Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1990, Qupperneq 12
t mn-A Tqr/
fu</
# #
FERÐALOG
Úrval-Útsýn gerir samn-
ing við rússnesku Intourist
Eitt af hlutverkum ferðaskrifstofanna er að gera góða samninga
við erlendar ferðaskrifstofur til að geta boðið upp á hagstætt verð.
Ferðaskrifstofan Urval-Utsýn var að ganga frá samningum við
rússnesku ríkisferðaskrifstofúna Intourist. I þessu tilefni kom Felix
A. Dessiatnokov, forstjóri fyrir einstaklingsferðum hjá Intourist,
til landsins.
Knútur Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri fyrir Úrval-Útsýn,
var spurður hvort Rússiandsferð-
um myndi fiölga á næstunni. Knút-
ur sagði að samningamir yrðu
vissulega til að auka möguleika á
Rússlandsferðum. Náðst hefðu
hagkvæmir samningar og nú yrði
lögð áhersla á að sinna hópum
með sérkröfur, ferðamönnum í við-
skiptaerindum og þeim sem vilja
ferðast á eigin vegum.
„Við verðum að sinna listaáhuga
landans,“ sagði Knútur. „Við meg-
um búast við auknum áhuga á
menningu Rússlands, eftir að
landið fer að opnast. Leiklistar-
ferðir til Moskvu og Leningrad
gætu orðið vinsælar. Moskva er
ekki svo fjarlæg, um tveggja tíma
flug frá Kaupmannahöfn. Og
ferðamenn eru ekki einir í heimin-
um í Moskvu, þó að þeir fari á
eigin vegum. Intourist sér um
móttöku á flugvelli, skoðunarferðir
og aðgöngumiða í leikhús. Við
bíðum eftir að hlutimir fari að lag-
ast í þjóðfélaginu. Þá förum við á
fulla ferð með að bjóða upp á fjöl-
breyttari ferðir," sagði Knútur.
Á myndinni eru Örn Steinsen, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofúnnar Sögu, Felix A. Dessiatnokov,
forstjóri fyrir einstaklingsferðum hjá Intourist, Knútur Óskarsson, framkvæmdasljóri fyrir Urval-
Útsýn, og Ivan V. Saveljev, hagfræðingur sovéska verslunarráðsins.
Kampavín og rósir, kertaljós og arineldur. Vissulega rómantiskt!
Ahugaverðir ferðapunktar
Bómantískar „kampavíns-
helgar“ á meginlandinu
Margir áhugaverðir ferðapunkt-
ar koma fram í sumarbæklingum
ferðaskrifstofanna. Fyrir þá sem
vilja leyfa sér eina helgi í lúxus,
er „kampavínshelgi" á megin-
landinu vissulega athyglisverð.
Flogið er til Lúxemborgar og
gist þar í eina nótt eða í hinni vin-
sælu verslunarborg Trier (íslend-
ingar eiga erfitt með að fara yfir
landsteinana nema komast í góðar
verslanir)! Yfirleitt er farið á
fimmtudegi og föstudagur notaður
í búðarölt — eða frá laugardegi til
þriðjudags og þá er endað í Trier.
Bílaleigubíll er inni í verði og gest-
ir aka á helgargististað. En
„kampavínshelginni“ er eytt í end-
urnýjuðum þýskum höllum og köst-
ulum, sem eru í friðsælu umhverfi
utan borgarmarka.
„Kampavínshelgi" er franskt
Ærslagangur
- í bæklingnm ferðaskrifstofanna
NÚ liggja litríkir bæklingar
með tilboðsferðum sumars-
ins frammi hjá ferðaskrif-
stofunum og íslendingar
geta farið að skipuleggja
sumarfríið. I>að er fróðlegt
að reyna að horfa í gegnum
auglýsingaskrúðið og gera
sér grein fyrir hvað er helst
á boðstólum og til hvaða
hóps af fólki er aðallega
höfðað.
Að venju eru sólarlandaferðir
efst á baugi. Myndir af ungu
fólki og bömum að baða sig í
sól og sjó. Mjög skiljanlegt að
við hér við heimsskautsbaug,
oft þjökuð af erfiðri veðráttu,
sækjum í sól- og sjóböð. En
hvernig stendur á því, að íslend-
ingum er fyrst og fremst boðið
upp á „hópmennsku" í ferðalög-
um? Hvernig stendur á því, að
„umbúðir" í kringum Spánar-
ferðir einkennast af ærsla-
gangi? Sá sem vill kynna sér
Spánarferð í sumum þessara
rita, gæti ímyndað sér að Spán-
ardvölin væri tryllt „hóp-
mennsku-hátíð“! „Æðislegt
stuð“ á strönd og í vatna-
skemmtigörðum. Fyrirsætur
með „æði í augum“ allt á fleygi-
ferð í „stórkostlegri skemmtun"
yfír fleiri kynningarblaðsíður af
Costa del Sol, Mallorca og Be-
nidorm.
Til hverra er verið að höfða?
„Barnafjölskyldna og unga
fólksins," segja ferðaskrifstof-
urnar. Vilja Islendingar ferðast
í hópmennsku? Láta leiða sig í
halarófu, með uppákomum á
strönd, í vatnaskemmtigörðum
og grísaveislur á kvöidin? Vilja
þeir láta segja sér hvað þeir
eiga að gera, hvert þeir eiga
að fara á ákveðnu augnabliki?
Vissulega má segja, að þessi
ferðamennska sé þægileg. Fólk
þarf ekkert að hugsa sjálft.
Dagurinn er skipulagður frá
morgni til kvölds. Og enginn
má gleyma „íslendingabam-
um“, þar sem þjónninn afbakar
íslenskuna! Sjálfsagt má fá
smáskammt af „menningu“ í
Spánarferðum, en henni er skip-
að mjög lágt. Áður fyrr var
sagt um þann, sem hafði farið
yfír landsteinana, að hann væri-
„sigldur“. í orðunum fólst, að
hann hefði öðlast víðsýni yfír
hinn hefðbundna sjóndeildar-
hring. Er hægt að öðlast víðsýni
í þessari tegund af ferða-
mennsku?
Hinn nýlegi ferðamáti „flug,
bíll, sumarhús“ er allra góðra
gjalda verður og hefur mótast
fyrir fólk, sem er-sjálfstæðara
í ferðalögum. Þá gefst kostur á
að dvelja á sama stað og hvíla
sig, en líka flakka um og skoða
„þjóðlega menningu" í Evrópu.
Ferðaskrifstofumar bjóða mjög
gott úrval af sumarhúsum víða
um Evrópu á fallegum stöðum.
Úrval af rútuferðum er í boði
hjá stærstu ferðaskrifstofunum
um marga fallegustu staði Evr- •
ópu og nýjar spennandi aksturs-
leiðir um Austur-Evrópu. Vel
hæfír fararstjórar leiða fólk um
sögustaði Evrópu. Góður ferða-
máti fyrir eldra fólk og einstakl-
inga. Og vissulega gefa lönd
eins og Grikkland, ítalia og
Kýpur kost á að blanda saman
menningarferðum og hvíld í sól.
Það sem skortir áberandi í
myndavali og texta í þessum
ritum er fólk á framandi slóðum
að skoða staði, sem gefa lífsfyll-
ingu. Hvar sést maður, sem
gleymir sér yfír náttúrufegurð,
menningarlegum verðmætum,
við andlega íhugun á helgum
stað? Jörðin okkar geymir ótal
staði, sem gefa það mikið, að
hver sá sem sækir þá heim,
snýr til baka ríkari af andlegum
auð og um leið hæfari til að
takast á við hversdagsleikann.
Af hveiju eru íslenskir ferða-
menn ekki hvattir til að öðlast
víðsýni í stað hópmennsku?
Ábyrgð ferðaskrifstofanna er
mikil.
Yfirfull Spánarströnd
Það verður
„æðislegt stuð“!
Upplýsingarit frá erlendum
ferðaskrifstofum einkennast af
beinum upplýsingum um þjóð-
lönd, gististaði og afþreyingu.
Yfírleitt ekki „auglýsinga-mál-
skrúð eða glanspappír" í kring-
um hlutina. Neytandinn á auð-
velt með að átta sig á hvað er
á boðstólum. Það er meira en
hægt er að segja um suma
íslensku bæklingana. Allt venju-
legt fólk vill fá að sjá hvað er
í boði, hvað það kostar, hvernig
ferðamátinn er, hvort val sé um
fleiri en einn áfangastað í sömu
ferð o.s.frv. Og væri ekki meira
vit í að hafa upplýsingaritin
íburðarminni (þegar margir
beijast í bökkum — lækka held-
ur tilboðsverðið7
fyrirbæri, enda eru Frakkar heims-
ins mestu sælkerar og frægir fyrir
að kunna að blanda vel saman mat
og drykk. Hápunktur helgarinnar
er 7 rétta kvöldmáltíð með
kampavíni og allir réttir valdir með
tilliti til kampavínsbragðsins! Hér
er verið að gefa fólki kost á hvíldar-
dvöl, þar sem leikið er við það í
mat og drykk. Og andrúmsloftið
ekki af verri endanum í íburðar-
miklum kastala eða hallarhúsa-
kynnum og fallegu umhverfi. Tekið
skal fram að „kampavínshelgi" er
ekki fyrir ungt fólk, sem er að leita
að fjörugu næturlífí! Verðið: 42.500
kr. á mann. RATVÍS, Hamraborg
1-3, Kópavogi.
Leikhús-
miðará
hálfVii’ði
LONDON býður þá. New
York líka. Og núna er Kaup-
mannahöfn með í spilinu.
Margir leikhúsunnendur
þekkja tilboðsverðið frá miða-
sölunum í Leicester Square í
London og Times Square í New
York, en þar geta menn keypt
afgangsmiða á hálfvirði á leik-
sýningar kvöldsins. Við Nörr-
eport brautarstöðina í Kaup-
mannahöfn er búið að koma
fyrir gömlum, endurnýjuðum
blaðaturni, þar sem hægt er
að kaupa leikhúsmiða á lækk-
uðu verði, sex daga vikunnar
(ekki á sunnudögum). Og nú
reikna danskir leikhúsforstjór-
ar með að fjör færist í leik-
húslífið. Fleiri áhorfendur eru
hvatning fyrir leikendur, sem
njóta þess að leika fyrir fullu
húsi. Einkum er reiknað með
að ferðamenn nýti sér þetta
hagstæða verð og skreppi í leik-
hús. Danska útvarpið býður
líka miða, en oft eru góðir tón-
leikar í danska útvarpshúsinu.
*
Islensk sýn-
ing í London
FYRSTA stóra sýningin á 20.
aldar íslenskri Iist í Bretlandi
nefnist „Landslag í mikilli
hæð“.
Sýningin er í Concourse Gallery
í Barbican Centre frá 27. febrúar
til 8. apríl. Yfír 70 verk eru til
sýnis eftir 27 listamenn - mál-
verk, höggmyndir og myndvefn-
aður. Sýningin verður flutt til
Brighton (26. apríl til 23. maí)
og til Edinborgar (10. júní til 21.
júlí).
Oddný Sv.
Björgvinsdóttir.
Airbus til
Aeroflot
Rússneska flugfélagið Ae-
roflot er búið að panta 5
Airbus A310-300S-flugvél-
ar. Þetta er í fyrsta skipti
sem félagið kaupir vélar frá
Vesturlöndum. Áeroflot flyt-
ur yfír 130 milljónir farþega
árlega og er sfærsta flugfé-
lag í heimi.
12