Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq

Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1990, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1990, Qupperneq 8
sj/na þau tvímiélalaust slýrK'Eáns Tlíessu samhengi. Eftir síðustu heimsstyrjöld varð abstrakt- listin alls ráðandi í hinum vestræna list- heimi. Talað var um geometríska abstraktion og formleysismálverk, sem greindist eftir menningarsvæðum í PArt Informel og Tae- hisma í Frakklandi, Abstrakt expressionisma í Bandaríkjunum og Cobra í Norður Evrópu. Þeir listamenn sem aðhylltust formleysismál- verkið höfnuðu hlutveruleikanum sem mynd- efni og byggingarfræði geometríunnar. Þess í stað lögðu þeir áherslu á formlausa tjáningu sem nefnd hefur verið „tilvistarlegur verknað- ur“. Þó svo að formleysismálverkið sé nú á tímum stíl- og fagurfræðilega skráður hluti af vestrænni listmenningu, lögðu frumkvöðl- amir sig fram við að storka ríkjandi listhug- myndum og skapa verk sem stæðu utan við hefðbundnar skilgreiningar á list. Þeir álitu að vestræn listmenning væri komin í blind- götu, og að eina leiðin til nýsköpunar væri að komast undan sögunni. Þeir vildu m.a. meina að þegar listamenn ynnu með fígúrur og form, þá tæki menningin ávallt fram fyrir hendumar á viðkomandi. Þess vegna varð það lykilatriði fyrir þessa listamenn að kom- ast handan við menninguna að hinu uppruna- lega í hverjum manni. En leitin að form- lausri tjáningu átti þrátt fyrir allt sínar for- sendur og leiðarvísa. Myndverk svonefndra framstæðra þjóða og list barna höfðu sín áhrif svo og fræðilegt inntak súrrealismans pg kenningar Freud um undirmeðvitundina. í gegnum þessar hugmyndir lá leiðin út úr menningunni að því myndmáli sem einkennd- ist af sjálfsprottinni skrift. Megininntak form- leysismálverksins varð því hinn innri veraleiki listamannsins og rými og tími athafnarinnar þegar verkið var málað. Listamennimir gerðu því allt til að rækta ímyndunaraflið, sem þeir álitu í raun vera hið eina sanna afl sem gæti frelsað tilvist listamannsins frá stöðluðu kerfí vestrænnar listmenningar. En sveiflan í málverki formleysismálaranna var þó með ólíkum hætti, mismunandi laus- beisluð og taumlaus. í Norður-Evrópu var ákafínn vafalítið hvað mestur líkt og sjá má ef við beram saman málverkin á sýningunni á Kjarvalsstöðum. Cobra, sem varð formlegur félagsskapur í París 8. nóvember 1948, sam- an stóð af framsæknum listamönnum frá Danmörku: Jorn, Belgíu: Dotrement, sem fann uppá nafninu Cobra og Noiret, Hol- landi: Appel, Constant og Comeille. En Pi- erre Alechinsky slóst í hópinn ári seinna. Það sem tengdi saman alla þessa listamenn í upp- hafí var að þeir vora allir meira eða minna hallir undir súrrealismann, sem vildi setja spumingarmerki við alla rökhyggju og boðuðu frelsun ímyndunaraflsins og hrópuðu á ljóð- rænt hugarflug. Cobra-mennimir vora enn- fremur róttækari en flestir aðrir. Þeir úthróp- uðu borgaralega menningu, sem þeir sögðu vera úrkynjaða og úr sér gengna. Völdu þeir fremur tilvísanir í alþýðulist og bamalist sem átti að vera minna menguð af hinni borgara- legu menningu. í raun stóð slagurinn fyrst og fremst um það að komast undan menning- unni sem þeir átti að tæki fram fyrir hendur listamannsins. Þeir vildu komast að því nátt- úralega í hveijum manni — sjálfri lífs- orkunni. Og þetta sjáum við í verkum Jom, Appel og Alechinsky, sem era unnin beint og hispurslaust. Þau era vísvitandi niðurbrot á hefðbundnum gildum í myndlist. Akademísk teikning er horfín, öll hlutföll brengluð og efnismeðferð og áferð virðist aðeins lúta til- fínningu listamannsins. Aftur á móti sjáum við að Frakkamir og ítalimir og Spánveijam- ir ganga ekki eins langt í því að umtuma hefðbundnu myndmáli. Bissiere byggir mynd- ir sínar á lóðréttum og láréttum kröftum, hlutföllum sem hafa sterka vísun í hlutvera- leikann. Þá er þvi ekki að neita að hinar latn- esku þjóðir era mun fágaðri í allri útfærslu. Sveiflan hjá Messagier er úthugsuð eða jafn- vel sviðsett samanborið við lætin og ærsla- ganginn hjá Appel. Marie Helene Vieira da Silva, sem nýtur mikillar virðingar í þessari myndgerð, virðist taka mið af náttúralegum fyrirbæram við byggingu sinna verka. Og þar eram við komin að þeim meginmun sem ligg- ur í formleysismálverki Cobra og annarra Evrópumanna. Á meðan að Cobra er óheft, og leggur sig fram við að finna tilvísanir sem liggja utan við ríkjandi menningu og að frelsa eðlishvötina og sjálfa lífsorkuna þá virðist sem Frakkamir og Italirnir hafí átt erfitt með að slíta sig lausa frá hefðinni. I verkum eftir Bissiere, Poliakoff og Landskoy má greinilega merkja skýr tengsl við fagurfræði post-kúb- ismans. í staðinn fyrir beina tjáningu virðist ávallt vera um að ræða vitsmunalega úr- vinnslu sem um leið dregur úr tjáningarkraft- inum. Formleysismálverkið hefur nú verið tekið inn í vestræna listmenningu, sem ein af ótal liststefnum sem fram hafa komið á þessari öld. Það lifír sínu sjálfstæða lífí innan sögunn- ar, samtímis sem það hefur breytt fagurfræði- legri sýn manna og bætt enn einni vídd inn í hugtakið list. t íí Heilagur Mikjáll, hunang og sítrónur Miðvikudagsmorguninn var ómfagur við norð- anvert Miðjarðarhafið. Sólin skein í heiði, nær því í hvirfilstað, og hægur andvarinn barst yfir svarblátt innhafið sunnan frá Sa- hara og iðjagrænu vinjunum þar. Á för sinni „Það á að ala upp næmi í fólki, þó að það teygi mikið á geðinu og geri fólk viðkvæmt. Það er skapandi að skynja og hrífast.“ (Þórunn Valdimarsdóttir í viðtali við Mannlíf í júní 1989.) En ég er nú í litla rauða bílaleigubílnum á leið meðfram Miðj arðarhafsströndinni með grændoppóttar hlíðar fjallanna á hægri hönd og arabastúlkurnar á þá vinstri. Sjávarmegin líða hjá mörg ný og falleg, gul og snyrtileg hús með lokuð augu; sólinni ekki hleypt inn. Hér hefði Bakkabræðrum liðið illa. En allt er hér hreinlegt. Eftir BJÖRN FINSEN þaðan og upp á níundu hæð bé í Los Gem- elos á Benidorm Spánar náði blærinn að kyssa léttilega á kinnar tveggja araba- stúlkna sem höfðu gengið léttstígar vestur fýrir tjald föður síns og látið andlitsslæðurn- ar falla eitt augnablik til að geta strokið framan úr sér rykgrámann sem stalst þang- að er bræður þeirra þrír, Karúk, Abdúl og Inrak, þeystu úr hlaði á stríðöldum gæðing- um sínum til fundar við kaupmann einn frá Samaresh sem gera átti stuttan stans í næstu vin. Já, mikið held ég að bóndinn í Haukadal vestur, þar sem ég var þijú sum- ur í sveit forðum, hefði hrifist af þessum íðilfögru skepnum hefði hann mátt vera þar er bræðumir hurfu í jóreyk yfir næstu sand- öldu. — Ekki var það nú amalegt að njóta þessarar sömu golu nýrisinn úr rekkju á giftingarhringnum einum fata þarna í morg- unsárið uppi á svölunum með kólumbískt kaffi, íslenskan smjörva, franska krosssnúða og spánskt hunang á borðum — og einkum þar sem fyrir höndum var ferð í litlum rauð- um bílaleigubíl um ókunna stigu frá Beni- dorm til fjalla og til Benidorm aftur. Og svo var alltaf svalur Heilagur Mikjáll í ísskápn- um. Er röðulsgeislarnir vora farnir að verma línur baðfatasprandanna í garðinum fyrir neðan var haldið af stað. Fyrsti hluti leiðar- innar suður og vestur með strönd Spánar, um 40 kílómetra í áttina til Alicante, var að vísu ekki með öllu ókunnur því að sunnu- daginrfþar á undan hafði Skagastrákurinn, yðar einlægur, farið hér um í áætlunarbíl innanum skeggjaða karla og steinkaðar konur. Sá bíll var sprautaður sama lit og rútur Ólafs Ketilssonar, bifreiðajöfurs frá Laugarvatni. Þessari rútu var hinsvegar ekið svo hratt að hvorki fóru bílar né dýr frammúr og hvergi var stoppað til að pissa. Mest varð þó sú ferð eftirminnileg fyrir þær sakir að í Alicante sáu viðstaddir á tveimur klukkustundum sex dökk, reist og falleg naut hrædd, meidd og hoggin til bana — og við lifðum það af. Það er misjafnt hvað mönnum hugnast. En ég er nú í litla rauða bílaleigubílnum á leið meðfram Miðjarðarhafsströndinni með grændoppóttar hlíðar fjallanna á hægri hönd og arabastúlkurnar á þá vinstri. Sjávarmeg- in líða hjá mörg ný og falleg, gul og snyrti- leg hús með lokuð augu; sólinni ekki hleypt inn. Hér hefði Bakkabræðrum liðið illa. En allt er hér hreinlegt. Á einum stað á hægri hönd, litlu vestar og rétt við veginn, ek ég fram á ótótlegan kráarræfil sem greinilega má muna fifil sinn fegri — eða hvað þau nú heita blómin hérna við vegarbrúnina. Þegar ég stíg út úr bílnum umlykst ég hitakófí en geng þó ótrauður og fyrir forvitni sakir upp fyrir krána og sé þess þá greinilega merki að þama hafa einhverskonar átök átt sér stað. — Eitt horn hússins er maskað eftir skot úr stórri byssu og hranin er mestöll efri hliðin. Það sem eftir stendur er þakið skotsáram, hve- nær svo sem þau hlutust — undir lok borg- arastyijaldarinnar 1939 eða þá þegar strák- ar úr næsta þorpi stálust til að kaupa sér byssu ólöglega og í óþökk foreldranna hér um árið og æfðu sig á mannlausu og hálf- föllnu húsinu eftir að kráareigandinn dó úr lungnaberklum og konan hans veslaðist upp úr sorg sex mánuðum síðar í niðurníddri kránni. Arfi, netlur og nokkrar blómaplönt- ur vaxa hér núna og tvær heiðgrænar eðlur auk þriggja litprúðra fiðrilda eiga sér starfs- dag sinn í gróðrinum þessum. Ef til vill var Angelo einn fyrmefndu piltanna. Hann bjó með svartklæddri, einstæðri móður sinni. Faðir hans, Juan, hafði orðið fyrir hvítum Seat Marbella á 120 km ferð þarna eftir aðalvéginum á austurleið og látist sam- stundis. Juan var þá á leið að heimsækja frænku sína hinum megin vegarins en hún hafði í þijár vikur haft tak fyrir bijósti eft- ir að bogra of lengi í garðshorninu þar sem hún ræktaði grænmeti sitt. Þetta var árið 1986, sama ár og heimsmeistaramótið í knattspyrnu var haldið í Mexíkó og kvöldið áður en Argentínumenn urðu heimsmeistar- ar. Það ár voru líka liðin þijátíu ár frá því að þrír strákar á Akranesi, þá á milli tektar og tvítugs, eignuðust rennilega byssu ólög- lega, tuttugu og tveggja kalíbera og níu skota úr landi Dubceks, hinn lögulegasta grip. Löggan tók riffilinn af piltungunum vegna ógætilegrar meðferðar þeirra á gripn- um, enda var þá engin niðumídd bjórkrá komin á Skaga til að æfa sig við, en Ang- elo og vinir hans eiga byssuna sína ennþá. Og nú liggur leiðin í sjálfstæðisátt. Veg- urinn liðast um þurrt en vel ræktað áveitu- land á báðar hliðar og smám saman upp stöllótta hjalla. Villtur gróðurinn er farinn að láta dálítið á sjá hérna niður frá þótt sítrónu- og ólívutrén, appelsínu- og möndlu- trén og önnur slík plumi sig vel í sólarsvækj- unni enda áveitukerfið gamla enn í full- komnu lagi. Eitt ólívutréð er líklega að bera ávöxt í fyrsta sinn þetta árið og það er dálítið undarlegt til þess að hugsa að fyrstu rótarangar þessa trés vora að festa sig í jarðveginum um það leyti sem E1 Caudillo, Fransisco Franco, var að komast til valda á Spáni og yðar einlægur ekki enn farinn að sparka bolta á Niður-Skaganum. Já, sumt „kemst þótt seint fari“ eins og hann Njáil sagði á Bergþórshvoli.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.