Lesbók Morgunblaðsins - 07.07.1990, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 07.07.1990, Síða 3
I-ggPáW ®1 @ ÍSI löl 1«] Tn'I líl 03 S ® ® ŒHS ® Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.: Haraldur Sveinsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoð- arritstjóri: Björn Bjarnason. Ritstjórnarfulltr.: Gísli Sigurðsson. Auglýsingar: Baldvin Jóns- son. Ritstjórn: AÖalstræti 6. Sími 691100. Forsíðan Myndirnar þijár eru allar frá Eyrarbakka þar sem rósemin ríkir og enn má finna hlaðinn torfvegg snúa út að aðalgötunni, þar sem húsin snúa ekki allta'f hornrétt við götuna eins og myndin ber með sér.Á miðmyndinni sést þessi sérstaki stíll í bárujárnshúsum, sem þar er enn við lýði og neðst sjást bæði kirkjan ogHúsið. Inni í blaðinu eru auk þess margar fleiri litmyndir úr bæjunum báðum megin við Ölfusárósa, Þorláks- höfn, Eyrarbakka og Stokkseyri. Havel Havel var réttur maður á réttum tíma til að verða forseti Tékkóslóvakíu, þegar landið losnaði skyndilega úr fjötrum hins sósíalíska alræðiskerfis síðastliðinn vetur. Við embættistökuna flutti Havel snjalla ræðu, þar sem hann lýsir því m.a. hvernig alræðið hafi leik- ið sálir manna og hvernig ástandið sé í landinu eftir áratuga völd sósíalista: Allt að falli komið og varla hægt að anda að sér loftinu. Séra Kári Valsson í Hrísey hefur þýtt ræðuna. Renault Varð brautryðjandi með Espace bíl sem brúar bilið á milli jeppa, fólksbíls og sendibfls. Nú hafa aðrir fram- leiðendur svipaða bíla á boðstólum og þeim er spáð vaxandi gengi. Bílaprófunarmaður okkar hefur reynt Renault Espace. París Er sneisafull af merkisstöðum sem útheimta leiðsögn eða góðan kunnuleika, ella missir ferðamaðurinn af þeim. Einn slíkur staður er Geneviévehæð með kirkju heilags Étieme, sem Anna María Þói’isdóttir segir frá á síðunni hér á móti. JÓHANN HJÁLMARSSON Tilbrigði við gróður Mestur sársauki fylgir gróðrinum, hann gerir okkur læs á gamlar rætur; þær rísa upp og fljúga, en ekki úr augsýn. Laufkróna snertir ský. Laufkróna kyssir fætur okkar. Línurúr Ijóði eftir N.-A. Valkeapáa Og þegar allt er horfið heyrist ekkert lengur ekkert og það heyrist. B B Um tvö smáljóð argt hefur verið rætt um áhrif Heines á kveðskap Jónasar Hallgrímssonar, enda verður ekki sagt að þau fari dult. Og víst hafði Jónas náin kynni af fleiri erlend- um skáldum, sem kallað er að sett hafi svip á skáldskap hans með einhverjum hætti. Raunar eru allar ályktanir í þeim efnum ætíð harla varhugaverðar, og ýmislegt sem margur kallar rittengsl kann að stafa af því einu, að „hjörtum mannanna svipar sam- an“. Ef hugað er að þýzkum samtímaskáldum Jónasar, sem líklegt er að hann hafi þekkt, verður Friedrich Hölderlin fljótt á vegi. Ekki vegna þess að við blasi margt líkt með þeim Jónasi, heldur vegna þess eins að þar fór öndvegisskáld, sem látið hafði til sín taka áður en Jónas óx ur grasi. Hölderlin lézt tveimur árum fyrr en Jónas og hafði þá verið sjúkur á geði um langt skeið. Hér er ekki ætlunin að segja margt um þessi tvö góðskáld, heldur einungis drepa lauslega á eitt ljóð Jónasar, sem kynni að leiða hugann að tilteknu kvæði eftir Hölder- lin, hvoi-t sem af verða dregnir nokkrir lær- dómar eða ekki. Vorið 1842 yrkir Jónas kvæði sem hann nefnir A sumardagsmorguninn fyrsta 1842. Hin prýðilega Jonasarútgáfa Svarts á hvítu lætur þess getiðf umsögn um þetta ljóð, að Jónas hafi ætlað sér að fara í rann- sóknarferð um Auáturland sumarið 1841, en fjárstyrkur í því skyni hafi ekki hrokkið til; hann hafí því orðið að fresta för um heilt ár, og löngun hans til þess að komast austur til rannsókna hafi verið orðin ákaf- lega sterk á vordögum 1842. Þess er og getið að kvæðið hafi verið prentað í sálma- bókum, enda minni efnistök nokkuð á sálma- skáld fyrri alda. Þar segir einnig að lokalín- ur kvæðisirjs hafi verið teknar til vitnis um feigðarboða, að Jónas hafi grunað að hann ætti skammt eftir ólifað, enda styðjist sú skoðun við bágt heilsufar hans, þó einnig megi hugsa sér niðurlagið eingöngu sem túlkun á sterkri þrá eftir sumrinu. Allt er þetta vel athugað, enda eru loka- línur kvæðisins á þessa leið: Leyfðu nú, drottinn! enn að una eitt sumar mér við náttúruna; kallirðu þá, eg glaður get gengið til þín hið dimma fet. Ummæli útgáfunnar eru jafnréttmæt þó að þessum ljóðlínum svipi á vissan hátt til nokkurra orða-í smákvæði Hölderlins, An die Parzen. En þar segir í upphafi: Nur einen Sommer gönnt, ihr Gewaltigen, Und einen Herbst zu reifem Gesange mir og undir lokin: Willkommen dann, o Stille der Schattemvelt zufrieden bin ich, ... Eða lauslega snarað: Unnið mér þess, máttarvöld, að lifa aðeins eitt sumar og eitt haust ... Vertu þá velkomin, myrkheima kyrrð, ánægður verð ég . . . Kvæði Hölderlins er ort undir forngrísk- um bragarhætti, og vel má það vera tilvilj,- un, að orðaröð verður hjá Jónasi svipuð því sem þar er. Bæn Hölderlins til máttarvaldanna um eitt sumar enn er ósk hans um nýtt andlegt gróskuskeið sér til handa, sem leiði til ljóð- rænnar uppskeru, því eitt fullkomið ljóð geti sætt hann við dauðaon. En Jónas biður í allri hógværð um eitt sumar enn til þess að geta notið íslenzkrar náttúru. Eftir það geti hann glaður gengið dauðanum á vald. Oft hefur verið á það bent, að Jónas var skáld ljóss og sumars, svo jafnvel hið svala rökkur rómantíkurinnar verður að birtu í ljóðum hans. Honum virðist ekki tamast að líkja dauðanum við myrkur. Þegar Heine segir: „Der Tod, das ist die kuhle Nacht“, þá segir Jónas: „Dauðinn er hreinn og hvítur snjór." Þó kemur það fyrir, að hann horfi til hinna „dimmu dyra“. Kannski var þess einna sízt að vænta, að hann kallaði „dimmt“ það fet, sem hann kvaðst mundu glaður ganga til Drottins, svo sem hann þó gerir nú, þegar hann stendur í sömu sporurn og Hölderlin, sem kveðst fagna heimi skugg- anna og notar þar á fornklassíska vísu orð- ið „Schattenwelt“. Raunar nefna þeir báðir dimmu dauðans sem andstæðu þeirrar gleði, sem þar skal sigri hrósa. Ekki hef ég nennt að athuga hvenær þetta þýzka ljóð birtist í fyrsta sinn. Hafi það verið meðan Hölderlin var í fullu fjöri, sem líklegt má telja, er sennilegt að Jónas hafi séð það áður en hann orti sumardags- kvæðið og ef til vill geymt óm þess í undir- vitund sinni. Ef það hefur hins vegar ekki verið prentað fyrr en í fyrstu heildarútgáfu af kvæðum Hölderlins, sem út kom tveimur árum eftir lát hans, þá var kvæði Jónasar skemmtileg staðfesting á ljóðlínum Tómasar um hjörtu mannanna. Og svo kunni einnig að vera hyort sem var. Helgi Hálfdanarson LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7. JÚLÍ 1990 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.