Lesbók Morgunblaðsins - 07.07.1990, Blaðsíða 11
Listin að verða „ölvaður" af hreyfingu til að eiga auðveldara með að hætta að reykja!
FERB4BMÐ
LESBÓKAR
jafnvel hlaupið upp á næstu íjöll!
Menn verða „ölvaðir“ eða „léttdóp-
aðir“ af hreyfingu! Margir íþrótta-
menn, t.d. maraþonhlauparar,
kannast við þessa tilfinningu.
Þó reykingar auki mjög á alla
streitu og reykbindindi dragi úr
henni þegar til lengri tíma er litið,
geta átökin sem fylgja því að hætta
aukið streitu tímabundið hjá sum-
um. Því er æskilegt að hreyfa sig
nægilega mikið, þegar verið er að
venja sig af reykingum, til að losa
um streitu og hemja skapsveiflur!
Við leggjum áherslu á góðan
undirbúning áður en lagt er í fjöll-
in, sem fer fram í Krabbameinshús-
inu í Reykjavík. Þeir sem búa utan
Reykjavíkur, fá leiðbeiningar í
gegnum síma. Og allir eiga aðgang
að persónulegri ráðgjöf eftir að
komið er úr fjöllunum. Við álítum
námskeiðið svo merkilega tilraun
að þátttakendur þurfa ekki að
borga neitt aukalega fram yfir
skíðanámskeið. Námskeiðið verður
efnislega mjög svipað hefðbundn-
um námskeiðum hjá Krabbameins-
félaginu.
Síðan ég byijaði að aðstoða fólk
við að hætta að reykja hjá Krabba-
meirisfélaginu, hafa margir þátt-
takendur sagt að námskeiðin
þyrftu að vera fjarri öllum freist-
ingum - í allt öðru umhverfi. Með
námskeiði uppi í fjöllum, erum við
að koma til móts við óskir þessa
fólks. Fyrstu dagarnir eru oft erfið-
astir fyrir þá sem eru líkamlega
háðir nikótíni. Þeir þurfa róttækar
breytingar í sínu umhverfi og lífi
til að geta hætt. Fyrir þá sem eru
bundnir vananum, er þetta líka
góður kostur. Við bindum miklar
vonir við námskeiðið og ef vel
gengur verða örugglega haldin
fleiri slík,“ segir Ásgeir að lokum.
O.Sv.B.
Nám í heilbrigðum lífs-
venjum í Kerlingaflöllum
Listin að verða „ölvaður“ af hreyfíngu!
Á almennu skíðanámskeiði 29.
júlí til 3. ágúst ætla Kerlinga-
fjallamenn að standa fyrir reyk-
bindindisnámskeiði fyrir hluta
af þátttakendum. Fólk getur
þannig slegið tvær flugur í einu
höggi - stundað Iiolla útiveru á
skiðum og vanið sig af reyking-
um!
„Ætlunin er að gera fólk „ölvað"
af hreyfingu til að auðvelda því að
hætta að reykja,“ segir Ásgeir lt.
Helgason sem mun leiðbeina fólki
á námskeiðinu. „Þegar fólk er búið
að hreyfa sig svo mikið að komið
er yfir vissa hreyfingu, þá er eins
og þreytan hverfi ug íolk getur
Nýtt gistiheimili
í Arnesi í Gnúp-
veijahreppi
Skoðunarferðir með leigubflum
Leigubílstjórar vilja breyta sinni ímynd!
Félagsheimilið Árnes í Gnúp-
verjahreppi stendur við þjóð-
braut og er góður áningastaður
á leið í Þjórsárdal og á Sprengi-
sand. Þar er veitingarekstur
yfir sumarmánuðina og svefii-
pokagisting allt árið. Nú er
búið að opna nýtt gistiheimili
við Árnes, sem verður opið allt
árið.
í nýja gistiheimilinu eru 10
tveggja manna herbergi með upp-
búnum rúmum, setustofu og eld-
unaraðstöðu fyrir gesti. Við Árnes
er íþróttavöllur til útileikja, tjald-
svæði með snyrtingum, heitur
nottur og útigrill. Skemmtileg
gönguleið er til dæmis að Búða-
fossi í Þjórsá. Skammt frá Árnesi
rennur Kálfá, falleg bergvatnsá
með laxveiði. Verslunin Árborg
og bílaverkstæði eru við Árnes.
Frá Árnesi eru um 20 km í
Þjórsárdal, þar sem skoða má
Hjálparfoss og Háafoss, söguald-
arbæinn Stöng og Gjána. Og
margir hvíla sig eftir skoðunar-
ferð um dalinn í Þjórsárdals-sund-
laug.
Gistinótt í gistiheimilinu að
Árnesi kr. 1.500. Morgunverður
kr. 600. Hádegisverður kr. 1.020.
Kvöldverður kr. 1.640. Dagsnesti
kr. 950, minni nestispakki kr. 450.
Leigubílstjórar (eða Bifreiða-
stjórafélagið Frami) eru búnir
að gefa út bækling fyrir ferða-
menn, sem ber yfirskriftina
„Ferðist þægilega og áhyggju-
laust í skoðunarferðum með
leigubíl"! Við spjöllum við Gunn-
ar Björnsson leigubílstjóra, sem
ber hið kunna númer 79 af stöð-
inni til að fræðast nánar um
þessa þjónustu:
„Sérþjónusta leigubílstjóra við
ferðamenn hefur dottið niður um
10 ára skeið. En nú viljum ,við
breyta ímynd leigubílstjórans.
Leigubíllinn er góður ferðakostur,
þegar sætisverð (miðað við fjóra í
bíl) er orðið ódýrara en í bíla-
leigubíl eða í rútu með lciðsögu-
manni. Við höldum því fram að
leigubíll sé ódýrari kostur en annar
eða þriðji bíll á heimili eða hag-
stæðasti ferðamáti sem völ er á,
ef fólk er ekki með eigin bíl,“ seg-
ir Gunnar.
„Við tökum ekki leiðsögumanna-
gjald og gefum okkur ekki út fyrir
að vera leiðsögumenn, þó að menn
séu á meðal okkar með full rétt-
indi. Einnig er mikið af bílstjórum
sem hafa verið rútubílstjórar um
árabil og þekkja helstu áfangastaði
ferðamannsins mjög vel. Ef beðið
er um leigubíl í skoðunarferð, eru
eingöngu sendir bílstjórar sem geta
verið leiðsögumenn í ferðinni og
.hafa málakunnáttu ef um útlenda
ferðamenn er að ræða.
Ferðaskrifstofan Evrópuferðir
hefur tekið upp nána samvinnu við
okkur, en skrifstofan býður ferða-
mönnum, innlendum og erlendum,
akstur með sérþjónustubifreiðun-
um. Akstur til og frá Keflavíkur-
flugvelli hlýtur að minnka ferða-
streitu og auka öryggi. Við reynum
að taka aldrei fleiri en þijá farþega
í Leifsstöð. Hinsvegar ef einkabíll-
inn er skilinn eftir á vellinum á
meðan fólk dvelur erlendis, hefur
komið fyrir að jafnvel er búið að
fjarlægja dekkin af bílnum,“ segir
Gunnar. Sætisverð aðra leið í Leifs-
stöð er kr. 2.000, verð sem miðast
fremur við viðskiptafarþega.
Inni í bæklingnum eru tekin
verðdæmi um 7 skoðunarferðir í
nágrenni Reykjavíkur. Gullni
hringurinn eða Þingveilir, Geysir,
Gullfoss og Hveragerði, átta tíma
ferð, kr. 12.600. Sætisverð miðað
við fjóra farþega kr. 3.150. Sætis-
verð í rútu með leiðsögn sömu leið
kr. 3.200. Ef tekinn er sambærileg-
ur bílaleigubíll er leigubíllinn ódýr-
ari kostur.
O.Sv.B.
11 s
Nýja gistiheimilið að Árnesi og félagsheimilið í baksýn
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7. JÚLÍ 1990 1 1