Lesbók Morgunblaðsins - 07.07.1990, Side 9
Renault Espace er
fjölhæfur ferðabíll
og tveir aftast. Hægt að taka hvert aftur-
sæti fyrir sig úr bílnum. Til að kippa þeim
úr þarf að velta fram sætisbakinu síðan
losa með einu handtaki aðra festinguna
undir sætinu og velta því fram og að lokum
losa hina gólffestinguna. Það er því næsta
auðvelt að skella sætunum fram og aftur
eins og menn vilja. Vasar fyrir smádót eru
í bökum sætanna og þegar sætisbak er lagt
fram myndast ágætis matarborð.
Renault Espace er rennilegur og látlaus bíll.
Morgunbladið/Árni Sæberg
Renault Espace Quadra heitir bíll frá
Renault verksmiðjunum frönsku
sem kominn er hingað til lands. Hér
er um að ræða 7 manna ferða- eða ijöl-
skyldubíl og er Quadra gerðin með aldrifi
en til er önnur útfærsla af þessum bíl og
er hann þá einungis er framdrifinn. Espace
er forvitnilegur bíll fyrir margra hluta sak-
ir, þetta er rúmgóður og skemmtilegur bíll
og góður til síns brúks en brúkið getur ein-
mitt verið allfjölbreytilegt. Verðið er um 2,5
milljónir króna en framdrifsgerðin er um
hálfri milljón króna ódýrari.
Renault Espace er í þeim flokki bíla sem
nú er mikið að ryðja sér til rúms og ýmsir
framleiðendur bjóða. Má þar nefna Prairie
frá Nissan, Aerostar frá Ford, Voyager frá
Chrysler og fleiri en vissulega eru þetta
allt ólíkir bílar bæði að innri gerð og verði
þó notkunarsviðið sé svipað. Þetta eru bílar
fyrir fjölskylduna sem vill geta ferðast mik-
ið, þarf gott pláss og vill jafnvel sofa í
bílnum. Þessir bílar eru farnir að sjást á
meira á íslenskum vegum enda að mörgu
leyti hentugir hérlendis.
Rennilegnr
Espace er sennilega líkastur Prairie af
þessum bílum, þetta er rennilegur bíll, fram-
endinn teygir sig nokkuð langt fram og
framrúðan hallar mikið. Langt er því frá
bílstjóra eða stýri fram í framrúðu og hefur
maður á tilfinningunni að bíllinn sé miklu
lengri eða stærri en hann í rauninni er.
Bíllinn er annars látlaus í útliti, stuðarar
eru í sama lit og bíllinn og hann er ein-
hvern veginn allur sléttur og felldur í útliti.
Renault Espace er 4,35 m langur (lítið
lengri en Subaru), 1,77 m breiður og 1,66
m hár. Hann er með tveggja lítra 120 hest-
afia vél og vegur 1290 kg. Hann ber um
600 kg, bensíntankur tekur 58 lítra, hám-
arkshraði er gefinn upp 175 km á klukku-
stund og eyðslan sögð 11,7 lítrar í borga-
rakstri en fara niður fyrir 10 lítra við jafn-
an hraða úti á vegum. Bíllinn er búinn
vökvastýri, fimm gíra kassa, hann er með
sjálfstæða gormaijöðrun að framan en tvö-
földum öxli að aftan. Hann er búinn velti-
grind, þ.e. bitarnir við framrúðuna eru
styrktir og sömuleiðis í miðjum bílnum og
aftast.
Að innan er Espace mjög rúmgóður.
Rýmið er frá 0,9 upp í rúma 3 rúmmetra.
Fremst eru tveir stólar, í miðju þrír stólar
Plássið er nóg hið innra. Framsætum
má snúa þannig að menn geti haft
samband við farþega aftur í þegar áð
er.
Sætin eru góð, eru hæfilega stíf og vel
stillanleg. Menn sitja hátt og sjá vel út eins
og vera ber í ferðabíl. Helst má segja að
sætisbökin skyggi á útsýni um afturglugga.
Allur frágangur að innan virkar mjög sann-
færandi og vandaður en helst er þó eins
að stilla mætti hurðirnar betur. Gott er þó
að ganga um hann og á það við um öll
sæti, hurðirnar opnast ágætlega og aftur-
hurðin þar með.
Espace er búinn raflæsingu sem er fjar-
stýrð ef vill, hliðarspeglar eru stillanlegir
með rofa í bílstjórahurð og hliðarrúður
frammí drifnar með raforku.
Léttur í meðförum
Akstur Renault Espace Quadra er auð-
veldur. Bílstjóri þarf fyrst að átta sig svol-
ítið á bílnum, sérstaklega framendanum -
hann virðist standa nokkuð langt fram en
er í raun styttri en sýnist. Fljótlegast er að
fá almennilega tilfinningu fyrir stærðinni
með því að fá einhvern til að standa framan
við bílinn og segja sér til og eftir það hefur
bílstjóri áttað sig alveg á staðháttum. Þetta
eru raunar hlutir sem ökumenn ættu að
temja sér þegar þeir taka í nýjan bíl og
ókunnugan - að taka sér nokkrar mínútur
og fá aðstoð til að átta sig á ytra máli
bílsins, breidd og lengd.
Espace er léttur í stýri og yfirleitt léttur
í meðförum. Gírskipting er átakalaus og
hljóðlát, stöngin er mjög vel staðsett nema
hvað hún strýkst við horn hægra framsætis
ef það er framarlega þegar sett er í fimmta
gír. Þá mætti bensíngjöfin vera ögn stífari
en að öðru leyti er lítið sem angrar bílstjó-
rann við stutta viðkynningu á Renault
Espace. Bíllinn er hljóðlátur og 120 hest-
afla vélin gefur ágæta vinnslu.
Viðbragðið er gott og vinnslan góð þann-
ig að ekki þarf að skipta alltof mikið þótt
hægja þurfi á, hann er fljótur að vinna sig
upp aftur án þess að hann sé píndur. Kost-
ir bíia sem þessara liggja sjálfsagt í fjöl-
hæfni þeirra. Renault Espace má auðveld-
lega nota í bæjarsnatti, hann er ekkert of
stór til þess, hann er rúmgóður á ferðalagi
hvort sem er fyrir marga farþega eða fáa
og mikinn farangur, hann skilar farmi sínum
hratt og þægilega yfir og með aldrifinu er
hann stöðugur á vegi og menn geta verið
vissir um að komast leiðar sinnar. Á bíl sem
þessum má leggja í hina venjulegu fjall-
vegi, þ.e. aka Kjöl og Srengisand en þá
verða menn líka að vera minnugir þess að
þetta er ekki jeppi og þetta er ekki vatnabíll.
Hann fer alla venjulega vegarslóða á hálend-
inu en ekkert út fyrir það. Þurfi menn að
aka utan alfaraleiða skulu þeir fá sér jeppa
og muna um leið að fara með gát í við-
kvæmri náttúru landsins.
Ýmis verkefiii
Með þetta i huga má mæla með Renault
Espace í ýmis verkefni. Þetta er fjölnota
bíll ef menn eru reiðubúnir að greiða 2,5
milljónir fyrir það. Þetta er líka skemmtileg-
ur bíll ög hann vekur athygli á götum ef
menn sækjast eftir því.
jt
Citroen XM á íslandi
Citroen XM, stóri lúxusbíllinn frá
Citroen er nú loksins kominn til ís-
lands. Hann er þó í raun sýnd veiði
en ekki gefin því þessi fyrsti bíll verður hér
aðeins í fáa daga til að leika aðalhlutverkið
í kynningarmynd sem ákveðið var að taka
hérlendis. Globus hefur umboð fyrir Citroen
og gera forráðamenn umboðsins sér vonir
um að hægt verði að sýna þennan gæðagrip
í Lágmúlanum um næstu helgi. Davíð Dav-
íðsson forstöðumaður bifreiðadeiidar Globus
segir að margir Citroen aðdáendur hafi
spurst fyrir um bílinn og er nú verið að
ræða við F.rakkana um endanlegt verð til
íslands.
Citroen XM var kynntur á síðasta ári.
Þetta er stór fimm manna framdrifinn og
íburðarmikill vagn með öllum helstu þæg-
indum. Ætlun Citroen manna með XM er
að ná góðri stöðu í keppni um Iúxusbíla.
Það ætti líka að vera mögulegt því hér er
margt í boði fyrir kröfuharða viðskiptavini
en þessi bíll er bæði hannaður með hraða
og þægindi í huga.
Raftnögnuð þægindi
XM er með þriggja lítra V6 vél sem er
170 hestöfl en bíllinn sem hér er notaður
er þó með 200 hestafla 24 ventla vél. Er
XM annars fáanlegur með þremur vélar-
stærðum. Hámarkshraði þessa bíls 237 km
á klukkustund og hann nær 100 km hraða
á minna en 7 sekúndum. XM er búinn ýms-
um hefðbundnum búnaði sem vandaðir bílar
státa af svo sem rafmagnsdrifnum læsing-
um (og reyndar ijarstýrðum líka), rúðum,
hliðarspeglastillingumvog stillingum á fram-
sætum. Hann er með leðursætum, vökva-
stýri og læsivörðum hemlum.
Af öðrum búnaði XM má nefna vökva-
fjöðrunina sem Citroen er þekktur fyrir en
hér er að finna nýjungar. Tölvutækninni er
beitt til að stýra henni eftir aðstæðum. Fjöl-
margir skynjarar nema ýmsar upplýsingar
og mata tölvuna sem hefur áhrif á hinar
ýmsu fjöðrunareiginleika. Þá er hægt að
velja milli tveggja stillinga á ijöðrun. Onnur
er stíf og hugsuð til nota við hraðakstur
en hin er mýkri og notuð við borgarakstur.
Þá er bíllinn búinn þjófavörn, eigandi getur
matað tölvu þannig að ekki sé hægt að
gangsetja bílinn nema stimpluð hafi verið
inn rétt lykilnúmer. Gluggi í mælaborði
gefur nánast allar hugsanlegar upplýsingar
um ástand bílsins og um aksturinn er það
að segja að þar sitja mýkt og þægindi í
fyrirrúmi og hraðinn getur orðið miklu
meiri en öll lög og ökuleyfi hériendis leyfa.
Kynningarmynd á íslandi
Sem fyrr segir er þetta sérstaka eintak
af XM nú myndað hérlendis í bak og fyrir
Leðurklæddur að innan og vel útbú-
inn. I stýrinu er m.a. að fínna rofa
fyrir stillingar á útvarpinu.
Citroen XM er glæsivagn og hefurþeg-
ar verið spurt talsvert um hann hér-
lendis. Citroen umboðið, Globus, er að
semja við verksmiðjurnar um þessar
mundir um verð.
vegna kynningarmyndar. Tíu Frakkar komu
hingað til lands í því skyni og nokkrir Islend-
ingar aðstoða þá við verkið. Var bíllinn
myndaður í nágrenni Reykjavíkur í vikunni
og á nokkrum stöðum á Suðurlandi en síðan
verður farið með hann á Snæfellsnes.
jt
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7. JÚLÍ 1990 9