Lesbók Morgunblaðsins - 07.07.1990, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 07.07.1990, Blaðsíða 5
Klement Gottwald, síðarforseti Tékkóslóvakíu, tilkynnti frá svölum Kinsky-hallar- innar„frægan sigur vinnandi fólks yfír afturhaldi". Við hlið hans á myndinni stend- ur og treður í pípuna sína Vladimir Clementis, síðar utanríkisráðherra. Eftir að Gottwald hafði látið hengja hann ásamt tíu öðruni samstarfsmönnum sínum (1952), þar á meðal Slansky og Margolius, þótti ófært að dæmdur „svikari“ sæist á sögufrægri Ijósmynd. Var þá andlit Clementisar máð af myndinni, en hönd hans með pípuna var skilin eftir. er kjarni þess, sem ég vil ræða hér í dag. Hver er svo arfurinn, sem okkur hefur tæmzt? „Furðu gegnir, hve miklu var afrekað á aðeins" 42 árum (tilv. í árlega endurtekinn áróður). Nú er óhollt að anda að sér lofti okkar. Það er óhollt að drekka vatnið okk- ar. Foreldrarnir anda að sér brennisteini í stað súrefnis og drekka skolp mengað olíu og klóri, enda bera börnin þess merki. Hinn glæsilegi menningararfur tuga kynslóða, fagrar borgir og sveitaþorp, liggur í van- rækslu ef ekki í rústum. I stað þeirra er föðurland okkar þakið nokkurs konar kanínubúrum. I þeim er ekki hægt að lifa, aðeins sofa og horfa á framhaldsþætti í sjón- varpi. Skógar okkar deyja. Tugþúsundir manna erfiða eðeins til að líðan þeirra versni dag frá degi. Okkar stærstu iðnaðarfyrir- tæki framleiða ekki ágóða heldur skuldir. Úreltur búskapur er ein greinanna, sem eyða orku til einskis. í stórmennskubrjáiæði risu forljót orkuver, sem höfðu þann tilgang einan að skemma umhverfi okkar og beina orkunni í tröllaukinn taprekstursiðnað. Eftir fáa áratugi hættir jarðvegur okkar að bera ávöxt. Gjaldeyrir okkar er ekki alvörugjaldeyrir. Spölkorn handan landamæranna fæst ekk- ert keypt fyrir tékkneskar krónur. MeiriMuti sjúkrahúsa okkar nær ekki til- ætluðum afköstum. Þúsundir af okkar fram- úrskarandi læknum fylla hálfan daginn út eyðublöð, sem enginn lítur á. Stúdentar okkar ferðast ekki á hveiju sumri um Evr- ópu, eins og tíðkast annars staðar. Þeir kunna ekki erlend tungumál og fréttu ekki í skólanum hver Shakespeare var. En þeir þurftu að læra, að kommúnisminn væri tak- mark og fullkomnun mannkynssögunnar. í sjónvarpinu fáið þið ekki að kjósa milli tíu óháðra rása með fjölbreyttum dagskrám. í stað þess getið þið fagnað því, að sjónvarp- ið okkar á líklega heimsmet í fjölda starfs- manna miðað vð senditíma. Þeir hjá sjón- varpinu, sem veita okkur sannar upplýsing- ar og standast listrænar kröfur, eru í hverf- andi minnihluta. En hvað gera hinir annað en að njósna hverjir um aðra og taka laun? En verst hefur alræðið leikið sál okkar. Okkur veitist erfitt að vera vinaleg, að hjálpa hvert öðru ósíngjörn, að bera fyrir brjósti hag okkar minnstu bræðra. Við þjóð- arbrot, sem eiga heima á meðal okkar, kom- um við fram skammarlega. Engum hvítum New York-búa kæmi til hugar að sýna álíka lítilsvirðingu svörtum samborgara sínum, þótt af þrælaættum sé. Báðar þjóðirnar okkar hafa týnt sjálfstrausti sínu og tor- tryggja hvor aðra. Margir Slóvakar sjá í Tékkum nýlenduherra, og margir Tékkar álíta Slóvakíu vera aðskotahlut, sem flækir tilveruna. Allt er þetta sorglegt, enda tekur það ár og aftur ár að lagfæra. Og fyrir þessar syndir verðum við að bæta með margs konar sjálfsafneitun og meinlæti. Úr ógöngunum er ekki önnur leið til en þyrnum stráður vegur meinlætisins. Sjálfs- afneitunin er refsing fyrir skeytingarleysi okkar og óvirka þátttöku í spillingunni. I dag minntumst við píslarvættis séra Jósefs Toufars (1950) og fórnardauða Jans Zajícs (1969). Megi þessir tveir og þúsundir ann- arra, frá Milödu Horakovu (1950) til Jans Palachs (1969), frá harmleik Rudolfs Slanskys (1952) til réttlætishetju Pavels Vonkas (1988), vekja þakklæti okkar fyrir að hafa lifað þrengingarnar af. Og nú er röðin komin að okkur að gera eitthvað eftir- minnilegt fyrir land okkar og fórna nokkru fyrir það. Fram að þessu höfum við ekki öðlast reynslu í stjóm landsins. Samt megum við nú til að stjórna margfalt betur en þeir, sem hafa vikið fyrir okkur, þótt þeir hafi stjórn- að alla sína ævi — svo fremi sem við dirf- umst að kalla það stjórn, sem þeir voru að fást við. ___ Verkefni okkar er ekki auðvelt. Hver og einn væntir þess, að við leysum á stundinni ógrynni vandamála, sem hafa hrannst upp á hinum löngu árum og náð tröllslegri stærð. Við megum engan tíma missa. Með öðrum orðum: Við verðum að sameina snar- ræðið jafnaðargeði og vizku: Geti einhver það ekki, ætti hann að rýma hið fýrsta fyr- ir öðrum í vinsemd, svo að framgangur í rekstri embættis eða fyrirtækis rofni síður. Ef einhver tekur sér það nærri að vera beð- inn að víkja, kemur hann upp um sig, að staða sín sé sér kærari en hagsmunir heild- arinnar. Auðvitað verður ekki skert hár á höfði honum, en hann verður að næra sig eins og hver annar þegn. Sjálfur heiti ég því að víkja til hliðar á þeirri stundu, er mér verður sagt, eða ég finni það sjálfur, að ég sé starfi mínu ekki vaxinn. Eg get gert landi mínu gagn á annan hátt. En á hinn bóginn: Sá sem verð- ur beðinn að hafa eitthvert starf með hönd- um í almanna þágu, má ekki skorast undan því að leggja sitt af mörkum, þó ekki nema til bráðabirgða sé. Leiðin frá eins flokks kerfi til fjölbreytni verður að vera snurðu- laus og undir merkjum friðarins til að auð- velda samstarfið þeim úr röðum kommún- ista, sem vilja taka þátt í að byggja hina nýju lýðræðislegu Tékkóslóvakíu. Winston Churchill sagðist á örlagastundu ekki geta boðið Bretum annað en blóð og svita. Ég get lofað ykkur betur. Að vísu verður nóg um svita en ekkert blóð lengur. Að sviti ætti að streyma, það sögðu reyndar líka þeir, sem voru á undan mér. í þeirra munni þýddi það allt annað. Svitinn átti að streyma til einskis. Því er nú lokið. Svita- straumurinn verður virkjaður til að fram- leiða frelsi og velmegun. Nú bráðliggur á að semja bunka af lög- um. En til þess að ræða frumvörpin vand- lega og samþykkja þau sem fyrst, ætti þing- ið að sitja sleitulaust. Það er illskiljanlegt, að það fæst ekki til þess. Það ku vera vegna þess, að þingmenn verði líka að stunda aðra vinnu. Þeir geta ekki sinnt þingstörfum af ótta við atvinnuveitendur sína, fjarvistir vegna löggjafarstarfa kynnu að koma niður á launum þeirra! Ættum við ekki að skjóta saman aurum handa þeim upp í sæmilegt orlofsfé? Ég er ekki sáttur við, að þingið hefur fram að þessu ekki fjallað um tillögu mína um að sleppa úr hinu opinbera heiti lýðveld- is okkar lýsingarorðinu, sem fæstir kæra sig um að hafa þar. Svo er í réttarfari okk- ar tímaskekkja, sem flestar siðaðar þjóðir hafa losað sig við. Ég á við dauðarefsing- una. Hvort frumvarpanna mætti semja á 20 sekúndum og samþykkja eftir rækilegar umræður á einum degi. ^ Stjórnina gagnrýni ég líka. Hún er allt of upptekin af undirbúningi breytinganna og gleymir hinu hlutverki sínu, að hún eigi líka að stjórna. Fyrir bragðið vinnur „þjóð- . arskijóðurinn" iila. Líklega finnur hann á sér, að hann verður bráðlega settur á bif- vélaverkstæðið, það sem hann verður end- ursmíðaður frá grunni. Samt má hann til að ganga. Ef hann hættir því, kemst hann ekki á'verkstæðið eftirsótta, og verður þá að óviðgerðarhæfri ryðhrúgu. Þess vegna skal hann sniglast áfram, svo við höldum lífí. Ég gagnrýni margt og marga, en þá spyrjið þið eðlilega: „En hvað um herra for- setann, er hann alfullkominn?" Auðvitað er hann það ekki. Hann hefur mjög litla reynslu í rekstri forsetaembættis. Hann hefur auk þess enga hefð til að styðjast við, því að forverar hans þjónuðu ekki embættinu, held- ur sátu flokksfundi í staðinn. Ég flýg úr einu landi í annað, nýt þrot- lausrar aðstoðar frábærra vina minna, en samt stenzt ég ekki áætlun. Mér er það ljóst, og reyni að koma skynsamlegu skipu- lagi á starfíð, svo að við verðum ekki að einni taugahrúgu hér uppi á kastalanum. Skipulagsstarfið verður búið um helgina, og þá tek ég rólegur fyrsta vikufrí mitt. Ef þið sjáið mig ekki á skjánum um hrið, þá þýðir það ekki, að einhver valdaræningi hafi steypt mér af stóli. í gær Ieit ég aftur í flokksmálgagnið Rude pravo, en það hafði ég ekki séð í lang- an tíma. Ég viðurkenni, að mér leizt bara vel á það. Það hefur skánað, síðan ég las það í þaula í fangelsinu, en þar var það eini möguleikinn að fylgjast með gangi mála. í gær tók ég eftir einu: Af þúsundum viðbragða við komu okkar til Vesturheims valdi Rude pravo eitt. Einhver skal hafa sagt, að ég væri fremur ástúðlegur, en barnalegur draumóramaður heldur en „al- vöru“ stjómmálamaður. Ég fór að hugsa um það. Hvort ég sé ástúðlegur, get ég auðvitað ekki dæmt um sjálfur. Að öðru leyti hafði hinn ónefndi maður rétt fyrir sér. Ég kann að vera róm- antískur, jafnvel barnalegur, þar sem ég veðja á hið góða í fari hvers manns. Auk þess hef ég aldrei álitið mig vera atvinnu- stjórnmálamann. Samt vil fullvissa ykkur um eitt: Þótt ég kynni að vera draumóra- maður, er ég áreiðanlega ekki eins mikið flón og þeir, sem vonast eftir að koma á harðstjón í kjölfar nýs febrúaiwaldaráns. Hvort sem þið trúið eða ekki, er ég ekki hræddur við nokkum mann. Minnst af öllu óttast ég vini gamla kerfisins. Að vísu er frelsi okkar ennþá nýtt og viðkvæmt, en skyldi einhver reyna að ræna okkur því, verður það varið. Það veit ég. Við getum ekki endalaust afsakað okkur með því, að við emm færri en einhverjir aðrir. Sá, sem þannig hugsar, hefur þegar tapað. Ollum vopnum betri er vopnið okkar — vitundin um að réttur og sannleikur eru okkar megin. Er þetta ein draumsýnin enn? Með slík vopn í hendi þarf enginn að hræðast hina fullkomnu hríðskotabyssu. En hugleysingja kemur ekki að gagni, þótt hann eigi kjall- ara fullan af byssum. Kæru vinir, af myndum og kvæðum hins sósíaliska raunsæis vitum við, að þessi dag- ur fyrir fjöratíu og tveimur árum var hrá- slagalegur, loftið þungbúið og ískaldur korn- snjór beit í kinnarnar. í dag - skín sól. TRYGGVI V. LÍNDAL Kynslóða- skipti Nei, nei, nei, nei. Ekki er allt sem sýnist. Syrgjendur séra Jácks reika örvinglaðir í slóð sekkjapípuleikarans. Minni æskunnar Skáldin ættu að fá verðlaun áðuren reynslan gerir þau að ofþroskuðum aldinum, bíðandi haustfuglanna. Kararsút Gnött hita, þæginda og tíma til söknuðar þess sem eftir lifir. Gnýr hitaveitupípanna er einsog æðasog og ég er sem aftur í móðurkviði. Höfundur er þjóðfélagsfræðingur og hefur gefið út eina Ijóðabók. SIGRÚN GUÐMUNDS DÓTTIR Ljóð Þegar þögnin hjúfrar sig upp að þér hljóð og blíð finnurðu bergmál hennar í hjarta þínu. Ævintýri Hefurðu séð mannshjarta vaxa og dafna í eyðimörk? Einu sinni var kona stödd í stórri eyðimörk. Hún sleit úr sér hjaitað og gróf í þurran sandinn. Þegar hún kom heim til landsins í norðri tók enginn eftir því að hún var hjartalaus. Höfundur er píanókennari. LESBÓK MORGUN8LAÐSINS 7. JÚLl 1990 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.