa við Ásgrímsmyndina sem hann fékk frá Hfjómsveit og Lúðrasveit Reykjavíkur 1930. áfram. „Við getum ekkert gert án þín,“ sagði hann. En ég benti honum á að ég yrði að fá tækifæri til að stjóma. Ég gat ekki stjómað nema það væri almennileg hljómsveit og það þurfti tónlistarskóla til að manna hana. Ég setti sem skilyrði fyrir því að vera áfram að það yrði stofnaður tónlistarskóli og ég fengi næga peninga til að byggja upp góða hljómsveit. Það var gengið að því. Tónlistarfélagið var stofnað og ég fékk konsertmeistara (Heller) og selló- leikara (Fleischmann) til liðs við mig frá Austurríki." Þriðji þáttur verks- ins varð að takast „Ég var ungur á þessum árum, fullur af vilja, krafti og fmmkvæði. Það var heillandi fyrir mig að geta byggt upp tónlistarstarf- ið. Páll hafði nokkra orgelnemendur en það vom engir tónlistarkennarar að ráði og eng- inn skóli. Bjöm heitinn Ólafsson, konsert- meistari, lærði hjá Stephanek, sem tók við af Heller, og ég fékk til landsins. íslending- ar sýndu að þeir höfðu mikla hæfíleika. Þeir náðu vemlegum árangri á skömmum tíma. Þá þyrsti í þekkingu og dmkku í sig allt sem ég gat veitt þeim. Ég kenndi söng, tónsögu, tónfræði og á píanó. Við stofnuðum tríó og lékum Schubert við opnun Tónlistar- skólans. Það vom haldnir útvarpstónleikar einu sinni í viku og hljómsveitin æfði reglu- lega. Þetta var erfitt en mikilvægt starf. Ég starfaði á íslandi í átta ár en gerði aldr- ei skriflegan samning. Við tókumst í hendur upp á að það yrði staðið við mínar kröfur og það var gert. En seinna varð ég að skrifa til íslands og biðja um skjal því til sönnunar að ég hefði starfað þar í öll þessi ár.“ Myndaalbúm Mixa ber þess vitni að hann ferðaðist víða um landið. Myndir af fossum em sérstaklega áberandi. Hann kunni að meta íslenska náttúm. Hann las íslenskar bókmenntir, bæði gamiar og nýjar, og safn- aði sönglögum eftir séra Bjama Þorsteins- son. Leikrit Jóhanns Sigurjónssonar um Fjalla-Eyvind hafði þó sérstök áhrif á hann. „Saga þessa fólks í íslenskum óbyggðum, hin mikla ást sem þau bám hvort til ann- ars. Það er mögnuð saga,“ sagði hann. „Mér gafst því miður aldrei tækifæri til að sjá leikritið á sviði. Það fjallar ekki síður um Höllu en Eyvind og stundum hvarflar að mér hvort ég hefði átt að kalla ópemna Höllu.“ Katrín Ólafsdóttir, fyrri kona hans, hjálp- aði honum að þýða textann á þýsku. „Ég byijaði á að semja þriðja þáttinn í óper- unni,“ sagði Mixa. „Ég vissi að það væri ekki þess virði að semja tónlist við verkið nema mér tækist að túlka hinar mannlegu og sálarlegu ófarir, sem koma fram í þriðja kafla leiksins, fullkomlega. Það tókst og ég lauk við verkið á þremur vikum.“ Hann byijaði að setja það út fyrir hljómsveit á Islandi og hafði lokið við fyrrihluta annars þáttar þegar hann flutti aftur heim til Aust urríkis í maí 1938. „Heimþráin réði því að lokum að ég fór frá íslandi. En ég hélt áfram að útsetja ópemna og lauk því um haustið 1938. Ég spilaði kafla úr henni á píanó fyrir kunn- ingja í Tónlistarfélaginu í Reykjavík og við veltum því fyrir okkur hvenær hún yrði frumflutt á íslandi. Og nú er komið að því. — Ég sendi hana til fyrrverandi kennara míns sem stjómaði Miinchen-óperanni þegar hún var tilbúin en fékk hana endursenda í apríl 1940. Ég frétti seinna að Göbbels hefði fyrirskipað að aðeins jakvæð" verk yrðu flutt í ópemnni." „Hann Olafur minn býr á íslandi“ Mixa og Katrín settust að í Graz, næst- stærstu borg Austurríkis, og eignuðust soninn Ólaf. „Hann starfar sem læknir á íslandi og er mikilvægasti maður í heimi í mínum huga," sagði hinn stolti faðir og sýndi mér gamla mynd af Ólafí. Mixa var skólastjóri tónlistarskóla Steiermark, ópem- skólans í Graz, og kenndi við háskólann. Hann var kvaddur í þýska herinn árið 1943 og var í herfangelsisvist í Frakklandi til ársins 1947. Katrín flúði frá Asturríki til Bæjaralands þegar her Bandamanna réðst inn í Aust- urríki. Mixa gat komið boðum um hvar hún var niðurkomjn til íslendinga í París og Rauði kross íslands hjálpaði henni heim. „Þau fór um Kaupmannahöfn," sagði Töp- per. „Ólafur var á sandölum og Katrín þurfti að kaupa á hann skó áður en þau fóra heim. Hún skipaði stráknum að segja ekki aukatekið orð á þýsku inni í búðinni en auðvitað sagði Ólafur: „Die Schue sind zu klein (skómir em of litlir)," þegar þeir pössuðu ekki. Sölustúlkan neitaði að selja þeim skóna þegar hún heyrði að þau vom þýskumælandi." Mixa hélt tónlistarstörfum sínum áfram í Graz eftir stríðið og kom því meðal ann- ars til leiðar að Pampichler, Hriberschek og Ploder, sem spiluðu allir með Fílharmóní- unni í Graz, fluttu til íslands. Sjálfur flutti hann til Múnchen árið 1958 og helgaði sig tónsmíðum. Hann hefur samið fjölda tón- verka og starfar enn. Mörg verkanna hafa íslenskt þema og minna á dvöl hans á Is- landi. Sinfóníuhljómsveit íslands fmmflutti 3. sinfóníu hans árið 1970. Hann hefur víða hlotið lof og viðurkenningu fyrir störf sín; er meðal annars heiðursfélagi Tónlistarfé- lags Reykjavíkur og hefur verið sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu. Þau hjónin taka vel á móti gestum og vildu fyrir alla muni sýna mér sem mest af Munchen. Mixa hugsaði til baka á meðan Töpper ók okkur um breiðgötur borgarinn- ar. „Ég eignaðist marga góða vini á íslandi,“ sagði hann. „Bjössi í búðinni (Bjöm, kaup- maður á Vesturgötunni) var einn þeirra og Ragnar í Smára annar. Hann var einn hinn mesti öndvegismaður sem ég hef kynnst á ævinni. Við fómm saman í klukkutíma gönguferð á hveijum morgni og eftir tvö eða þijú ár sagði hann: „Veistu að ég skildi ekki orð af því sem þú sagðir þegar við byijuðum að fara í þessar gönguferðir. En nú skil ég þig vel.“ Ragnar hafði þessa miklu þörf til að læra, eins og svo margir íslendingar. Ég bý alltaf að kjmnum mínum af Ragnari. Náttúra landsins hafði mikil áhrif á mig og ég á góðar endurminningar frá Islandi. Og tengsl mín við landið slitna aldrei," sagði hinn emi, hlýlegi maður. „Hann Ólafur minn býr á íslandi." Hðfundurinn er fréttaritari Morgunblaðsins Zurich. H O R F T A H E I M I N N EFTIR GABRIEL LAUB NUA AÐ SPARA eir sem skulda verða að spara, það er deg- inum ljósara — sama hvort það er fátæk ekkja með sjö böm eða vellauðugt ríki með fleiri milljón skattgreiðendur. Náttúrlega em það helst þeir ríku sem geta sparað, fátæklingar hafa ekkert til að spara. Ríkissjóðurinn okkar hefur alveg sér- staka aðstöðu í spamaðarmálunum. Hann er fullur af peningum og getur því sparað og verður líka að spara því landið er svo skuldugt. Vandamálið er barasta hvar og hvemig á að spara. Það em svo margar leiðimar til að spara. Hafi maður til að mynda ekki ráð á brauði með áleggi láta sumir nægja brauðið áleggslaust en aðrir sætta sig við áleggið brauðlaust. Margir vita upp á hár hvemig farið er að því að spara. Hagsýnar húsmæður elda bara gellur fímm sinnum í viku. A skrifstofum má spara bréfaklemmur og pappir — með því að gera uppköst að nýjum bréfum aftaná gömul bréf, þetta sparar vita- skuld þeim mun meir sem embættismennirnir em fleiri. Þessvegna em stofnuð svona mörg embætti og skipaðir all- ir þessir yfírmenn á spamaðartímum. Fjölmiðlar og útgefendur byija hinsvegar sinn sparnað á höfundagreiðslunum — sem hvorteðer em bara hverfandi hluti af heildarkostnaðinum. í Prag var forðum sögð sú saga af flokksprelátunum Húsak og Bílak að þeir hefðu gengið út meðal fólksins líkt og Harún-al-Rasíld gerði á sínum tíma. Þeir komu á bamaheimili og spurðu for- stöðukonuna hvað nú helst vanhagaði um: „Við þyrftum að fá nýja stóla fyrir krakkana,“ sagði forstöðukonan, „gömlu stólamir em farnir að skrölta og svo em þeir altof stórir." — „Hvað mundi það nú kosta?“ spurði Húsak. „Tvöhundmð þúsund kall.“ „Það em miklir peningar," sagði þá flokksleiðtoginn," „þið verðið að notast áfram við gömlu stólana, við þurfum að spara.“ Þá litu þeir kumpánamir inní fangelsi og enn spurði Húsak fangelsisstjórann hvað hann vanhagaði um: „Okkur bráð- vantar sundlaug handa föngunum," svaraði hann. „Hvað mundi þetta kosta?" „Tuttugu miljónir." „Ágætt“, sagði Hús- ak þá, „peningana fáið þið undireins." Þegar félagamir vom komnir út fór Bílak að furða sig á þessu: „Þú neitar bömunum um tvöhundmð þúsund og lætur fangana undireins fá tuttugu milj- ónir...“ „Reyndu nú að hugsa,“ sagði Húsak þá föðurlega við kumpán sinn sem fræg- ari var fyrir annað en skerpu í hugsun. „Dettur þér kannski í hug að við yrðum lokaðir inni á bamaheimili ef þannig skipuðust veður í lofti?“ Ekki eiga nú stjómvöld okkar og þing- menn alveg svona auðvelt val í spamað- armálunum. Við þyrftum öllsömul að leggjast á eitt með þeim og finna sem flestar sparnaðarleiðir. Hjálparlaust em þó stjómmálamenn- imir komnnir að þeirri niðurstöðu að ráðlegast sé að byija niðurskurðinn á menntamálunum. Og rétt er það. Skól- atíminn er til að mynda altof langur — um það getur hver einasti nemandi vitn- að. Hver einasti maður sem lokið hefur námi veit líka að helmingurinn af því sem lært var í skóla kemur aldrei að neinu gagni í lífinu; og menn þar að auki búnir að gleyma helftinni af því sem þá er eftir. Vel mætti sleppa öllu þessu tilgangslausa námsefni: helmingnum fyrst og síðan helmingnum af seinni helmingnum — og spara þannig alveg leikandi þijá fjórðu skólatímans. Ekki man ég lengur neitt af mínum reikningslærdómi nema rétt það sem dugir til að reikna það út hvað eftir verður af laununum mínum þegar búið er að draga skattinn frá. Annars má sem best leggja reikningskennsluna niður í framtíðinni. Einhver var að reikna það út nýlega að það mundi kosta um það bil 12.000 krónur að kenna hveiju bami samlagningu og frádrátt, en fyrir örlítinn hluta þess fjár getur krakkinn fengið sér vasatölvu sem líka kann að margfalda og deila. Og hvað á að gera með hjálpar- kennslu í móðurmálinu þegar löngu er búið að leysa vandamál þeirra sem koma mállausir út úr skólakerfinu með því að ráða þá tilað stjóma þáttum í sjónvarpi og útvarpi. En þetta var barasta sparðatínsla. Yfirleitt mætti hugleiða það í alvöm hvort ríkinu beri yfirleitt nokkur skylda til að kosta menntun hvers sem er — réttast væri kannski að ríkið borgaði einvörðungu menntun þeirra sem ætla að verða ríkisstarfsmenn, menntun hinna yrði þá greidd af þeim atvinnuvegum sem nýta vilja krafta þess fólks sem ekki getur orðið ríkisstarfsmenn. En lær- dómshestar ættu að borga úr eigin vasa. Hluti menntunar af þjóðartekjum er nú orðinn lægri hér en víðasthvar annar- staðar í álfunni — án þess nokkur heyrist á það minnast að við séum heimskari en aðrar þjóðir. Og vogi sér einhver að nefna slíkt þá bendum við bara á stjóm- málamennina okkar. Það nægir. Það eitt að þeir skuli hafa komið auga á það að enn má spara fé til menntamála sannar kænsku þeirra. Og það sannar líka að þeir kannast mætavel við brandarann frá Prag og vita þar af leiðandi að jafnvel þó þeir féllu í kosningum, sem Guð forði okkur frá, þá yrðu þeir aldrei sendir í skóla aftur. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 4. APRÍL 1987 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.