Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1990, Page 12
B Æ 1 L A R
Chevrolet Blazer er eigulegur híll.
Nýr og lengri Chevrolet Blazer
Fernra dyra Blazer er líka orðinn lengri en fyrri gerðir og þar með rúmbetri.
Chevrolet Blazer S-10 er nú með nýrri
árgerð fáanlegur með nokkrum nýjung-
um og er sú hin helsla að hann er nú
fernra dyra og orðinn 16 cm lengri. Blaz-
er hefur kannski ekki verið svo mikið
upp á ferðinni undanfarin misseri en
hann á þó fullt erindi í samkeppni við (
ýmsa jeppa. Hann er í þriggja milljón
króna flokknum enda með allstórri vél,
vel búinn og glæsilegur jeppi og þess
vegna stendur hann vel að vígi í saman-
burði við japönsku jeppana sem eru sama
verðflokki. Það er Jötunn við Höfða-
bakka í Reykjavík sem hefur umboð fyr-
ir Blazer eins og aðra bíla frá GM.
Blazer hefur státað af góðum viðtök-
um í heimalandinu, Bandaríkjun-
um, allt frá því hann kom fram
árið 1983. Hann hefur verið þar
einn söluhæsti bíllinn í flokki jeppa eða
ferðabíla og með þessari nýju fernra dyra
árgerð er honum ætlað að ná enn á ný
góðri stöðu.
Blazer er hreinn og beinn í útliti, hann
er myndarlegur jeppi og óhætt er að segja
að hann sé fallegur og laus við prjál. Fernra
dyra útgáfan er 4,42 cm langur en tvennra
dyra 4,26. Blazer er 1,56 m hár og 1,63 m
breiður. Lengd milli hjóla er 2,67 m og 2,51
á styttri gerðinni. Hann vegur nærri 1700
kg og ber um 800 kg.
Ríkulegur búnaður
Staðalbúnaður í þeirri gerð Blazer sem
fluttur er hingað til lands verður þessi:
Vélin er 4,3 lítra og sex strokka 160 hest-
afla bensínvél. Hann er búinn læsivörðum
hemlum (ABS), ijögurra þrepa sjálfskipt-
ingu þ.e. með yfirgír, vökvastýri og velti-
stýri, raflæsingum á hurðum, rafknúnum
rúðuvindum og hægt er að opna afturhlera
með rofa í mælaborði. Þá kemur hann með
toppgrind og vindskeið að aftan, útvarpi
með segulbandi og fjórum hátölurum, gler
í afturgluggum er litað og mælaborðið er
stafrænt. (Þessa gerð ætti þó kannski alveg
eins að kalla myndræna). Hjólbarðar eru
15 þumlunga og þeir eru á álfelgum.
Blazer er einnig stór og mikill bíli að
innan. Framstólamir eru sæmilega góðir,
mættu vera heldur stífarFog bekkur er fyr-
ir þijá afturí. Þar er allgott rými fyrir full-
vaxið fólk og alveg óhætt að bjóða upp á
langferð með fímm fullorðna í bíl sem þess-
um.
Farangursými er yfrið nóg og hægt að
leggja fram aftursætið til að auka íýmið
um allan helming. Varahjól er fest á grind
við afturhlerana og þarf að víkja henni til
hliðar áður en komist verður að farangurs-
rými. Grindin sjálf var ekki nógu vel stillt,
átti það til að skrölta lítið eitt þegar ekið var
í holum. Má kannski búast við að þessi
búnaður geti orðið til leiðinda en það er líka
oft hálfgert vandræðamál hvar koma á vara-
hjóli fyrir því sé það sett inn tekur það of
mikið af farangursrými.
1 X . ~~ ~~?r \
Farangursrýmið er gott en umgangur er þægilegri með hurðum en ekki hler-
um eins og hér er í boði.
'
Mælar eru með þessu nýja yfirbragð’ •
stafrænum mælum,
Ahugaverður
Fyrir bílinn með þessum búnaði þarf að
greiða 3,1 milljón króna að viðbættum 32
þúsundum fyrir skráningu og í’yðvörn. Verð-
inu má þoka rétt niður fyrir þijár milljónir
sé greiðslu snarað á borðið í einu lagi.
Og hvernig er síðan að meðhöndla þessa
fjárfestingu? Í fáum orðum sagt er það í
senn áhugavert og skemmtilegt. Blazer er
stór bíll en það er eins og oft áður með
stóra og vel búna bfla að stórir hliðarspegl-
arnir, gott útsýni, það að ökumaður situr
hátt, sjálfskiptingin og vökvastýri gera það
að verkum að það er næsta auðvelt að
meðhöndla bílinn. Það þarf að leggja nokkr-
um sinnum í þröng stæði til að fá góða til-
finningu fyrir stærðinni og eftir það eru
ökumenn á Blazer færir í flestan sjó.
Vélin gefur frá sér hraustlegan og nota-
legan dyn (sem er þó langt frá því að vera
hávaði) þegar ekið er af stað. Viðbragðið
er gott og kraftur með ágætum og hann
skiptir sér mjúklega. í þjóðvegaakstri á
miklum hraða er sjálfsagt að nota yfirgírinn
en venjuiegan 3. gír (drive) í bæjarakstri.
Ekki var mikið farið út fyrir venjulegan veg
en bíllinn var þó aðeins reyndur í lágdrifi*#
brekkum. Brekkurnar renna undir vélar-
hlífina án tiltakanlegrar áreynslu en það er
nú svo með bíl af þessari fjárfestingarstærð-
argráðu að varla verður honúm boðið hvað
sem er í ófærum jafnvel þótt getan sé fyrir
hendi. Hann er miklu fremur góður ferðabíll
- er þar raunar í sérflokki - því hann ber
auðveldlega fimm manns með miklum ferða-
búnaði.
Sæmileg fjöðrun
Fjöðrunin er sæmileg, gormar að framan
en fjaðrir að aftan, og eru þær nokkuð
stífar þegar bíllinn er léttur en ættu að njóta
sín betur þegar nokkur hleðsla er um borð.
Stýrið er nákvæmt og hemlar eru læsivarð-
ir sem veitir góða öryggistilfinningu.
í heildina má segja að Blazer sé áhuga-
verður bíll og hann hefur upp á margt að
bjóða með öllum þessum búnaði. Mikill kost-
ur er að hann býðst nú fernra dyra og
lengri sem gefur betra rými fyrir aftursætis-
farþega því lengingin er á milli hjólanna en
ekki í farangursrýminu.
Enn um rafbíla
Umræða um raíliíla sprettur upp öðru
hverju og má segja að með reglulegu
millibili hafi menn þóst sjá fram á að
fjöIdafram 1 eiðsIa þeirra væri á næsta
leiti. Þannig hefur það verið í nærri
heila öld, allt frá því fyrsti rafknúni
bíllinn hóf að akstur.
I Bretlandi eru nú um 200 rafbílar á
götunum en þar sem annars staðar standa
nokkur vandamál fjöldaframleiðslu rafbíla
fyrir þrifum. Fram að þessu hefur bensín
verið tiltölulega ódýr orkugjafi og enn hefur
ekki tekist að framleiða rafgeyma sem eru
nógu léttir.
Chloride rafgeymafyriitækið í Manchest-
er í Englandi hefur í næsta mánuði fram-
leiðslu á geymum sem eru léttari en hingað
til hefur þekkst. Með geymum sem vega
500 kg á að vera hægt að aka 240 km án
hleðslu sem er í flestum tilvikum nægilegt
í venjulegum fjölskyldubíl. Geymarnir eiga
að endast í þrjú ár en það myndi kosta um
250 þúsund krónur að endurnýja þá. Dag-
legur rekstarkostnaður er hins vegar lítill,
um 12 kr. á km miðað við um 60 kr. á km
hjá venjulegum bíl.
Nokkrir bílaframleiðendur sinna stöðugt
rannsóknum á þessu sviði og má þar nefna
Ford, Fiat, Volkswagen og í næsta mánuði
mun GM í Bandaríkjunum senda frá sér bíl
sem ætlunin er að bjóða einnig rafknúinn.
Enginn bandarísku bílarisanna hafa áður
verið svo nálægt því að bjóða fjöldafram-
leiddan rafknúinn bíl.
Rafbílar eru því enn ekki komnir á al-
mennan markað en ennþá er hægt að segja
að þeir séu á næsta leiti.
jf
12