Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1993, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1993, Page 5
ur öll út á að sýna og sanna hvernig bænda- veldið breytti hraustum vinnumönnum í öfug- ugga. Þegar dýrafárinu sleppir byijar hann að ræða hommaskap vinnumanna og verður ekki betur séð en að hann komist að þeirri niðurstöðu að samkynhneigð karla (hann minnist ekki á konur í þessu sambandi) hafí verið svo algeng að valdsmenn kusu að líta framhjá henni. En hann er svo óheppinn að taka Olaf Davíðsson sem dæmi um afsprengi þessa kúgunarvalds bænda. Að vísu tekst Baldri að dæma Ólaf fyrir hommaskap. í augum Baldurs er þetta áfellisdómur sem ég er ekki endilega viss um að sé rétt. Að öðru leyti kýs Baldur að hafa sem fæst orð um Ólaf sem hann skoðar þó sem dæmigerða afurð vistarbands og bændakúgunar. Þetta tómlæti Baldurs sætir engri furðu þegar það er upplýst að Ólafur var ekki kominn út af vinnuhjúum. Faðir hans var prófastunnn á Hofi í Hörgárdal, Davíð Guðmundsson. Ólafur gekk á lærða skólann í Reykjavík, sigldi til Kaupmannahafnar og kenndi um skeið við Möðruvallaskóla. Hann var mikill vísindamað- ur, rannsakaði náttúruna, safnaði þjóðsögum, skrifaði um galdra og fjölmargt annað er birtist í bókum, blöðum og tímaritum. Ólafur var um sína daga þekktur fyrir hjálpsemi, hann matti ekkert aumt sjá. Enn eru til sög- ur af Ólafi sem hafðar eru til marks um hjartahlýju hans. Eitt sinn kom Valtýr litli (síðar ritstjóri Morgunblaðsins) að Ólafi á skyrtunni einni að ofan. Drengurinn varð forviða og spurði Ólaf hvers vegna hann væri snöggklæddur. „Ja, það kom hér karl- aumingi, sem hafði dottið af baki og útatað alla treyjuna sína, svo ég fékk honum jakk- ann minn, til þess að hann gæti komist í kirkj- una.“ Fyrir hvað skyldi þetta verk Ólafs og önn- ur svipuð, menntun hans og vísindamennska, teljast dæmigerð í fræðum Baldurs? Eitt er víst að Baldur hefur nauðgað Ólafi inn í það samhengi sem hann er settur í þáttaröðinni um þjóð í hlekkjum hugarfarsins. Rökleg tenging er engin. SattOgLogið Grípum „af handahófí" niður í sögusafni Baldurs. Eins og þegar hefur komið fram er hann oft á tíðum seinheppinn í vali þeirra, virðist ekki nenna að rannsaka málavöxtu eða hann Iokar augunum fyrir staðreyndum. Eitt þeirra dæma er hann notar til að styðja kenn- ingu sína um íslenska öfugugga- og forrétt- indasamfélagið er bamsfaðernismál Þórdísar Halldórsdóttur. Baldur dæmir Þingvöll illan stað. Þar komu saman þingmenn er létu sig litlu varða þó að þúsundir færu á vergang, þeir höfðu eingöngu skyldur við fámenna yfírstétt er allt átti og öllu réði. Þennan dóm sinn tengir hann lögleiðingu Stóradóms, „ægi- legustu hnútasvipu íslandssögunnar", Guð- brandi Þorlákssyni biskupi, Þórdísi og hug- lausum Skagfírðingum. Þórdís hafði alið barn árið 1608 en engu að síður staðhæft að þar hefði enginn karl komið við sögu. Arið 1612 fyrirskipaði höfuðs- maðurinn Herluf Daa að pynta konuna ef annað dygði ekki til en hún var þá mætt á Öxarárþing. Þessu neitaði hin „forherta bændaklíka", er kom á alþing að drekka sig fulla, drekkja stúlkum og höggva karla (eins og Baldur kennir), og gáfu lögmennirnir ekk- ert eftir þó að höfuðsmaðurinn hótaði að kæra fyrir konungi. Þrautaráð hans var að senda fógeta sinn, Jörgen Daníelson, norður að rétta yfir Þórdísi. Þar var Guðbrandur biskup mættur og þegar Jörgen gat ekkert fengið upp úr Þórdísi um föðurinn eggjaði biskupinn hann á að láta málið niður falla með þeim orðum að vænst væri að fela drottni þetta mál, er ofvaxið væri skilningi manna. En Jörgen lokaði eyrunum og tókst að iokum að pína játningu upp úr konunni. Þó var ekk- ert frekar aðhafst í sök Þórdísar fyrr en 1618 að tveir danskir umboðsdómarar, Jorgenn Windtt og Friderich Friis, komu til landsins sendir af konungi til að rannsaka stjórnarfar og embættisrekstur íslenskra valdsmanna. Og það voru þessir tveir sem á alþingi 1618 dæmdu Þórdísi til dauða. Um þetta má les'a í alþingisbókum íslands, IV. b., bls. 386-393 en þær bækur eru til á Háskólabókasafni og hefði Gísla Gunnarssyni verið innanhandar að fletta málinu upp. Eins og sést á framangreindu þá fer Bald- ur rangt með Þórdísarmálið. Hann segir að það hafi verið sofandaháttur ráðamanna er olli því að Þórdís var ekki tekin af fyrr en 1618 og ekki nóg með það. Samkvæmt hans eigin aðferðarfræði, þar sem eitt dæmi næg- ir til alhæfingar, þá mætti í ljósi þess sem komið er fram fullyrða að sjálfur Guðbrandur biskup hafi verið andsnúinn Stóradómi þar sem hann reyndi að eyða málinu með tilvísun í almættið. Sú ályktun væri engu að síður röng. í þessu sambandi er rétt að benda á það sem Páll Eggert Ólason segir í Mönnum og menntum, 3. bindi, bls. 744. „Sennilega myndi og alþingi hafa tekizt að fá numið úr lögum Stóradóm eða mýkt hann til muna, ef Guðbrandur biskup hefði ekki verið svo öflugur talsmaður hans sem nú var sýnt.“ Þórdísarmálið styður óneitanlega við þessa fullyrðingu um lögmennina. Og alveg er það út í hött að kenna Skagfirðingum um aftök- una og segja hana óafmáanlegan smánar- blett á þeim. Með sömu rökum mætti álasa Reykvíkingum fýrir handtöku og fangelsisvist saklausra manna í Geirfinnsmálinu forðum. Borgardraumurinn Og LOKAORÐIN; RAUNFIRRT Hjal „Sveitabærinn var bólstaður ólýsanlegra grimmdarverka“, segir Baldur. Hann greinir okkur frá þjóðsögunni um Húsavíkur-Jón og útleggur hana þannig að helvíti Jóns hafi verið ísland þar sem kynslóðirnar kvöldust og var öllu verra en helvítið er Kölski réði yfír. Til mótvægis dregur hann upp fagra mynd af borgarsamfélagi Evrópu. Þessi tálsýn er ekki svaraverð en aðferð Baldurs að láta eins og íslendingar hafi verið sér á báti um grimmd, öfuguggahátt og refsihörku er ámælisverð. Hann leyfir sér að bera ísland saman við erlend ríki en aðeins þegar það hentar honum sjálfum og málstaðnum. Hon- um dettur ekki í hug að greina frá því að aftökur ,í borgum Evrópu voru oft fram- kvæmdar með þejm hrottaskap að ekki varð við neitt jafnað á íslandi (sjá t.d. Michel Fouc- ault: Discipline and Punish, Middlesex 1977). Og hvernig væri að Gísli Gunnarsson benti Baldri á að lesa hina ágætu bók Ingu Huldar Hákonardóttur, Fjarri hlýju hjónasængur. Að minnsta kosti mættu þeir félagarnir hugleiða aðeins það sem Inga Huld segir á bls. 83 í bók sinni: „Því fer einnig fjarri að Stóridómur hafi verið fundinn upp sérstaklega til að kvelja íslendinga. Dönsk lög, hvað þá þýsk, voru síst mildari. ... Enda vildu Færeyingar heldur láta dæma sig eftir Stóradómi en dönskum lögum, og var svo gert fram yfir 1650 og jafnvel lengur.“ Það er vægast sagt erfitt að taka undir þá skoðun Baldurs að íslenskt samfélag, allt til 1893, hafi verið gegnsýrt grimmd og bar- barisma öndvert við það sem gerðist í borgars- amfélögum Evrópu. Raunar virðast niðurlags- orðin, sem hann flutti sjálfur í fjórða þætti, benda til þess að honum hafi ekki verið al- vara með allt það sem á undan var gengið. Hann segir það sögulegt slys að fáfróðir norskir sveitamenn skyldu'nema hér land og ná að sölsa allt undir sig. Þetta getur svo sem verið rétt en þá er það kenningasmiðsins að færa sönnur á mál sitt. En svo heldur hann áfram og segir: ísland þarfnaðist öðruvísi þjóðar, til dæmis eskimóa. Mér er spurn; hvað með borgarmenning- una? Inúitar (þeir líta á það sem móðgun að vera kallaðir eskimóar enda er það uppnefni ættað frá indíánum) hafa aldrei getið sér orð fyrir að reisa bæi og borgir. þeir voru veiði- menn og máttu rétt eins og bændur þola hungur og harðæri þegar illa áraði. Mér er það hulin ráðgáta hvað Baldur meinar með þessum lokaorðum sínum sem eru í takt við annað í þáttaröðinni um þjóð í hlekkjum hug- arfarsins, gjörsneydd röklegri hugsun. Falleinkun Það má nánast segja að ég hafi gripið af handahófi niður í þáttaröð Baldurs Her- mannssonar, svo margt er þar athugavert sem ég hef ekki minnst á enn. Engu að síður sá stjórn menningarsjóðs útvarpsstöðva ástæðu til að veita tæpum 9 milljónum króna til þátta- gerðarinnar. Hveijar voru forsendur sjóðs- stjórnarinnar fyrir styrkveitingunni? Áður en stjórnin svarar vil ég draga athygli hennar að orðum Baldurs um upphaf 20. aldarinnar þegar hann segir eitthvað á þessa leið: Bænd- ur fögnuðu henni með því að ríða í kaupstað og mótmæla símasambandi við útlönd. Kaup- staðarferð bænda var táknræn fyrir 20. öld- ina. Hún birtir þær andstæður sem dýpstar eru með þjóðinni og hafa verið svo frá upp- hafi byggðar. Eg skal fúslega viðurkenna að ég veit ekki hvernig á að skilja þennan texta. Hann gefur þó óneitanlega í skyn að bændur hafi staðið gegn tækniframförum og því að ísland kæm- ist í fjarskiptasamband við umheiminn. Sann- leikurinn er sá að deilan um símann stóð ekki á milli bænda annars vegar og kaupstað- arbúa hins vegar. Þetta var pólitísk deila á milli fylgismanna Hannesar Hafsteins og andstæðinga hans og hún var ekki um það hvort ætti að tengja ísland við umheiminn heldur hvernig tengingin ætti að vera, með sæstreng eða loftskeytum Marconis. Eg hlýt að spyija menningarsjóðs-stjórn- ina, og Gísla Gunnarsson, hreint út: Eru þættir Baldurs fullboðleg íslandssaga að ykk- ar áliti? Og þar sem mér er sagt að Guðni Guðinundsson, rektor MR, hafi verið einn þremenninganna er veittu Baldri milljónirnar vil ég beina þeirri spurningu til hans hvort sá sögukennari fyrirfinnist í MR er hefði gefið Baldri annað en falleinkunn fyrir þátta- röðina um þjóð í hlekkjum? Höfundur er sagnfræðingur og starfar við að skrifa sögu Akureyrar. ÁSGEIR J. JÓHANNSSON Vorhret Nú brennur kvíði í brjósti þó brosti sól að morgni og gróandinn gekk um tún. Eg sá útaf svörtuloftum sviphugan norðanfara hífa segi að hún. Bakvið blámóðu vorsins bylti hálofta skýum kólkuröst komandi dags. Er sem ólmur hlaupi ákaflega brúna Sleipnir með flaxandi fax. Enn ríkir vetur á vori, vindbólginn neitar að hörfa, grána því gömul fjöll. Læðast úr leyndum kima, ljósfælin bakvið tjöldin, kuldans tryggðatröll. Þó stormveður steypist af fjöllum og strjúki burt ilm á vori, vakir von og þrá. Upp mun aftur rísa algróin jörð og gefa blómangan brjóstum frá. Höfundur er umsjónarmaður í skóla. GUÐRÚN BJÖRK GUÐSTEINSDÓTTIR ÆT Onýt mynt „Einsogþúsérð eru fáar konur sem vinna hér, ólíkt venjulegum bönkum, “ sagði starfsmannastjóri Seðlabankans, stoltur. „Þessa deild köllum við ónýta mynt,“ bætti hann við. „Hér vinna konurnar. Hér tökum við ónothæfa seðla úr umferð. “ Höfundur er bókmenntakennari við Háskóla íslands. SILVÍA LÁRA EINARSDÓTTIR Hið litla Lítil kona lítill maður lítið barn. Hér er lítill heimur. Þau sameinast í eitt stórt. Hið litla er horfið, farið, orðið að engli. Engill sem svífur, varðveitir allt, stóra heiminn. Engir stórir englar eru til. Höfundur er nemi í Reykjavík. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3.JÚLÍ1993 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.