Lesbók Morgunblaðsins - 06.10.1990, Side 15
„Ábyrgð okkar er niikil. Hvernig er hægt að fylgjast með ofkæl-
ingu í áfengisdauða, þegar fjöldinn skiptir þúsundum?"
Tré rifin upp með rótum.
ræktin ætti að vera hinn sjálf-
kjörni leiðtogi, en hún hefur sorg-
lega lítil afskipti af staðnum. Það
vantar frumkvæði og yfírstjórn
til að hlutir gangi betur. Menn-
eiga ekki að bauka hver í sínu
horni við uppbyggingu og viðhald
á þessari einstæðu gróðurvin."
En það er ekki aðeins Þórsmörk
og viðkomustaðir á leið þangað,
sem eru í hershöndum. Hvað um
ástandið á tjaldsvæðum á ísafirði
og Akureyri, þar sem allt var brot-
ið og bramlað í sumar? Og .loka
varð stórum svæðum í Vaglaskógi
eftir verslunarmannahelgi í sumar
vegna hroðalegrar umgengni.
„Villidýr“ lögðu Vaglaskóg
undir sig
„í Vaglaskógi var engin úti-
skemmtun um verslunarmanna-
helgi,“ segir Sigurður Skúlason
skógarvörður. „Hér er opið tjald-
svæði fyrir útlenda ferðamenn og
íslendinga. Samkvæmt lögum á
að ríkja ró á almennu tjaldsvæði
eftir miðnætti. En það var aldeilis
ekki. Fólk kemur gjarnan hingað
að loknu skemmtanahaldi, frá
nærliggjandi þéttbýlisstöðum í
þeim tilgangi að halda skemmtun
sinni áfram. Um sl. verslunar-
mannahelgi voru það ekki ein-
göngu unglingar sem stóðu fyrir
Klósettseta notuð sem andlitshlíf.
látunum líka fólk nálægt
þrítugu. Ég get ekki líkt ástand-
inu við annað en villimennsku.
Fólk breyttist í villidýr, strax og
komið var inn í skóginn. Og við
sem eigum að heita skógarverðir,
réðum ekki við neitt.
Allt brotið sem hægt var að
brjóta. Öllum dyrum af salernum
svipt af. Tjöldum og svefnpokum
hent í ána. Tré „skreytt" með
salernispappír. Menn urðu ræn-
ingjar og þjófar í hita leiksins og
geysimiklu var stolið úr tjöldun-
um. Við reyndum að tæma rusla-
tunnur, en fólk hvolfdi jafnóðum
úr þeim á jörðina. Umgangur var
hroðalegur. Matarleifar og
margskonar óhroð. Þó voru gler-
brotin verst. Fólk tæmdi allt drasl
úr tjöldum við tjaldskör.
Mannleg villidýr voru með
skóginn á valdi sínu. Við reyndum
að gæta þess að enginn færi sér
að voða og ég þakka fyrir að það
skyldi takast. En tjaldbúar voru
margir virkilega hræddir um líf
sitt. Krakkar komu til mín, sem
þorðu ekki að nálgast tjaldið sitt.
Og ég sá ofsahrædda, útlenda
ferðamenn, á hröðum flótta. Ann-
ars forðast útlendingar Vagla-
skóg. Kannski erum við búin að
fá svona slæmt orð á okkur.
Tjónið er mest af glerbrotum,
sem hafa troðist niður í jörðu og
koma til með að ganga upp um
áraraðir. Snyrtingar eru orðnar
það illa farnar eftir ítrekaðar ár-
ásir að endurnýja þyrfti þær all-
ar. Við höfum til skamms tíma
verið að fiska verðmæta hluti upp
úr ánni, eins og tjöld, bakpoka
o.fl. Fólk er alltaf að koma hingað
og spyija hvort þetta eða hitt
hafi fundist, sem stolið var frá
því.“
Það er eitthvað mikið að
„Þegar meirihlutinn er farinn
að haga sér svona, er eitthvað
mikið að. Við erum með ýmislegt
í bígerð fyrir næsta sumar. Auð-
vitað vildum við helst að hingað
kæmi aðeins rólegt fjölskyldufólk
eða takmarka fjölda inn á svæðið.
En það er erfitt, þar sem þjóðveg-
ur liggur í gegnum Vaglaskóg.
Þess vegna verður að gera eitt-
hvað fyrir unglinga og skipu-
leggja útiskemmtanir. Krakkarnir
verða miklu rólegri, ef þau hafa
eitthvað við að vera. Annars æða
þau bara um og fylla sig af bjór
og brennivíni.
En það er ljóst að svona versl-
unarmannahelgi verður ekki end-
urtekin í Vaglaskógi. Sú snyrtiað-
staða sem var fyrir hendi nægði
sæmilega fyrir 2-300 manns, en
fjölgun er geysileg. Gistinætur
orðnar 15 þúsund á móti 8 þúsund
í hittiðfyrra. Stefna okkar er að
endurbyggja snyrtiaðstöðu í miklu
hærri gæðaflokki. Gera allt sem
við getum til að umhverfið bjóði
upp á betri umgengni. Síðan verð-
um við að bíða og vona, að allt
verði ekki eyðilagt aftur um eina
helgi."
Lágmenning eða brostin
siðferðiskennd?
„Sýnishorn af því versta sem
bresk lágstétt býr yfir,“ segja
Bretar um unglingahópana sem
tröllríða Korfú. Er þá lágmenning
og brostið siðgæði að ná yfirhönd-
inni á íslenskum útivistarsvæðum?
Við höfum býsnast yfir umgengni
hjá þjóðum sem til skamms tíma
hentu öllu út um gluggann hjá
sér. En erum við nokkuð betri,
þegar slíkt virðingarleysi ríkir í
umgengni á fegurstu gersemum
íslenskrar náttúru, þegar sjálfs-
virðing ungra íslendinga er á
svona lágu stigi?
Sú spurning hlýtur að vakna,
hvort ekki sé kominn tími til að
við lítum í eigin barm varðandi
umgengni á ferðamannastöðum.
Það er að verða klisja hjá mörgum
sem tjá sig um ferðamál, að út-
lendir ferðamenn far illa með
landið og sökin sé eingöngu þar.
En hvað með okkur sjálf? Þurfum
við ekki að taka rækilega til í
okkar eigin garði?
Framangreint ber að líta á sem
nokkrar svipmyndir af ógeðfelldu
framferði, sem við getum ekki
lokað augunum fyrir. Vonandi eru
þeir Islendingar í miklum meiri-
hluta sem kunna að umgangast
land sitt með reisn og virðingu.
Oddný Sv. Björgvins
allt sem höfðar til breskrar lág-
stéttar. Diskótekin eru opin fram
á rauðan morgun fyrir Bretana,
sem fá ódýrt ouzo (sterkt grískt
vín) og tequila, áfengan eplasafa
og bjór í stríðum straumum.
Skipulagðar ferðir til Kavos
hófust um 1970. Fyrir þann tíma
voru aðeins 5 þorpskrár og örfá
herbergi leigð út fyrir ferðamenn.
Fyrstu diskótekin voru byggð
1981. „Síðan diskótekunum tók
að fjölga ört eða frá 1986 hefur
þorpið verið á hraðri niðurleið,"
segir Metexas. „Ég var með upp-
lýstan gosbrunn og gerði mitt til
að skapa vistlegt umhverfi, en
þeir eru búnir að bijóta allt nið-
ur.“
Um kl. 16 síðdegis er ástandið
orðið alvarlegt á ströndinni. Tóm-
ar flöskur þekja sandinn eins og
tóm sprengjuhylki. Fyrirliði hóp-
anna situr á upphækkuðum palli,
með hátalara í hönd. Endalaust,
miður fagurt kynferðislegt rugl
streymir yfir sljóa sólbaðsdýrk-
endur, sem sumir hveijir eru
farnir að fækka fötum ískyggi-
lega. Orðaval og framburður eru
ekki til að upphetja enska tungu.
Mannþröngin á aðalgötu kl. 8
um kvöldið, lofar ekki góðu fyrir
nóttina. Þéttdrukknir unglingar
fylkja sér í hópa, 10-12 saman.
Vígalegir, svírasverir stutt-
buxnagæjar reka hausana á und-
an sér. Augu þeirra blóðhlaupin
eins og hjá bolum í vígahug.
Ferðast um langan veg til að leggjast í dá. „Með ódýrum verðum og lélegri aðstöðu, fáum við
svona fólk til okkar,“ segir fulltrúi einnar ferðaskrifstofu í Korfú.
Nokkrir eru krúnurakaðir. Aðrir
húðflúraðir og drekasporðar,
amarhöfuð eða tígrisdýr liðast
um hendur og fætur. Allir eru
þeir á höttunum eftir „fjöri“, sem
brýst út í slagmálum, ofbeldi og
skemmdarverkum. Og flestir
flagga þeir fatnaði með litum
breskra fótboltaliða. Stúlkur í
stuttpilsum og klingjandi hælas-
kóm, með lakkaða hárenda,
fylgja þeim fast eftir og öskra
hvor á aðra eins og villidýr.
Klukkan 2 um nóttina er
ástandið orðið skelfilegt. Hávaði
frá brotnandi gleri blandast við
yfirþyrmandi diskótóna. Dauða-
drukknir unglingar liggja eins og
hráviði í götukantinum. Félagar
þeirra ganga yfir þá eða sparka
þeim til hliðar. Opin sár eða blóði
drifin föt eru algeng sjón um
þijúleytið. Fyrr í sumar lést
skoskur piltur í Kavos. Myrtur,
samkvæmt útvarpsfréttum í
Korfú. Dánarorsök: hálsbrot.
„Þeir eru mjög margir sem valda
vandræðum," segir breski kons-
úllinn á Korfú, Pippa Hughes.
„40 unglingar hafa verið hand-
teknir í sumar, einn hefur látist
og mikið er um alvarleg meiðsli.“
„Þeir eru allt öðruvísi og það
skelfir okkur,“" segir Helen
Maroudis, fyrrum formaður fé-
lags leiðsögumanna á Korfú.
„Við höfðum meira álit á Bretum.
Breskir ferðamenn, sem koma til
Korfú eru vonandi langt fyrir
neðan meðalgreind á Bretlandi.
í skoðunarferðum með þeim, hef
ég prófað þá með því að segja
eitthvað rugl, en enginn tekur
eftir því. Þá hef ég spurt sjálfa
mig, hverskonar fólk ég sé eigin-
lega með. Stundum vita þeir ekki
hvar þeir eru. Þeir hafa ekki
áhuga á neinu og þeim virðist
hundleiðast.“
íbúar í Korfú kenna sér að
miklu leyti um ástandið. „Þetta
er okkar sök,“ segja margir.
„Verðið er of lágt. Uppbygging
á gistirými og vínbörum hefur
verið of hröð. Allt verið lagt í
sölurnar til að ná í sem flesta
ferðamenn. Korfú minnir víða á
úthverfin í Beirút. Nálægt höfuð-
borg Korfú, eru ferðamannastað-
ir, sem líta út eins og aumustu
fátækrahverfi."
„Það er ekki hægt að horfa
framhjá því, að versta tegund af
ferðaþjónustu í heiminum er á
nokkrum stöðum á Korfú,“ segir
Pippa Hughes. Og nú ræða bresk
og grísk stjórnvöld leiðir til að
„að bjarga Korfú“ undan þess-
-um„bresku landgöngusveitum".
Þýtt og endursagt úr
Sunday Times. O.Sv.B.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 6. OKTÓBER 1990