Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1990, Page 4

Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1990, Page 4
 A Grímsstöðum á Fjöllum. Þar var tekið bensín og staldrað við um hríð. Komið í Fellahrepp í björtu og fögru veðri. iín 'wrtt HfHfi A vélsleðjim yfir hálendi Islands Fyrri hluti Eins og flestir muna var óvenju mikið fannfergi víðast hvar á landinu síðastliðinn vetur. Það aftraði þó ekki hópi manna að takast á hendur ævintýralega ferð á vélsleðum í marzmánuði. Eftir ÓLAF SIGURGEIRSSON Það var í svartasta skammdeginu síðasta vetur, sem formanninum datt í hug að skipuleggja langa hringférð um há- lendi íslands á vélsleða, ásamt völdum hópi manna. Fara átti sömu leið og hann fór nokkrum árum áður. Eins og menn gleyma vondum timbur- mönnum, þá hafði formanninum tekist að gleyma óþægindunum af síðustu ferð, sem fólust í dvöl í sköflum í vondum veðrum, lóransiglingum og veðurteppu í afskekktum fjallaskálum. Hálendið heillaði, framtíðin var óskaplega björt. Upp úr áramótum var farið að hóa saman ferðafélögunum og varð „Breikkarinn" fyrstur fyrir valinu, okkar reyndasti sleða- maður og forystusauður í verstu veðrum. Hann hafði önnur áform og svo var um „Grautinn“ og „Snyrtimennið", sem reynast ávallt vel, þegar í harðbakka slær. Var af þeim mikil eftirsjá. Þá var tekinn í hópinn sögumaður þessarar greinar og síðan Vals- son hjónin, en við hin síðastnefndu styðjum formanninn ávallt í allri vitleysu. Til að treysta hópinn enn frekar var hóað í Svein hreppaforingja á Hrafnkelsstöðum og „Predikarann" í Keflavík. Sveinn manna kunnugastur á ákveðnum landsvæðum og „Predikarinn" manna vitrastur í lóranfræð- um, enda fengið þetta viðurnefni af að lesa yfir mönnum á lórannámskeiðum LIV. Allir voru ferðafélagarnir með besta útbúnað, lóran C, farsíma, talstöðvar, áttavita, landa- kort og tjöld. Lagt var upp árla dags 1. mars frá Rauða- vatni fyrir ofan Reykjavík. Voru þar allir mættir, nema Sveinn, sem fór með sínum mönnum upp úr Hreppum og ætlaði að hitta hópinn á Sprengisandi eða Mývatni. Með í fyrsta áfangann til Mývatns fór stór hópur, en um helgina átti að fara fram hið árlega Mývatnsmót vélsleðamanna. Það urðu því rúmlega 20 manns, sem lögðu upp í hala- rófu. Veður var hið besta, frost sól og logn. Fyrsta stopp var við þjónustumiðstöðina á Þingvöllum. Var þar drukkið kaffi og að því búnu farið áleiðis Uxahryggjaleið, gegn- um skarðið við Lágafell og þaðan yfír hraun- ið í átt að Skjaldbreið og numið staðar við leitarmannaskálann Skjaldborg. Þar var hópnum safnað saman og hugað að lóran- tækjum og áttavitum. Nú var farið að draga fyrir sólu og Lang- jökull dökkur. Hætt var því við að fara jökul- inn og varð næsti áfangastaður skáli Ferða- félags Islands undir Hlöðufelli. Færið var nú hart og óslétt og fóru sleðar misjafnlega hratt yfir. Miklar tafir urðu af svo stórum hóp. Svipað færi og skyggni var yfir hraunið austan við Hlöðufell, niður Mosaskarð og að skála Ferðafélags íslands við Hagavatn, þar sem menn neyttu hádegisverðar. Hringt var til Hveravalla og gefin upp ferðaáætlun. Upp með Jarlhettunum var skyggni þokkalegt, en þegar kom upp fyrir þær á þeim slóðum, sem jökullinn fellur saman við snjóbreiðurnar á Skálpanesinu þá runnu saman í eitt himinn og jörð og skyggni varð afar erfitt. Spölinn niður að H,vítárbrú framhjá Geldingafelli varð því að keyra eft- ir lóran C og áttavitum. Á tímabili ólmuð- ust kompásarnir hring eftir hring, eins og þeir hefðu misst niður segulstefnuna. Við Hvítárbrú var tankað í- sæmilegu skyggni, sem fljótlega spilltist norður Kjöl vegna talsverðrar snjókomu. Fremsti sleðinn tók stefnu á lóranpunkt norðan Fremri Skúta, sem leiddi til þess, að leiðin varð mjög varasöm og þurfti að fara yfir Jökul- fallið, þar sem voru hengjur og hamrabelti. Allir komust þó klakklauSt þennan áfanga, en sumir drógust þó óþarflega mikið aftur- úr. Talning og Iiðskönnun sýndi, að enginn hafði orðið eftir. Hópurinn saman kominn á ÞingvöIIum við upphaf ferðarinnar. Næsti áfangi var skiltið við Innri Skúta og var veður ekki vont, þó ekki væri gott skyggni og treysta þyrfti að mestu á tækin. Degi var mjög tekið að halla og stutt í myrkur. Voru menn ekki á einu máli um, hvaða leið væri best í lokaáfangann, Hvera- velli. Formaðurinn fór svo við fimmta mann beina leið yfir Svartá, meðfram vörðunum á gamla Kjalvegi, þar sem Reynisstaðabræð- ur urðu úti um árið. Þá meðfram Strýtunum í Kjalhrauni og beina Ieið að Hveravöllum, húsi veðurathugunarstöðvarinnar. Fimmtán mínútum síðar sáust ljósin frá meginhópnum og brátt voru allir komnir heilir í höfn. Klukkan var þá um sjöleytið um kvöldið, en lagt var upp um níuleytið um morgun- inn. A það má minnast, að þessi leið, að vísu frá Þingvöllum, hefur verið farin á 2 tímum o g 30 mínútum og voru þá 3 í hóp. Á Hveravöllum er bensíntankur og fengu allir fylli sína af bensíni svo allt yrði tilbúið næsta morgun. Kristinn Pálsson og Kristín Þorfinnsdóttir tóku vel á móti öllum, en vinum sínum í hópnum buðu þau upp á kraftmikla kjötsúpu. Fólkið kom sér nú fyr- ir í skálum Ferðafélags íslands og sumir fóru í hressandi bað í Guðlaugu, heita pottin- um við hverina. Aðrir lagfærðu sleða sína og aftaníþotur og var Kristinn Pálsson á þönum við að hjálpa þeim með rafsuðu og annað. Síðla kvölds var skoðuð myndbands- 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.