Lesbók Morgunblaðsins - 01.06.1991, Blaðsíða 7
Yasumasa Morimura: „Leikið með guði IV: Dögun“, 1991.
Philippe Perrin: „This Is a Love Song“, 1991. Jeff Koons: „Röð af leikbrúðum", 1988.
myndir eftir Fische og Weiss sem minna
á glansmyndir í ferðaskrifstofubæklingum,
„barbídúkkumyndir“ Yasuma Morimura
og risastórar portrettljósmyndir af ungu
fólki eftir Thomas Ruff sem eiga ekki að
sýna hinn „innri mann“ heldur aðeins það
sem augað sér, svipbrigðalaus andlit. Engu
að síður er einhver undarlegur þokki yfir
þessum myndum Thomasar Ruff sem af-
sannar kenningu Walters Benjamins um
að „ára“ listaverksins hverfi með tilkomu
ljósmyndárinnar og fjölföldunartækninnar.
í einum af óteljandi hliðarsölum getur-
að líta hvítgljáandi plötur með eldavélahell-
um. Það er eins og Rosemarie Trockel vilji
undirstrika að undir gljáandi yfirborði hlut-
anna leynist ekkert. Auðvitað vantar ekki
skærustu stjörnu síðasta áratugar, Jeff'
Koons, með Jóhannes skírara og fleira.
fólk úr postulíni. Þarna er líka rass með1
nótnaskrift eftir Robert Gober, málverk
Ross Bleckners af stjörnunum, og dót upp
á hillum eftir Haim Steinbach. Einhvers
staðar rekst ég svo á installasjón eftir
Frakkann Philipe Perrin sem kallar sig
„son of a bitch“ og verk eftir Austur-Þjóð-
veijann Rainer Gröss sem er ekki enn
búinn að gera upp við sig hvort hann á
að stæla Beuys eða Kounellis.
í rauninni kemur fátt á óvart. METRO-
POLIS er í alla staði áhugaverð sýning
en Hún er tveimur árum of seint á ferð-
inni. Hlutirnir gerast svo hratt í dag að
postulínsstyttur Jeff Koons, svo sniðugar
sem þær eru, virka eins og frá löngu liðn-
um tíma. Ef ég ætti að nefna einhveija
listamenn sem komu á óvart, þá yrðu það
Ameríkaninn Robert Gober, Japaninn
Morimura og Tékkinn Otis Laubert. Einn-
ig mætti nefna Rússann Dimitri Prigow
og þá aðallega vegna þess að verk hans
Bruce Nauman: Dýra-pýramídi, 1989. - skúringakona umkringd blaðarusli sem
krýpur frammi fyrir risastóru auga guðs
eða flokksins — er svo gerólíkt því sem
þýsk-ameríska félagið er að gera.
Höfundur býr í Berlín.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 1. JÚNÍ 1991