Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1990, Síða 11
Hinn hagsýni ferðamaður
Vertu ekki með of mikinn farang-ur!
Farangnr
Hvernig á að pakka og hvað á að taka með sér?
Oft er erfitt að ákveða hvað
á að vera í ferðatöskunni. Tvær
gullnar reglur: — Hafið auga
með þyngdinni og takið það,
sem veitir mesta ánægju (betra
að þekkja sjálfan sig til að vita
hvað það er)! Laurie Lee tók
tjald, ein aukaföt, ábreiðu og
fiðlu — og farangur Ricks
Bergs (báðir þekktir rithöfulid-
ar) komst fyrir í léttum bak-
poka, þegar hann fór í 6 ára
ferðalag! En flestir eru of háð-
ir daglegum klæðnaði og tísku-
sveiflum og pakka samkvæmt
því.
Góð regla er að hafa ferða-
töskuna aðeins hálf-
fulla! Minjagripir taka
pláss og flestir freistast til að
kaupa eitthvað. Ef taskan vegur
um 19 kg við brottför, lendið þið
í erfiðleikum með yfirvigt. Leyfi-
leg þyngd er 20 kg í almennu
farrými (meira á viðskipta- og
fyrsta farrými). Auðvitað fer
fataval eftir veðráttu á áfanga-
stað. Létt föt í heitum löndum,
en fínni og þyngri föt á alþjóðleg-
um viðskiptafundum. Ef Hong
Kong, paradís hins kaupglaða, er
í sjónmáli, er freistandi að fara
með tóma tösku og birgja sig upp!
Þegar búið er að velja í tösk-.
una, er góð regla að breiða fötin
á rúmið. Otrúlega margir eru
búnir að taka 2A úr fataskápnum!
v Hengið belminginn upp aftur! Það
er örugglega nóg. Fyrirferðar-
mestu hlutirnir fara í töskubotn-
inn — eins og skór í plastpokum,
ferðastraujárn ogfleira. Síðan eru
fötin lögð í lögum ofan á, hver
kjóll eða buxur í plasthlífum úr
fatahreinsuninni. 1-2 peysur eru
alltaf nauðsynlegar, hvert sem
farið er — sólin gæti horfið í viku,
jafnvel í hitabeltinu. Skyrtur,
blússur, buxur og pils (á léttum
herðatijám), stutterma bolir, nær-
föt og fleira smávegis — og að
síðustu eitthvað mjúkt, til dæmis
léttan frakka eða slopp efst.
— Reynið að standast þá freist-
ingu að fylla út í aukarýmið.
Munið að innkaupin taka pláss!
Snyrtivörur eru best geymdar í
snyrtitöskum. íslenskir ferða-
menn stefna oftast til sólarlanda,
sem krefst meiri fatnaðar til skip-
tanna. — Hentugt að velja föt,
sem passa vel saman og hægt er
að víxia á ýmsa vegu. Óformlegur
bómullarfatnaður er þægilegur í
sólinni.
— Hjón ættu alltaf að vera
hvort með sína ferðatösku! Til
vara er gott að hafa aukasekk
meðferðis, ef innkaupin verða
meiri en gert var ráð fyrir. Flest-
ar konur hafa handtösku, sem
rúmar snyrtivörur, skartgripi,
ferðaskjöl, peninga og lesefni.
— Og farið nú yfir hvort allar
nauðsynjar eru komnar niður! Er
farseðill, vegabréf, gjaldeyrir,
smámynt (fyrir leigubíl á hótelið),
ökuskírteini og fleira í farangrin-
um? — Liggja sokkapörin 6 ennþá
á rúminu? — Er þægilegur skó-
fatnaður til skiptanna? Dýrmætir
frídagar geta glatast í skóleit í
framandi borg! — Eru plástrar,
verkjalyf, magatöflur og önnur
nauðsynleg meðöl meðferðis? Far-
ið yfir snyrtivörurnar. — Konur,
munið að taka með ykkur dömu-
bindi. — Karlar, gleymið ekki rak-
vélinni. Utan hins vestræna heims
getur reynst erfitt að ná í ýmsa
smáhluti, sem okkur finnast
ómissandi. — Verið alltaf viðbúin
hinu óvænta á ferðalagi. Og
gleymið ekki straumbreytismilli-
stykki fyrir rakvél, hárþurrku og
ferðastraujám. o Sv R
Ekki bara verzlanir
Á göngugötu í Trier
fremst verslunar- og þjónustu-
borg og starfa 70% borgarbúa á
þeim sviðum. Hefur Trier fram-
færi sitt af að þjóna ýmsum ná-
grannabæjum, þeim 11.000 nem-
endum sem stunda þar nám á
háskólastigi, mikilli umferð ferða-
manna og franska hernum (í Trier
er næststærsta herstöð franska
hersins — einungis sú í París er
stærri). Það er heldur ekki óal-
gengt að sjá íbúa Lúxemborgar
koma þangað í innkaupaferð þó á
móti komi að í tólf kílómetra fjar-
lægð frá Trier, rétt handan við
lúxemborgísku landamærin, er
þorpið Wasserbillig sem virðist
lifa nær einvörðungu á því að
selja Trier-búum áfengi, tóbak,
kaffi og bensín. Vinsældir Trier
sem verslunarborgar má líka án
efa að hluta rekja til þess að versl-
anir eru nær allar á sama blettin-
um. Af 160 þúsund fermetrum
verslunarrýmis í borginni eru alls
90 þúsund í gamla miðbænum og
þar eru nær einvörðungu göngu-
götur og því mjög þægilegt að
athafna sig við innkaup. En Tner
er ekki bara verslanir og ætti
hver sá sem þangað leggur leið
sína að gefa sér smá tíma til að
skoða allt sem borgin hefur að
bjóða.
Elsta borg- Þýskalands
Trier er nefnilega hvorki meira
né minna en elsta borg Þýska-
lands og á sér rúmlega 2000 ára
merkilega sögu sem nær allt aftur
til tíma Rómaveldis. í kvæði sem
á rætur að rekja til miðalda er
jafnvel sagt frá því að Trebeta,
stjúpsonur Semiramis, konungs í
Babýlon, hafi komið sem flótta-
maður til Mósesdalsins og byggt
þar borg sem bar nafnið Treberis.
Á þessari sögu byggist líka áritun
sem er að -finna á húsi einu á
aðaltorgi borgarinnar. Á húsinu,
sem reist var 1683, stendur:
„Ante Rornam Treviris stetit ann-
is mille trecentis perstet et aet-
erna pace fruatur", sem þýðir:
Trier var til þrettán hundruð árum
fyrir Róm, megi hún áfram standa
og njóta eilífs friðar. Hvað sem
öllum sögum um Babýlon-kónga
líður, virðast sagnfræðingar vera
sammála um að nafn borgarinnar
sé dregið af hinum keltneska þjóð-
flokki Treverum en þeirra er m.a.
getið í frásögnum Caesars af
Gallíu-stríðunum.
Á árunum 20-19 fyrir Krist hóf
Vipsanius Agrippa, æðsti hers-
höfðingi Ágústínusar keisara
Rómaveldis, að byggja upp vega-
kerfið í Gallíu. Var ein mikilvæg-
asta leið þessa vegakerfis sú sem
lá í gegnum borgimar Lyon, Metz
og Trier að Rín og tengdi þar
með norður- og suðurhluta Róma-
veldis. Það er um þetta leyti sem
borgin Augusta Treverorum er
stofnuð og bendir nafnið til að
það hafi verið gert að beinu frum-
kvæði Ágústínusar. Á næstu
árum varð borgin æ mikilvægari
vegpia hinnar hernaðarlega mikil-
vægu legn sinnar í Móseldalnum,,
sem hafði þó líka í för með sér'
að hún fór ekki varhluta af átök-
um milli Rómverja og Germana..
I lok þriðju aldar varð svo Au-
gusta Treverorum, eða Treveris;
eins og hún var nú nefnd, að einnii
af fjórum höfuðborgum Róma--
veldis og þar með að mikilvæg-
ustu borg Vestur-Evrópu. Ekki
verður hér rekin frekar saga borg-
arinnar, þó um hana mætti skrifa,
langt mál, en þess má geta að á
miðöldum tók nafnið Tryer við af'
Treviris og strax á 16. öld var
nafnið Trier orðið nær allsráðandi.
Sögulegar minjar
Trier ber þess enn þann dag í
dag greinileg merki að hafa verið
ein af höfuðborgum Rómveija.
Mega menn vart stinga niður
skóflu án þess að koma niður á
einhveijar rómverskar rústir, sem
getur, eins og gefur að skilja,
orðið til vandræða þegar mikið
liggur á byggingarframkvæmd-
um. Frægasta arfleifðin frá
tímum Rómveija er hið gamla
borgarhlið, Porta Nigra, sem orð-
ið er að tákni borgarinnar. Porta
Nigra, eða Svarta hliðið, var upp-
haflega norðurhhð hins 6,4 kíló-
metra langa varnarmúrs sem eitt
sinn umlukti borgina. Það var
byggt á annarri öld en hlaut nafn
sitt fyrst á miðöldum er hliðið
hafði öðlast hinn svarta lit sem
það ber enn þann dag í dag. Upp-
haflega voru borgárhliðin fjögur
en einungis Porta Nigra stendur
enn. Varð það til að bjarga hliðinu
að á miðöldum tók kirkjan það í
sína þjónustu og breytti því í
kirkju. Ekki síður mikilfengieg er
hin risavaxna „Basilika“. Bygging
þessi var upphaflega reist sem
höll fyrir keisara Rómaveldis en
þjónar í dag sem kirkja mótmæ-
lenda eftir að hafa verið afhent
söfnuði þeirra árið 1856. Basilik-
an hefur margoft orðið fyrir alvar-
legum skemmdum sökum stríðsá-
taka (síðast árið 1944) en ávallt
verið reist að nýju. Af öðrum
merkum minnisvörðum má nefna
hringleikahús (Amphitheater)
sem reist var um árið 100. Þar
gátu á sínum tíma allt að 20.000
áhorfendur fylgst með þeim leikj-
um sem þá voru í tísku, bardögum
skylmingamanna jafnt sem átök-
um við villt dýr. Þá er í Trier einn-
ig að finna gömul rómversk bað-
hús auk fjölda annarra bygginga.
Öll eru þessi minnismerki opin
almenningi og standa annaðhvort
í miðbænum sjálfum (Porta Nigra,
Basilika) eða þá í hæfilegri göngu-
fjarlægð frá honum (Amphitheat-
er, baðhús).
Fyrir þá sem gaman hafa af
því að skoða gamlar byggingar
er í miðbænum fjöldi fallegra
bygginga sem eiga sögu að rekja
allt aftur til miðalda. Aðaltorg
borgarinnar, Hauptmarkt, þar
sem helstu verslunargötur mæt-
ast, er til dæmis talið vera með
allra fallegustu torgum Þýska-
lands.
Kaffihús
Að lokinni gönguferð um borg-
ina, eða á meðan á henni stend-
ur, má svo heimsækja eitthvert
hinn fjölmörgu kaffihúsa sem þar
er að finna. Mörg er þau í gömlum
fallegum byggingum sem einar
væru heimsóknar virði. Ekki
skortir heldur veitingahús eða
knæpur fyrir þá sem það kjósa.
Meða! ágætra veitingahúsa í mið-
borginni má nefna staðina Zum
Domstein við Hauptmarkt (stað-
urinn sérhæfir sig m.a. í róm-
verskum réttum) og Brasserie,
sem er í Fleischstrasse, einni af
götunum út frá Hauptmarkt. Er
sá staður í eigu Bitburger-brugg-
hússins og þar er að finna góðan
mat, skemmtilega stemmningu og
besta bjór borgarinnar. Fyrir þá
sem eru á ferðinni að sumri til
má líka benda á veitingahús sem
helsta brugghús borgarinnar (Tri-
erer Löwenbráuerei) rekur. Það
er við hliðina á brugghúsinu, á
einni af þeim hæðum sem um-
lykja borgina. Yfir sumarmánuð-
ina borða menn utandyra í garði
brugghússins.
Vínrækt
En þó mikið sé bruggað af bjór
í Trier er borgin samt mun þekkt-
ari fyrir vín sín. Trier er helsta
borg Móseldalsins og eru Riesl-
ing-vín hennar talin vera með
betri vínum þess héraðs. I þorpinu
Trier-Olewig, sem er örskammt
frá miðborginni (fimm mínútur í
bíl), geta menn heimsótt vínbænd-
ur og kynnst framleiðslu þeirra.
Flestir reka þeir líka veitinga- og
jafnvel gistihús samhliða vínrækt-
inni. Frá fyrsta maí til loka sept-
ember er einnig hægt að fara í
klukkustundar langa kynnisferð
daglega um vínekrurnar. Ef menn
taka þátt í vínprufu er kynnisferð-
in (sem hefst kl. 11.00) ókeypis
en annars kostar hún 25 mörk.
Trier er líka tilvalinn upphafs-
staður fýrir ökuferðir um Móseld-
alinn, eða þá bátsferðir. Frá miðj-
um maí til miðs október fer feija
daglega frá Trier (kl. 9.15) til
Bernkastel og til baka. Einnig er
m.a. boðið upp á ferðir upp Mósel
og Rín til Koblenz og Dússeldorf.
Alls eru rúmlega sextíu hótel
og gistihús í Trier. í þeim eru um
2.600 gistirými. Þau eru eins og
gefur að skilja misjöfn að stærð
og gæðum og kostnaðurinn eftir
því. Ætti hver sem er að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Með-
alverð á gistirými er um 40-80
mörk eða sem nemur u.þ.b.
1.500-3.000 íslenskum krónum
fyrir manninn. Dýrari jafnt sem
ódýrari gistingu er einnig hægt
að finna. Upplýsingamiðstöð fyrir
ferðamenn er við hliðina á Porta
Nigra og gefur hún allar upplýs-
ingar um hótel, kynnisferðir og
annað.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15. SEPTEMBER 1990 1 1
I.