Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1989, Qupperneq 16
4-
Morgunblaðið/Bjami
Citroen BX 4x4 skutbíll.
aksturseiginleikar í samræmi við það og fara
verður varlegar í þvottabrettin. Þá er eftir
enn ein stilling, sú hæsta, 25 cm. Hún er í
raun aðeins til þess að fleyta bílnum yfir sér-
stakar hindranir og áreiðanlega hentug í snjó
en þá er öll fjöðrun búin. Þá má aðeins aka
bílnum á 15 km hraða enda má segja að
ökumanni finnist hann vera kominn á trakt-
or. En þessi fjölbreytta stilling á fjöðruninni
er skemmtilegur kostur og kemur án efa oft
að góðum notum þótt segja megi að við flest-
ar venjulegar aðstæður skipti þetta ekki höf-
uðmáli.
Akstur
Citroén BX 4x4 er með 1900 rúmsenti-
metra vél sem gefur 107 hestöfl. Skutbíllinn
vegur 1145 kg og er hann ágætlega kraftmik-
ill. Eyðslan er sögð vera 10,5 lítrar í innan-
bæjarakstri, 6,7 á jöfnum 90 km hraða og
8,7 á jöfnum 120 km hraða. Vinnslan með
þennan kraft er allgóð en hér var þó aðeins
ekið með einn til tvo farþega. Gírskiptingin
er hins vegar ekki skemmtileg. Ekki beint
stirð, en „plastleg" ef svo má að orði kom-
ast. Hún mætti vera liðugri og hljóðlátari.
Við akstur utanbæjar heyrist ekki mikið
vélarhljóð en aftur verður að skrifa vegar-
hljóð á reikning vetrarhjólbarða og nagla sem
eru hvimleiðir. Bíllinn er fimm gíra og má
segja að sá þriðji sé mest notaður í innan-
bæjarakstri en hægt að læðast í þann fimmta
þori maður að svindla á hraðamörkunum.
Hann er hins vegar góður utanbæjar.
Þá er ónefnt sjálft drifið. I akstrinum dreif-
ist sídrifið heldur meira á framhjólin, 53%,
en hægt er að læsa átakinu milli fram- og
afturhjóla og læsa afturdrifinu. Er það gert
með rofa milli framsæta og byiji bíllinn að
spóla á öðru framhjólinu í átakslæsingunni
sér rafeindabúnaður um að færa átakið út í
það hjól sem hefur spyrnu hveiju sinni.
Skutbíllihn er 4,399 metra langur, 1,682
m á breidd og hæðin er 1,441 m. Bíllinn ber
545 kg og 100 kg má setja á toppgrind.
Hámarkshraði er 180 km og hann er 11,2
sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km hraða.
Bensíntankur tekur 66 lítra. Verðið á skut-
bílnum er um kr. 1.450 þúsund í staðgreiðslu
en fimm dyra bíllinn kostar 1400 þús. kr.
Citroén er því án efa kominn hingað til að
veita Subaru og Toyota og öðrum vinsælum
fjórhjóladrifsbílum ákveðna samkeppni og
víst er rétt að hafa hann í huga þegar menn
eru að leita að slíkum bíl. jt
júk íjöðrun og ágætur
kraftur einkenna
Citroén BX 4x4 sem
Globus hefur kynnt
undanfarnar vikur og
verður þessi fjórhjóla-
drifna útgáfa af BX
að teljast góður kostur
í viðbót við BX-gerðimar sem fyrir eru. Sídrif-
ið eykur enn á góða aksturseiginleika BX,
en bíllinn er fáanlegur í tveimur gerðum, fimm
dyra eða skutbííl og þá nefndur Evasion. Með
þessum bíl blandar Citroén sér í harða bar-
áttu fjórhjóladrifsbíla hérlendis sem annars
staðar. Á síðasta ári voru seldir kringum 380
þúsund íjórhjóladrifsbílar í Evrópu og hafði
sala þeirra þá tvöfaldast frá árinu 1985. Það
er því eftir einhveiju að slægjast á slíkum
markaði 'en Citroén gerir ráð fyrir að fram-
leiða 8 þúsund 4x4-bíla á þessu ári. í dag
er flallað um BX-4x4 skutbílinn.
Útlit
Útlitið á Citroén BX 4x4 er kunnuglegt
og ekki svo frábrugðið hinum fyrri framdrifna
bíl. Línur eru fremur kantaðar en bíllinn er
rennilegur. Svartar hliðarrendur setja á hann
sterkan svip svo og svartur ramminn kringum
rúður. Bíllinn er vel búinn að innan sem utan
og er hann fimm manna. Rafmagn er í hliðarr-
úðum að framan. Samlæsing er á öllum hurð-
um, útispeglar báðum megin, klukka í mæla-
borði og lagt er fyrir 4 hátölurum og loftnet
er í bílnum. Sætin eru mjúk og góð og veita
allgóðan stuðning. Auk venjulegra stillinga
er hægt að stilla hallann ;á setu framsæ-
BX fæst í fímm dyra útgáfu eða sem
skutbíll og er hann 16 cm lengri fyrir
aftan afturhjólin.
tanna. Meiri stuðning vantar þó við mjóbak-
ið, þ.e. sætisbakið mætti vera stífara. Gott
rými er fyrir farþega í fram- sem aftursætum
og séu einungis tveir í aftursæti geta þeir
látið fara vel um sig með armpúða milli sín.
Útsýni úr bílnum er allgott og þegar öku-
maður sest undir stýri kann hann fljótt vel
við sig. Mælaborðið er skýrt og armar á stýri
með stefnuljósa-, flautu-, þurrku- og fleiri
rofum eru auðnáanlegir. Á mælaborðskantin-
um eru einnig nokkrir rofar svo sem fyrir
afturrúðuþurrku og fleira. Miðstöðvarstilling-
ar eru á miðju mælaborðinu og milli sætanna
eru rofar fyrir driflæsingu og hæðarstillingu.
Þá eru allmörg og góð geymsluhólf nánast
um allan bíl.
Fjöðrun
Vökvafjöðrunin og sídrifið eru að sjálfsögðu
aðalkostir þessa bíls. Pjöðrunin er mjúk en
Mælaborð og sljórntæki liggja vel við ökumanni.
Skottrýmið er mikið og hlerinn opnast
mjög vel.
þó breytileg eftir því sem hæð bílsins er stillt.
Sú stilling sem mest er notuð gefur bílnum
besta flöðrun og á hún vel við nánast allar
aðstæður. Þá er óhætt að aka bílnum all-
greitt á krókóttum og ósléttum vegum og
lausamöl jafnvel líka — hann er furðu rás-
fastur. Gallinn við bílinn sem var prófaður
var kannski sá að komnir voru undir hann
vetrarhjólbarðar sem voru ekki skemmtilegir
í mölinni.
Sé ekið á grófum vegum er rétt að nota
næstu stillingu fyrir ofan, þ.e. að hækka
bílinn örlítið. Við það verður fjöðrunin stinnari
og holur og ójöfnur finnast frekar. Breytast
Mýkt og kraftur
hjá Citroen BX
með sídrifi
Lexus í klúbb gæðabíla
HINN japanski Lexus, nýi lúxusbíllinn sem Japanir senda til að keppa við evr-
ópska og bandaríska gæðabíla, hefiir staðið sig vel í samanburði sem þýska bíla-
blaðið Auto Motor und Sport gerði nýlega. Þar var Lexus LS 400 borinn saraan
við BMW 735i og Mercedes Benz 420 SEL og býður blaðið Lexus velkominn í klúbb-
inn, þennan merka klúbb þýskra bíla í þessum þýska samanburði. BMW hlaut flest
stig, 274, Mercedes Benz 269 og Lexus 258.
Bygging bílanna, aksturseiginleikar og
þægindi eru meðal þeirra atriða sem borin
eru saman. Farangursými þykir ekki nógu
stórt hjá Lexus fyrir bíl í þessum stærðar-
flokki en þetta eru bílar um 5 metra langir
og vega kringum 1700 kg. Véiin þykir hins
vegar góð, hljóðlát, kraftmikil og laus við
titring og skýtur Lexus þar hinum aftur
fyrir sig. BMW og Benz þykja hins vegar
báðir mýkri, hafa betri aksturseiginleika og
bjóða upp á meiri þægindi en Lexus.
Lexus hinn jap-
anski þykir hafa
staðið sig vel í
samanburði við
þýska gæðabíla.
Saab 9000 CD stóð sig best í samanburði við nokkra hliðstæða bíla.
Saab í efsta sæti
Saab CD 9000 Turbo 16 varð í efsta sæti yfir samanburð flnnska bílablaðsins Tuul-
ilasi við BMW 525i, Opel Senator, Mercedes Benz 300, Alfa Romeo 164, Volvo 760
Turbo, Nissan Maxima og Rover 827 Sterling. Hlaut Saab 214 stig, BMW og Senat-
or voru í örðu og þriðja sæti með 206 stig og síðan kom Mercedes Bens með 201 stig.
í þessum samanburði voru meðal annars
athugaðir aksturseiginleikar, almennur bún-
aður, rými, kraftur, hemiar og fleira. Sam-
anburðurinn var gerður til að kanna hvem-
ig Maxima og Rover 827 kæmu út. Lentu
þeir í 7. og 8. sæti með 192 stig, Maxima
og 188 stig, Rover. BMW náði flestum stig-
um í aksturseiginleikum en þar fannst Finn-
um Saab vanta örlítið upp á mýktina.
16