Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1993, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1993, Blaðsíða 9
Kirkjugarðurinn í Laugarnesi. Fyrir miðju garðsins stóð kirkjan. Ljósmyndir:B.F.E. Rústir hjáleigunnar Norðurkots. Einnig gekk hjáleigan undir nafninu Sjávarhól- ar eða Naustakot. Norðurkotsvör. Hér var sennilega útræði frá Laugarnesi sjálfu í öndverðu. landinu, þó að bæjarins sé ekki getið í Landnámu. í Njálu kemur bærinn við sögu og sýnir það aðeins að um miðja 12. öld- ina hefur verið talið að búskapur hafi ver- ið stundaður í Laugarnesi fyrir kristnitök- una. Fyrsti ábúandi Laugamess á að hafa verið Ragi nokkur Óleifsson hjalta, sem bjó í Laugardal samkvæmt Landnámu og Egilssögu. Bróðir Raga, Þórarinn, annar lögsögumaður á íslandi 950-969, á einnig að hafa búið að Laugamesi samkvæmt Njálu. Hann á að hafa flust þaðan, þegar bróðir hans Glúmur var drepinn, en hann var maður Hallgerðar langbrókar. Þó ekki sé hægt að líta á frásögn Njálu, né Egilssögu, um Laugarnes sem sagn- fræðilega haldbæra heimild, er hún ekki síður merkileg. Hún er aðeins öðmvísi hluti af menningararfi þjóðarinnar. Frásögnin sýnir meðal annars að Laugarnesið þótti það mikið býli að hæfa þótti Hallgerði langbrók, einum mesta kvenskörungi ís- lendingasagnanna og konu sjálfs Gunnars á Hlíðarenda. Á Hallgerður að hafa búið í Laugarnesi fýrir kynni sín af Gunnari og að honum látnum. Herma munnmæli að hún hafi verið heygð ekki langt frá bænum, þar sem nú em gatnamót Sæ- brautar og Laugamesvegar, eða öllu held- ur gatnamót Kleppsvegar og Laugames- vegar. Áður fyrr var þar hóll nokkur „sí- grænn vetur og sumai*'. Danskur fræði- maður, Kristian Kálund, skoðaði sennilega hólinn vorið 1873 og taldi hann hvorki vera kuml né leiði, heldur væri skýringin síðari tíma ágiskun. Önnur munnmæli herma að Hallgerður hvíli í kirkjugarðinum í Laugarnesi. Þegar unnið var að gatnagerð á áður- nefndum gatnamótum var hóllinn fjar- lægður og kom þá í ljós að hann var afleið- ing rauðablásturs, sem farið hefur fram einhvers staðar nærri. Rauðablástur er þegar jám er unnið úr mýrarrauða, en það var einmitt gert í upphafi byggðar í land- inu. Ömefni í nágrenninu tengjast senni- lega þessum atvinnuvegi, svo sem Rauð- arármýri, Rauðarárholt, Rauðarárgrafir og jafnvel Goshóll. Við skulum nú hlaupa yfir aldirnar og staðnæmast við árið 1824. Þá fékk Stein- grímur biskup Jónsson því framgengt að konungur veitti álitlegri upphæð til að byggja embættisbústað handa biskupi. Voru fengnir til verksins danskir iðnaðar- menn, sem fengu, auk launa, öl eftir þörf- um og pela af brennivíni upp á hvem dag á meðan verkið stóð yfir. Flutti biskup inn í húsið, sem kallað var Biskupstofa, Laug- arnesstofa eða bara Stofan, árið 1826. Var húsið eitt hið glæsilegasta á öllu ís- landi hið ytra, en hélt hins vegar hvorki vatni né vindum og var hin mesta „hráka- smíð“, hvort það var ölinu og brennivíninu um að kenna skal ósagt látið, en næsti biskup, Helgi Thordersen, þoldi ekki við í húsinu og flutti til Reykjavíkur. Taldi bisk- up að farartálmar á leiðinni til Reykjavík- ur væm slíkir, að ekki væri fært til Reykja- víkur á stundum. Átti hann fyrst og fremst við Rauðarána, sem var lækjarspræna að öllu jöfnu, en gat bólgnað lítils háttar annað veifið. Stofan stóð lengi eftir að biskup var farinn og var um síðir „herfileg að sjá, flestir gluggar brottnir, og ótérlegt inn að líta“. Hún var loks rifin nokkmm árum fyrir aldamótin. Þess má geta að Jón forseti Sigurðsson bjó í Stofunni árin 1830-33 og hafði sú dvöl örugglega allnokkur áhrif á lífshlaup Jóns og starf. Var Jón skrifari Steingríms biskups, sem átti sjálfur gagnmerkt hand- rita- og skjalasafn, auk hins mikla skjala- safns biskupsembættisins sem geymt var í Stofunni. Árið 1898 stóð fullbyggður holdsveikra- spítali á Laugarnesi, „ljót bygging og hrúguleg', en hann var gjöf danskra Odd- fellowa til íslendinga. Húsið var með stærstu timburhúsum sem byggð höfðu verið á íslandi og starfaði spítalinn í hart- nær hálfa öld. Síðasta hlutverk hússins var að þjóna breska setuliðinu, sem ekki endurgalt vinarhótið betur en svo að það brenndi húsið ofan af sér árið 1943. Eiginlegur búskapur lagðist af í Laugar- nesi um miðja öldina og síðustu bæjarhús- in voru rifin árið 1987. Fornleifar Á fornleifaskrá eru bæjarhóll Laugar- nessbæjarins, með bæjarstæði, kirkjugarði (og kirkju), tún, vegi og beðasléttum. Einn- ig em á skrá rústir hjáleignanna, Suður- kots og Norðurkots, varirnar Suðurkotsvör og Norðurkotsvör, rúst norðan við svokall- aða Spítalavör og að endingu horfinn gjall- hóll eftir rauðablástur. Aðrar minjar sem ekki eru á fornleifa- skrá em grunnar Stofunnar og Laugar- nesspítala, auk grunna húsakynna setul- iðsins enska. Jarðsjármælingar Jarðsjármælingar eru tiltölulega ný að- ferð við að skoða jarðlög án þess að til röskunar laganna komi. Er það einmitt einn helsti kostur þessarar aðferðar fyrir fornleifavörsluna, að hún skemmir ekki út frá sér og hægt er að athuga svæði, t.d. vegna skipulags, á tiltölulega skömm- um tíma. Þess ber þó að geta að reynslu- tíma aðferðarinnar er hvergi nærri lokið á íslandi. Helst vantar að grafa til að bera saman niðurstöður jarðsjárinnar og uppgraftar og sannreyna þannig árangur jarðsjárinnar. Aðferðin byggist á því að sendar eru rafsegulbylgjur niður í jörðina með einu loftneti og tekið við endurvarpi þeirra með öðm loftneti. Mismunandi rafsvörun efna framkallar endurvarp, sem sýnir skipan jarðlaga og óreglur í þeim. Aðferðinni hefur fyrst og fremst verið beitt í sam- bandi við jarðfræðiathuganir hvers konar, en á síðustu árum hafa fornleifafræðingar sýnt aðferðinni áhuga. Hefur aðferðin t.d. skilað mjög góðum árangri við Miðjarðar- hafið. Á íslandi var jarðsjá fyrst beitt árið 1992 í sambandi við fornleifarannsóknir í Viðey. Var þá kannað svæði fyrir sunnan og austan Viðeyjarstofu og sýndi könnun- in að rústa væri að vænta á hluta þessa svæðis. Nú í byijun árs 1993 voru gerðar jarð- sjármælingar á fornleifum á Laugarnes- inu. Hér verður aðeins minnst á niðurstöð- una á mælingum við kirkjugarðinn (leitin að kirkjunni). Niðurstaðan var í stuttu máli sú, að í miðjum garðinum stæði kirkja, 11x8 m á stærð og eins og vænta mátti sneri hún í austur-vestur. Aðeins era 10-20 cm niður á efstu brúnir veggjanna, sem eru úr torfí og grjóti, eða öðru hvora, allt að 3 m á breidd. Sýnir það að þeir hafa flast töluvert út og/eða að um er að ræða margar kynslóðir veggja ur kiiju/kirkjum, sem hefur færst eilítið til við endurgerð hveiju sinni. Víst er að möguleikar jarðsjárinnar hér á landi eru geysilegir, enda gefur augaleið að ef hægt er að skoða rúsir undir yfir- borði jarðar og án þess að hrófla við einu né neinu, kemur það minjavörslunni að miklu gagni. Þó má ekki ofmeta möguleik- ana í rannsóknarefnum og ætla að jarðsjá- in komi í stað fornleifarannsókna. Bæði er að aðferðina verður að þróa betur hér á landi og hana verður að sannreyna við beinan fomleifauppgröft. Jarðsjáin er eins og röntgentæki, sem staðfestir aðeins ákveðna eiginleika eða sjúkleika með mik- illi vissu, en lagfærir þá ekki né læknar. Lokaorð Laugarnestáin á sér gamla og merkilega sögu. Búsetu má a.m.k. rekja til aldamót- anna 1200 og sennilega miklu lengur. Saga Laugarness snertir t.d. almenna sögu landsins, sjúkrahússögu, kirkjusögu, lista- sögu, sögu Reykjavíkur og sögu hernáms á Islandi. Ekki er aðeins um að ræða minjar um lögbýlið Laugarnes á tánni, heldur kúra þar einnig minjar tveggja hjáleigna, sem eru góður vitnisburður um híbýli almúgans fyrr á öldum. Allar þessar minjar standa enn óhreyfðar og að mestu óskaddaðar, eða eins og frá þeim var gengið þegar hlutverki þeirra var lokið. Minnisvarðar liðinna kynslóða og liðinna búskaparhátta eru geymdir á Laugarnes- inu og það er okkar að ákveða hvort við viljum láta nesið um að geyma þá áfram í því umhverfi sem þar er og hefur alltaf verið. Slíkir staðir eru ekki á hveiju strái, síst innan þéttbýlis Reykjavíkur. Höfundur er fornleifafræðingur í Árbæjarsafni. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 22.MAÍ1993 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.