Lesbók Morgunblaðsins - 06.10.1990, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 06.10.1990, Page 7
Þórir Barðdal ásamt einu verka sinna, þar sem hann teflir saman fáguðum marmara og grófum. allt uppí loftið, hver skýjakljúfurinn við annan, allt úr mamiara og gleri. Við hjónin erum með stórar og góðar vinnustofur á leigu og leigan er vel viðráð- anleg. Þarna er hægt að lifa ódýrt, en afskaplega auðvelt einnig að lifa dýrt. Við höfum verið heppin, kynnst góðu fólki og fundið að við vorum velkomin. Það hefur ótrúlega mikið að segja að mæta stuðn- ingi og uppörvun. Fyrirtæki hafa til dæm- is verið hjálpleg með efni, en efniskostnað- ur er stór liður hjá myndhögvara. Ég vinn mikið í marmara og hef fengið hann með mjög góðum kjörum. Þau verk sem ég hef unnið í Houston hafa líka feng- ið góðar viðtökur.“ „Marmari segir þú. Mér finnst ég tæp- ast hafa séð þeð eðla efni í nútíma skúlpt- úr.'Menn nota allskonar stein, málma, tré og gler. Og svo mála menn þetta kannski og mörkin á milli málverks og skúlptúrs geta orðið ógreinileg. Ég man þó eftir einni „Augað“, grásteinn, tré og marmari, 1990. eða hugmyndalist, skiptir formið alls engu máli eftir því sem ég bezt veit. Ég er mjög mikið á móti því, að lista- menn séu sífellt að tjá sig um þjáningu og Ijótleika. Margir eru hræddir við það fagra og svo langt getur þessi öfugsnún- ingur gengið, að það fagra sé beinlínis talið andstaða við list. Ég er algjörlega á móti þeirri skoðun. Með því sem gert er í myndlist erum við að búa til framtíðina, að minnsta kosti að hluta til. Vitaskuld eru þjáningar og ljótleiki hluti af samtíðinni. Það er afar auðvelt að finna slíkt myndefni. En það er meiri áskorun að tjá sig um það sem er æðra í manninum. Af því er ekki nógu mikið gert nú á dögum. Með þessum fáu verkum, sem ég sýni í Stöðlakoti, er ég að synda gegna straumi. Ég bendi á ljósið og vona að einhveijir komi til að sjá það. Gísli Sigurðsson. PÁLLJANUS ÞÓRÐARSON Til veiða í Langadal Hvað þráir mannlífið meira en mega losna úr þrasinu? Hafa árnið í eyra, ilminn fmna úr grasinu, líta til lofts og heiða, þar lífið er frjálst og skínandi. Allt horfir til hamingjuleiða og hugarstreitan fer dvínandi. Nú þegar er flestu til blessunar breytt og burt ér ég angrinu frá. Eghorfi upp í loftið oghugsa ekki neitt þar himneska hvíld er að fá. Hálsar og lyngbrekkur baðaðar sól, brosandi runnar og iður. Þá lifnar í brjóstinu líkt og um jól, að lífið sé dásemd og friður. Og Langadalsáin með lágværum klið leiðir að hafinu rekur, þar laxinn sér veltir svo knálega á kvið. í kjaftvikið fluguna tekur. Höfundur er verkstjóri á vörulager Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna. Ljóðið er úr nýlegri Ijóðabók hans, sem ber heitið Geislabnot. er mín afstaða mjög frábrugðin því sem ég hef kynnst hjá myndhöggvurum á líku reki. Ég tel, að í verkum mínum sé ákveð- inn skyldleiki við verk Einars Jónssonar, sem alltaf vann með andleg gildi. Ekki svo að skilja, að ég noti eingöngu marmara. Stundum nota ég einnig tré ásamt marmara og fágaðan mar'mara á móti grófum. Með þvi er ég þó ekki að fá fram áhrifin frá fáguðum fleti á móti grófum. Fágunin er tilraun til að sjá lengra inn í marmarann og stundum þynni ég hann þar til birtan berst í gegnum hann. Þetta hefur samsvörun í mannlífinu. Eftir því sem maður slípar sjálfan sig betur, nær maður meiri dýpt i sjálfan sig, ef svo mætti segja. Það er hveiju orði sannara, að nútíma skúlptúr leitar í allar áttir; breiddin er allt- af að vaxa. En það er varla hægt að tala um, að einhver ein stefna sé ofaná. í bandarísku málverki hefur mátt sjá þjóðfé- lagsgagnrýni, en ég hef ekki séð það í skúlptúr. Hvað sjálfan mig áhrærir, þá er eitt ljóst: Fyrst leita ég .að andlegu inntaki, síðan kemur formið. Hvort slík aðferða- fræði sé á nótum konseptlistar veit ég ekki, það má vel vera að svo sé. Munurinn er þó að minnsta kosti sá, að í konsepti, GÍSLI GÍSLASON Söknuður Þið farín húsið eins og deyr í fangi mínu ég ráfa herbergi úr herbergi leita ykkar mér finnst ég heyra hlátur bak við hurð en þið eruð löngu farin og ég er villtur í ókunnu húsi Höfundur er Reykvíkingur og hefur gefið út elna Ijóðabók. SIGURÐUR ÁRNASON Ortum Kjarval áttræðan Einn komst Kjarval alla leið upp á hæsta tindinn. Um gekk létt, þar annar skreið óttaðist ekki vindinn: Allt þitt líf var listræn mynd léstu blóm þín anga við hamrafjöll og heiðaríind og hár um ljósan vanga. Þú málaðir líf í mel og sand mosa og grýttan haga. Þú hefur auðgað okkar land alia þína daga. Höfundurinn er fæddur 14. júlí 1900. Hann var bóndi á Vestur-Sámsstöðum í Fljótshlíð. Að náminu loknu ákvað Þórir að setjast ekki að á íslandi fyrst um sinn. En í stað þess að setjast að í Þýzkalandi, þar sem hann var orðinn hagvanur, hélt hann vest- ur um haf til Bandaríkjanna og var í Hous- ton í Texas um tveggja vetra skeið, en heima á íslandi sumarið á milli. Nú hefur hann afráðið að setjast að í Housten ásamt konu sinni, Sigrúnu Ólsen, sem er málari. En hversvegna að flytjast til Banda- ríkjanna þegar ekki er fjærri lagi, að Þýzkaland hafi náð svo sterkri stöðu í myndlist, að naumast kraumar heitar í pottunum annarsstaðar? „Ég. vildi aldrei setjast að í Þýzka- landi“, segir Þórir. „Aftur á móti kann ég einstaklega vel við mig í Houston. Það var þessi kaldi agi og harka í Þýzkalandi, sem áttu ekki við mig. Þó var það ekki ein- kenni á skólanum; hann var að mörgu leyti eins og andstaða við samfélagið að öðru leyti, - þar kristallaðist ákveðin þjóðfélags- uppreisn. Ameríka er miklu blíðara samfé- lag; að minnsta kosti er það svo í Hous- ton. Af stórborg að vera er Houston mjög blíðleg og mér hefur liðið vel þar. En hún er samt skrýtin borg, svona gífurlega víðáttumikil og lág í loftinu unz komið er að tiltölulega litlu banka- og viðskipta- hverfi í miðpunktinum. Þar rís allt í einu skúlptúrsýningu, sem ég sá einmitt í Hous- ton fyrir þr-emur árum. Hún var eftir ein- hvern Jesús María Morales ög hann virtist nota eingöngu marmara.“ „Það er rétt, að marmari sést sjaldan í nútíma skúlptúr. Hann hefur éitthvað klassískt við sig, ákveðinn hreinleika og af steini að vera er hann alls ekki erfiður í vinnslu. Hættan er þó sú, að hann brotni eða að úr honum kvarnist í vinns.lu. Þá er er það ónýtt, nema verkinu sé breytt. Það sést alltaf, þegar reynt er að líma það sem brotnar. Marmari fellur vel að þeim hugmyndum, sem ég vinn með. Þá á ég við samspil efnis og anda, - eða andann í efninu.“ „Fljótt á litið mætti ímynda sér, að verk þín séu hreinn formalismi, það er að form- rannsóknin sé þér efst í huga likt og oft var hjá módemistunum hér fyrr á öldinni. En er það kannski of skammt athugað?" „Já, það væri alröng niðurstaða. Þetta er ekki formalismi eða einhverskonar hrein formfræði. Formin eru samt einföTd og hreinleg að ég held. Ég er samt fyrst óg fremst að hugsa um andlegt inntak. Eins og þú sérð er oft gat í miðju verki. Sjálfur kjaminn er gat eða tóm, sem merkir, að andinn er ósnertanlegur. Að þessu leyti LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 6. OKTÓBER 1990 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.