Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.1989, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.1989, Blaðsíða 7
 I Staatsgaleríe: Salur með þremur myndum Anselms Kiefers, sem ætla má að hafí kostað sem svarar Max Ernst: Heilög Cácilie, 1923. Gott dæmi um verk til 100 milljónum íslenzkra króna. þessa fræga súrrealista, en sést yfírleitt ekki í bókum um hann. Þessi sérkennilegi skúlptúr er frá því um 1920, balletfígúrur eftir Oskar Schlemmer. Ottó Dix: Eldspýtnasalinn, 1920. Hér er útmálun miskunnarleysinu, sem birtist í aðstöðu hermanns, sem misst hefur báða fætur í stríðinu. heimi myndlistarinnar hafi verið Picasso og Salvador Dali. Nú se ekki hægt að nefna neinn, sem maðurinn á götunni hvar sem er, þekkir. Það er samt sem áður ákveðinn, viður- kenndur hópur, sem metnaðarfullt safn telur sig verða að leita til og eignast verk eftir. Athyglisvert er, hversu margir Þjóðverjar skipa þennan hóp mú; aftur á móti er eins og Fransmenn hafi dottið uppfyrir í þessari samkeppni, en ítölum hefur vegnað vel. Bret- ar eiga alltaf nokkra á þessum bás, Banda- ríkjamenn að sjálfsögðu einnig og í smærri mæli eru þar listamenn frá Spáni, Sviss, Hollandi og Austurríki. Það er samt afar skrýtið, að sumar milljónaþjóðir skuli alls ekki koma þarna við sögu - Norðurlandalista- menn eru til dæmis sjaldséðir fuglar í þessum selskap- og þá er ég að tala um núlifandi menn. Verk eftir Munch þætti aftur á móti mikill fengur í hverju safni. Þessi útúrdúr er eiginlega um það, hvernig tryppin eru rekin í þessum bransa. Þar er ekki endilega verið að halda fram því bezta. Gífurlega mikil þjóðernishyggja ræður ríkjum og það er engin tilviljun, að í bandarískum söfnum er Bandaríkjamönnum fyrst og fremst haldið fram og í Þýzkalandi eru þeir þýzkir. Aðrir fá svo að fljóta með. Sá sem skoðar þýzk söfn, Staatsgalerie í Stuttgart þar á meðal, sér fyrst og fremst yfirlit þýzkrar list- ar. Af því sem þar er frá fyrriparti aldarinn- ar hef ég ekki sízt gaman af málurum Weim- arlýðveldisins, sem útmáluðu þjóðfélags- ástandið í kringum 1920. Að sönnu mundi margt úr gamla þýzka expressjónismanum þykja hugljúfari list; myndir eftir fræga brautryðjendur eins og August Macke, Karl- Smith Rottluf, Emil Nolde, Franz Marc og Alexej von Jawlensky. En það er með þá eins og frönsku impressjónistana: maður hefur séð svo mikið af þeim á bókum og allskyns útg- áfu, að það hefur kannski verið full mikið og ekki þeim til góðs. Þeir hafa orðið fyrir því eins og Picasso, en margfalt minni mæli þó, að vera ofsýndir og yfirútgefnir. Svo var hópur af þýzkum listamörmum, bæði fyrir fyrri heimsstyijöld og á arum Weimarlýðveldisins, sem fór beinlínis að teikna og mála myndir með hrikalega grófu og svaðalegu inntaki; menn eins -og Max Beckmann og umfram allt þeir George Groz og Otto Dix. En útmálun þeirra á allskonar úrþvættum eins og okurköllum og melludólg- um og allskonar fórnarlömbum eins og útlif- uðum gleðikonum, er svo beitt og áhrifamik- il, að þetta löngu liðna fólk í myndunum þeirra, stendur manni ljóslifandi fyrir hug- skotssjónum. Einn er sá frá þessu tímaskeiði, sem stend- ur nokkuð sér á bás og hefur verið tekinn til endurmats í nútíðinni með þeim árangri, að mjög hefur hækkað á honum gengið. Sá er Oskar Schlemmer og eru eftir hann marg- ar og áleitnar myndir í Staatsgalerie; einnig fullur salur af undarlegum skúlptúr á háum stöllum. Það eru mjög einkennilegar fígúrur og framúrstefnulegar jafnvel á vorum dögum. Þetta eru fígúrur úr einhveiju sem heitir Triadískur ballet og ég er ekki nógu fróður um dansmennt til að geta skilgreint það. Oskar Schlemmer var innfæddur Stuttgart- búi, fæddur þar 1888 og dó í Baden Baden 1943. Hann gegndi herþjónustu í fyrra heimsstríðinu og slapp lifandi. Síðar var hann liðsmaður hjá Bauhaus í Weimar og Dessau og prófessor við listaakademí. Akademískur málari varð hann þó ekki nema síður væri og verður að teljast sér á parti og meiri fram- úrstefnumaður en flestir landar hans á tíma- skeiði Weimarlýðveldisins. Oft málaði hann fólk, en stílfærði það mjög. Og lágmyndir og annað, sem hann mótaði í þrívídd er ennþá í hæsta máta nútímalegt. Annar framúrstefnumaðaur og jafnaldri Schlemmers var Kurt Scwitters, 1887-1948, sem var þó meira undir áhrifum frá Parísar- skólanum. Hann vann með samklippur og blandað efni og var athyglisverður listamað- ur. Annar jafnaldri þeirra á einnig frábærar myndir í Staatsgalerie. Sá er Oskar Kokosch- ka, austurrískur að uppruna og bjó og starf- aði í Þýzkalandi og dó ekki fyrr en 1980 á heimili sínu við Genfarvatnið. Ævi Kokoschka var ekki aðeins löng; hún var einnig við- burðarík. Ungur að árum var hann í Vínar- borg og varð þar elskhugi þeirrar frægu konu Ölmu Mahler, eiginkonu tónskáldsins og hljómsveitarstjórans. Um ástir þeirra Ölmu gerði Kokoschka fræga mynd. Hann slapp ekki heldur við þá hremmingu að þurfa að beijast í skotgröfum fyrri heimstyijaldarinn- ar, enÁ dögum Weimarlýðveldisins átti hann heima í listaborginni Dresden og varð þar prófessor við listaakademíuna. Meðal þess, sem Staatsgalerie í Stuttgart á eftir Kokosch- ka er frægt portret hans af listkaupmanninum og forleggjaranum Herwarth Walden. Staatsgalerie á gott úrtak af Picasso, þar á meðal sumt af því dýrmætasta úr bláa tíma- bilinu. Einnig þijú málverk eftir Munch. Tvö þeirra geta naumast talizt meðal úrvalsverka hans, en “Kona á rauðum dúk“ er Munch í öllu sínu veldi; nakin kona með hárið mjög í óreiðu situr á rauðum dúk framan á rúmi. Myndin er hlaðin þeirri ástríðu sem einkennir beztu myndir Munchs, ekki sjzt af konum. Þannig mætti lengi telja. Ég nefni aðeins í lokin súrrealistana, sem koma þarna við sögu: Heilög Cacilie eftir Max Ernest, Met- afísísk innimynd eftir de Chirico og Upphafið augnablik Salvadors Dali frá árinu 1938. Það fór þó langmest fyrir Joseph Anton Koch, málara úr Svartaskógi, sem dó 1839 og var að sjálfsögðu barn síns tíma. Hugljúf Alpa- landslög hans fylltu marga sali og hefði ver- ið nóg að hafa tíu myndir eða svo. Þetta er lítt kunnur málari og ókunnur víðast hvar, en heldur betur tekinn til endurskoðunar. I myndum hans er rómantíkin alls ráðandi; þær gefa hugmynd um sveitasælu og fullkomna kyrrð og kannski upprunalegt lif í skauti náttúrunnar. Silfurtærir lækir buna framaf klettasnösum og mengunin hefur ekki enn verið fundin upp. Þetta er veröld sem var. Engar hraðbrautir skera þessa skóga og á þá fellur aldrei súrt regn. Kannski er það þrátt fyrir allt réttlætanlegt að draga þessar gömlu myndir fram í dagsljósið. Þær eru að minnsta kosti mótvægi við það grófa yfir- bragð, sem verk nútíma listamanna hafa oft, ekki sízt í Þýzkalandi. GÍSLI SIGURÐSSON LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 4. NÓVEMBER 1989 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.