Lesbók Morgunblaðsins - 27.07.1991, Síða 10
„Hveravallaskrepp“
Yfir beljandi jök-
ulfljót, snjófann-
ir og hitasvæði
með æpandi
grænum mosa
HAFÞOR Hveravallaskreppur
(réttu nafni Hafþór Ferdin-
andsson, kennari að mennt)
segir okkur frá skipulögðum
dagsferðum á Langjökul og
Torfajökul í sumar og hvers
vegna hann fékk viðurnefnið
(að góðum íslenskum sið) en
undirrituð sannfærist um, að
meðan Island á menn eins og
Hafþór Hveravallaskrepp,
verðum við í tengslum við nátt-
úruöflin.
Sjáðu, hér var ég
- Þú ert að bjóða upp á ferðir
á Langjökul og Torfajökul, Haf-
þór.
„Já, jöklasvæðin eru rétt að
opnast, en skipulagðar ferðir
verða út september. Langjökuls-
ferðin er fyrir þá sem vilja korn-
ast í snertingu við jöklana. Út-
lendingar eru mjög hrifnir af að
Iáta mynda sig á snjóbreiðunni
með íslenska fánann til að geta
sagt heima: Sjáðu, hér var ég!
Til að komast upp í jökulheima
ökum við um Þingvelli, Kaldadal,
yfir Geitá og inn í Þjófakrók.
Heimsækjum Surtshelli og
Hraunfossa á bakaleið.
Heyrðu góði, þetta eru
nú ýktir litir
Torfajökull og Hrafntinnu-
skerssvæðið höfðar kannski meira
til íslendinga og ferðin er meiri
jeppatúr yfir snjófannir og ófærur
t.d. ekið yfir Markarfljót. Leiðin
er eingöngu fær sérútbúnum bíl-
um. Eg ek upp hjá Keldum, þar
sem viðdvöl er höfð. Síðan Syðri
Fjallabaksleið, beygi við Laufafell
inn í Hrafntinnusker. Leiðin er
ólýsanlega falleg og iðulega eru
farþegar búnir með filmubirgðir
á miðri leið. En þarna er afar við-
kvæm náttúra og nauðsynlegt að
hafa góða stjórn á ferðamönnum
til þess að þeir valdi ekki náttúru-
spjöllum.
Otúlegar andstæður mæta aug-
anu. Hvítar snjóbreiður á móti
Hafþór
á snjó-
breiðunni
sem á hug
hans all-
an, í
Reykjadal
með
Hrafn-
tinnusker
í baksýn.
hitasvæðum með þessum æpandi
græna lit á mosanum. Fóik trúir
varla sínum eigin augum. Og í
myndaframköllun hefur verið sagt
við mig: Heyrðu góði, þetta hljóta
að vera eitthvað ýktir litir.
Af hveiju „Hvera-
vallaskreppur"?
Þegar ég byrjaði að fara til
Hveravalla, mátti telja virka
fjallabílamenn á fingrum annarrar
handar og vélsleðar voru ekki
komnir. En Hveravellir heilluðu
mig og tólf ára fór ég að skrifa
ritgerðir um ímyndaðar torfæru-
ferðir yfir Sandá - þyngdi bílinn
með gijóti, svo að hann flyti ekki
niður ána eða strengdi kaðal á
milli árbakka.
Fyrsta jeppann eignaðist ég 16
ára og varð að bíða í hálft ár eft-
ir bílprófi. Síðan lagðist ég í fjalla-
túra. Fór einbíla á föstudags-
kvöldum. Það mæltist nú ekki vel
fyrir að leggja út í óbyggðir und-
ir nóttina, en ekkert stoppaði mig!
Helst þurfti veðurspáin að vera
sem verst, svo mikill var áhuginn
á að lenda í svaðilför!
Á Hveravöllum hjá Jóhönnu og
Ólafí sást enginn, nema þessi „vit-
leysingur" frá Reykjavík á hálfs-
mánaðar fresti. Óg þegar menn
spurðu mig, hvemig ég hefði eytt
helginni, var svar mitt að sjálf-
sögðu: „Ég skrapp til Hvera-
valla.“ En það var bijálað veður
í bænum, sögðu menn og hristu
höfuðið. Og ferðir mínar komust
milli tannanna á fólki og viðurn-
efnið „Hveravallaskreppurinn“!
Gárungarnir fóru jafnvel að spyija
mig, hvort ég væri ekki kominn
með „áætlunarstubb“ niðri á BSÍ!
Vildi glíma við Stein-
grímsfjarðarheiði
Ég kenndi á Isafirði einn vetur
og Steingrímsfjarðarheiði var mér
ómótstæðileg. Heiðin var rudd
þriðjudaga og föstudaga, en ég
þurfti alltaf að fara deginum áð-
ur. Vildi glíma við þetta gilið eða
hinn vegarspottann. En í Hnífsdal
og Hólmavík töluðu menn um
bijálæðinginn sem fór alltaf deg-
inum áður en rutt var.
Heilladísir hafa fylgt mér um
fjöllin og gera það vonandi lengi
enn. Ég var fyrstur að aka yfir
Langjökul og fyrstur á bíl út að
Galtarvita. Nú er ég að undirbúa
bílferð yfir þveran Grænlandsjök-
ul. En ég geri mér grein fyrir að
þetta er oft stórhættulegt. Mikill
undirbúningur er nauðsynlegur,
Lýst er eftir nafni
á þessum fossi sem
heitir núna aðeins
„fossinn við Laufa-
fell“, geysilega til-
komumikill foss
sem er búinn að
týna örnefni sínu.
fyllsta aðgæsla og ekki sakar að
hafa töluverða reynslu að baki.
Loforð um Grímsvatnaferð
8. júní
Mér finnst ómetanlegt að geta
veitt ferðamönnum persónulega
þjónustu í óbyggðaferðum. Og ég
vildi ekki svíkja vini mína Morris
og Marin, frönsku eldfjallafræð-
ingana. Hafði leiðbeint þeim í 10
daga kvikmyndaleiðangri um
Heklusvæðið í síðasta Heklugosi.
Var búinn að lofa þeim leiðangri
um Grímsvötn 8. júní sl.
Þá lendi ég í veikindum hálfum
mánuði fyrir umtalaða ferð. Og
sem ég ligg þarna á spítalanum
að reyna að sannfæra læknana
um, að ég þurfi nauðsynlega að
losna fyrir 8. júní, kemur þá ekki'
kunningi minn í heimsókn, klapp-
ar á öxlina á mér og segir:
„Heyrðu Hafþór minn, þú þarft
ekki að hafa áhyggjur af Gríms-
vatnaferðinni, þau eru bæði dáin.“
A húðkeip niður rauðglóandi
hraunelfu
Morris og Marin fóru um allan
heim til að fylgjast með eldgosum.
En eiturskýið frá eldfjallinu á
Filippseyjum varð þeim yfírsterk-
ara. Ég gleymi aldrei hvað Morris
sagði, þegar hann stóð á 5-10
sentimetra storknuðu skæni yfir
rauðglóandi Hekluelfu. „Minn
æðsti draumur er að fara á húð-
keip niður fljótandi hraunelfu og
einhvern tíma á ég eftir að gera
það!“ Eldhraunið átti hann eins
og jöklarnir eiga mig.“
Hafþór og kona hans reka lítil
gistiheimili á Ljósvallagötu 24 og
í Sörlaskjóli 40. Og ævintýraferð-
ir eru á dagskrá sumar og vetur.
I Langjökulsferð er farið fimmtu-
daga og laugardaga kl. 8.00.
Verð kr. 6.400. A Torfajökul
föstudaga og sunnudaga kl. 8.00.
Verð kr. 7.600. Nánari upplýsing-
ar hjá Hafþóri í síma: 615551,
985-30678 og 985-25509. Fax:
615551.
Oddný Sv. Björgvins
Upplýsingamiðstöðvar opna
á Egilsstöðum og í Staðarskála
KAUPFÉLAG Héraðsbúa hef-
ur opnað nýja upplýsingamið-
stöð fyrir ferðamenn á tjald-
stæði sínu á Egilsstöðum. Öll
aðstaða fyrir ferðamenn á Eg-
ilsstöðum hefur þannig stór-
batnað. Tjaldsvæði KHB er i
hópi þcirra bestu á landinu og
þar gista árlega um 8.000
manns og fjölgar.
Upplýsingamiðstöðin er í nýju
155 mz húsi á tjaldstæðinu og þar
eru böð, snyrting, þvottavélar,
upplýsingamiðstöð, umferðarmið-
stöð ásamt aðstöðu fyrir starfs-
menn. Jafnframt er salur sem
nýttur er sem biðsalur og setu-
stofa fyrir gesti af svæðinu, t.d.
til að borða nesti eða bíða af sér
veður. Ferðamálafulltrúi Austur-
lands hefur aðstöðu í húsinu.
Tjaldsvæðið gefur ekkert eftir því
besta sem gerist erlendis í bún-
aði. Nú í sumar hefur verið unnið
að því að setja-upp raftengla fyr-
ir húsbíla og aðstöðu til að tæma
safntanka. Jafnframt má hlaða
þar útigrill. Kaupfélag Héraðsbúa
hefur alltaf rekið tjaldsvæðið og
kostað uppbyggingu án styrkja
frá opinberum aðilum ef frá eru
taldar 100.000 kr. sem Ferða-
málaráð veitti í fyrsta áfanga
hússins.
Arið 1968 hófst gróðursetning
á svæðinu og nú er trjágróðurinn
orðinn hávaxinn og veitir gott
skjól.
Einig er búið að opna upplýs-
ingahorn fyrir ferðamenn í Stað-
arskála. Þar aðstoðar Sígríður
Gróa Þórinsdóttir ferðamenn í
sumar. Hún er nýkomin frá námi
í ferðamálum erlendis. Ferðamál-
afélag V-Húnavatssýslu stendur
að rekstri upplýsingamiðstöðvar
ásamt Staðarskála og er hún
opin daglega frá 11 til 19.
Náttúruperla
og sögiislóð
veiðileyfi eru fáanleg í skólanum.
Líklega eru Hólar eini staðurinn
á landinu þar sem útbúinn hefur
verið leiðarvísir fyrir ferðamenn
til að ganga á milli sögulegra
minjapósta. „Söguslóð" kostar 50
kr. og er seld í upplýsingahorni
skólans.
Klukknahringing á
helgum stað
Við göngum um söguslóð áður
en biskupsvígslan hefst. Fyrsti
póstur er 27 metra hár klukku-
tum við dómkirkjuna. Minnisvarði
og grafhýsi Jóns biskups Arason-
ar. Þegar litið er yfír heimreið frá
turnglugga, kemur þjóðsagan upp
í hugann. (Líkfylgd Jóns Arasonar
nálgast og Líkaböng, aðalklukka
dómkirkjunnar, tekur að hringja
sjálfkrafa, svo ákaflega að hún
rifnar áður en kistan kemst heim
að Hólum.) Jón var harmdauði
þjóð sinni og náttúruvættum. Af-
taka hans, árið 1550, markar
þáttaskil í íslandssögunni. Sjálf-
stæðið glataðist í beinu framhaldi.
Hóladómkirkja
Póstur tvö er Hóladómkirkja.
Dýrmætt sögulegt Iistaverk,
sannarlega skoðunarvert eftir
gagngera endurnýjun fyrir þrem-
ur árum. Nú berst tónspilið frá
sérsmíðuðu pípuorgeli. Og búið
er að yfirfara Hólabrík, altaris-
töfluna frá 1524, biskupstíð Jóns
Arasonar, nú hið mesta augna-
yndi. Á hliðarvegg hangir fyrri
altaristafla frá 1470, ensk ala-
bastursbrík. En skírnarfontur er
íslensk listasmíði. Þessi elsta
steinkirkja Islands (frá 1763) er
afar vönduð að allri gerð. Útvegg-
ir eru metraþykkir úr blágrýti úr
Hólabyrðu og rauðum sandsteini.
Koparþakið frá árinu 1949 gerir
kirkjuna svipmeiri. Og listahlað-
inn gijótgarður umhverfís kirkj-
una frá miðjum 8. áratug er mik-
il prýði (við hleðsluna var komið
niður á jarðgöng sem áður lágu
milli kirkju og prestsseturs).
Prenthóllinn og
Guðbrandsbiblía
Við stöndum hjá steini við veg-
inn. Merkissteinn, klappaður með
nafni Jóns Arasonar biskups, síð-
asti steinn úr fyrstu prentsmiðju
landsins, sem Jón biskup lét flytja
inn um 1530. Og að hugsa sér;
aðeins 20 árum síðar var hann
hálshöggvinn eins og óþurftar-
maður á íslenskri fold. Guð-
brandsbiblía er án efa merkasta
rit prentsmiðjunnar. Með aðstoð
þeirrar helgu bókar tókst Guð-
brandi biskupi Þorlákssyni að
festa lúterskan sið í sessi á Islandi.
Gvendarbrunnur, Gvendar-
skál, Gvendaraltari
í kaþólskum löndum eru víða
þjóðardýrlingar. í lúthersku landi
eins og Islandi tíðkast slíkt ekki.
En látum samt hugann reika til
allra sem minna mega sín, við
minnisvarða Guðmundar góða
(neðan við tjaldsvæðið). íslenskir
höfðingjar þoldu ekki hvað Guð-
mundur „sóaði“ eigum Hólastóls
í að brauðfæða alla vesalinga og
flæmdu hann hvað eftir annað frá
Hólum.
Sjáum við hann ekki fyrir okk-
ur, þar sem hann flækist ofsóttur
um landið og Qöldi manns fylgir
honum. Það skaðar ekki að dreypa
á vígðu vatni úr Gvendarbrunni í
minningu hans. En við leggjum
ekki á okkur að ganga berfætt
upp að Gvendarskál og Gvendar-
altari, eins og þjóðsagan segir að
Guðmundur góði hafi gert hvern
föstudag til bænaiðkana. Gvend-
arskál er í miðri hlíð Hólabyrðu
og hefur myndast við framhlaup
úr fjallinu. Steinn mikill, sunnan
til í skálinni, heitir Gvendaraltari.
Gönguferð þangað tekur um 1-2
tíma.
Virkishóll og Galtarárlokkar
Ofan við kirkju í átt til fjalls
rís svonefndur Virkishóll. Já, trú-
arbaráttan var heit á Hólum. Hér
stóðu fallbyssuskyttur Jóns Ara-
sonar og litu út á grundir, hvort
danskir valdsmenn og útsendarar
lútherstrúar væru á ferð. Jón bisk-
up lét líka grafa Virkislág, lægð
sunnan við hólinn til varnar árás
úr þeirri átt. Nú er verið að end-
urnýja gamla torfbæinn sem kem-
ur til með að verða mesta staðar-
prýði. Móðir Sigríðar, fyrstu hús-
freyju þar, var Þóra Gunnarsdótt-
ir sem góðskáldið okkar, Jónas
gerði ódauðlega með ljóðstöfunum
„greiddi ég þér lokka við Galt-
ará ...“ Já, margt tengist saman
á Hólastað, trúarhelgi og sjálf-
stæðisbarátta, prentlist og saga.
Hólabiskup vígður til
embættis 1991
Og enn hringja kirkjuklukkur
á Hólum. Biskupsvígsla að hefj-
ast. Forsetinn okkar, frú Vigdís
Finnbogadóttir, hvítklædd með
fjaðrahatt, gengur fyrst til kirkju
ásamt föruneyti. Aldrei höfum við
átt fallegri forseta. Síðan kemur
skrúðfylking presta. Svörtu
prestshempurnar sýnast fornald-
arlegar í bjartviðrinu. En skærir,
litir í biskupsklæðum bæta sorg-
arlitinn upp. Kirkjan er fljótt full-
setin, enda minnsta dómkirkja
landsins. En það væsir ekki um
þá sem ekki komast inn, þeir sitja
undir messu og sóla sig við kór-
vegginn.
Erlendis leitum við að stöðum
sem búa yfír náttúrufegurð og
söguslóðum. Hólar sameina hvor-
utveggja en gefa gestum sínum
að auki þá miklu friðhelgi sem
býr í náttúru og söguslóð staðar-
ins.
Það tekur aðeins hálftíma að
renna upp að Hólum frá Sauðár-
króki. Nýlega er búið að laga
veginn og gaman að aka hringinn
um Skagafjörð til og frá Hóla-
stifti. oddný Sv. Björgvins