Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1989, Page 13
LESBOK
MORGUNBLADS I NS
28. OKTÓBER 1989
FEREMBláÐ
LESBÓKAR
Kynnið ykkur
hvernig sérfræð-
ingar stjörnu-
merkja frönsku
skíðasvæðin og
segja hreinskilnis
lega frá kostum
þeirra og göllum,
áðuren þið farið í
skíðafrí til Frakk-
lands. /14
Hvernig er að
taka þátt í alþjóð-
legri róðrarferð í
Bandaríkjunum og
Noregi með þátt-
takendumfrá 10
löndum? /15
Ferðafélag ís-
lands kynnir að
þessu sinni helgar-
ferðir, dagsferðir,
aðventu- og ára-
mótaferðir í Þórs-
mörk. Það er engin
ástæða til að loka
sig inni þó að dags-
birtan þverri. /75
Frakkar með nýj an alpastíl
- í skíðun, í skíðafatnaði og skíðaþorpum
y c. ■
Frakkar eru að móta nýjan
alpastíl á frönskum skíðasvæð-
um. Og það er áhugavert,
hvernig þeir undirbúa komandi
skíðatímabil, með nýja tisku í
skíðafatnaði og nýjum tilbrigð-
um í skíðun. Frönsk skíðasvæði
höfða almennt meira til yngri
kynslóðarinnar en önnur evr-
ópsk skíðasvæði.
Hin geysistóru samtengdu
skíðasvæði eins og í Trois Vallées
(Dölunum þremur), Val 'd’Isére
og Tignes og Portes du Soleil, sem
liggur við svissnesku landamærin
— krefjast meiri leikni og út-
halds, sem aðeins ungir eða líkam-
lega vel á sig komnir búa yfir.
Hæð franskra skíðasvæða tryggir
öruggan snjó. Með byggingu
þeirra hafa Frakkar mótað
„öðruvísi“ skíðastíl fyrir hina nýj-
ungagjörnu og vandlátu, sem öðr-
um löndum hefur ekki tekist.
Best þekkta og um leið óvinsæl-
asta einkenni franskra skíða-
svæða, eru sérhönnuð skiðaþorp
efst í fjöllunum, í óaðlaðandi
byggingarstíl sjötta áratugarins.
Þeim er líkt við risastór hljóð-
magnarakerfi eða breskar neðan-
jarðarbrautarstöðvar, sem hafa
verið dregnar upp á yfirborðið.
Ekki beint aðlaðandi samjöfnun!
En Frakkar halda áfram með
nýjungar. Robert Blanc kynnti
„Evolutif’-skíðun í Les Arcs. Og
ef nýju frönsku skíðin, sem eru
auðveldari í beygjum, þykja betri
en þau stuttu fyrir byijendur, þá
eru þeir komnir með nýja kennslu-
tækni. Og það voru Frakkar, sem
komu með svonefnda „egg-stöðu“
fyrir kappa í skíðabruni.
Skíðun á einu skíði og á skíða-
brettum er vinsælli hér en annars
staðar. Og ef eitthvað er til, sem
heitir að búa til nýjan lífsstíl, þá
var það gert í fyrra, þegar skíða-
fólk á leiðinni upp í frönsku Alp-
Ný stílbrigði í tískufatnaði og skiðun þykja einkenna hin hátt reistu frönsku skíðasvæði — svo nvjög
— að önnur Evrópulönd líta öfundaraugum þangað.
ana sló upp veislugleði og lék fót-
bolta meðfram daglöngum um-
ferðarhnútum! Margir Frakkar
efast um að vegakerfið, sem nú
er í byggingu vegna þriðju vetra-
ólympíuleikanna í Albertviller
1992 (haldnir í Chamonix 1924
og Grenoble 1968) komi til með
að leysa alla umferðarhnúta upp
í frönsku Alpana.
. Frakkar halda því líka fram að
þeir búi yfir fleiri snjóþeyturum
en aðrar Evrópuþjóðir. Veðurskil-
yrði á frönskum skíðasvæðum eru
nógu köld til að snjór haldist, en
of þurrviðrasöm fyrir næga snjó-
komu. Þess vegna fjármagna
frönsk skíðasvæði í snjóþeyturumj
sem spúa úr sér tilbúnum snjó. I
venjulegu árferði er besti skíða-
snjórinn í janúar. Mars er sólrík-
ari og hlýrri, og þá er vinsælast
að skíða.
Frakkar eru búnir að leggja í
mikinn kostnað fyrir þjálfað
skíðafólk. Nú eru þeir farnir að
einbeita sér að skíðasvæðum neð-
ar í fjöllunum fyrir fjölskyldufólk.
Staðarfólk er meira ráðið í þjón-
ustustörfin, svo að gestir fá miklu
hlýrra viðmót en áður. Þeir eru
líka farnir að líta til þeirra alpa-
þorpa, sem eru talin búa yfir hin-
um aðlaðandi alpastíl. Skoðanir á
því eru skiptar. Megéve er al-
mennt talinn búa yfir honum,
einnig Chamonix, þó á annan
hátt sé.
Lestirnar fara hraðar og hraðar
Parísarbúar, sem fara til
Bretagne með lest um helgina,
munu ferðast með 180 mílna
hraða á klst. eða 5 sinnum hrað-
ar en „eldflaugalest" George
Stephenson, nýjung ársins
1830! Og hraðskreiðUstu lest-
irnar auka stöðugt hraðann.
Á þessari öld voru stærstu
framfarasporin stigin, þegar Þjóð-
veijar þróuðu rafmagnsdráttar-
aflið um 1900, þegar Japanir
slógu hraðametið með 130 mílum
á klst. um 1960 og þegar Frakkar
komu með nýja harðlest um 1980,
„train a grande vitésse“. Nýjasta
og hraðskreiðasta lestin, „Atl-
antique", mun bráðlega stytta
lestarleiðir frá París til Atlants-
hafsborga Frakklands um eina
klst. Lestin eru alltaf að verða
samkeppnishæfari við flugvélina
á stöðugt lengri leiðum.
En farþegar athugið: Hrað- og geta þeirra gefur til kynna. Atlantshafslestin farið með 250
lestirnar fara ekki alveg eins hratt Til dæmis getur nýja franska mílna hraða á klst. en fer aðeins
.TGV-spor
- í byggingu (áætl. verklok)
■ Áætluð
Ferðatimi frá París
NÚ (Klukkust.: Mín.) 0:00]
Að lagningu lokinni l0:00l
MEÐ ELDINGARHRAÐA
Train á Grande Vitesse (TGV)
Heimild: ECONOMIST 30.10.89
Mesti meðalhraði lestar
milli áætlunarstaða
i—i i i i i i L—
j i
I I l I I I I 1
1830 40 50 60 70 80 90 1900 10 20 30 40 50 60 70 80 90
með 180 mílna hraða að meðal-
tali. Inni í miðborg Parísar getur
hún ekki farið hraðar en með 137
mílna hraða. Vandinn er að
byggja nægilega beinar braut-
arlínur til að bera hámarkshrað-
ann.
Samkeppnismöguleikar lesta
við flug í Vestur-Evrópu eru þess
vegna meira háðar lagningu
brautarlína. Hin sameinuðu Evr-
ópuríki eru með áætlun um
18.000 mílna brautakerfi, sem
leyfa 120-180 mílna hraða — fyr-
ir árið 2015. Frönsku lestirnar eru
í fararbroddi. Þær munu flytja
farþega sína á irinan við þremur
og hálfri klst. frá París til Lon-
don, Rotterdam, Bordeaux og
Cologne, sem verður til þess að
menn í viðskiptaerindum taka
lestina fram yfir flugið. Og Frakk-
ar láta ekki brautarlínur hefta sig
í að auka hraðann. Lestarleiðin
frá Lille til Parísar, sem á að opna
1993, verður ekin með 200 mílna
hraða. (Econoniist.)
>