Lesbók Morgunblaðsins - 07.07.1990, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 07.07.1990, Page 6
Miðhluti Eyra.rba.kka, kirkjan og Húsið. Hér ríkir gömul umgengnismenning og sú snyrtimennska sem hér blasir við, er ekki víða í sjávarplássum. NIÐUR HAFSINS ER STUNDUM ÞAÐ EINA SEM HEYRIST Andl son á Ameðan brimið þvær hin skreipu sker“, kúra húsin innan við sjógarðinn og sýnast lág til- sýndar. En stundum brotnar aðeins á skerjum langt úti og allur skerjagarðurinn ósköp mein- leysisslegur. Návist sjávarins fer samt aldrei Hugað að gömlu og nýju á Eyrarbakka, Stokkseyri og í Þorlákshöfn á milli mála. Þótt atvinnulífið gangi sinn gang, finnst þeim sem vinnur í miðbæ Reykjavíkur þetta ótrúlega hljóðlátt um- hverfi. Stundum er niður hafsins það eina sem heyrist að viðbættu kvaki fugla. Þess- vegna er það trúlega, að fólk af höfuðborg- arsvæðinu hefur sózt eftir því að kaupa gömul hús, bæði á Eyrarbakka og Stokks- eyri, ef þau hafa verið föl, og nokkrir hafa byggt sér sumarbústaði við sjógarðinn aust- an við Stokkseyri. Þessi kyrrð getur sannar- lega farið af eins og menn máttu reyna í janúar síðastliðnum, þegar hafið gekk ber- serksgang. En í þokkalegu veðri að sumar- lagi og langt fram á haust, er þetta um- hverfi á einhvern hátt mjög hrífandi þótt há fjöll séu hvergi nærri, né heldur neitt af því, sem yfirleitt er sett í samband við náttúrufegurð, svo sem skógi vaxnar hlíðar og fossandi lækir. Hér eru ennþá hlaðnir garðar og gömul hús, sem eiga rætur í fortíðinni, þegar menn fóru til sjóróðra á Bakkann og á Stokkseyri,_ eða út í Þorlákshöfn eins og sagt var í Árnessýslu. Ásamt Selfossi hafa þessir bærir verið nefndir Árborgarsvæðið og þá felst líklega í því sú bjartsýni, að um síðir verði þessir bæir báðum megin við Ölfusá samvaxnir. Á fallegum sólskinsdegi í júní var ótrú- lega kyrrt úti fyrir; samt var þessi niður í loftinu úti fyrir skeijagarðinum á Stokks- eyri. Að öðru leyti heyrðist fjarlægt suð í dráttarvél og einhversstaðar var verið að saga. Ég sá síðar að það voru menn að byggja timburhús. í kirkjugarðinum á Stokkseyri var hópur af fólki; ungt fólk með vélorf og hrífur að slá og hirða upp grasið. Hinsvegar aðkomufólk að líta á kirkj- una. Ég slæddist inn með því og Páímar Þ. Eyjólfsson organisti, sem er skyldur Páli ísólfssyni bæði í móður og föðurætt, sýndi mér hvernig kirkjan hafði verið gerð upp nýlega. Þar var komin nýtízkuleg viðar- mm Kirkjugarðurinn og kirkjan á Stokkseyri. í Þorlákshöfn. Sendinn berangur, sem búið um Egil Gr. Thorarensen eftir Gunnstein Gí

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.