Lesbók Morgunblaðsins - 07.07.1990, Qupperneq 12
4
&
Gamla vindmyllan í Vigur, sú eina sirinar Eyjalín fánum prýdd fyrir framan bæjárhúsin í Vigur. Myndin er tekin daginn sem henni var gefið
tegundar hér á landi sem enn stendur. Hún
er eins konar tákn fyrir Vigur.
Með Eyjalín um
Isafiarðardjúp
nafn.
Nýr farþegabátur, sem býður
upp á fjölmarga möguleika m.a.
fyrir þá sem hyggjast ferðast um
Hornstrandir í sumar.
Stórkostlegt! Þakka þér fyrir,
Finnbogi, að fara með okkur hing-
að. Ég hafði aldrei ímyndað mér
að þetta gæti verið svona fallegt.
Hugsið ykkur þetta landslag! Þetta
er lifandi safn!
Á þessa leið voru viðbrögðin hjá
útvarpsfólkinu úti í Vigursl. mánu-
dag. Finnbogi, sem þarna var
ávarpaður, vai’ auðvitað sá góð-
kunni fréttamaðurog forstöðumað-
ur svæðisútvarpsins á Isafirði,
Finnbogi Hermannsson, sem boðið
hafði deildarstjórum ríkisútvarps-
ins í skoðunarferð með Eyjalín um
ísafjarðardjúp eftir vel heppnaðan
fund þeirra á ísafirði.
Finnbogi, sem er hógvær maður
að upplagi, brást við þessum lofs-
yrðum öllum með því að segja að
þau væru nú ekki komin aftur í
land og því væri betra að bíða með
stóru orðin. „Hver sagði að við vild-
um fara aftur í land,“ 'sagði þá ein
frammákona útvarpsins að bragði.
Ég spurði Jónas H. Eyjólfsson,
skipstjóra Eyjalínar, hvoit farþegar
í skoðunarferðunum væru alltaf
svona ánægðir. Jónas sagði að svo
væri nær undantekningarlaust.
Enda er hægt að fullyrða að þessar
ferðir með Eyjalín eru sannkallaðar
ævintýraferðir.
Jökulfirðir o g Djúp
Eyjalín var keypt til ísafjarðar
nú í vor. Eigandi er Djúpferðir hf.,
sem er hlutafélag um 40 aðila, ein-
staklinga og fyrirtækja á ísafirði.
Það sem sameinaði menn um stofn-
un þessa félags var fyrst og fremst
bjargföst sannfæring um að far-
þegabátur eins og Eyjalín gæti
orðið mikil lyftistöng fyrir ferða-
þjónustu á Vestfjörðum og að það
væri mikilvægt að auðvelda fólki
að skoða náttúruparadísir á boð
við Jökulfirði, Æðey og Vigur.
Það eru Ferðaskrifstofa Vest-
fjarða og Hótel ísafjörður sem ann-
ast sölu ferðanna og frá því í maí-
lok hefur Eyjalín verið með tvær
skoðunarferðir á dag, ýmist í Jökul-
firði eða um ísafjarðardjúp með
viðkomu í Æðey og Vigur. Auk
þessa er boðið upp á margs konar
sérferðir eða hópferðir.
Skoðunarferðirnar taka þijá til
fjóra tíma og kostar 1.800 krónur.
Ééttar veitingar eru innifaldar í
verðinu. I ferðunum um Djúp skipt-
ast ábúendur í Vigur og Æðey á
um að taka á móti gestum og er
það vissulega einn af hápunktum
ferðanna þvi höfðingsskapur er
annálaður á þessum stöðum.
Ferðir í Jökulfirði opna einnig
mikla möguleika fyrir Horn-
strandaferðalanga. Eyjalín, sem
getur siglt hátt í 40 mílna hraða,
er ekki nema örskotsstund að skjót-
ast með farþega t.d. yfir á Hest-
eyri, í Veiðileysufjörð eða á aðra
þá staði þar sem upplagt er að
leggja af stað í Hornstrandaleið-
angra.
1.500 krónur kostar farið hvora
leið fyrir þá farþega sem ætla að
dvelja eitthvað á Hornströndum.
Með tilkomu Eyjalínar má segja
að Hornstrandaferðir séu orðnar
mun minna mál en áður. Það má
t.a.m. hæglega fljúga vestur á ísa-
fjörð að lokinni vinnu á föstudegi
og halda síðan þá strax um kvöldið
með Eyjalín í Jökulfirði, eyða helg-
inni á Hornströndum og koma svo
með Eyjalín á sunnudegi til Isa-
fjarðar mátulega til að taka kvöld-
vélina suður.
Jónas Eyjólfsson sagði að Eyj-
alín hefði þegar fengið mun betri
undirtektir en eigendur hennar
þorðu að vona í upphafi. Mikið
hefði verið um að ýmiss konar hóp-
ar færu í ferðir með bátnum. Minna
væri hins vegar um það erin sem
komið er að einstaklingar keyptu
sér far í áætlunarferðimar.
Baldur í Vigur segir útvarpsfólki frá Vigur-Breið, 200 ára ára-
skipi sem enn er í notkun.
Einstætt mannlíf og
náttúrufegurð
Þegar ég spurði Jónas hvað það
væri sem hann hefði sérstaklega
upp á að bjóða, brosti hann góðlát-
lega og benti á útvarpsfólkið: „Ja,
þú heyrir viðbrögðin. I Æðey og
Vigur er sennilega mesta æðarvarp
í veröldinni og gríðarlega augðugt
fuglalíf að öðru leyti. Líttu svo í
kringum þig, sjáðu fjallahringinn:
Snæfjallaströndina, Unaðsdal,
Kaldalón, Drangajökul með Ilroll-
eifsborg og Hljóðabungu. Eða út-
sýnið héðan úr Vigur þar sem þetta
magnaða og síbreytilega fjall,
Hesturinn, er alls staðar nálægt.
Finndu kyrrðina og orkuna sem þú
dregur að þér með fersku sjávar-
loftinu. Síðast en ekki síst kynnistu
hér í eyjunum einstæðu mannlífi.
Einhver orðaði það svo að hér í
Vigur væri lifandi safn. Auðvitað
er þetta ekki safn heldur hefur
sambandið við fortíðina aldrei rofn-
að eins og það hefur því miður
gert svo víða annars staðar í samfé-
laginu. Hér sameinast fortíð og
nútíð. Sjáðu gömlu kornmylluna,
Vigur-Breið, þennan 200 áragamla
bát, húsakynnin og innanstokks-
munina; allt er þetta vitnisburður
um gamla tíma en þetta er líka enn
í fullri notkun. Þai-ftu frekar vitn-
anna við.“
Og auðvitað þurfti ég það ekki.
Baldur Bjarnason í Vigur kom fram
við okkur öll eins og við værum
þjóðhöfðingjar þessa stuttu stund
sem við stöldruðum við í Vigur. Á
bakaleiðinni til ísafjarðar voru þau
orðin sjö ára á nýjan leik Elva
Björk, Ragnheiður Ásta, Gunnvör
Braga, Erna Indriðadóttir og jafn-
vel Finnbogi Hermannsson. Allir
gömlu rútusöngvarnir voru kyijaðir
og tvær eldri konur frá Bretlandi,
sem slegist höfðu með í ferðina,
táruðust af þakklæti þegar þær
heyrðu Eldgamla ísafold. Einnig
þær voru sammála um að þetta
væri ógleymanleg ferð.
Ekki spillti fyrir að þrátt fyrir
dálítinn sjó þá skeiðaði Éyjalín yfir
öldurnar eins og besLi gæðingur.
Það skriplaði ekki einu sinni á
skötu og enginn varð sjóveikur.
Vigfús Geirdal, ferðamála-
fúlltrúi á Vestfjörðum.
Nýjar, betri
ferðaleiðir
um Yestfirði
Nýr Baldur hóf siglingar um
Breiðafjörð í vor. Nýr liraðbátur
siglir um Isafjarðardjúp. Og sér-
leyfishafar hafa fjölgað ferðum
um firðina, sem gefur aukna
möguleika til skipulcggja
skemmtilegar ferðir.
Nýi Baldur getur flutt rútur á
milli Stykkishólms og Brjánslækj-
ar. Baldur siglir tvisvar á dag og
kemur alltaf við í Flatey, en þar
er tilvalið að dvelja á milli ferða,
eða lengur ef menn óska. Þar má
benda á svefnpokagistingu í Vogi
og tjaldsvæðið í Krákuvör. Vest-
fjarðaleið er með áætlun í tengslum
við Baldur þrisvar í viku. Auk þess
verður Torfi Andrésson með áætl-
unarferðir þrisvar í viku á milli
Bijánslækjar, Patreksfjarðar,
Tálknafjarðar og Bíldudals. Þessar
nýju. ferðaleiðir gefa tækifæri til
hringferða um suðurfirðina, Pat-
reksfjörð, Tálknafjörð og Arnar-
fjörð.
Sem dæmi má taka: Mánu-, mið-
viku-, föstudaga: Flug til Patreks-
Nýi báturinn Eyjalín.
fjarðar og deginum eytt þar.
Síðdegis ekinn hringur til Tálkna-
fjarðar, Bíldudals og í Flókalund
og gist þar. Þriðju-, fimmtu-, laug-
ar-, sunnudaga: Ekið út á Látra-
bjarg, gist í Breiðuvík eða haldið
áfram til ísafjarðar. Þriðjudaga:
Ekið um Djúp til Reykjavíkur - eða
daglega áætlunarflugið tekið til
Reykjavíkur. 1 leiðabók BSI eru
góðar upplýsingar um áætlanir sér-
leyfishafa á Vestfjörðum (bls.19-
24) og hugmyndir (bls.77) um
dagsferðir frá Isafirði.
Ferðaskrifstofa Vestfjarða býð-
ur upp á heilmikla dagskrá í sum-
ar. Daglegar skoðunarferðir eru
um ísafjörð og nágrenni, eftír
komu fiugs frá Reykjavík. Farþeg-
ar eru sóttir út á völl. Á virkum
dögum eru skoðunarferðir um
Djúpið með nýja hraðbátnum Eyja-
lín og lagt er upp kl. 14.00. Komið
er við í Æðey eða Vigur, veitingar
þegnar og farið í smáskoðunarferð.
Fólki gefst innsýn í hvernig eyjalíf
gengur fyrir sig, án þess að bíll
standi við bæjardyrnar!
Á sunnudögum siglir Eyjalín um
Jökulfirði. Lagt af stað kl. 14.00
og allir fá nestispakka með sér.
Lítið er stigið á land, enda engar
bryggjur eða aðstaða í flotbryggj-
um ennþá. Ferðir í Jökulfjörðu eru
mjög vinsælar og ýmsir möguleikar
að komast þangað (hafið samband
við skrifstofuna). Eyðibyggðin tog-
ar til sín og gefur aðra mynd en
ferðir um óbyggðir þar sem maður-
inn hefur aldrei tekið sér bólfestu.
30. júlí er gönguferð um Hom-
strandir undir leiðsögn kunnugs
fararstjóra. Ferðin tekur 6 daga,
gist er í tjöldum, fullt fæði og séð
fyrir viðlegubúnaði.
Gönguferð á Hornstrandir kr.
20.000. Bátsferð um Djúp og
Jökulfjörðu kr. 1.800. Áætl-
unarferð í Jökulfjörðu kr.
1.500 aðra leið.
12