Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1987, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1987, Blaðsíða 16
„Fugtínn fer upp íský“ eftir Sólveigu Þórsdóttur, 7 ára. Hólabrekkuskótí. • • sýna í Listasafni ASÍ á vegum Iðnaðarbankans Næstkomandi laugardag verður opnuð óvenjuleg myndlistarsýng í Lista- safni ASÍ. Þetta er sýning á 100 myndum eftir 6-12 ára börn úr Reykjavík. Forsaga málsins er, að í vetur stóð Iðnaðarbankinn fyrir myndlistarsam- keppni í bamaskólum Reykjavíkur í sam- vinnu við myndmenntakennara þar og voru undirtektir svo góðar, að alls bárust um eitt þúsund myndir. Dómnefnd, sem skipuð var Hringi Jóhannessyni listmálara, Önnu Þóru Karlsdóttur myndmenntakennara og Braga Hannessyni bankastjóra, valdi 100 myndir sem verða á sýningunni í Listasafni ASÍ. Hún verður þar um páskana, eða nán- ar tiltekið frá 11.-26. apríl. Auk verðlauna, sem höfundar þessara hundrað mynda fá, mun Iðnaðarbankinn kaupa 30 þeirra, ef þær reynast falar. Munu þær í framtíðinni prýða húsakynni bankans og verða hluti af safni yfir myndlist bama, sem þegar er til vísir að í Iðnaðarbankan- um. Aður hafa verið haldnar þrjár sýningar á myndlist bama á vegum bankans, í Garðabæ, á Selfossi og Akureyri, en þær hafa verið minni í sniðum. Vegna sýningar- innar í Listasafni ASÍ verður gefið út plakat og einnig vönduð sýningarskrá. Kannski rekur nú einhver upp stór augu og segir með tilheyrandi hneykslunarsvip: Þetta er svo sem eftir öðru; er nú farið að líta á bamamyndir sem alvörulist, jafnvel til að hengja upp í svo virðulegum stofnun- um sem bönkum? - Þá er því til að svara, að þegar bezt lætur, tekst að gæða myndir einhveijum þeim galdri, að þær geta talizt list - og þá skiptir ekki máli, hvort höfundur- inn er bam, gamalmenni eða á einhverjum aldri þar á milli. Fullorðnir sjá hinsvegar, og jafnvel með nokkurri öfund, að blessuð bömin hafa í ríkum mæli þann hæfileika að tjá sig á eðlilegan máta í mynd. Það er svo dapurleg staðreynd, að sú myndsýn lætur í lægra haldi og koðnar oftast niður, ,Böm aðleik“eftir Helgu Gunnarsdóttur, lOára. MyndtístarskótíReykjavíkur. „Leið 3“ eftir Hjálmar Guðjónsson, lOára. Æfinga- og tilraunaskótíKHÍ. þegar bömin fara að njóta kennslu. Þá kem- ur skynsemin til skjalanna og segir þeim, að mynd megi ekki vera „óeðlileg" eða bamaleg og við þann skilning deyr hin eðlis- Iæga og umbúðalausa tjáning. Sjóaðir myndlistarmenn skoða myndir bama með aðdáun og finna oft, að þar er eitthvað, sem þeir í raun eru að leita að, en er þó ekki hægt að stæla, því það verður tilgerðin ein- ber. Myndir barnanna endurspegla það um- hverfí og þar.n veruleika, sem við búum við eins og eðlilegt má telja. Reykjavíkurbömin túlka heim borgarbamsins eins og sést að minnsta kosti á tveimur myndanna, sem hér eru prentaðar: Annarsvegar fótboltavöllur- inn og hinsvegar strætó með auglýsingu á hliðinni og blokkimar í baksýn. GS.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.